Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hafi hugsanlega verið ýtt Nítján ára piltur hlaut alvarlega áverka á höfði þegar ekið var á hann á Hverfisgötu klukkan hálfellefu í gærkvöld. Hann var í litlum hópi ungmenna að skemmta sér, að sögn lögreglu, og var áfengi haft um hönd. Svo virðist sem pilturinn hafa annað hvort farið út á götuna eða verið ýtt. Ökumaður bílsins var 21 árs gömul stúlka. Enginn var handtekinn, en þrjú ungmenni voru flutt á lögreglustöð í áfalli. 16.10.2005 00:01
Flestir fara að lögum og reglum Rjúpnaveiðiðimenn virðast flestir hafa farið að lögum og virt tilmæli um hóflegar veiðar þann sólarhring sem liðinn er af veiðitímabilinu, en misjafnlega hefur viðrað til veiða á landinu. 16.10.2005 00:01
Barátta um varaformannsembætti Landsfundi Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll, sem staðið hefur síðan á fimmtudag, lýkur um miðjan dag í dag. Geir H. Haarde utanríkisráðherra tekur við sem formaður flokksins af Davíð Oddssyni en Geir er sá eini sem hefur boðið sig fram til starfans. Þá verður kosið um eftirmann Geirs í embætti varaformanns flokksins klukkan þrjú í dag, en þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri hafa þegar gefið kost á sér. 16.10.2005 00:01
Tvö umferðaróhöpp í gærkvöld Tvö umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í gærkvöld og var um útafasktur að ræða í báðum tilvikum. Bíll fór út af veginum við Reykholt um klukkan hálftíu. Engin slys urðu á fólki en fjarlægja þurfti bílinn með dráttarbíl. Svipað var uppi á teningnum á Holtavörðuheiði laust eftir klukkan ellefu í gærkvöld en þá skemmdist fólksbíll nokkuð þegar hann fór út af veginum. Enginn í bílnum slasaðist. 16.10.2005 00:01
Fimm hermenn drepnir í Írak Fimm bandarískir hermenn létust þegar sprengja sprakk nærri farartæki þeirra í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks í gær. Frá þessu greindi Bandaríkjaher í dag. Uppreisnarmenn létu lítið að sér kveða á flestum stöðum í landinu í gær þegar Írakar greiddu atkvæði um drög að nýrri stjórnarskrá fyrir landið en þó kom til átaka á milli uppreisnarmanna úr röðum súnníta og bandarískra og írakskra sveita í Ramadi í gær og hafði það nokkur áhrif á kjörsókn þar. 16.10.2005 00:01
Býst við að taka ákvörðun Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist ekki sjá neitt annað í spilunum en að hann taki ákvörðun um nýjan saksóknara sem taka á við þeim 32 ákæruatriðum í Baugsmálinu sem Bogi Nilsson ríkissaksóknari sagði sig frá fyrir helgi. Þetta sagði ráðherrann í Silfri Egils á Stöð 2 fyrr í dag. 16.10.2005 00:01
Níu konur í miðstjórn Kosningu í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins sem fram fór á landsfundi í Laugardalshöll er lokið, en alls börðust 24 um ellefu sæti í stjórninni. Alls voru níu konur kjörnar í miðstjórnina og tveir karlar, en það eru Birna Lárusdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Elínbjörg Magnúsdóttir, Grímur Gíslason, Magni Kristjánsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Björk Guðjónsdóttir, Helga Þorbergsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Stefanía Katrín Karlsdóttir, Sigríður Ásthildur Andersen. 16.10.2005 00:01
Fangauppreisn nærri Búenos Aíres Að minnsta kosti sautján eru látnir í fangauppreisn í fangelsi suður af Búenos Aíres, höfuðborg Argentínu, sem enn stendur yfir. Eftir því sem argentínskir fjölmiðlar greina frá kom til átaka í kjölfar þess að beiðni fanga um lengri heimsóknartíma í dag var hafnað í gærkvöld. Um 200 fangar eru sagðir hafa tekið þátt í uppreisninni og logar eldur í hluta fangelsisins. 16.10.2005 00:01
Sjálfstæði fjölmiðla verði tryggt Landsfundur Sjálfstæðisflokksins skorar á Alþingi að setja lög sem tryggja sjálfstæði íslenskra fjölmiðla með hagsmuni samfélagsins af heiðarlegri og vandaðri fjölmiðlun að leiðarljósi. Þetta kemur fram í ályktun nefndar um menningarmál sem samþykkt var á fundinum í dag. 16.10.2005 00:01
Tveir Ísraelsmenn féllu í fyrirsát Tveir Ísraelsmenn létust og fimm særðust í skotárás Palestínumanna á Vestubakkanum síðdegis, að sögn talsmanns ísraelskra hjálparsveita á svæðinu. Árásármennirnir gerðu fórnarlömbunum fyrirsát á stað þar sem puttaferðalangar hafast gjarnan við, skammt suður af Jerúsalem. 16.10.2005 00:01
Búið að yfirheyra mann á Selfossi Lögregla á Selfossi hefur nú sleppt manni sem handtekinn var á dansleik í nótt eftir að hann lagði til annars manns með hnífi. Að sögn lögreglu var árásarmaðurinn, sem var ölvaður þegar atvikið átti sér stað, yfirheyrður þegar ölvíman rann af honum og honum sleppt í kjölfarið. Málið fer nú til sýslumanns sem tekur ákvörðun um ákæru á hendur manninum. 16.10.2005 00:01
Vill afnema synjunarvald forseta Landsfundur Sjálfstæðisflokksins telur óhjákvæmilegt að ákvæði 26. greinar stjórnarskrárinnar um synjunarvald forseta verði numið úr gildi. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var að fundinum í dag. Þá telur fundurinn að huga verði að almennri heimild í stjórnarskrá til þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekin mál. 16.10.2005 00:01
Háttsettur Palestínumaður drepinn Palestínumaður, sem sagður var háttsettur innan hinna herskáu samtaka „Íslamska jíhad", var drepinn af ísraelskum hersveitum norðarlega á Vesturbakkanum í dag. Ísraelsk útvarpsstöð hefur þetta eftir heimildarmanni úr röðum Palestínumanna. 16.10.2005 00:01
Unglingur handtekinn vegna hótana Lögregla í Árósum handtók í gær 17 ára pilt fyrir að hóta teiknurum hjá danska blaðinu Jótlandspóstinum lífláti vegna mynda af spámanninum Múhameð sem birtust í blaðinu. Myndirnar, sem voru tólf talsins og birstust í blaðinu 30. september, vöktu mikla reiði hjá múslímum í Danmörku sem sögðu þær guðlast og gengu um 3500 þeirra um götur Kaupmannahafnar og mótmæltu þeim á föstudag. 16.10.2005 00:01
Börn finnast á lífi í rústunum Fjögur börn fundust á lífi í dag í rústum byggingar nærri Balakot-borg sem hrundi í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmír um síðastliðna helgi. Yngsta barnið er sagt vera aðeins nokkura mánaða gamalt og það elsta níu ára. 16.10.2005 00:01
Truflun á netsambandi við útlönd Truflun hefur orðið á netsambandi við útlönd vegna bilunar í endabúnaði Farice-sæstrengsins í Skotlandi. Þetta kemur fram á heimasíðu Farice. Viðgerð á strengnum stendur yfir og er búist við að hann verði kominn í lag síðar í dag. Á meðan fer öll umferð um Cantat 3 sæstrenginn. 16.10.2005 00:01
Pilturinn útskrifaður af gjörgæslu Nítján ára piltur, sem hlaut alvarlega áverka á höfði þegar ekið var á hann á Hverfisgötu í gærkvöld, er á batavegi og hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild. Pilturinn var í litlum hópi ungmenna að skemmta sér þegar hann annað hvort fór út á götuna af sjálfsdáðum, eða var ýtt, að sögn lögreglu. 16.10.2005 00:01
Bretar neita aðild að árás í Íran Bretar neituðu í dag ásökunum íranskra yfirvalda um aðild að sprengjutilræðum í suðurvesturhluta Írans í gær sem kostuðu fimm manns lífið. Tvær heimatilbúnar sprengjur sprungu með nokkurra mínútna millibili í miðbæ borgarinnar Ahvaz í Khuzestan-héraði og auk þeirra fimm sem létust særðust ríflega 80 manns. 16.10.2005 00:01
Geir hlaut 94,3 prósent atkvæða Geir H. Haarde utanríkisráðherra var rétt í þessu kjörinn áttundi formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í Laugardalshöll. Geir hlaut 94,3 prósent atkvæða, en hann gaf einn kost á sér til formanns. 23 aðrir sjálfstæðismenn hlutu samtals 65 atkvæði, en auðir seðlar voru 40. Nú stendur yfir varaformannskjör en þar höfðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, gefið kost á sér. 16.10.2005 00:01
Segir 50 þúsund deyja í Bretlandi Landlæknir Bretlands, Sir Liam Donaldson, segir að fuglaflensa muni koma til Bretlands en ekki sé víst að hún geri það í vetur. Þá segir hann að ef hin banvæna fuglaflensuveira H5N1 stökkbreytist og fari að berast á milli manna megi búast við því að um 50 þúsund manns látist af hennar völdum í landinu. Hins vegar muni hún hafa mest áhrif í Austur-Asíu en þar hafa 65 þegar látist af völdum H5N1-stofnsins. 16.10.2005 00:01
Eitt barn sem fannst í rústunum Stúlka fannst í dag í rústum byggingar nærri Balakot-borg sem hrundi í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmír um síðastliðna helgi. Fyrr í dag greindi Reuters-fréttastofan frá því að fjögur börn hefðu fundust á lífi en misskilningurinn byggðist á því að þrjú börn, sem sögð eru systkini stúlkunnar, tilkynntu hjálparstarfsmönnum um hvar hana væri að finna í rústunum. 16.10.2005 00:01
Hefur ekki áhuga á forsetaembætti Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að hún hefði engan áhuga á því að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna í næstu forsetakosningunum, en þegar hafa verið opnaðar að minnsta kosti tvær vefsíður þar sem Rice er hvött til að gefa kost á sér sem forsetaefni repúblikana í kosningunum 2008. 16.10.2005 00:01
Gjafir streyma til nýfædds prins Hundruð Dana hafa lagt leið sína til Amalíuborgar í Kaupmannahöfn til að færa hinum nýfædda syni Friðriks krónprins og Maríu Elísabetar krónprinsessu gjafir. Lög biðröð myndaðist í gær við höllina og tóku starfsmenn í höllinni við pökkunum. Þegar yfir lauk í gær höfðu hátt í 400 pakkar borist og meðal þess sem prinsinn ungi fékk var barnastóll, bækur, leikföng auk fjölmargra bangsa. 16.10.2005 00:01
Ráðherralisti tilbúinn í Noregi Jens Stoltenberg, tilvonandi forsætisráðherra Noregs, segist hafa komist að samkomulagi um hvert ráðherraembætti í nýrri ríkisstjórn en hann hyggst ekki greina frá því hverjir sitja í henni fyrr en hann hefur látið Harald konung fá lista yfir ráðherrana í fyrramálið. 16.10.2005 00:01
Braut rúðu í farþegaþotu á flugi Karlmaður var handtekinn af lögreglunni á Flórída á dögunum eftir að hafa brotið rúðu í farþegaþotu sem var á leið frá Las Vegas til borgarinnar Tampa í Flórídaríki. Aðeins innri rúðan brotnaði og því varð engum meint af athæfi mannsins. Maðurinn gæti átt yfir höfði sér tuttugu ára fangelsisdóm fyrir athæfið. 16.10.2005 00:01
Þorgerður kjörin varaformaður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var rétt í þessu kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins. 16.10.2005 00:01
300 skjálftar við Grímsey Grímseyjarhrinan er í rénun og verða nú um tveir skjálftar á klukkutíma. Alls hafa skráðst ríflega 300 skjálftar síðan á föstudagseftirmiðdag. 16.10.2005 00:01
Þorgerður fékk 62,3% atkvæða Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var rétt í þessu kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hún fékk 728 atkvæði eða 62,3% greiddra atkvæða en mótframbjóðandi hennar, Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, hlaut 424 atkvæði eða 36,3% greiddra atkvæða. Tíu aðrir sjálfstæðismenn fengu samtals 16 atkvæði. 16.10.2005 00:01
Barist um hjálpargögn Neyðarhjálp berst á ný til fórnarlamba jarðskjálftans í Kasmír en eymdin og örvilnunin er umtalsverð. Eftir úrhellisrigningu undanfarna sólarhringa hefur stytt upp en á stundum er barist um hjálpargögn. 16.10.2005 00:01
Hrærður og þakklátur Geir H. Haarde var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins með nær öllum greiddum atkvæðum á landsfundi flokksins í dag. Nýr formaður sagðist hrærður og þakklátur en sá gamli gekk á táknrænan hátt af hinu pólitíska sviði. 16.10.2005 00:01
Störf sjúkraflutningamanna trufluð Nítján ára piltur hlaut alvarlega höfuðáverka þegar ekið var á hann á Hverfisgötu í gærkvöld. Fjarlægja þurfti ungmenni af slysstað sem trufluðu starf lögreglu og sjúkraflutningamanna. 16.10.2005 00:01
Bensínstyrkir verði ekki skertir Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti í dag að hvetja til þess að fallið verði frá því að skerða bensínstyrk til öryrkja. Þá vilja sjálfstæðismenn að styrkir hreyfihamlaðra til bifreiðakaupa verði auknir. 16.10.2005 00:01
Loksins komin lögleg útgáfa Enska útgáfan af Harry Potter and the Half-Blood Prince kom út í júlí og óleyfileg kínversk þýðing á bókinni komst í dreifingu tveimur vikum seinna. 16.10.2005 00:01
Stjórnarskráin líklega samþykkt Ánægja ríkir með kosningarnar í Írak í gær. Það þykir næsta víst að stjórnarskráin sem kosið var um hafi verið samþykkt, en þar með eru þó ekki allir erfiðleikar yfirstignir. 16.10.2005 00:01
Gert ráð fyrir samþykki Þrátt fyrir mikla þátttöku súnnía í þjóðarkosningum Íraka um stjórnarskrá á laugardag er talið líklegt að niðurstaðan verði sú að þjóðin samþykki nýju stjórnarskrána. Tveir þriðju hlutar kjósenda í þremur héruðum þurfa að hafna stjórnarskránni svo hún verði felld. 16.10.2005 00:01
Syrgjendur vilja fá líkin Hundruð svartklæddra syrgjenda söfnuðust saman í gær fyrir utan skrifstofur saksóknara í borginni Naltjik í rússneska hluta Kákasus og kröfðust þess að lík ættingja þeirra yrðu látin af hendi, svo hægt væri að grafa þau. 16.10.2005 00:01
Hvalur á stafni Áhöfn ítölsku ferjunnar Moby Aki brá heldur betur í brún þegar upp komst um orsakir stýriserfiðleika skipsins á laugardag. Fimmtán metra langur hvalsskrokkur, 25 tonn á þyngd, lá yfir stefni ferjunnar og hafði hann valdið því að erfiðlega gekk að stýra ferjunni inn í höfnina í Livorno á Norður-Ítalíu. 16.10.2005 00:01
Voru fimm daga á sporbaug Kínverjar bjuggu sig undir komu geimfarsins Shenzhou 6 í gærdag, en búist er við lendingu farsins nú í morgunsárið. Tveir geimfarar, Nie Haisheng og Fei Junlong, voru um borð í geimfarinu, sem var skotið á loft á miðvikudag. Kínverjar voru þriðja þjóðin sem hefur sent mannað geimfar út í heim, og var þetta í annað sinn sem þeir sendu geimfar út. Hinar þjóðirnar tvær eru Rússland og Bandaríkin. 16.10.2005 00:01
Ný stjórn Jens Stoltenberg, nýr forsætisráðherra Noregs, skipar í ráðherrastóla í Osló í dag, en ráðherralaust hefur verið í Noregi nú um helgina, þar sem síðasta ríkisstjórn sagði af sér á föstudag. 16.10.2005 00:01
Barn finnst á lífi Ungt stúlkubarn fannst á lífi í gær í rústum byggingar nærri Balakot-borg, sem hrundi í jarðskjálftunum í Kasmír um síðustu helgi. Stúlkan hafði verið grafin í rústunum í átta daga þegar systkini hennar fundu hana. 16.10.2005 00:01
Minnkandi þorskstofn Þorskstofninn í Barentshafi hefur minnkað verulega, segja norskir og rússneskir fiskifræðingar sem hafa nýlokið stofnstærðarmælingum þar. 16.10.2005 00:01
Hungursneyð í Malaví Yfirvofandi hungursneyð í Malaví mun hafa áhrif á um helming þjóðarinnar, að sögn forseta landsins, Bingu wa Mutharika, sem kallaði á hjálp frá öðrum þjóðum í ríkissjónvarpi og -útvarpi landsins á laugardag. 16.10.2005 00:01
Fimm bandarískir hermenn falla Fimm bandarískir hermenn létust er sprengja sprakk á vegi í Írak á laugardag, þegar Írakar kusu um stjórnarskrá sína. Bandaríski herinn sagði frá þessu í gær en áður hafði herinn sagt að kosningarnar hafi farið friðsamlega fram. 16.10.2005 00:01
Þurrkar á Amason-svæðum Fjárskortur hamlar flutningum á nauðsynjavörum til Amason-svæða Brasilíu, sem miklir þurrkar hafa hrjáð síðustu mánuði, að sögn talsmanna brasilíska hersins. 16.10.2005 00:01
Eignarhaldið skorðað Landsfundur Sjálfstæðisflokksins skorar á Alþingi að setja lög um eignarhald á fjölmiðlum. „Að undanförnu hefur nauðsyn rammalöggjafar um starfsemi fjölmiðla orðið æ augljósari,“ segir í ályktun fundarins. 16.10.2005 00:01