Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kemur af fjöllum Oddur Friðriksson er yfirtrúnaðarmaður verkalýðsfélaganna á Kárahnjúkum og ber þann stóra titil með sóma. Maðurinn ber það með sér að vera fastur fyrir og fylginn sér; þreklega vaxinn og snöfurmannlegur í framkomu. Hann er ljós yfirlitum og útitekinn, enda kemur maðurinn af fjöllum. 11.12.2005 09:15
Munar allt að 400 þúsundum á ári "Það eru ansi margir í mínu félagi sem hrista hausinn yfir þessu og skilja hvorki upp né niður," segir Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara. Nýafstaðnir samningar Reykjavíkurborgar við Eflingu og Starfsmannafélag borgarinnar þýða að ófaglærðir deildarstjórar á leikskólum hafa mun hærri mánaðarlaun en faglært fólk innan Félags leikskólakennara. 11.12.2005 09:00
Kemur heim með kórónu í farteskinu Unnur Birna Vilhjálmsdóttir er ungfrú heimur. Hún átti alls ekki von á að ná svo langt í keppninni. Hún hafði skrifað á netið að hún kæmi ekki með kórónuna heim. Heiðar Jónsson snyrtir segist hafa verið viss um að hún ynni. 11.12.2005 08:00
Klippa þurfti farþega út úr bíl Alvarlegur árekstur varð á Suðurlandsvegi í gær þegar þrír jeppar lentu saman og þurfti að loka veginum í hátt á þriðja tíma. Áreksturinn varð klukkan 15.30 til móts við Þórustaði í Ölfusi. Klippa þurfti ökumann einnar bifreiðarinnar út úr bílnum. Fimm manns þurfti að flytja á sjúkrahús, þar af tvo alvarlega slasaða. 11.12.2005 07:45
Eins og að fylgjast með bikarleik "Ég er bara ekki alveg búinn að átta mig á þessu," sagði Vilhjálmur Skúlason, faðir Unnar Birnu, eftir að hún hafði verið krýnd Ungfrú heimur. "Ég fylltist auðvitað gríðarlegu stolti yfir þessu öllu saman en þó eru tilfinningarnar blendnar. Ég var búinn að hlakka til að fara út á flugvöll á mánudaginn og sækja hana en nú verður ekkert af því og allt er óvíst með heimkomuna," segir Vilhjámur sem fylgdist spenntur með keppninni ásamt syni sínum. 11.12.2005 07:30
Sjö lifðu en hundrað létust Sjö manns björguðust en 103 fórust þegar nígerísk farþegaþota hrapaði til jarðar í gær. Vélin var aðflugi að flugvelli í borginni Port Harcourt, sem er sunnantil í Nígeríu. 11.12.2005 07:15
Fimmtíu ára Nóbelsafmæli Þess var minnst í Þjóðmenningarhúsinu í gær að fimmtíu ár eru liðin frá því að Halldór Laxness fékk bókmenntaverðlaun Nóbels. Fjöldi fólks fylgdist með fjölskrúðugri hátíðardagskrá sem hófst klukkan ellefu og stóð fram á kvöld. 11.12.2005 07:15
Félagsmálaráðherra braut alvarlega af sér Dómur Hæstaréttar í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur gegn íslenska ríkinu er dæmi um skýlaust brot Árna Magnússonar félagsmálaráðherra á stjórnsýslulögum. Þó er talið hæpið að Árni hafi einnig brotið jafnréttislög. 11.12.2005 07:00
Hættan aldrei verið meiri "Við erum í kapphlaupi við tímann," sagði Mohamed ElBaradei, yfirmaður kjarnorkueftirlits Sameinuðu þjóðanna, þegar hann tók við friðarverðlaunum Nóbels í Noregi í gær. ElBaradei sagði hættuna á kjarnorkuhörmungum vera meiri en nokkru sinni, nú fimmtán árum eftir lok kalda stríðsins og sextíu árum frá því kjarnorkusprengjum var varpað á Hiroshima og Nagasaki. 11.12.2005 06:45
Kæra úthlutun á vefslóð Fréttavefur Suðurlands, sudurland.net, hefur kært til Samkeppniseftirlitsins samning Sambands sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) við Sunnlenska fréttablaðið og Eyjafréttir um að blöðunum verði eftirlátin slóðin sudurland.is. Slóðina hefur SASS notað og átt árum saman. 11.12.2005 06:30
Með marjúana og amfetamín Ökumaður um tvítugt var handtekinn í fyrrinótt í Hafnarfirði með sjö grömm af marjúana í fórum sínum. Hann er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Lögreglan tók einnig undir morgun tvo menn um þrítugt með sex grömm af amfetamíni. 11.12.2005 06:15
Ófaglærðir fá allt að 30 þúsundum meira Nýir samningar tryggja ófaglærðum deildarstjórum á leikskólum allt að 30 þúsundum meira á mánuði en faglærðum leikskólakennurum. Kennararnir eru fjúkandi illir en sjá sóknarfæri til að bæta kjör sín fyrr en áætlað var. 11.12.2005 06:00
Góð en hljóðlát þingmál Alþingi lauk störfum síðastliðið föstudagskvöld eftir heldur stranga viku og langa þingfundi. Frumvarp þingmanna allra flokka um breytingar á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og virðisaukaskatt lætur lítið yfir sér en það var afgreitt sem lög frá Alþingi fyrir helgi. Í huga margra þingmanna er þetta eitt mikilsverðasta afrek þingsins. 11.12.2005 06:00
Skipan efstu sæta breytist Þórarinn B. Jónsson, fyrrverandi útibússtjóri Sjóvár á Akureyri, hyggst bjóða sig fram í fimmta sæti í prófkjöri sjálfstæðismannna á Akureyri vegna sveitarstjórnarkosninganna á næsta ári. Þórarinn hefur skipað þriðja sæti listans í undangengnum þrennum kosningum en segist nú vilja rýma sætið fyrir öðrum frambjóðanda. 11.12.2005 05:45
Héraðsskyldan var enn í gildi Kári Stefánsson fékk sérfræðileyfi í taugalækningum 14. desember 1984, samkvæmt vitnisburði Sigurðar Guðmundssonar landlæknis í síðasta tölublaði Læknablaðsins. Héraðsskyldan var hinsvegar lögð niður árið 1985. Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, segir í Fréttablaðinu á föstudag að hann líti svo á að Kári hafi ekki brotið samkomulag sem hann gerði við sig þegar Ólafur, ásamt ráðherra, veittu Kára lækningaleyfi með því skilyrði að hann sinnti héraðskyldu þegar hann kæmi til Íslands eftir dvölina í Bandaríkjunum. 11.12.2005 05:30
Stefnir á fyrsta sætið Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi hefur samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ákveðið að bjóða sig fram í forystusæti hjá Samfylkingunni fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Dagur vildi ekki staðfesta þetta en ítrekaði fyrri ummæli sín, að ákvörðunina muni hann tilkynna fyrir jól. 11.12.2005 05:15
Árekstur á Suðurlandsvegi Tveir voru fluttir á slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahús eftir harðan fimm bíla árekstur á Suðurlandsveginum í dag. 10.12.2005 19:15
Jólagleði Kramhússins í Borgarleikhúsinu í kvöld Það verður sannkölluð fjömenningarveisla á Jólagleði Kramhússins sem haldin er í Borgarleikhúsinu í kvöld. Þar munu um 160 þátttakenur stíga á stokk og sýna listir sínar en óhætt er að segja að þar leynist margir snillingar. 10.12.2005 16:57
56 fórust þegar nígerísk farþegaflugvél hrapaði í borginni Port Harcourt 56 manns fórust og sjö til átta farþegar slösuðust þegar nígerísk farþegaflugvél hrapaði í borginni Port Harcourt í dag. Enn er ekki ljóst um orsakir slyssins. Vélin var á vegum Sosoliso flugfélagsins en flugfélagið flýgur innanlandsflug milli Lagos og annarra borga í Nígeríu. 10.12.2005 16:17
Unnur Birna varla búin að átta sig á sigrinum Unnur Birna, ný krýnd Ungfrú heimur, sagði í samtali við NFS fréttastofuna rétt í þessu, að hún sé varla enn búin að átta sig á sigrinum. Unnur sagðist hafa gapað þegar úrslitin voru tilkynnt 10.12.2005 16:04
Hálka og hálkublettir víða um land Vegagerðin varar við flughálku á Eyrarfjalli, á Ströndum úr Bjarnafirði og norður í Gjögur en hálka og hálkublettir eru víðar. Á Norðurlandi er flughált á nokkrum sveitavegum í Húnavatnssýslum og á Lágheiði en hálka og hálkublettir eru nokkuð víða á Norður og Austurlandi. Þá er einnig hálka og hálkublettir á fáeinum leiðum á Suður- og Vesturlandi en einkum í uppsveitum og á heiðum. 10.12.2005 16:01
Unnur Birna í skýjunum yfir sigrinum Unnur Birna Vilhjálmsdóttir var valin Ungfrú heimur í Sanya í Kína í dag. Alls kepptu 102 stelpur frá jafnmörgum þjóðlöndum í keppninni en aðeins 15 þeirra komust í úrslit. 10.12.2005 15:08
Alþjóða kjarnorkustofnunin og framkvæmdarstjóri hennar fá friðarverðlaun Nóbels í ár Alþjóða kjarnorkumálastofnunin og framkvæmdarstjóri hennar, Mohamed ElBaradei, fá friðarverðlaun Nóbels í ár. EIBaradei og Alþjóða kjarnorkumálastofnunin fá friðarverðlaunin fyrir að hafa beitt sér gegn útbreiðslu kjarnaorkuvopna og fyrir að stuðla öruggri notkun kjarnorku. EIBaradei og Yukiya Amano, stjórnarformaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, tóku á móti verðlaununum við hátíðlega athöfn í ráðhúsinu í Osló fyrr í dag. 10.12.2005 14:53
Hlíðarfjall opið í dag Skíðafólk norðan heiða ættu að geta gert sér glaðan dag í Hlíðarfjalli í dag. Skíðafæri er ágætt, flestar lyftur verða í gangi og göngubrautin er troðin. Opið er í Hlíðarfjalli til kukkan fimm í dag en skíðadegi Skíðafélags Akureyrar og Útilífs er frestað um viku ásamt vígslu snjóframleiðslukerfis. 10.12.2005 13:39
Til greina kemur að endurskoða þátttöku Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri segir koma til greina að endurskoða þátttöku í launanefnd sveitarfélaga, í kjölfar samninga sem Reykjavíkurborg gerði við starfsmenn sína. 10.12.2005 12:19
Sextán ára í tveggja ára fangelsi Hérðasdómur Reykjavíkur dæmdi í gær pilt til að sæta fangelsi í tvö ár fyrir að ræna jafnaldra sínum og neyða hann til að taka peninga út úr hraðbanka. Félagi piltsins var jafnframt dæmdur í fimm mánaða fangelsi en tveir aðrir ungir menn sýknaðir af ákæru um hlutdeild í ráninu. Pilturinn er einungis sextán ára gamall og mun væntanlega sitja af sér árin tvö á Litla-Hrauni. 10.12.2005 12:19
Fjárlagafrumvarpið í uppnámi Hvorki gengur né rekur að berja saman nýtt fjárlagafrumvarp fyrir Evrópusambandið. Forsætisráðherra Bretlands segir að náist ekki samkomulag í næstu viku, varpi það stórum skugga á Evrópusambandið. 10.12.2005 12:09
Sjö handteknir á Spáni Spænska lögreglan handtók í gær sjö menn sem talið er að hafi fjármagnað aðgerðir hryðjuverkasamtaka sem tengjast al-Kæda. Málið teygir sig víðar og búist er við fleiri handtökum í Evrópu á næstunni. 10.12.2005 12:08
Dáist að einurð Íraka Í janúar kusu Írakar stjórnlagaþing sem síðan skipaði ríkisstjórn, í október greiddu þeir atkvæði um drög að nýrri stjórnarskrá landsins og næstkomandi fimmtudag ganga þeir í þriðja sinn að kjörborðinu á tæpu ári þegar þeir kjósa nýja menn á þing samkvæmt ákvæðum nýju stjórnarskrárinnar. 10.12.2005 09:30
Hálka víða um land Vegagerðin varar við hálku og hálkublettum víða um land en á Suður- og Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á fáeinum leiðum, aðallega í uppsveitum og á heiðum. Á Vestfjörðum er flughált á Dynjandisheiði, á Eirarfjalli og á Ströndum úr Bjarnarfirði og norður í Gjögur en hálka og hálkublettir víðar. Á Norðurlandi er flughált á nokkrum sveitavegum í Húnavatnssýslum og eins á Lágheiði en hálka og hálkublettir eru nokkuð víða á Norður og Austurlandi. 10.12.2005 09:16
Vilja bæta kjör fólks í Eystrasaltsríkjunum Fyrirhugað er að hefja viðræður við atvinnurekendur eftir áramót. Þetta er liður í langtíma átaki verkalýðshreyfingarinnar á öllum Norðurlöndunum, og reyndar allri Evrópu. Markmiðið er að koma á kjarasamningum, bæta kjör íbúanna í þessum löndum þannig að þau verði á við það sem tíðkast á Norðurlöndum og efla verkalýðshreyfinguna þannig að íslenskir atvinnurekendur hafi viðsemjendur í Eystrasaltslöndunum. 10.12.2005 09:00
Krefja stjórnvöld um bætt kjör Um hundrað manns lögðu af stað frá Hallgrímskirkju klukkan hálf fimm í gær með kröfuspjöld á lofti og í takt við undirleik Skólahljómsveitar Kópavogs. Fljótlega flykktust mun fleiri í kröfugönguna, sem lauk á Austurvelli. Áætla má að rúmlega þúsund manns hafi verið þar um klukkan fimm. 10.12.2005 07:45
Þingið í jólafrí Þinghaldi á Alþingi var frestað á áttunda tímanum í gærkvöldi til 17. janúar. Sólveig Pétursdóttir, forseti þingsins, þakkaði samstarf og lipurt verklag við að ljúka þingstörfum á tilsettum tíma. Hún bað þingmenn að taka bruna í rafmagnstöflu þingsins í vikunni sem tákn um að þingmenn skyldu ekki vinna fram á nótt eins og gert hafði verið kvöldið áður en bilunin varð. 10.12.2005 07:15
Stjórnendur sagðir leggja fólk í einelti Hluti starfsmanna Landmælinga Íslands segist hafa orðið fyrir einelti af hendi stjórnenda stofnunarinnar. Svört skýrsla tveggja sálfræðinga á samskiptum yfirmanna og undirmanna er í höndum umhverfisráðherra. 10.12.2005 07:00
Kallar eftir ávítum og sekt Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Jóns Ólafssonar athafnamanns, fer fram á að héraðsdómur ávíti Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor og Heimi Örn Herbertsson lögmann hans og ákveði þeim réttarfarssekt. Þetta gerir hún í greinargerð sem hún lagði fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 10.12.2005 06:45
Fengu ekki að hitta alla fanga Háttsettur embættismaður í bandaríska utanríkisráðuneytinu hefur staðfest að fulltrúum Rauða krossins hafi ekki verið veittur aðgangur að öllum þeim föngum sem eru í haldi Bandaríkjamanna, grunaðir um aðild að hryðjuverkum. Frá þessu greindi forseti Alþjóða Rauða krossins (ICRC) í gær. 10.12.2005 06:30
Gagnrýnd úr öllum áttum Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, varpaði þeirri skoðun fram á leiðtogafundi íslamskra ríkja í Mekka í Sádi-Arabíu í fyrradag að sakbitnar Evrópuþjóðir ættu frekar að láta gyðinga hafa landsvæði í eigin álfu undir ríki sitt en að koma vandanum yfir á Mið-Austurlönd. 10.12.2005 06:15
Konunum var fyrst sagt upp Kvenkyns stjórnendur voru fyrst látnir fara frá fjarskiptafyrirtækinu Ericsson þegar harðnaði á dalnum fyrir nokkrum árum. Ericsson hélt þá eftir karlmönnum þar sem þeir voru frekar taldir þora að taka erfiðar ákvarðanir. 10.12.2005 06:15
Hvatt til bólusetningar Hettusóttartilfellum fjölgaði verulega í nóvember, samkvæmt Farsóttarfréttum Landlæknisembættisins. Nítján greindust með hettusótt í mánuðinum. Í Farsóttafréttum fyrr á þessu ári var fjallað um hettusótt sem greinst hafði hér á landi á árinu 2005. Talið var að faraldurinn hefði náð hámarki í júlí og ágúst og myndi dvína seinni hluta ársins. 10.12.2005 06:15
Krefjast niðurfellingar Baugsmálsins Sigurður Tómas Magnússon hefur verið settur saksóknari í Baugsmálinu öðru sinni. Verjendur í málinu telja engu að síður að hann hafi ekki verið gildur saksóknari í málinu á fyrra stigi og krefjast niðurfellingar þess. 10.12.2005 06:00
Pólland helsta miðstöðin Pólland var aðalmiðstöð leynifangelsa CIA í Evrópu, þar sem meintir hryðjuverkamenn voru hafðir í haldi á laun. Þetta fullyrti talsmaður Mannréttindavaktarinnar (Human Rights Watch) í gær. Talsmenn pólskra stjórnvalda halda hins vegar fast við að hafa hvergi komið við sögu. 10.12.2005 05:45
Fjárlagadeila enn í hnút Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sem nú gegnir formennskunni í Evrópusambandinu, ráðfærði sig við leiðtoga hinna ESB-ríkjanna í gær um þau mál sem til stendur að útkljá á leiðtogafundi í næstu viku. 10.12.2005 05:30
Freivalds gæti stigið úr stóli Laila Freivalds, utanríkisráðherra Svíþjóðar, er sögð íhuga alvarlega að segja af sér embætti. Hún þótti standa sig illa eftir flóðbylgjuna í Indlandshafi í fyrra og var harðlega gagnrýnd í úttekt sænsku ríkisstjórnarinnar. 10.12.2005 05:15
Vill óháða úttekt á öryrkjaskýrslunni Forsætisráðherra vill ekki staglast á tölum og biður um óháða úttekt á öryrkjaskýrslunni. Stjórnarandstaðan segir að samfélagið þoli ekki að góðæri sigli framhjá öryrkjum. Málið var rætt utan dagskrár á lokadegi Alþingis fyrir jól. 10.12.2005 05:00
Þota rann út af brautinni Boeing 737-þota í innanlandsflugi í Bandaríkjunum skautaði út af flugbraut er hún lenti á snævi þöktum Midway-flugvellinum í Chicago í fyrrakvöld. Flugvélin fór í gegnum flugvallargirðinguna og út á þjóðveg með þeim afleiðingum að sex ára gamall drengur dó, en hann var farþegi í bíl sem þotan skall á. 10.12.2005 04:45