Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kanna hvort verktakar fari að lögum Forsvarsmenn Norðuráls á Grundartanga og fulltrúar þeirra stéttarfélaga sem eiga aðild að kjarasamningi við Norðurál funduðu í morgun um málefni þeirra erlendu starfsmanna sem vinna við stækkun Norðuráls hjá ýmsum verktökum á Grundartangasvæðinu. 4.11.2005 11:26
Ágreiningur um kjör í stjórn Framsóknarmenn í Reykjavík ætla að efna til opins prófkjörs vegna borgarstjórnarkosninganna í vor. Stuðningyfirlýsing við Framsóknarflokkinn dugir til að vera gjaldgengur í prófkjörinu. Fundur í kjördæmaráði Reykjavíkurkjördæmis-suður leystist upp í gær vegna ágreinings um kjör í stjórn. 4.11.2005 10:42
Bjórbruggverksmiðja rís á Litla Árskógssandi Reisa á bruggverksmiðju á Litla Árskógssandi við Eyjafjörð innan tíðar og framleiða þar áfengan bjór. Hjónin Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson eru á förum til Tékklands til að kaupa áhöld til framleiðslunnar. Reist verður 300 fermetra stálgrindarhús yfir framleiðsluna og er stefnt að því að brugga 200 þúsund lítra af bjór á ári. 4.11.2005 10:39
Bush aldrei verið jafn óvinsæll George Bush Bandaríkjaforseti hefur aldrei verið jafn óvinsæll og hann er nú. Í skoðanakönnun sem gerð var fyrir CBS-fréttastofuna reyndust aðeins 35% þeirra sem tóku þátt ánægð með störf forsetans. 4.11.2005 10:17
Stefnir í stríð milli Eþíópíu og Erítreu Hætta er á nýju stríði á milli Afríkuríkjanna Eþíópíu og Erítreu en herflokkar beggja þjóða hafa safnast saman meðfram landamærum ríkjanna tveggja. Eþíópía og Erítrea hafa áður háð stríð vegna landamæranna en því stríði lauk árið 2001. 4.11.2005 10:12
Skulda mest á aldrinum 36-40 ára Hjón og sambýlisfólk á aldrinum 36 til 40 ára skulda að jafnaði mest samkvæmt samantekt Hagstofunnar, eða 13 milljónir króna að meðaltali. Af þeim skuldum eru rúm 68 prósent vegna húsnæðis. 4.11.2005 09:09
Skotárás í Osló Maður hóf skotárás fyrir utan bar í miðborg Oslóar á miðnætti í nótt. Einn maður særðist lítilsháttar á höfði en talið er að hann hafi særst þegar hann kastaði sér í götuna í skotárásinni eða að öðrum orsökum. 4.11.2005 08:41
Ferja sökk í Pakistan 60 manns fórust þegar ferja sökk í Indus ánni í Pakistan í morgun. Talsmaður pakistanska hersins segir að ferjan hafi sokkið nálægt borginni Thatta, sunnarlega í Pakistan. Talið er að 80 manns hafi verið um borð þegar ferjan sökk en verið er að rannsaka orsakir slyssins. 4.11.2005 08:37
12 þúsund hafa yfirgefið heimili sín Yfir tólf þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Hondúras vegna úrhellisrigninga að undanförnu. Ár flæða yfir bakka sína og er vatnið byrjað að eyðileggja vegi sem liggja milli fimmtíu þorpa og kaupstaða þar sem land stendur lægst við strandir. 4.11.2005 08:04
Hefur hlotið 25 dóma á 15 árum Síbrotamaður var dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir ítrekuð þjófnaðarbrot í Hæstarétti í gær. Braust maðurinn bæði inn í bíla og verslanir og stal þaðan verðmætum. Frá árinu 1990 til ársins 2004 hefur maðurinn samtals 25 sinnum hlotið refsidóma fyrir brot á hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. 4.11.2005 07:53
Níu ára palestínskur drengur skotinn Ísraelskir hermenn skutu og særðu níu ára palestínskan dreng á Vesturbakka Jórdan í gær. Hermennirnir héldu að drengurinn væri vopnaður en seinna kom í ljós að hann var með leikfangariffil. 4.11.2005 07:51
Ný tegund ökuréttinda vegna pallbíla Byrjað er að bjóða upp á nýja tegund ökuréttinda til þess að koma til móts við þá sem eiga pallbíla, en margir bílanna eru það þungir að almenn ökuréttindi duga ekki til. 4.11.2005 07:45
Útfæði erlends gjaldeyris frá landinu Talsvert útflæði erlends gjaldeyris var frá landinu í september síðastliðnum. Stafar það aðallega af erlendum verðbréfakaupum innlendra aðila. Einnig má gera ráð fyrir aukinni sölu íslenskra skuldabréfa til erlendra aðila á næstu misserum. 4.11.2005 07:30
Skotið á lögreglumenn í París Skotið var á lögreglumenn í úthverfum Parísar í gærkvöld en enginn særðist í átökunum. Óeirðir geisuðu í borginni, áttundu nóttina í röð, og var kveikt í yfir 50 bílum. Þá var ráðist á skóla og strætisvagna í alls níu úthverfum borgarinnar. 4.11.2005 07:28
KB banki hækki sjálfur vexti Búast má við að vextir á íbúðalánum Íbúðalánasjóðs hækki í árslok. Hallur Magnússon, sviðsstjóri þróunarsviðs hjá Íbúðalánasjóði, segir samt nær fyrir KB banka að hækka vexti á sínum lánum. Þenslan sé jú sprottin upp úr óheftum lánum bankanna. 4.11.2005 07:15
Bandarísk stjórnvöld hafi leyfi íslenskra til fangaflugs Össur Skarphéðinsson fullyrðir á heimasíðu sinni að bandarísk stjórnvöld hafi formlegt leyfi íslenskra stjórnvalda til að fljúga með meinta hermdarverkamenn í haldi um Ísland. Þetta megi lesa út úr yfirlýsingu Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra, frá 18. mars 2003, sem birt hafi verið á vef Hvíta Hússins 26. mars sama ár. 4.11.2005 07:15
Borgin krefst hærra verðs Mikið ber í milli í viðræðum fulltrúa ríkisins og Reykjavíkurborgar um sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun, en farið var yfir stöðu málsins á fundi borgarráðs í gær. 4.11.2005 07:00
Vill láta kæra hugverkastuld Framkvæmdastjóra Smáís er farið að lengja eftir niðurstöðu í rannsókn lögreglu á meintum ólöglegum skráaskiptum á netinu. Hann vill fá ákæru. 4.11.2005 07:00
Bóksalinn í Kabúl óskar eftir hæli í Noregi Bóksalinn í Kabúl, Shah Mohammad Rais, hefur óskað eftir pólitísku hæli í Noregi en norsk stjórnvöld eru treg til að veita honum það. 4.11.2005 07:00
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda á Selfossi í gær. Stúlkan var til öryggis flutt á Landspítala háskólasjúkrahús í Fossvogi. 4.11.2005 07:00
Tónlistarmyndbönd hafi slæm áhrif á ímynd stúlkna Tónlistarmyndbönd geta haft slæm áhrif á sjálfsímynd stúlkna. Þessi myndbönd sýna gjarnan tágrannar stelpur í flegnum fötum, en eins og kunnugt er þá hafa ekki allar stúlkur þessa líkamsbyggingu. Ímynd stúlkna var rædd á ráðstefnu uppeldis- og mannfræðinema. 3.11.2005 21:00
Rauð bindi grundvallaratriði í kosningum Hart er barist um atkvæði átján þúsund Reykvíkinga sem eru á kjörskrá Sjálfstæðisflokksins og hafa í hendi sér hver verður kosinn borgarstjóraefni í prófkjörinu um helgina. Frambjóðendurnir leggja ýmislegt á sig til að heilla kjósendur upp úr skónum með hugmyndaauðgi og ekki síst réttu ímyndinni, þar sem rauð bindi eru grundvallaratriði. 3.11.2005 20:45
Tími ríkisstjórnar Merkel strax á enda? Ríkisstjórn Angelu Merkel í Þýskalandi var spáð tveggja ára líftíma eftir kosningarnar fyrir mánuði. Stjórnin hefur reyndar ekki ennþá verið mynduð en tími hennar virðist engu að síður liðinn. 3.11.2005 20:30
Telur nýju Hringbrautina mistök Borgarfulltrúi R-listans telur nýju Hringbrautina vera mistök því hún taki allt of mikið landrými. Hann segir að grafa verði götuna niður eða byggja yfir hana þegar Vatnsmýrin verði byggð upp. 3.11.2005 20:15
Litlu sparisjóðirnir þoli varla hærri bindiskyldu Litlu sparisjóðirnir þola varla hærri bindiskyldu, segir aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Hann undrast málfluting þeirra sem vilja snúa til fyrri hátta, enda notar enginn seðlabanki í þróuðu ríki, bindiskyldu í baráttunni við verðbólgu. 3.11.2005 20:00
Skotbardagar í fátækrahverfi í París Skotbardagar brutust út í einu af fátækustu úthverfum Parísarborgar í nótt en blóðug átök hafa staðið þar allar nætur í viku. Kveikt hefur verið í hundruðum bifreiða og ráðist inn í skóla, verslanir og stofnanir. 3.11.2005 19:45
Lofar lögum um starfsmannaleigur fyrir jól Ríkisstjórnin situr hjá á meðan glæpafyrirtæki brjóta á fátæku erlendu verkafólki, segir Össur Skarphéðinsson og vill lög hið snarasta. Félagsmálaráðherra segir að íslensk fyrirtæki sem taka þátt í vitleysunni ættu að skammast sín, öllum beri að virða leikreglur á vinnumarkaði enda sé Ísland ekkert fríríki í þessum efnum. Hann lofar lögum um starfsmannaleigur fyrir jól. 3.11.2005 19:30
Mikil leynd yfir fangelsum Mikil leynd hvílir yfir dularfullum fangelsum þar sem meintir hryðjuverkamenn eru yfirheyrðir. Yfirvöld í Evrópu og Bandaríkjunum áttu erfitt með að svara spurningum fréttamanna um málið í dag. 3.11.2005 19:24
Söluaukning um 13,3 prósent Sala Marels fyrstu níu mánuði þessa árs nam 94,3 milljónum evra, eða jafnvirði 7,5 milljarða íslenskra króna. Þetta er um 13,3 prósenta aukning frá fyrra ári. 3.11.2005 18:15
Krónan styrkst enn frekar Krónan hefur styrkt sig um núll komma tuttugu og eitt prósent í dag og hefur gengisvísitalan að líkindum aldrei verið jafn sterk, að minnsta kosti ekki frá 1992. 3.11.2005 18:00
554 milljónir í hagnað 554 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Og fjarskipta eftir tekjuskatt fyrstu níu mánuði þessa árs samanborið við 367 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. 3.11.2005 18:00
Betri útkoma hjá ríkissjóði en áætlað var Breyting á handbæru fé frá rekstri ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins er jákvæð um 14,6 milljarða króna á tímabilinu. 3.11.2005 18:00
Libby lýsir sig saklausan vegna lekamáls Lewis Libby, fyrrverandi starfsmannastjóri Dicks Cheneys, varaforseta Bandaríkjanna, lýsti sig saklausan við upphaf réttarhalda yfir honum vegna hins svokallaða lekamáls í dag. 3.11.2005 17:30
Víða hálka og hálkublettir Nokkur éljagangur er með Norðausturströndinni. Hálka eða hálkublettir eru víða á vegum um allt norðanvert landið.Að mestu er greiðfært um Suðurland og Vesturland. 3.11.2005 17:22
Merck ekki skaðabótaskylt vegna Vioox Kviðdómur í New Jersey í Bandaríkjunum komst í dag að þeirri niðurstöðu í dag að lyfjafyrirtækið Merck hefði gert læknum nægilega grein fyrir aukaverkunum af gigtarlyfinu Vioox og hefði því ekki blekkt neytendur við markaðsetningu lyfsins. Fyrirtækið væri því ekki skaðabótskylt gagnvart sextugum póstburðarmanni sem lögsótti fyrirtækið og sagðist hafa fengið hjartaáfall vegna notkunar lyfsins. 3.11.2005 17:15
Ritsjóri The Sun fangelsuð vegna líkamsárásar Ritstjóri dagblaðsins The Sun í Bretlandi, Rebekah Wade, var handtekin í morgun vegna árásar á eiginmann sinn, leikarann, Ross Kemp. Málsatvik voru þau að lögreglan var kölluð að heimili þeirra vegna óláta og þegar komið var á staðinn stórsá á eiginmanni hennar og var hann meðal annars skorinn í andliti. 3.11.2005 17:15
Refsing vegna líkamsárásar felld niður Tuttugu og átta ára gamall karlmaður var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af líkamsárás í ágúst í fyrra í miðbæ Reykjavíkur. Hann var árkærður fyrir að hafa slegið annan karlmann hnefahöggi í andlitið og veitt honum talsverða áverka. 3.11.2005 17:15
Ástþóri dæmdar bætur vegna frelsissviptingar Hæstiréttur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða Ástþóri Magnússyni 150 þúsund krónur vegn frelsissviptingar, en Ástþór var handtekinn og sat í gæsluvarðhaldi í fjóra daga síðla nóvember 2002 fyrir að hafa sent orðsendingu um að hætta væri á hryðjuverkaárás á íslenska flugvél. 3.11.2005 17:00
45 daga fangelsi fyrir líkamsárás Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í 45 daga fangelsi fyrir tvöfalda líkamsárás. Og einnig til greiðslu þjáningar- og miskabóta til beggja þolenda. Líkamsárásin var framin á veitingastaðnum Klúbbnum í október í fyrra. 3.11.2005 16:45
Tillögur að deiliskipulagi áfram til sýnis Ákveðið hefur verið að framlengja sýningu á tillögum sem bárust í samkeppninni um deiliskipulag fyrir nýtt sjúkrahús á lóð Landspítalans við Hringbraut um nokkrar vikur vegna mikils áhuga. 3.11.2005 16:36
Prófkjör Samfylkingar í Hafnarfirði Næstkomandi laugardag fer fram lokað prófkjör hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði. Nú þegar eru tvö þúsund manns á kjörskrá og leyfilegt er að skrá sig í flokkinn fram að kjörfundi. Kjörfundur hefst klukkan tíu og stendur til sex og kjörgengir eru þeir sem orðnir eru sextán ára á kjördag. 3.11.2005 16:30
Berlusconi segist hafa stafað ógn af sprengjumanni Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segir að sjálfsmorðsárásarmaður hafi ætlað að ráða hann af dögum á knattspyrnuleik. Hann sakar einnig pólitíska andstæðinga sína um að auka hættuna á hryðjuverkaárásum í landinu með því að draga heilindi hans í efa. 3.11.2005 16:15
Vilja rannsókn á þróun valds og lýðræðis Efnahagsleg völd eru að færast á hendi færri manna og því er mikilvægt að lýðræðið sé virkt og Alþingi samþykki reglur til að geta veitt framkvæmdavaldinu aðhald við samningu reglna fyrir samfélagið. Þetta kom meðal annars fram í máli þingmanna Samfylkingarinnar við umræður um þingsályktunartillögu sem þeir leggja saman fram um að fram skuli fara rannsókn á þróun valds og lýðræðis í íslensku samfélagi. 3.11.2005 15:58
Október í kaldara lagi Veður í október var í kaldara lagi en meðalhiti í Reykjavík mældist 3 stig og er það 1,4 stigum undir meðallagi. Októbermánuður í ár var sá kaldasti síðan árið 1998. 3.11.2005 15:44
Bíll ræningjanna fundinn Mennirnir sem rændu peningaflutningabíl Securitas norður af Gautaborg í morgun ganga enn lausir. Bíllinn sem þeir notuðu við ránið er fundinn en enn stendur yfir víðtæk leit að mönnunum. 3.11.2005 15:30