Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ungmenni mótmæla í höfuðstöðvum Landsvirkjunar Nokkrir tugir ungmenna hafa safnast saman í höfuðstöðvum Landsvirkjunar í Austurveri þar sem þeir mótmæla stóriðjustefnu stjórnvalda. Mótmælin eru á vegum sama hóps og stóð fyrir mótmælum í síðustu viku á skrifstofum Alcoa við Suðurlandsbraut, en lögregla var þá kölluð á vettvang og fjarlægði ungmennin. 9.3.2006 16:55
Vilja hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ Siv Friðleifsdóttir Heilbrigðisráðherra veitti viðtöku undirskriftarlista frá Kvenfálagi Lágafellskirkju í Alþingi í morgun. En konurnar vilja að bygging Hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ verði að veruleika. Kvenfélagskonurnar mættu með Salóme Þorkelsdóttur í fararbroddi í alþingi í morgun með undirskriftarlistann, sem Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra veitti móttöku. 9.3.2006 16:15
ESB kannar möguleika Íslands á evrunni Embættismenn Evrópusambandsins í Brussel kanna nú hvort Ísland geti tekið upp evruna eða fengið aðild að myntbandalagi Evrópusambandsins án þess að ganga í sambandið. 9.3.2006 16:10
Framboð Íslands með stuðning 60 ríkja Framboð Íslands til Öryggisráðs SÞ hefur þegar fengið skriflega staðfestan stuðning um 60 ríkja af 191 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna. Þetta kom fram í máli utanríkisráðherra hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna í gær. Hann sagði Ísland eiga vísan stuðning ýmissa annarra smáríkja og nefndi þar meðal annars að í Karíbahafinu væru fimmtán til tuttugu eyríki sem líklega myndu greiða Íslandi atkvæði sitt. Hann bætti því þó við að kosningar til alþjóðaembætta færu oft á annan veg en skriflegar stuðningsyfirlýsingar bentu til, enda væru kosningarnar leynilegar. 9.3.2006 16:00
Óttast að 30 manns hafi látist Óttast er að þrjátíu manns hafi farist þegar rúta með um 40 farþega innanborðs fór út af veginum og lenti út í á í Tyrklandi snemma í morgun. Tekist hefur að finna þrettán líkanna en um 30 eru enn fastir í flakinu sem er á kafi í vatni. Björgunarmenn eru enn að störfum en rútan var á leið frá Istanbul, höfuðborg landsins, til borgarinnar Van nærri írönsku landamærunum. 9.3.2006 15:45
Tók fyrstu skóflustungu án leyfis Steinunn Valdís Óskarsdóttir Borgarstjóri í Reykjavík tók fyrstu skóflustunguna að stórri viðbyggingu við Egilsshöll án þess þó að byggingaleyfi lægi fyrir framkvæmdunum. Það er fyrirtækið Nýsir sem stendur að þessum framkvæmdum en það hyggst reisa tíu þúsund fermetra nýbyggingu sunnan Egilshallar. Í nýbyggingunni verður fjögurra sala kvikmyndahús í eigu Sambíóanna sem mun rúma allt að 1.000 manns, 36 brauta keilusalur og þemasýning sem ber nafnið "Auga Óðins" en henni verður komið fyrir neðanjarðar. 9.3.2006 15:41
Krefjast að teiknurum verði refsað Mótmælum vegna skopmyndadeilunnar er hvergi nærri lokið. Í gær gengu fjölmargir múslimar fylktu liði í indverska hluta Kasmír og kröfðust þess að teiknurum skopmyndanna yrði refsað. Lögregla, sem fylgdist vakandi með þurfti ekki að grípa til aðgerða, en sumum var heitt í hamsi og eins og svo oft áður varð danski fáninn eldinum að bráð. 9.3.2006 15:30
Þyrlupallurinn í Kolbeinsey hruninn að hluta Þyrlupallurinn í Kolbeinsey er að að stórum hluta hruninn. Þetta blasti við flugmönnum TF-SYNar þegar þeir fóru í eftirlitsflug um miðin nálægt Kolbeinsey í dag. 9.3.2006 15:26
Gagnrýnin bankaskýrsla skekur Ísland Gagnrýnin bankaskýrsla skekur Ísland, segir danska viðskiptablaðið Børsen í dag, og talar um jarðskjálfta í íslensku fjármálakerfi. Sagt er að fjárfestingarbankinn Merill Lync, hafi kastað grjóti í íslensku fjármálavélina með skýrslu sinni um íslenska bankakerfið. 9.3.2006 15:16
Spítali greiði bætur fyrir heilsutjón Landspítalinn var í dag dæmdur til að greiða fyrrum starfsmanni sínum tæpar sjö milljónir króna í bætur vegna líkamstjóns sem starfsmaðurinn varð fyrir í starfi sínu. 9.3.2006 14:20
Samningur um tónlistarhús undirritaður Borgarráð samþykkti fyrir sitt leyti samning um byggingu tónlistar- og ráðstefnuhús í Reykjavík. Samningurinn verður undirritaður af menntamálaráðherra, borgarstjóra og fleirum í Ráðherrabústaðnum klukkan fimm í dag og verður NFS á staðnum með beina útsendingu. 9.3.2006 14:17
Borgarráð samþykkti einróma að úthluta Bauhaus lóð Borgarráð samþykkti einróma í dag að úthluta byggingarvörufyrirtækinu Bauhaus lóð við Úlfarsfell. Þar með lýkur tilraunum Bauhaus til að fá úthlutað lóð á höfuðborgarsvæðinu. 9.3.2006 14:07
Fengu þau skilaboð að verðið réði öllu Forstjóri Húsasmiðjunnar segir fyrirtækið hafa boðið umfram gjaldskrá í lóð Urriðaholts í Garðabæ eftir að hafa fengið þau skilaboð frá stjórn Urriðaholts að verðið réði úrslitum um hver fengi lóðina. Byko bauð ekki umfram gjaldskrá. 9.3.2006 12:00
Byko bauð ekki umfram gjaldskrá segir Ásdís Halla Forstjóri Húsasmiðjunnar segir fyrirtækið hafa boðið umfram gjaldskrá í lóð Urriðaholts í Garðabæ eftir að hafa fengið þau skilaboð frá stjórn Urriðaholts að verðið réði úrslitum um hver fengi lóðina. Byko bauð ekki umfram gjaldskrá. 9.3.2006 11:34
Ölvaður ökumaður velti bíl sínum á Garðsvegi Ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Garðsvegi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn missti jafnvægið og kútveltist eftir veginum. 9.3.2006 11:33
Erlendir stórmeistarar eru efstir og jafnir á Reykjavíkurskákmótinu Fimm erlendir stórmeistarar eru efstir og jafnir á Reykjavíkurskákmótinu en Henrik Danielsen og Hannes Hlífar Stefánsson eru efstir íslensku keppendanna með 2,5 vinning. 9.3.2006 11:30
Aðgerðir gegn Írönum ræddar í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna Viðræður eru þegar hafnar um hugsanlegar aðgerðir gegn Írönum vegna kjarnorkuþróunar þeirra. Fulltrúar fimm landa sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna hittust í gærkvöldi til að fjalla um mögulegar leiðir til að stöðva Írana. 9.3.2006 11:28
Baldur Þórhallsson segir yfirlýsingu viðskiptaráðherra athyglisverða Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir mjög athyglisvert að iðnaðar- og viðskiptaráðherra lýsi opinberlega yfir áhuga á að Ísland taki upp evruna í stað íslensku krónunnar, án þess þó að ganga í Evrópusambandið. 9.3.2006 11:24
Íslendingar óháðir Bandaríkjamönnum Geir H. Haarde neitar því að Bandaríkin myndu hafa óeðlileg áhrif á atkvæðagreiðslu Íslands í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna ef Ísland næði kjöri. Þetta kom fram í máli utanríkisráðherra hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna í gær. 9.3.2006 11:19
Stjörnu-Oddi hlýtur Nýsköpunarverðlaunin í ár Nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs fyrir árið 2006 voru afhent við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í morgun. Að þessu sinni hlaut fyrirtækið Stjörnu-Oddi verðlaunin en það vinnur að þróun og framleiðslu á mælitækjum sem eru það lítil að og handhæg að hægt er að setja þau á fiska. 9.3.2006 11:16
Hyggst ekki taka mál Jónasar Garðarssonar til umræðu Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur hyggst ekki taka mál Jónasar Garðarssonar, formanns félagsins, til umræðu á fundi stjórnarinnar en Jónas er ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna sjóslyss. 9.3.2006 11:15
Bríet blés til baráttufundar Feministafélagið Bríet blés til baráttufundar á veitingahúsinu Döbbliner í gærkvöld í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna. 9.3.2006 11:13
Bjóða ókeypis notkun milli innlendra heimasíma Og Vodafone býður nú viðskiptavinum sínum, sem nýta sér vildarþjónustuna Og1, að hringja ótakmarkað úr heimasíma sínum í alla innlenda heimasíma án endurgjalds. Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á ótakmörkuð ókeypis símtöl milli innlendra heimasíma en viðskiptavinir greiða aðeins óbreytt venjulegt mánaðargjald. 9.3.2006 09:45
Sektuð fyrir að farða sig undir stýri Það getur verið betra að gefa sér tíma til að hafa sig til áður en maður fer út á morgnana. Þetta fékk bresk kona heldur betur að reyna á dögunum, þegar lögreglumenn sektuðu hana um röskar tuttugu þúsund krónur fyrir að farða sig á meðan hún var að keyra. 9.3.2006 08:45
Erfiður morgunn Ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Garðsvegi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum og valt. Bæði ökumaðurinn og farþegi í bílnum sluppu með skrámur, en voru vistaðir í fangageymslum í nótt. 9.3.2006 08:30
Lögregla hefur afskipti af hústökufólki Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af svonefndu hústökufólki, sem í stór auknum mæli er farið að hreiðra um sig í auðum húsum, einkum á svæði hundrað og einum. 9.3.2006 08:15
Mótmælin halda áfram Mótmælum vegna skopmyndadeilunnar er hvergi nærri lokið. Í gær fylktu fjölmargir múslimar liði í indverska hluta Kashmir og kröfðust þess að teiknurum skopmyndanna yrði refsað. 9.3.2006 08:00
Viðræður hafnar Viðræður eru þegar hafnar um hugsanlegar aðgerðir gegn Írönum vegna kjarnorkuþróunar þeirra. Fulltrúar fimm landa sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna hittust í gærkvöldi til að fjalla um mögulegar leiðir til að stöðva Írana. 9.3.2006 07:30
Sólveig gagnrýnd Stjórnarandstöðuþingmenn gripu enn til þess ráðs í gærkvöldi , að lengja mál sitt við aðra umræðu um vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra, til að tefja fyrir framgöngu málsins. 9.3.2006 07:22
Bíða milli vonar og ótta Hagsmunaaðillar á fjármálamarkaði bíða nú milli vonar og ótta eftir því hvað gerist á markaðnum í dag, eftir að krónan lækkaði um tæp þrjú prósent í gær og úrvalsvísitalan í Kauphöllinni lækkaði um rúm þrjú prósent á einum degi, sem telst til tíðinda þar á bæ. 9.3.2006 07:00
Ný fuglaflensutilvik í Svíþjóð Fleiri tilvik af fulglaflensu hafa greinst í Svíþjóð. Fjórar endur sem fundust dauðar á strandlengjunni suður af Stokkhólmi og í Karlskrona í síðustu viku voru allar sýktar. Enn er þó ekki ljóst hvort um H5N1 stofninn er að ræða. 9.3.2006 06:30
Ekki óhugsandi að semja mætti um evruna Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir mjög merkilegt að iðnaðar- og viðskiptaráðherra lýsi opinberlega yfir áhuga á að Ísland taki upp evruna í stað íslensku krónunnar, án þess þó að ganga í Evrópusambandið. Hann segir að áhugavert yrði að fylgjast með viðbrögðum Evrópusambandsins ef íslensk stjórnvöld legðu fram formlega beiðni um að fá að taka upp evruna og ekki fráleitt að athuga þann möguleika. 8.3.2006 22:31
Kæra rekstur fríhafnarinnar Samtök verslunar og þjónusta hyggjast kæra starfsemi komuverslunarinnar í Leifstöð til Eftirlitsstofnunar EFTA. Lögfræðingar samtakanna eru að ganga frá kærunni og vonast er til að hægt verði að leggja hana fram í næstu viku. Að sögn Sigurðar Jónssonar, framkvæmdastjóra samtakanna eru þau orðin langþreytt á ástandinu. 8.3.2006 22:30
Baráttufundur kvenna á Dubliners Í dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna og af því tilefni efndi Feministafélagið Bríet til baráttufundar á Döbbliners í kvöld. Á fundinum sveif andi fyrri tíma yfir með viðeigandi veggspjöldum og slagorðum. Minnst var upphafs kvennabaráttunnar meðal annars með því að lesa úr ræðu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur frá árinu 1887 og nútímafeministar ræddu um það sem stendur þeim næst. 8.3.2006 22:18
Ræða ekki mál Jónasar Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur hyggst ekki taka mál Jónasar Garðarssonar, formanns félagsins, til umræðu á fundi stjórnarinnar en Jónas er ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna sjóslyss. Jónas er ákærður fyrir brot á hegningarlögum og siglingalögum vegna slyssins sem varð aðfaranótt laugardagsins tíunda september síðastliðinn. Þau Friðrik Ásgeir Hermannsson og Matthildur Harðardóttir létu lífið í slysinu. 8.3.2006 22:12
Ekki undir bandarískum áhrifum Geir H. Haarde neitar því að Bandaríkin myndu hafa óeðlileg áhrif á atkvæðagreiðslu Íslands í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna ef Ísland næði kjöri. Hann sagði þó að Íslendingar væru ekki einir í heiminum og að ákvarðanir nágranna okkar og bandamanna hafi alltaf áhrif á utanríkisstefnu Íslands að vissu marki. Þetta kom fram á fyrirlestri hans hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna í dag. Þetta kom fram á fyrirlestri hans hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna í dag. 8.3.2006 21:58
Magnus Carlsen efstur Norðmaðurinn Magnus Carlsen er efstur á Reykjavíkurskákmótinu sem stendur. Hann er með þrjá vinninga þegar flestum skákum þriðju umferðar er lokið en Þröstur Þórhallsson sem vann tvær fyrstu skákir sínar situr enn að tafli gegn franska stórmeistaranum Igor-Alexander Nataf. 8.3.2006 21:47
Mjög hefur dregið úr fasteignasölu Sala á íbúðum í fjölbýli hefur dregist saman um 26 prósent milli ára að því er fram kemur í tölum frá Fasteignamati ríkisins. Á sama tíma hefur sala á einbýlishúsum aukist um fimmtán prósent. 8.3.2006 21:17
Bakarar mótmæla raforkuverði Bakarameistarar eru afar ósáttir við miklar verðhækkanir á raforku síðan ný orkulög tóku gildi. Fyrri samningi þeirra um lágt raforkuverð að næturlagi var rift og við það hækkaði rafmagnsverð til bakaría um allt að 50 prósent. 8.3.2006 20:49
Mótmæla styttingu náms Framhaldsskólanemendur deildu við menntamálaráðherra inni á Alþingi í dag um fyrirhugaða styttingu náms. Fyrr um daginn mótmælti fjöldi nemenda við Austurvöll. Nemendur telja að stytting skerði nám þeirra og segja kennara sína hvetja sig áfram í baráttunni. 8.3.2006 19:30
Stefnum að hvalveiðum í atvinnuskyni Íslendingar stefna að því að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni. Enn á eftir að ákveða hvenær veiðar hefjast sagði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, á Alþingi í dag. 8.3.2006 19:30
Stjörnuryk Hollywood gefur Íslandi augljóslega auknar gætur því í bígerð er að taka upp stórmynd hér á landi innan tíðar. Myndin mun bera titilinn Stjörnuryk og skarta stjörnum á borð við Robert De Niro, Michelle Pfeiffer, Claire Danes og Charlie Cox. 8.3.2006 19:30
Nauðsynlegt er að þýða kjarasamninga Verkalýðshreyfingin vill fjárstyrk frá félagsmálaráðuneytinu til að þýða meginefni kjarasamninga á erlend tungumál, en fær ekkert svar. Þetta kom fram á stórri kvennaráðstefnu í dag. 8.3.2006 18:51
Valgerður vill evru! Ísland gæti hæglega tekið upp evruna og gengið í myntbandalag Evrópu, án þess að ganga í Evrópusambandið, segir Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra í pistli á heimasíðu sinni. Óraunhæft, segir Tryggvi Þór Herbertsson forstöðumaður Hagfræðistofnunnar Háskóla Íslands. 8.3.2006 18:37
Þrír færeyskir drengir dóu í bruna Færeyingar eru harmi slegnir eftir að þrír piltar á aldrinum sex til tíu ára létust í eldsvoða í gærkvöldi. Eldsupptök eru ennþá ókunn en danskir sérfræðingar vinna að rannsókn málsins. 8.3.2006 18:30