Fleiri fréttir

Reykhólahreppur dæmdur til greiðslu bóta

Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag að ekki sé leyfilegt að ráða aðra en sjúkraliða til sérhæfðra umönnunar og eða hjúkrunarstarfa nema að undangengin auglýsing hafi ekki borið árangur.

Raforkuverð Alcoa ekki gert opinbert

Stjórn Landsvirkjunar ákvað á fundi sínum í dag að það raforkuverð sem Alcoa greiðir til Landsvirkjunar verði ekki gert opinbert. Helgi Hjörvar, stjórnarmaður í stjórn Landsvirkjunar, lagði tillöguna fram eftir að forstjóri Alcoa sagði fyrirtækið greiða helmingi hærra verð fyrir raforku til álvers í Brasilíu. Hann hefur síðan sagt að hann hafi farið með rangt mál.

GPS-tæki fræðir farþegana

Avis-bílaleigan á Íslandi býður nú upp á nýja tækni sem hefur verið þróuð þar sem rödd fararstjóra hefur verið tengd við GPS-tæki. Tækið virkar þannig að þegar bíllinn er við sögufrægan stað hefur tækið upp raust sína og segir farþegum allt það helsta frá viðkomandi stað

Tveir drengir særðust í sprengjuárás

Tveir drengir særðust þegar sprengjuárás var gerð á bílalest nálægt bandrískri herstöð í Bagram, norður af Kabúl, höfuðborg Afganistans, í morgun. Að sögn afganskra stjórnvalda var um sjálfsvígssprengjuárás að ræða og árásarmaðurinn sá eini sem lést.

Alkatiri segir af sér

Miri Alkatiri, forsætisráðherra Austur-Tímor, hefur sagt af sér embætti svo hægt verði að tryggja frið í landinu. Þetta tilkynnti hann óvænt á blaðamannafundi í höfuðborginni Dili í morgun. Forsætisráðherrann fráfarandi hefur verið gerður ábyrgur fyrir mannskæðum átökum í landinu síðustu vikur.

Þróa nýtt lyf við astma

Allt útlit er fyrir að nýtt lyf við astma komi á markað innan fárra ára. Þróun lyfsins er komin langt á veg en lyfið hefur jákvæð áhrif á bólguþátt sem tengist astma en er þó ekki steralyf. Íslensk erfðagreining hóf lyfjaprófanir á tilraunalyfi við astma í maí 2005 í samstarfi við erlent lyfjafyrirtæki sem upphaflega þróaði lyfið við öðrum sjúkdómi.

Grimmilegum hefndaraðgerðum hótað

Ísraelsk stjórnvöld hóta grimmilegum hefndaraðgerðum verði ungur ísraelskur hermaður, sem herskáir Palestínumenn rændu í gær, ekki látinn laus þegar í stað. Spenna hefur magnast við landamærin að Gaza-svæðinu síðasta sólahringinn vegna málsins.

Stjórnendur Baugs vildu semja við Jón Gerald

Stjórnendur Baugs vildu semja við Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélaga sinn, um uppgjör á öllum skuldum og skuldbindingum við hann eftir að Baugur höfðaði mál á hendur Jóni Gerald í Flórída á sínum tíma. Þetta kemur fram í viðtali við Jón í Morgunblaðinu í morgun.

Ósamið við alla ríkisstarfsmenn

Ósamið er við alla ríkisstarfsmenn eftir að samkomulag náðist á hinum almenna vinnumarkaði um að framlengja kjarasamninga. Starfsmannafélag ríkisstarfsmanna hefur óskað eftir launaviðræðum við fjármálaráðuneytið.

Ætlar að bæta viðskiptavinum sínum upp álagninguna

Eigandi Bæjarins bestu hyggst bæta viðskiptavinum sínum upp óvænta og stórfellda verðhækkun á pylsu og kók aðfaranótt sunnudags. Starfsmaður í afleysingum ákvað upp á sitt einsdæmi að setja næturálagningu á þennan þjóðarrétt Íslendinga umrædda nótt.

Fleiri karlar í atvinnuleit

Heldur fleiri karlar en konur voru að leita sér að starfi hér á landi í apríl og maí sl., eða 12% karla og 8% kvenna. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði fyrir Jafnréttisráð. Ekki er marktækur munur milli kynja á því hvort skipt hafi verið um vinnuveitanda á síðastliðnum tveimur árum.

22 fórust í flóðum á Indónesíu

Að minnsta kosti tuttugu og tveir fórust í flóðum á Indónesíu um liðna helgi en þar hefur rignt töluvert að undanförnu. Rigningartímabil stendur nú yfir og verða þá oft aurskriður og flóð á Indónesíu.

Gefur 2.800 milljarða til góðgerðarmála

Bandaríski milljarðamæringurinn Warren Buffett, annar ríkasti maður í heimi, hefur ákveðið að gefa jafnvirði rúmlega 2.800 milljarða íslenskra króna til góðgerðarmála. Buffett hefur áður sagt að stærstum hluta auðæfa sinna yrði varið til góðra verka eftir dauða sinn.

Þrumuveður í Washington og nærliggjandi svæðum

Björgunarsveitarmenn í Washington og á nærliggjandi svæðum í Bandaríkjunum hafa haft í nógu að snúast síðasta sólarhringinn en þar hefur rignt töluvert og þrumuveður haldið vöku fyrir íbúum. Bjarga þurfti nokkrum ökumönnum ofan af bílum sínum þar sem stefndi í að þeir færu á kaf þar sem flætt hefur.

Danska ´68 kynslóðin stefnir í velferðarveislu

Danska sextíu og átta kynslóðin, oft kölluð hippakynslóðin, sem á sínum tíma hafnaði allri efnishyggju og ríkisforsjá, stefnir nú í einhverja mestu velferðarveislu í sögu Danmerkur, að mati dönsku eftirlaunastofnunarinnar.

Mannræningjar segjast hafa myrt gísla

Mannræningjar, sem rændu fjórum starfsmönnum rússneska sendiráðsins í Írak í byrjun mánaðarins, segjast hafa myrt fjórmenningana. Myndband sem birtist á Netinu í gær sýnir einn mann afhöfðaðan og annan skotinn, auk lík hins þriðja. Fjórði maðurinn er hins vegar hvergi sjáanlegur.

Jákvæðar niðurstöður nýrra lyfjaprófana

Íslensk erfðagreining kynnti í dag fyrstu niðurstöður fyrirtækisins á tilraunalyfi meðal astmasjúklinga. Lyfið reyndist hafa jákvæð áhrif á ýmsa þætti lungnastarfsemi og án þess að nokkrar alvarlegar aukaverkanir kæmu fram.

Landsmót hestamanna hefst í dag

Búist er við allt að 12 þúsund tvífættum gestum á Landsmót hestamanna, sem hefst á Vindheimamelum í Skagafirði í dag og stendur í viku. Þar munu hestamenn og hestaræktendur leiða saman um þúsund hesta sína, allt gæðinga.

Sumar hálendisleiðir enn lokaðar fyrir umferð

Enn eru nokkrar hálendisleiðir lokaðar fyrir allri umferð meðan frost er að fara úr jörð en annars er færð víðast hvar með eðlilegu móti miðað við árstíma. Næstkomandi fimmtudag verður gefið út kort um leyfðan akstur á vegum í óbyggðum.

200 laxar veiðst í Norðurá

Um 200 laxar hafa veiðst í Norðurá, það sem af er veiðitímabilinu sem mun vera meiri veiði en í nokkurri annarri á. Rétt er að taka fram að þar hefst veiðinn fyrr en í mörgum öðurm ám og þar veiða fleiri í einu en víða annarsstaðar.

Mannfall í Jóhannesarborg

Tólf létust þegar skotbardagi braust út á milli lögreglumanna og búðarræningja í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í gær. Fjórir lögreglumenn voru á meðal þeirra sem féllu í átökunum.

Ráðherrafundur EFTA hefst í dag

Ráðherrafundur EFTA ríkjanna hefst á Höfn í Hornafirði í dag og lýkur á morgun. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra stýrir fundinum en Ísland fer nú með formennsku í EFTA.

Herforingi féll á Sri Lanka

Herforingi í stjórnarher Srí Lanka féll í sjálfsmorðssprengjuárás nærri Kólombo, höfuðborg landsins, í morgun. (LUM) Þrír hermenn eru einnig sagðir hafa fallið í árásinni. Lögreglan í Kólombó segir árásarmennina hafa verið fleiri en einn, án þess að greina frá hversu margir þeir voru, og þeir hafi keyrt á vélhjólum upp að bifreið fórnarlambanna.

Botninn dottinn úr síldveiði í bili

Botninn virðist vera dottinn úr síldveiðunum í bili og eru nú öll síldveiðiskipin að leita úti fyrir norðanverðu Ausutrlandi, samkvæmt fregnum af miðunum í morgun.

Sinueldur við Fossatún

Slökkvilið og lögregla í Borgarnesi brugðust skjótt við þegar tilkynnt var um sinueld við Fossatún, skammt frá bænum um miðjan dag í gær, enda björgunarmenn minnugir stórbrunanna á Mýrum í vor. Tókst björgunarmönnum að slökkva eldinn á rúmri klukkustund en slökkviliðsmenn vöktuðu svæðið lengur.

Grimmilegum hefndaraðgerðum hótað

Spenna hefur magnast við landamæri að Gaza-svæðinu síðan ungum ísraelskum hermenni var rænt þar í árás herskárra Palestínumanna á varðstöð Ísraelshers á svæðinu í gærmorgun. Hermenn streyma nú að landamærunum og með þeim vopn, skriðdrekar og annar búnaður. Ísraelar hóta árásum verði hermaðurinn ekki látinn laus.

Steytti á skeri í Berufirði

Betur fór en á horfðist þegar hraðfiskibáturinn Anna var að koma úr róðri í gær og steytti á skeri í Berufirði, með þeim afleiðingum að mikill leki kom að bátnum. Skipstjórinn ákvað að sigla honum upp í fjöru og kalla eftir aðstoð björgunarsveitar, slökkviliðs og lögreglu, sem komu á vettvang.

Forsætisráðherrann reiðubúinn að segja af sér

Forsætisráðherra Austur-Tímor, Miri Alkatiri, segist reiðubúinn að segja af sér embættinu. Þetta tilkynnti hann á blaðamannafundi í morgun en tilkynningin þykir koma mjög á óvart.

Mínúturnar á milljónir króna

Það eru Íslendingar sem framleiða það efni sem selst hraðast í heiminum í dag. Í grein danska blaðsins Politiken er fjallað ítarlega um Latabæjarþættina og sagt að það kosti sextíu og tvær milljónir að framleiða hvern þátt, eða tvær komma sex milljón krónur mínútan.

Hefur heyrt að starfsfólki hafi verið hótað

Trúnaðarmaður starfsfólks Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli hefur heyrt að erlendum starfsmönnum hafi verið hótað brottvísun úr landi ef þeir tækju þátt í mótmælaaðgerðum starfsfólksins í dag. Litlar tafir urðu á millilandaflugi frá Keflavíkurflugvelli í morgun þrátt fyrir aðgerðir starfsfólks Flugþjónustunnnar.

Hætta við skólagöngu vegna langra biðlista

Dæmi eru um að nýbúar hafi hreinlega gefist upp á að fara í nám á efri skólastigum hér á landi þar sem biðin til að komast á þéttsetna bekki framhaldsskólanna er hreinlega of löng.

Bíða eftir framlengingu dvalarleyfis

Hjón með tvö ung börn,sem dvalið hafa hér á landi í þrjú ár, bíða nú eftir framlengingu dvalarleyfis. Börnin þeirra þekkja ekkert annað land en Ísland og segir móðir þeirra ekki geta hugsað til þess að þau fái ekki að dvelja hér áfram. Yana frá Úsbekistan og Ramin Sana frá Afganistan voru meðal hælisleitenda árið 2003. Þeim fæddist sonur á meðan þau biðu eftir úrskurði um hæli hér á landi og mál þeirra vakti athygli á þeim tíma. Dvalarleyfi þeirra er nú runnið út en þau bíða eftir svari um hvort þau fái að dveljast hér til ársins 2007. Eldri sonur þeirra Thomas verður þriggja ára í nóvember. Hann þekkir ekkert annað land en Ísland og það gerir yngri sonurinn Daniel ekki heldur en hann er reyndar nýorðinn mánaðar gamall og þekkir því fátt annað en mjúkan móðurfaðminn. Jana og Ramin hafa bæði stundað nám hér á landi þó Jana sé nú frá námi af skiljanlegum ástæðum. Hana dreymir um að fá að komast í Kennaraháskólann. Þau hafa komið sér vel fyrir á Íslandi og vona að fá að vera áfram enda vill Jana ekki einu sinni hugsa um hvað yrði ef dvalarleyfi þeirra verður ekki framlengt. Þau segja Íslendinga hafa verið þeim hjónum afar góð.

Fjórbrotnaði á ökkla við lundaskoðun

Bandarísk kona fótbrotnaði illa í Stórhöfða síðdegis í gær. Læknisskoðun leiddi í ljós, að konan var fjórbrotin við ökkla og var hún flutt með sjúkraflugvél til Reykjavíkur þar sem gert var að brotinu.

Lögreglan lokar af hluta af Stokkhólmi

Sænska lögreglan lokaði af hluta Stokkhólms í morgun, eftir að íbúi tilkynnti henni að hann hefði séð mann gangandi um með sprengju fasta utan á sér og væri grátandi. Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um málið en það er nú í rannsókn.

Krefjast þess að forsætisráðherrann segi af sér

Æðstu menn stjórnarflokksins í Austur-Tímor hittust í morgun til að ræða framtíð forsætisráðherrans en talið er að reynt verði að koma honum frá. Þúsundir mótmælenda komu saman við þinghúsið í gær og kröfðust þess að Alkatiri segði af sér og að þingið yrði leyst upp en átök hafa verið mikil í landinu vegna málsins. Gusmao forseti landsins, sem nýtur mikilla vinsælda, hótaði í vikunni að segja af sér ef Alkatiri forsætisráðherra gerði það ekki. Þegar Alkatiri neitaði að segja af sér dró Gusmao hótun sína hins vegar til baka. Búist er við að það kmoi í ljós seinna í dag hvað gert verður í málinu.

Japanar fara frá Írak

Japönsku herstöðinni í Írak verður lokað í dag. Enginn japanskur hermaður hefur fallið í átökum í landinu en þeir eru um sex hundruð talsins.

Þurfa tíma

Íranar krefjast þess að Bandaríkjamenn sýni þolinmæði á meðan þeir ákveða hvort þeir taki tilboði þeirra og hætti við auðgun úrans. Bush Bandaríkjaforseti vill svar strax.

Millilandaflug að mestu á áætlun

Millilandaflug er að mestu á áætlun þrátt fyrir aðgerðir starfsmanna IGS, dótturfélags Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð. En það lagði niður störf í morgun til að reyna knýja fram bætur á kaupum og kjörum sínum. Búist var við meiriháttar seinkunum á flugi til og frá landsins. Svo fór þó ekki. Yfirmenn gengu í störf þeirra sem lögðu niður vinnu og einhverjir starfsmenn tóku ekki þátt í aðgerðunum en þeim lauk klukkan átta. Aðeins urðu smávægilegar breytingar á flugi. Á starfsmannafundi sem haldinn var í gær ákvað starfsfólkið að leggja aftur niður störf næstu helgi, næðust ekki samningar um við Icelandair. Fulltrúar starfsmanna funduðu með Jóni Karli Ólafssyni, forstjóra Icelandair, milli klukkan sjö til átta. Starfsmennirnir sögðu fundinn hafa verið góðan og eru þeir bjartsýnir á framhaldið.

Stór hluti starfsmanna IGS hefur lagt niður vinnu

Stór hluti starfsmanna IGS, Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli, hefur lagt niður vinnu. Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, segir yfirmenn hafa gengið í nokkur af störfunum til að reyna að koma í veg fyrir miklar tafir. Innritun gengur vel og enn eru engar tafir en hann segir erfitt að segja til um hvað verður. Starfsmenn Flugþjónustunnar eru nú að safnast saman í komusal flugstöðvarinnar.

Skógarhöggsmaður Íslands varði titilinn

Skógarhöggsmaður Íslands varði titil sinn á Íslandsmeistaramótinu í skógarhöggi sem haldið var í Hallormsstaðaskógi í blíðskaparveðri í dag. Lárus Heiðarsson skógræktarráðunautur stóð uppi sem sigurvegari í lok dagsins og heldur því titlinum skógarhöggsmaður Íslands annað árið í röð.

Sjá næstu 50 fréttir