Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannræningjar segjast hafa myrt gísla Mannræningjar, sem rændu fjórum starfsmönnum rússneska sendiráðsins í Írak í byrjun mánaðarins, segjast hafa myrt fjórmenningana. Myndband sem birtist á Netinu í gær sýnir einn mann afhöfðaðan og annan skotinn, auk lík hins þriðja. Fjórði maðurinn er hins vegar hvergi sjáanlegur. 26.6.2006 09:45
Jákvæðar niðurstöður nýrra lyfjaprófana Íslensk erfðagreining kynnti í dag fyrstu niðurstöður fyrirtækisins á tilraunalyfi meðal astmasjúklinga. Lyfið reyndist hafa jákvæð áhrif á ýmsa þætti lungnastarfsemi og án þess að nokkrar alvarlegar aukaverkanir kæmu fram. 26.6.2006 09:43
Landsmót hestamanna hefst í dag Búist er við allt að 12 þúsund tvífættum gestum á Landsmót hestamanna, sem hefst á Vindheimamelum í Skagafirði í dag og stendur í viku. Þar munu hestamenn og hestaræktendur leiða saman um þúsund hesta sína, allt gæðinga. 26.6.2006 09:30
Sumar hálendisleiðir enn lokaðar fyrir umferð Enn eru nokkrar hálendisleiðir lokaðar fyrir allri umferð meðan frost er að fara úr jörð en annars er færð víðast hvar með eðlilegu móti miðað við árstíma. Næstkomandi fimmtudag verður gefið út kort um leyfðan akstur á vegum í óbyggðum. 26.6.2006 09:18
200 laxar veiðst í Norðurá Um 200 laxar hafa veiðst í Norðurá, það sem af er veiðitímabilinu sem mun vera meiri veiði en í nokkurri annarri á. Rétt er að taka fram að þar hefst veiðinn fyrr en í mörgum öðurm ám og þar veiða fleiri í einu en víða annarsstaðar. 26.6.2006 09:15
Mannfall í Jóhannesarborg Tólf létust þegar skotbardagi braust út á milli lögreglumanna og búðarræningja í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í gær. Fjórir lögreglumenn voru á meðal þeirra sem féllu í átökunum. 26.6.2006 09:00
Ráðherrafundur EFTA hefst í dag Ráðherrafundur EFTA ríkjanna hefst á Höfn í Hornafirði í dag og lýkur á morgun. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra stýrir fundinum en Ísland fer nú með formennsku í EFTA. 26.6.2006 08:58
Herforingi féll á Sri Lanka Herforingi í stjórnarher Srí Lanka féll í sjálfsmorðssprengjuárás nærri Kólombo, höfuðborg landsins, í morgun. (LUM) Þrír hermenn eru einnig sagðir hafa fallið í árásinni. Lögreglan í Kólombó segir árásarmennina hafa verið fleiri en einn, án þess að greina frá hversu margir þeir voru, og þeir hafi keyrt á vélhjólum upp að bifreið fórnarlambanna. 26.6.2006 08:45
Botninn dottinn úr síldveiði í bili Botninn virðist vera dottinn úr síldveiðunum í bili og eru nú öll síldveiðiskipin að leita úti fyrir norðanverðu Ausutrlandi, samkvæmt fregnum af miðunum í morgun. 26.6.2006 08:30
Sinueldur við Fossatún Slökkvilið og lögregla í Borgarnesi brugðust skjótt við þegar tilkynnt var um sinueld við Fossatún, skammt frá bænum um miðjan dag í gær, enda björgunarmenn minnugir stórbrunanna á Mýrum í vor. Tókst björgunarmönnum að slökkva eldinn á rúmri klukkustund en slökkviliðsmenn vöktuðu svæðið lengur. 26.6.2006 08:15
Grimmilegum hefndaraðgerðum hótað Spenna hefur magnast við landamæri að Gaza-svæðinu síðan ungum ísraelskum hermenni var rænt þar í árás herskárra Palestínumanna á varðstöð Ísraelshers á svæðinu í gærmorgun. Hermenn streyma nú að landamærunum og með þeim vopn, skriðdrekar og annar búnaður. Ísraelar hóta árásum verði hermaðurinn ekki látinn laus. 26.6.2006 08:00
Steytti á skeri í Berufirði Betur fór en á horfðist þegar hraðfiskibáturinn Anna var að koma úr róðri í gær og steytti á skeri í Berufirði, með þeim afleiðingum að mikill leki kom að bátnum. Skipstjórinn ákvað að sigla honum upp í fjöru og kalla eftir aðstoð björgunarsveitar, slökkviliðs og lögreglu, sem komu á vettvang. 26.6.2006 07:45
Forsætisráðherrann reiðubúinn að segja af sér Forsætisráðherra Austur-Tímor, Miri Alkatiri, segist reiðubúinn að segja af sér embættinu. Þetta tilkynnti hann á blaðamannafundi í morgun en tilkynningin þykir koma mjög á óvart. 26.6.2006 07:27
Mínúturnar á milljónir króna Það eru Íslendingar sem framleiða það efni sem selst hraðast í heiminum í dag. Í grein danska blaðsins Politiken er fjallað ítarlega um Latabæjarþættina og sagt að það kosti sextíu og tvær milljónir að framleiða hvern þátt, eða tvær komma sex milljón krónur mínútan. 25.6.2006 19:19
Hefur heyrt að starfsfólki hafi verið hótað Trúnaðarmaður starfsfólks Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli hefur heyrt að erlendum starfsmönnum hafi verið hótað brottvísun úr landi ef þeir tækju þátt í mótmælaaðgerðum starfsfólksins í dag. Litlar tafir urðu á millilandaflugi frá Keflavíkurflugvelli í morgun þrátt fyrir aðgerðir starfsfólks Flugþjónustunnnar. 25.6.2006 19:14
Hætta við skólagöngu vegna langra biðlista Dæmi eru um að nýbúar hafi hreinlega gefist upp á að fara í nám á efri skólastigum hér á landi þar sem biðin til að komast á þéttsetna bekki framhaldsskólanna er hreinlega of löng. 25.6.2006 19:00
Bíða eftir framlengingu dvalarleyfis Hjón með tvö ung börn,sem dvalið hafa hér á landi í þrjú ár, bíða nú eftir framlengingu dvalarleyfis. Börnin þeirra þekkja ekkert annað land en Ísland og segir móðir þeirra ekki geta hugsað til þess að þau fái ekki að dvelja hér áfram. Yana frá Úsbekistan og Ramin Sana frá Afganistan voru meðal hælisleitenda árið 2003. Þeim fæddist sonur á meðan þau biðu eftir úrskurði um hæli hér á landi og mál þeirra vakti athygli á þeim tíma. Dvalarleyfi þeirra er nú runnið út en þau bíða eftir svari um hvort þau fái að dveljast hér til ársins 2007. Eldri sonur þeirra Thomas verður þriggja ára í nóvember. Hann þekkir ekkert annað land en Ísland og það gerir yngri sonurinn Daniel ekki heldur en hann er reyndar nýorðinn mánaðar gamall og þekkir því fátt annað en mjúkan móðurfaðminn. Jana og Ramin hafa bæði stundað nám hér á landi þó Jana sé nú frá námi af skiljanlegum ástæðum. Hana dreymir um að fá að komast í Kennaraháskólann. Þau hafa komið sér vel fyrir á Íslandi og vona að fá að vera áfram enda vill Jana ekki einu sinni hugsa um hvað yrði ef dvalarleyfi þeirra verður ekki framlengt. Þau segja Íslendinga hafa verið þeim hjónum afar góð. 25.6.2006 18:42
Fjórbrotnaði á ökkla við lundaskoðun Bandarísk kona fótbrotnaði illa í Stórhöfða síðdegis í gær. Læknisskoðun leiddi í ljós, að konan var fjórbrotin við ökkla og var hún flutt með sjúkraflugvél til Reykjavíkur þar sem gert var að brotinu. 25.6.2006 12:13
Lögreglan lokar af hluta af Stokkhólmi Sænska lögreglan lokaði af hluta Stokkhólms í morgun, eftir að íbúi tilkynnti henni að hann hefði séð mann gangandi um með sprengju fasta utan á sér og væri grátandi. Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um málið en það er nú í rannsókn. 25.6.2006 11:49
Krefjast þess að forsætisráðherrann segi af sér Æðstu menn stjórnarflokksins í Austur-Tímor hittust í morgun til að ræða framtíð forsætisráðherrans en talið er að reynt verði að koma honum frá. Þúsundir mótmælenda komu saman við þinghúsið í gær og kröfðust þess að Alkatiri segði af sér og að þingið yrði leyst upp en átök hafa verið mikil í landinu vegna málsins. Gusmao forseti landsins, sem nýtur mikilla vinsælda, hótaði í vikunni að segja af sér ef Alkatiri forsætisráðherra gerði það ekki. Þegar Alkatiri neitaði að segja af sér dró Gusmao hótun sína hins vegar til baka. Búist er við að það kmoi í ljós seinna í dag hvað gert verður í málinu. 25.6.2006 11:43
Japanar fara frá Írak Japönsku herstöðinni í Írak verður lokað í dag. Enginn japanskur hermaður hefur fallið í átökum í landinu en þeir eru um sex hundruð talsins. 25.6.2006 11:41
Þurfa tíma Íranar krefjast þess að Bandaríkjamenn sýni þolinmæði á meðan þeir ákveða hvort þeir taki tilboði þeirra og hætti við auðgun úrans. Bush Bandaríkjaforseti vill svar strax. 25.6.2006 11:26
Millilandaflug að mestu á áætlun Millilandaflug er að mestu á áætlun þrátt fyrir aðgerðir starfsmanna IGS, dótturfélags Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð. En það lagði niður störf í morgun til að reyna knýja fram bætur á kaupum og kjörum sínum. Búist var við meiriháttar seinkunum á flugi til og frá landsins. Svo fór þó ekki. Yfirmenn gengu í störf þeirra sem lögðu niður vinnu og einhverjir starfsmenn tóku ekki þátt í aðgerðunum en þeim lauk klukkan átta. Aðeins urðu smávægilegar breytingar á flugi. Á starfsmannafundi sem haldinn var í gær ákvað starfsfólkið að leggja aftur niður störf næstu helgi, næðust ekki samningar um við Icelandair. Fulltrúar starfsmanna funduðu með Jóni Karli Ólafssyni, forstjóra Icelandair, milli klukkan sjö til átta. Starfsmennirnir sögðu fundinn hafa verið góðan og eru þeir bjartsýnir á framhaldið. 25.6.2006 08:17
Stór hluti starfsmanna IGS hefur lagt niður vinnu Stór hluti starfsmanna IGS, Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli, hefur lagt niður vinnu. Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, segir yfirmenn hafa gengið í nokkur af störfunum til að reyna að koma í veg fyrir miklar tafir. Innritun gengur vel og enn eru engar tafir en hann segir erfitt að segja til um hvað verður. Starfsmenn Flugþjónustunnar eru nú að safnast saman í komusal flugstöðvarinnar. 25.6.2006 05:39
Skógarhöggsmaður Íslands varði titilinn Skógarhöggsmaður Íslands varði titil sinn á Íslandsmeistaramótinu í skógarhöggi sem haldið var í Hallormsstaðaskógi í blíðskaparveðri í dag. Lárus Heiðarsson skógræktarráðunautur stóð uppi sem sigurvegari í lok dagsins og heldur því titlinum skógarhöggsmaður Íslands annað árið í röð. 24.6.2006 19:30
Attenborough sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við HÍ David Attenborough var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Íslands við útskrift skólans í dag. Hátt í eitt þúsund stúdentar voru brautskráðir frá Háskóla Íslands í dag. 24.6.2006 19:09
Hungraðir mávar á Sandskeiði Hungraðir mávar sjást víðs vegar í fæðuleit og hafa þeir til dæmis valdið flugmönnum á Sandskeiði vandræðum. En þar hafa þeir sótt í kjötmjöl sem dreift var á melana þar til uppgræðslu. Margir sem hafa átt leið um Sandskeið síðustu tvær vikurnar hafa eflaust orðið varir við mergð máva skammt við flugvöllinn þar. Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs eru samtök sem standa að uppgræðslu með lífrænum úrgangi og gerðu þau nú í júní tilraun með kjötmjöl til uppgræðsu. Dreifing kjötmjölsins, sem unnið er úr sláturúrgangi, var gerð í samráði við heilbrigisyfirvöld á staðnum og yfirdýralækni og eiga ekki að ógna vatnsbólum á nokkurn hátt. Vegna mávanna var ákveðið að hætta dreifingu kjötmjölsins á Sandskeiði og fara með hluta kjötmjölsins og dreifa því á sandana við Þorlákshöfn þar sem ekki er hætta á að mávar trufli flugumferð. 24.6.2006 19:04
Fundu lík námumanns fjórum mánuðum eftir sprengingu Björgunarmenn í Norður-Mexíkó fundu í gær fyrsta líkið af 65 mexíkóskum námumönnum, fjórum mánuðum eftir að sprenging varð í námu sem þeir voru að vinna í. 24.6.2006 19:00
Condolezza Rice óskar Valgerði til hamingju Condolezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, óskaði í dag Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra til hamingju með efnahagsárangurinn á Íslandi sem Rice taldi Valgerði að þakka frá árum hennar sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Í símtali í dag ítrekaði Rice við Valgerði þá ósk að lending næðist í varnarmálaviðræðum ríkjanna á næsta fundi sendinefndanna í næsta mánuði. 24.6.2006 18:58
Nýbúi útskrifast úr Kennaraháskólanum Fyrsti nýbúinn frá Asíu útskrifaðist úr Kennaraháskóla Íslands í dag. Hún kom til landsins fyrir tólf árum og vonar að hún verði öðrum nýbúum hvatning til þess að feta menntaveginn. 24.6.2006 18:48
Búast má við töfum tvöþúsund farþega Starfsmenn Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli ætla að leggja niður störf frá klukkan fimm í fyrramálið til klukkan átta. Ekkert þokast í deilu starfsfólksins og stjórnenda Flugþjónustunnar þrátt fyrir fundarhöld í dag. Farþegar á leið til og frá landi á morgun mega búast við nokkrum töfum. Deilur hafa staðið í nokkurn tíma milli stjórnenda Flugþjónustunnar og starfsmanna, sem meðal annars sinna innritun í flug og hleðslu farangurs í flugvélarnar. Starfsmennirnir eru óánægðir með kjör sín og vinnuaðstöðu og segja þeir álagið oft keyra fram úr hófi. Ákveðið var að boða til setuverkfalls til krefjast bóta á núverandi ástandi. Gunnar Olsen, framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar, fundaði í dag með starfsmönnum hjá öllum deildum. Á fundunum var reynt að afstýra boðum aðgerðum. Gunnar sagði þá hafa rætt málin og útskýrt fyrir stafsmönnum að um ólöglegar aðgerðir væri að ræða sem gætu haft afleiðingar í för með sér. Hann sagði eftir fundina að hann vonaðist til þess að starfsfólkið myndi sinna störfum sínum á morgun en þó væri ómögulegt að segja til um hvort af aðgerðunum yrði. Samkvæmt heimildum NFS er mikill hiti í starfsfólkinu og jókst eftir fundina í dag. Eftir fundi með Gunnari í morgun var þegar boðað til neyðarfundar þar sem allir viðstaddir greiddu atkvæði með aðgerðum á morgun. Starfsmennirnir eru ósáttir við að hafa ekki fengið nein svör í dag og segja viðmót yfirmanna á fundunum síst til þess fallið að lægja öldur. Starfsmennirnir segja ekkert duga nema aðgerðir og segja þá sem verða á vakt á morgun ætla að leggjan niður vinnu og hina að mæta í Flugstöðina og sitja með þeim til að sýna þeim samstöðu en um nokkur hundruð starfsmenn er að ræða. Samkvæmt heimildum NFS er nú enn meiri samstaða meðal starfsfólks og ef bótakrafa verið gerð á hendur þeim eftir aðgerðirnar þá ætli allir starfsmenn að kasta frá sér aðgangskortum og ganga út af vinnustaðnum. Stup Jón Karl. Aðgerirnar, ef af þeim verður, munu hafa áhrif á ferðir um tvö þúsund farþega til og frá landinu. Starfsmenn sem NFS ræddi við í morgun segir erfitt að ráðleggja farþegum hvernig þeir eigi að haga áætlunum sínum á morgun þegar búast má við töfum. En verði af aðgerðum, sem allt bendir til, má búast við að áætlanir riðlist fram eftir degi. 24.6.2006 18:46
64 talibanar drepnir í gær og í dag 64 herskáir talíbanar hafa verið drepnir í aðgerðum bandamanna í Afganistan í gær og í dag. Aðgerðirnar eru til komnar vegna vaxandi ofbeldis í Afganistan en það hefur ekki verið meira frá því að bandamenn steyptu stjórn Talibana af stóli árið 2001. 24.6.2006 18:00
Unglingsstúlkur í brjóstastækkanir Dæmi eru um að stúlkur allt niður í fimmtán ára aldur leiti til lýtalækna til að breyta útliti sínu. Lýtalæknar segja að slíkt sé aðeins gert í undantekninga tilfellum og þá helst ef sálfræðingur vísi þeim til þeirra. Lýtalæknirinn Ottó Guðjónsson sagðist kannast við að svo ungar stúlkur gengjust undir útlitsbreytingar þó hann legði á það ríka áherslu að slíkt væri aðeins gert í undantekninga tilvikum. 24.6.2006 14:07
Stefnir í vinnustöðvun á Keflavíkurflugvelli Enn er stál í stál í deila starfsfólks og stjórnenda Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt upplýsingum NFS hafa fundir framkvæmdastjóra með starfsmönnum í morgun ekki skilað tilætluðum árangri og komið í veg fyrir vinnustöðvun í fyrramálið. 24.6.2006 13:06
Hluti lyflækningadeildar í einangrun Hluti af lyflækningadeild Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvoginum hefur verið sett í einangrun eftir að veirusýking kom þar upp. Á deildinni eru þrettán sjúklingar og nokkrir starfsmenn og hefur hluti þeirra fengið veirusýkinguna sem felur í sér uppsöl og niðurgang. 24.6.2006 12:22
Vélarvana við strendur Grindavíkur Lítill fiskibátur varð vélarvana úti fyrir ströndum Grindavíkur laust fyrir hádegi . Starfsmenn Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar þar í bæ kváðust hafa sent út bát af öryggisátæðun sem væri að fylgja skipverjum til hafnar. 24.6.2006 12:14
Framleiðandinn Aaron Spelling látinn Sjónvarpsframleiðandinn Aaron Spelling lést í gær á heimili sínu í Los Angeles, áttatíu og þriggja ára að aldri. Spelling fékk heilablóðfall fyrr í mánuðinum. Hann var afkasta mikill framleiðandi og eftir hann liggja fjölmargar kvikmyndir og sjónvarpsþættir. 24.6.2006 12:00
Dauðarefsing afnumin á Filippseyjum Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, undirritaði í morgun lög sem afnema dauðarefsingu í landinu. Dauðarefsing var afnumin á Filippseyjum 1987 en aftur leyfð með lögum sex árum síðar. Sjö hafa verið teknir af lífi síðan þá. 24.6.2006 11:30
Lík eins námamanns af 65 fundið Björgunarsveitarmenn fundu í gær lík námamanns sem var einn 65 sem festust í námu í Mexíkó í febrúar. Sprenging var í námunni og sátu mennirnir fastir og ekkert gekk að komast að þeim. Björgunarmenn leita nú að líku hinna. 24.6.2006 11:00
Tómas Zoëga verður ekki aftur yfirlæknir Tómas Zoëga hefur látið af störfum við Landspítala Háskólasjúkrahús. Hæstiréttur Íslands úrskurðaði fyrr í mánuðinum að tilfærsla Tómasar í starfi hafi verið ólögmæt. 24.6.2006 10:51
Átök lögreglu og landtökufólks í Perú Til átaka kom milli lögreglu og landtökumanna í útjaðri Lima, höfuðborgar Perú, í gær. Fólkið hafði reist sér bráðabirgðahúsnæði á svæðinu og var lögregla send til að reka það á brott og jafna húsin við jörðu. Ekkert leyfi hafði fengist fyrir því að byggja hús þarna en þau voru reist fyrir sex árum. 24.6.2006 10:30
Kattholt yfirfullt og fjárvana Kattholt er yfirfullt og fjárvana. Formaður Kattavinafélags Íslands á í deilum við nágrannasveitarfélögin um greiðslur fyrir dýrin. Sífellt færist í aukana að kettir séu skildir eftir í pappakössum á þröskuldi Kattholts auk þess sem kettir finnast á vergangi hingað og þangað um höfuðborgarsvæðið. 24.6.2006 09:56
Þrír teknir á ofsahraða Lögreglan á Keflavíkurflugvelli gómaði í nótt þrjá ökumenn á ofsahraða á Strandarheiði. Sá sem hraðast ók var á 182 km. Hann var sviptur ökuskírteininu á staðnum en við það kom í ljós að pilturinn var ekki kominn með fullgilt skírteini. Í síðustu viku varð slys á þessu svæði og segir lögreglan að það sé leitt að sjá að slíkir atburðir hafi ekki þau áhrif að ökumenn sjái sóma sinn í að aka á skikkanlegum hraða. 24.6.2006 09:51
Missti stjórn á bíl sínum Ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum í beygju við gatnamót Sæbrautar og Lauganesvegar í Reykjavík um klukkan sex í morgun, með þeim afleiðingum að hann hafnaði á ljósastaur. Minniháttar meiðsl urðu á bílstjóra og tveimur farþegum sem með honum voru. 24.6.2006 09:47
Strandaði á sandrifi Einn var fluttur á slysadeild eftir að skemmtibátur strandaði á sandrifi skammt frá Snarfarahöfn á fyrsta tímanum í nótt. Fimm voru um borð í bátnum. Kona sem flutt var á slysadeild er ekki talin mikið slösuð. 24.6.2006 09:40