Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gengi krónunnar í frjálsu falli Gengi krónunnar og innlendur hlutabréfamarkaður var í frjálsu falli í morgun en rétti nokkuð úr kútnum laust fyrir hádegi. Hlutabréfavísitalan hefur lækkað um þrjú prósent í morgun og sama lækkun hefur orðið á úrvalsvísitölu hlutabréfa. Fjármálaráðherra segir að þetta kunni að skýrast af leiðréttingu á markaðnum sem neikvæð skýrsla Fitch Ratings, frá í gær, hafi hleypt af stað. 22.2.2006 11:57
Kunna ekki að reikna út skattbyrði almennings Hvorki Fréttastofa NFS, Kastljós Ríkissjónvarpsins, Stefán Ólafsson prófessor né ríkisskattstjóri, kunna að reikna út skattbyrði almennings, að mati Árna M. Mathiesens fjármálaráðherra. 22.2.2006 11:54
Áætlað að vitnaleiðslum ljúki í dag Spurt var um viðskiptamannareikninga, lánveitingar og bókhaldslykla í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þegar aðalmeðferð í Baugsmálinu var fram haldið þar í morgun. Áætlað er að vitnaleiðslum verði lokið í dag og málflutningur fari síðan fram á morgun. 22.2.2006 11:52
Vítisenglar illa þjakaðir af þunglyndi Það virðist leiða til þunglyndis að vera meðlimur í mótorhjóla- og glæpasamtökunum Vítisenglum. Að minnsta kosti benda nýjustu fréttir frá Stokkhólmi til þess því samkvæmt þeim eru sjötíu prósent meðlima samtakanna þar í borg þunglyndir. 22.2.2006 11:03
Tæplega hundrað fangar hafa látist í fangelsum Bandaríkjahers Tæplega hundrað fangar hafa látið lífið í fangelsum Bandaríkjahers í Írak og Afganistan síðan í ágúst árið 2002. Fjölmargir þeirra munu hafa verið pyntaðir til dauða. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandarísku mannréttindasamtakanna Human Rights First. 22.2.2006 10:49
Ismail Haniyeh forsætisráðherraefni Palestínu Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, útnefndi Ismail Haniyeh forsætisráðherraefni Palestínu í gærkvöld. Haniyeh hefur nú fimm vikur til að mynda nýja stjórn. 22.2.2006 09:26
Bush segir að samningar um hafnir verði að ganga í gegn George Bush Bandaríkjaforseti sagði við blaðamenn sem ferðuðust með honum í forsetavél hans í gær að samningar við arabíska fyrirtækið sem hefur tekið að sér að sjá um rekstur sex stórra hafna í Bandaríkjunum verði að ganga í gegn. 22.2.2006 09:22
Halldór Ásgrímsson og Tony Blair hittust í Downingstræti tíu í morgun Halldór Ásgrímsson forsætisráðhera og Tony Blair forsætisráðherra Bretlands hittast á formlegum fundi í Downingstræti tíu, fyrir hádegi í dag. Búist er við að þar ræði þeir alþjóðlamál almennt. 22.2.2006 09:20
Fjármálaráðherra gerir athugasemd við umfjöllun Kastljóssins Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra gerði í gær formlega athugasemd við umfjöllun Kastljóssins á Ríkissjónvarpinu um skattamál. Í þættinum var meðal annars komist að þeirri niðurstöðu að skattbyrði hafi aukist hjá öllum tekjuhópum nema hátekjumönnum. 22.2.2006 09:15
Eldur við Skemmuveg Eldur kviknaði í atvinnuhúsi við Skemmuveg í Kópavogi í gærkvöldi, þar sem veisluþjónusta er meðal annars til húsa. Eldurinn var snarlega slökktur en skemmdir urðu af reyk. Eldsupptök verða könnuð í dag. 22.2.2006 09:14
Krónan veikist Krónan veiktist í gær um fjögur komma fjörtíu og fjögur prósent eftir að fréttir bárust af því að matsfyrirtækið Fitch Ratings hefði breytt lánshæfismati ríkissjóðs Íslands úr stöðugu í neikvætt. 22.2.2006 09:13
Mannfall í aðdraganda friðarviðræðna Þrír uppreisnarmenn Tamíl tígra á Sri Lanka létu lífið á árás í borginni Batticaloa þar í landi í morgun. Uppreisnarmenn segja að sex vopnaðir menn, klæddir í búninga stjórnarhersins, hafi ráðist á þá. Friðarviðræður milli fulltrúa stjórnvalda og Tamíl tígra eiga að hefjast í Sviss í dag. 22.2.2006 08:32
98 fangar dáið í haldi Bandaríkjamann í Írak og Afganistan Tæplega 100 fangar hafa látið lífið í fangelsum Bandaríkjahers í Írak og Afganistan síðan í ágúst árið 2002. Fjölmargir þeirra munu hafa verið pyntaðir til dauða. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandarísku mannréttindasamtakanna Human Rights First. 22.2.2006 08:05
Gjaldfrjálst á Listasafn Íslands Aðgangseyrir að Listasafni Íslands fellur niður frá með föstudeginum næsta og aðgangur að safninu verður því gjaldfrjáls. Nýr styrktaraðili safnsins, Samson eignarhaldsfélag, gerir þetta kleyft með stuðningi sínum en í dag var nýr samstarfsamningur undirritaður í safninu. Samningurinn var undirritaður í húsakynnum Listasafns Íslands en í honum delst að Samson verður aðalstyrktaraðili safnsins næstu þrjú árin. Á samningstímanum mun Samson styrkja Listasafnið um 45 milljónir króna sem verður varið í að efla starfsemi þess. 21.2.2006 23:15
Tíu sóttu um stöðu prests við Hallgrímsprestakall Tíu sóttu um embætti prests í Hallgrímsprestakalli sem auglýst var fyrir skömmu. Fjórir umsækjandanna sóttu líka um embætti sóknarprests við Ásprestakall. Embætti prests við Hallgrímsprestakall hefur verið með eftirsóttustu stöðunum innan þjóðkirkjunnar enda kirkjan sú stærsta á landinu og með þeim glæsilegri. Það er biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson sem skipar í embætti prests eftir að valnefnd hefur komist að samkomulagi um hvaða umsækjanda hún vill fá í embættið. 21.2.2006 23:00
Sendiráð Dana í Indónesíu senn opnað aftur Danska sendiráðið í Djakarta í Indónesíu verður opnað aftur fljótlega, en það hefur nú verið lokað í tíu daga vegna óeirða í borginni í tengslum við skopteikningarnar af Múhameð spámanni. 21.2.2006 22:47
Ríkisstjórnin vill MTV tónlistarhátíðina Ríkisstjórnin hefur ákveðið að styrkja November Event um þrjár milljónir króna til að fullvinna umsókn sína um að halda MTV-tónlistarverðlaunahátíðina í Reykjavík árið 2007. November Event hefur unnið að því að fá að halda tónlistarhátíðina í Reykjavík á næsta ári. Umsóknarferlið er komið vel á veg en Reykjavík er ein nokkurra borga sem sótt hafa um að halda hátíðina. 21.2.2006 22:30
Mannskæð árás á markaði í Bagdad Að minnsta kosti 22 létust og 30 særðust í bílsprengjuárás á markaði í suðurhluta Bagdad í dag. Fregnir herma að sprengunni hafi verið beint að lögreglumönnum á eftirlitsferð. 21.2.2006 22:15
Félagsráðgjafar mótmæltu á borgarstjórnarfundi Félagsráðgjafar fjölmenntu á áhorfendapalla á borgarstjórnarfundi í dag til að krefjast bættra kjara og knýja á um að kraftur komist í viðræður þeirra og borgarinnar um nýjan kjarasamning. Þeir útiloka ekki verkfall. 21.2.2006 22:00
Mikil tengsl verði milli Palestínu og Írans Pólitískur leiðtogi Hamas, Khaled Meshaal, segir engan grundvöll fyrir viðræðum við Ísraela fyrr en þeir hafi yfirgefið Palestínu fyrir fullt og allt. Meshaal var staddur í Teheran þar sem hann ræddi við þarlend yfirvöld og sagði hann líklegt að Íran myndi spila stærra hlutverk í utanríkismálum Palestínu en verið hafi. Ráðamenn í Bandaríkjunum og Ísrael óttast að Íranar reyni að hafa óeðlileg áhrif á nýja palestínska stjórn sem mynduð verður á næstu dögum. 21.2.2006 21:57
Reykræsta þurfti vegna bruna í geymslu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að húsnæði á Skemmuveginum á tíunda tímanum í kvöld. Í húsinu eru nokkur fyrirtæki en eldur kom upp í einni geymslu þar inni. Búið er að slökkva eldinn og er verið að reykræsta. Ekki er talið að um verulega skemmdir sé að ræða. 21.2.2006 21:43
Ríkisskattstjóri staðfestir að skattar hafa hækkað Ríkisskattstjóri staðfestir tölur Landssambands eldri borgara um að skattbyrði þeirra sem hafa lægst laun eða ellilaun hafi hækkað síðustu ár. Þetta kemur til af því að skattleysismörk hafa ekki fylgt vísitölu neysluverðs eða launaþróun í landinu að sögn hagfræðings Landssambands eldri borgara. 21.2.2006 21:30
Afkoma Íslandsbanka sú besta í sögu bankans Afkoma Íslandsbanka á síðsta ári var sú besta í sögu bankans en hagnaður bankans nam nítján milljörðum króna. Bankinn hyggur á frekari útrás á þessu ári. 21.2.2006 21:13
Loðnukvótinn aukinn í annað sinn Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra jók loðnukvóta íslenskra skipa í dag um tuttugu þúsund tonn. Íslensk skip mega því veiða rétt rúmlega 170 þúsund tonn af loðnu á yfirstandandi vertíð. 21.2.2006 21:05
Sex skipasmíðastöðvar valdar Ríkiskaup hafa valið sex skipasmíðastöðvar til þátttöku í útboði á smíði nýs varðskips úr hópi fimmtán skipasmíðastöðva sem sýndu áhuga á útboðinu. Þrjár skipasmíðastöðvanna eru norskar, sú fjórða hollensk, fimmta þýsk og sú sjötta frá Sjíle. 21.2.2006 20:21
Strákarnir okkar seldir til Bandaríkjanna Sýningarréttur á kvikmyndinni Strákarnir okkar hefur verið seldur til Bandaríkjanna. Samið var um dreifingarrétt á myndinni á öllum miðlum, svo sem sýningu í kvikmyndahúsum og sjónvarpi auk annarrar útgáfu. 21.2.2006 19:54
Sullenberger yfirheyrður Jón Gerald Sullenberger og bandaríski bílasalinn Ivan Motta, voru meðal þeirra sem báru vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, á öðrum degi aðalmeðferðar í baugsmálinu. Jón Gerald sagðist hafa búið til "svindlreikninga" fyrir Baugsfjölskylduna - að hennar ósk. Málið tók óvænta stefnu þegar verjendur drógu upp gögn frá kanadískum yfirvöldum, sem sýna að bílar Baugsfeðga, sem þeir keyptu í gegnum Jón Gerald, -séu enn skráðir þar. 21.2.2006 19:32
Frumvarp veiki stöðu blindra og sjónskertra Blindrafélagið lýsir sig mótfallið nýju frumvarpi heilbrigðisráðherra um Heyrnar-, tal- og sjónstöð og telur að slík stöð muni veikja stöðu blindra og sjónskertra. Þá hafa forystumenn blindrasamtaka á Norðurlöndum hvatt íslenska ríkið til að draga hugmyndir um sameiningu þessara stofnana til baka. 21.2.2006 19:30
Aftökunni frestað Yfirvöld í Kaliforníu urðu í morgun að fresta aftöku yfir dæmdum morðingja eftir að læknar sem taka áttu þátt í aftökunni höfnuðu því af siðferðisástæðum. 21.2.2006 19:15
Ekki svigrúm fyrir allar framkvæmdir í stóriðju Forsætisráðherra segir áform um frekari stóriðju í mikilli óvissu og hann telur ekki svigrúm fyrir allar þær framkvæmdir sem séu í umræðunni. Matsfyrirtækið Fitch Ratings greindi frá því í dag að horfur fyrir lánshæfismat ríkissjóðs Íslands vegna skuldbindinga í innlendri og erlendri mynt hafi breyst úr því að vera stöðugar í neikvæðar. Ráðherrann segir þetta viðvörun en neitar því að ríkisstjórnin hafi gert mistök í hagstjórninni. 21.2.2006 19:13
Mladic að líkindum handtekinn Óstaðfestar fregnir herma að Ratko Mladic, æðsti yfirmaður hers Bosníu-Serba, hafi verið handtekinn í Serbíu í dag. Hann hefur verið eftirlýstur fyrir stríðsglæpi í rúman áratug, þar á meðal fjöldamorðin í Srebrenica þar sem að minnsta kosti átta þúsund manns voru myrtir. 21.2.2006 19:05
Jafnt í borginni Ef gengið yrði til borgarstjórnarkosninga nú fengju Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jafn marga menn kjörna eða sjö hvor flokkur. Vinstri - grænir fengju fimmtánda manninn og yrðu því í oddaafstöðu. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Samfylkinguna. 21.2.2006 18:45
Enginn samningur til Borgarstjóri segir að borgaryfirvöld geti farið með tilboð í lóðir við Úlfarsfell eins og þau vilji þar sem enginn samningur hafi verið gerður við þá sem áttu hæstu tilboðin. Heppilegra hefði þó verið ef öll tvímæli hefðu verið tekin af í útboðsgögnum. 21.2.2006 18:45
Varar við ofnotkun þokuljósa Umferðastofa minnir ökumenn á að að þokuljós beri aðeins að nota þegar það er þoka og þá aðeins í dreifbýli, en samkvæmt stofnuninni ber töluvert á því að ökumenn ofnoti þokuljósin. 21.2.2006 18:42
Hermann nýr forstjóri Olíufélagsins Hermann Guðmundsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Olíufélagsins sem eigendur Bílanausts keyptu á dögunum. Hermann hefur verið framkvæmdastjóri Bílanausts síðastliðin fjögur ár. 21.2.2006 17:46
Farþegum með strætó fjölgaði í janúar Farþegum með vögnum Strætós fjölgaði um tæp sjö prósent í janúar miðað við sama mánuð í fyrra. Nam fjölgunin alls 50.346 farþegum. Í tilkynningu frá Strætó segir að þarna sé um umtalsverðan viðsnúning að ræða þar sem farþegum Strætós hafi fækkað lítillega síðustu misseri. 21.2.2006 17:37
Ratko Mladic handtekinn Ratko Mladic, æðsti yfirmaður hers Bosníu-Serba, var handtekinn í Serbíu í dag. Hann hefur verið eftirlýstur fyrir stríðsglæpi í rúman áratug, þar á meðal fjöldamorðið í Srebrenica þar sem að minnsta kosti átta þúsund manns voru stráfelldir. Fréttir af handtökunni hafa ekki verið staðfestar af serbneskum yfirvöldum. 21.2.2006 17:37
Íslenskir fjárfestar kaupa breskt fjölmiðlafyrirtæki Hópur fjárfesta sem tengist Viðskiptablaðinu hefur keypt bresku frétta- og upplýsingaveituna M2 Communications Limited. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þeim. 21.2.2006 17:19
Dæmdar skaðabætur þrátt fyrir gáleysi Eigendur gistiheimilis á Höfn í Hornafirði voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða manni rúmar 1,3 milljónir í skaðabætur með vöxtum í tæp 3 ár, auk 450 þúsund króna í málskostnað, vegna vinnuslyss sem varð í september 2001 þegar maðurinn vann við að mála gistiheimilið. 21.2.2006 17:03
Niðurgreiða þurfi laun farmanna til að halda stéttinni Eina leiðin til að halda farmannastétt hér á landi er að niðurgreiða laun farmanna eins og gert er í nágrannalöndunum, segir Helgi Laxadal, formaður Vélstjórafélags Íslands. 21.2.2006 16:59
Mikil ólga í bæjarpólitíkinni á Akureyri Líkur eru á að þrjú til fjögur sérframboð komi fram á Akureyri fyrir kosningarnar í vor. Það gæti því farið svo að kosið yrði um átta lista. Fyrir liggur nú þegar að Oddur Helgi Halldórsson mun bjóða fram sér, en listi hans, L-listinn, hefur nú tvo menn í bæjarstjórn. Þá hefur Ragnar Sverrisson, áhugamaður um Akureyrarlista á alþingi, sent inn beiðni um bókstafinn A fyrir bæjarstjórnarkosningarnar. Ragnar telur allar líkur á að boðið verði fram í vor, enda sé hann ekki fyllilega sáttur við stjórn bæjarins. Reifað hefur verið að L-listi og Akureyrarlisti sameinist. Ragnar og Oddur Helgi hafa ræðst við um sameiningu listanna. Ungliðar eru svo aftur óskrifað blað en döpur útkoma til dæmis ungliða sjálfstæðismanna vakti athygli í prófkjöri á dögunum þar sem formaður Varðar, ungliðafélags flokksins, lenti í neðsta sæti. Hann sagði í dag, að hann vildi engu spá um möguleika á sérframboði fyrr en búið væri að raða upp á lista sjálfstæðismanna. Aðeins efstu sæti voru bindandi hjá sjálfstæðismönnum. Þá hafa háskólanemar íhugað sérframboð með aukna hagsmuni Háskólans á Akureyri í huga og jafnvel eru þreifingar um enn eitt ungliðaframboð. 11 eru í bæjarstjórn á Akureyri. Um 750 atkvæði til að koma manni að í bæjarstjórn og því gæti slagurinn orðið harður og mörg atkvæði farið fyrir lítið ef allt að átta listar bjóða fram. 21.2.2006 16:39
Alþingiskonur flytja Píkusögur í tilefni V-dagsins Ekki fer mörgum sögum af því að kynfæri kvenna hafi mikið borið á góma í sölum Alþingis. Á þessu varð hins vegar breyting í dag þegar kynnt var fyrirhuguð uppsetning þingkvenna á leikritinu Píkusögum í tilefni V-dagsins. 21.2.2006 16:24
Fiskhrogn gegn húðsjúkdómum Nýtt húðkrem sem meðal annars er búið til úr ensími úr hrognum og gelatíni úr fiski hefur reynst vel gegn húðsjúkdómum eins og exemi og sóríasis. Ensímið var fyrst greint í Noregi á níunda áratugnu. Frá þessu er greint á vef Fiskifrétta, www.skip.is. 21.2.2006 16:15
Dregur saman með Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum Samfylkingin dregur á Sjálfstæðisflokkinnn í fylgi samkvæmt nýrri kosningakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Samfylkinguna. Ef niðurstöðurnar gengju eftir í kosningum í vor fengju flokkarnir sjö borgarfulltrúa hvor og Vinstri - grænir einn. 21.2.2006 16:00
Hlutabréf lækka eftir matslækkun Hlutabréf hafa lækkað mikið í verði í dag eftir að matsfyrirtækið Fitch Rating breytti horfum á lánshæfismati ríkissjóðs úr stöðugum í neikvæðar. Hlutabréf fóru yfir 6.800 stig í morgun en eftir að Fitch Rating tilkynnti niðurstöðu sína lækkuðu hlutabréfin snöggt og fóru undir 6.500 stig. Síðan þá hafa hlutabréf hækkað nokkuð og farið upp fyrir 6.500 stig. 21.2.2006 15:40