Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flytja grafir gyðinga Ísraelski herinn hófst í gær handa við að grafa upp 48 grafir gyðinga á Gaza-svæðinu. Hinir látnu verða síðan fluttir til Ísrael og jarðsettir á ný. Þetta er hluti af brottflutningi landtökumanna af Gaza en vika er liðin frá því að lokið var við að rýma 21 byggð landtökumanna á Gaza-svæðinu. 28.8.2005 00:01
Fatlaður fíll fær gervifót Taílenski fíllinn Motola sem hoppað hefur um á þremur fótum í sex ár getur tekið gleði sína á ný því hann hefur fengið gervifót. 28.8.2005 00:01
Verðlaunahafarnir vinna saman Þau undur og stórmerki urðu á Íslandsmótinu í kranastjórnun á föstudag að þeir þrír sem unnu til verðlauna vinna allir hjá sama fyrirtækinu. Heitir það Feðgar ehf og sinnir alhliða byggingaverktöku. 28.8.2005 00:01
Sonur Sharon ákærður Omri Sharon, sonur forsætisráðherra Ísraels Ariel Sharon, hefur verið ákærður fyrir spillingu. Hann er grunaður um að hafa haldið leyndum ólöglegum fjárframlögum í einn af kosningasjóðum föður síns með því að nota uppspunnin fyrirtæki. 28.8.2005 00:01
Kærustupar selur græjur á netinu Vefverslunin portus.is tók nýlega til starfa en í gegnum hana er hægt að kaupa hljómtæki af ýmsum stærðum og gerðum. Eigendur portus.is eru kærustuparið Drengur Óla Þorsteinsson og Jóna Benný Kristjánsdóttir sem búsett eru á Höfn í Hornafirði. 28.8.2005 00:01
Flestir blaðamenn drepnir í Írak Fleiri blaðamenn hafa verið drepnir frá upphafi stríðsins í Írak en á þeim tuttugu árum sem átökin í Víetnam stóðu yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum Blaðamenn án landamæra. 28.8.2005 00:01
Bæjarstjóraskipti á Álftanesi Guðmundur G. Gunnarsson tók á föstudag við embætti bæjarstjóra Álftaness af Gunnari Val Gíslasyni sem verið hefur bæjarstjóri í rúm þrettán ár. 28.8.2005 00:01
Afsönnum kannanirnar "Þetta eru svipaðar tölur og birtust manni lengi fram eftir í kosningabaráttunni fyrir fjórum árum," segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins, um niðurstöður skoðanakönnunarinnar. 28.8.2005 00:01
Fólk til sýnis Í dýragarðinum í Lundúnum getur þú talað við dýrin, og sum þeirra svara þér líka. Um helgina voru til sýnis í dýragarðinum átta dýr af tegundinni homo sapiens. Þarna voru á ferðinni átta breskir sjálfboðaliðar, þrír karlar og fimm konur, klæddir í sundföt með fíkjulauf sem skýldu viðkvæmustu staði. 28.8.2005 00:01
Verða að halda vel á spilunum Sjálfstæðismenn mega vel við una en samt er kálið ekki sopið þótt í ausuna sé komið. Þetta segir prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands um niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins á fylgi reykvísku stjórnmálaflokkanna. 28.8.2005 00:01
Fæðir barn í beinni Framleiðendur hollenska Big Brother raunveruleikaþáttarins hafa ákveðið að einn af þátttakendunum muni fæða barn í næstu þáttaröð. Þættirnir sem njóta mikilla vinsælda víða um heim snúast um það að fylgjast með hópi af fólki sem býr í tiltekinn tíma saman í íbúð og fær ekki að fara þaðan nema vera kosið út. 28.8.2005 00:01
Súnníar ákalla alþjóðasamfélagið Íraskir þingmenn ákváðu í gær að vísa drögum að stjórnarskrá landsins til þjóðaratkvæðagreiðslu. Súnníar eru mjög ósáttir við inntak hennar og skora á alþjóðasamfélagið að koma í veg fyrir að hún verði samþykkt. 28.8.2005 00:01
Yrðu slæm úrslit fyrir borgarbúa "Það væri slæmt fyrir borgarbúa ef úrslit kosninga yrðu á þennan veg," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri og borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins fengi Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta ef kosið væri nú. 28.8.2005 00:01
Ísland og Víetnam semja Fyrir helgi skrifuðu Gunnar Snorri Gunnarsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins og Vu Dung, sérlegur fulltrúi forsætisráðherra Víetnam, undir tvíhliða samning Íslands og Víetnam um viðskipti milli landanna. 28.8.2005 00:01
Borgarstjóri fáorður um gagnrýni Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, segist ekki mikið hafa að segja um gagnrýni Össurar Skarphéðinssonar, fyrrum formanns Samfylkingarinnar, á hennar orð í gær. 28.8.2005 00:01
Nema land á fíkniefnamarkaði hér Glæpahópar í Eystrasaltslöndunum eru með afkastamestu framleiðendum amfetamíns og e-taflna í Evrópu. Smygltilraun Litháa á brennisteinssýru til landsins er talin vísbending um að erlendir glæpamenn vilji flytja þekkingu sína hingað 28.8.2005 00:01
Tólf íslenskir strandaglópar Fjórar íslenskar fjölskyldur, 12 manns, eru strandaglópar á Hjaltlandseyjum eftir að Norræna ákvað að sleppa viðkomu í eyjunum í síðustu ferð sinni vegna veðurs. Fólkið átti að koma hingað til lands með ferjunni síðasta fimmtudag, en tefst um viku vegna þessa. 28.8.2005 00:01
Gísli Marteinn í fyrsta sætið Gísli Marteinn Baldursson, varaborgarfulltrúi og sjónvarpsmaður, tilkynnti í gær að hann gæfi kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í haust. Stuðningsmenn Gísla Marteins boðuðu til fundar í Iðnó í gær þar sem Gísli Marteinn tilkynnti þessa ákvörðun sína. 28.8.2005 00:01
Vilhjálmur um könnun "Ég er mjög ánægður með þær niðurstöður sem þessi skoðanakönnun sýnir. Við sjálfstæðismenn munum áfram og eftir næstu kosningar sýna borgarbúum að við stöndum undir þeim væntingum sem til okkar eru gerðar. Þó ber ávallt að hafa í huga að skoðanakannanir eru fyrst og fremst vísbendingar en ekki heilagur sannleikur," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn. 28.8.2005 00:01
Alfreð um könnun "Ég hef oft séð það svartara en þetta," segir Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins. 28.8.2005 00:01
Sjálfstæðismenn fengju 9 fulltrúa Sjálfstæðismenn fengju níu borgarfulltrúa samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Flokkurinn mælist með tæplega 54 prósenta fylgi. Samfylkingin og Vinstri grænir fengju samanlagt sex fulltrúa en Framsóknarflokkurinn fengi ekki mann í borgarstjórn. 28.8.2005 00:01
Eldsvoði í Hlíðunum Ung kona er lífshættulega slösuð eftir eldsvoða í kjallaraíbúð í Hlíðunumn í Reykjavík snemma í morgun. Þegar slökkviliðsmenn náðu konunni út var hún meðvitundarlaus og illa brennd. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar. 27.8.2005 00:01
Tekinn með brennisteinssýru Lithái á þrítugsaldri var í gær ákærður fyrir að hafa komið með tvær flöskur af brennisteinssýru til landsins á mánudag. Brennisteinssýra er nauðsynlegt efni við amfetamínframleiðslu og segir Jóhann Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli að þessu fundur sé skýr vísbending um að framleiðsla þess eigi sér stað hér á landi í nokkrum mæli. 27.8.2005 00:01
Órói á Suðurnesjum Tveir menn ruddust inn í hús í Sandgerði í nótt en þeir áttu óuppgerðar sakir við húsráðanda. Lögreglan var kölluð á staðinn þar sem henni tókst að handsama annan manninn. Honum var sleppt að loknum yfirheyrslum. 27.8.2005 00:01
Hraðakstur á Selfossi Níu ökumenn voru teknir fyrir ofhraðan akstur í nótt á Selfossi, þar af voru tveir innanbæjar. Sá hraðskreiðasti ók á 123 kílómetra hraða á kafla þar sem keyra mátti mest á 90 en innanbæjar ók sá hraðskreiðasti á 77 kílómetra hraða á klukkustund þar sem leyfilegur hraði er 50 kílómetrar á klukkustund. 27.8.2005 00:01
Hetjur fyrir Allah Þrír Tsjetsjenar voru handteknir í Hamborg í Þýskalandi í gærkvöldi eftir að þúsundir lögreglumanna gerðu þar mikla leit að mönnunum. Til þeirra heyrðist á strætisvagnastoppistöð þar sem þeir ræddu þá fyrirætlan sína að gerast hetjur fyrir Allah. 27.8.2005 00:01
Erill í sjúkraflugi á Akureyri Sex beiðnir um sjúkraflug bárust til Slökkviliðs Akureyrar og Flugfélags Íslands í gær. Hægt var að sinna þeim öllum að einu undanskyldu sem varð að fresta vegna veðurs. Fyrsta flugið var farið snemma morguns og því síðasta lauk í gærkvöldi. 27.8.2005 00:01
Kjötkveðjuhátið í Notting Hill Kjötkveðjuhátíðin í Notting Hill í Lundúnum hófst í morgun og er búist við því að milljónir taki þátt í gleðinni um helgina. Hátíðin var fyrst haldin 1964, en var þá mestmegnis fyrir börn. Stáltunnusveit frá Trinidad hélt þá uppi gleðinni og enn þann dag í dag hefst hátíðin með stáltunnileik. 27.8.2005 00:01
Ósætti um yfirlýsingu SÞ Hundrað og áttatíu þjóðarleiðtogar hittast í næsta mánuði til að undirrita tímamótayfirlýsingu um framtíð Sameinuðu þjóðanna. Óvíst er að þeir hafi nokkuð að undirrita þar sem Bandaríkjamenn eru ósáttir við yfirlýsinguna og tilvísanir til þróunaraðstoðar og umhverfisverndar. 27.8.2005 00:01
Amfetamín framleitt á Íslandi Lithái á þrítugsaldri var í gær ákærður fyrir að hafa komið með tvær flöskur af brennisteinssýru til landsins á mánudag. Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli segir að maðurinn hafi verið tekin í hefðbundna tollskoðun við komuna til landsins. 27.8.2005 00:01
Katarina safnar kröftum Fellibylurinn Katrina safnar nú kröftum yfir Mexíkóflóanum og býr sig undir aðra yfirreið yfir suðurströnd Bandaríkjanna. 27.8.2005 00:01
Tekur samkeppni fagnandi Að minnsta kosti tveir munu bítast um leiðtogasæti á lista Samfylkingarinnar við borgarstjórnarkosningarnar í vor. Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem hann segist sækjast eftir fyrsta sæti listans. Stefán vann prófkjör Samfylkingarinnar fyrir fjórum árum. 27.8.2005 00:01
Minna haldlagt en oft áður Lögregla lagði hald á tvö hundruð grömm af fíkniefnum í Kópavogi í fyrrinótt. Lítið hefur verið um stóra fíkniefnafundi lögreglu undanfarið og segir yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík að stór mál komi í bylgjum. 27.8.2005 00:01
Fjarskipti á Vestfjörðum í ólagi Ástandi fjarskiptamála í dreifbýli á Vestfjörðum er líkt við ástand í vanþróuðum ríkjum í greinargerð sem Fjórðungssamband Vestfirðinga vann. Frá áramótum hefur ljósleiðari sem liggur um vestfirði rofnað tvisvar. 27.8.2005 00:01
Tuttugu og fjórir létust í flóðum Hundruðir þorpa hafa orðið flóðum að bráð í Uttar Pradesh héraði á Norður Indlandi. Miklar rigningar undanfarna daga leiddu til þess að tvær ár flæddu yfir bakka sína með þeim afleiðingum að nærri 750 þorp fóru alveg undir vatn og 50 þorp til viðbótar eru einangruð og talið er að tuttugu og fjórir hafa látist í flóðunum. 27.8.2005 00:01
Sumir blaðamenn styðja Sigmund Á vef Eyjafrétta er birt stuðningsyfirlýsing blaðamanna á Suðurlandi við Sigmund Sigurgeirsson. Í yfirlýsingunni, sem send hefur verið fréttastjóra RÚV, er hann beðinn um að endurskoða þá ákvörðun sína að víkja Sigmundi frá fréttskrifum. 27.8.2005 00:01
Fórnarlamba minnst Fyrsti varanlegi minnisvarðinn um fórnarlömb hryðjuverkaárásanna í Lundúnum í síðasta mánuði var afhjúpaður við látlausa athöfn síðdegis. Minnisvarðinn er einfaldur skjöldur í garði skammt frá Thames, en í þessum garði varð til einskonar bráðabirgðaminnisvarði strax í kjölfar hryðjuverkanna. Þúsundir lögðu þar blóm og smámuni til að votta virðingu sína. 27.8.2005 00:01
Akkur að hafa verkið á Íslandi "Til skamms tíma hef ég verið með stærri kaupendum íslenskrar myndlistar og stuðningsmaður," segir Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi og athafnamaður. Hann stefnir nú að því að kaupa Blind Pavillion eftir Ólaf Elíasson og er það eitt dýrasta verk sem einstaklingur hér á landi hefur fjárfest í. 27.8.2005 00:01
Í túninu heima Menningar- og útivistardagar standa yfir í Mosfellsbæ undir yfirskriftinni, "Í túninu heima". Margt er þar til skemmtunar og má þar nefna tónleika, leiklist, söngvakeppni, listasýningu og íþróttakeppni. Hátíðinni lýkur á morgun með tónleikum Eyþórs Gunnarssonar, Ellenar Kristjánsdóttur og KK í Lágafellskirkju. 27.8.2005 00:01
Össur: Höfnuðu Stefáni Jóni! Fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar fullyrðir að Framsóknarflokkurinn hafi hafnað Stefáni Jóni Hafstein, sem borgarstjóra í fyrra í stað Þórólfs Árnasonar. Hann segir Framsóknarflokkinn hafa verið hræddan um að með því væri verið að búa til enn einn hershöfðingjann fyrir Samfylkinguna. 27.8.2005 00:01
Hamas þakka sér brottflutning Einhver þekktasti hryðjuverkamaður Hamas-samtakanna birtist sigri hrósandi á myndbandsupptöku sem send var fjölmiðlum í gærkvöldi. Þar segir hann brotthvarf Ísraelsmanna frá Gaza afleiðingu vopnaðrar baráttu hundraða skæruliða sem hefðu fórnað sér fyrir málstaðinn. 27.8.2005 00:01
Fjölmenni í Stjörnuleit Hátt í þúsund manns mættu eldsnemma á Hótel Loftleiðir í morgun þar sem fyrstu áheyrnarprufur Idol - Stjörnuleitar hófust þriðja árið í röð. Ívið fleiri tóku þátt í áheyrnarprufunum í Reykjavík en í fyrra og virðist því enginn skortur á hæfileikafólki. 27.8.2005 00:01
Klukkukerfið hentar ekki borginni Klukkukerfið sem tekið var í notkun á Akureyri í gær, er ekki fýsilegur kostur fyrir Reykjavíkurborg segir formaður framkvæmdaráðs borgarinnar. Hann segir að stöðumælarnir í Reykjavík séu settir upp til hagsbóta fyrir kaupmenn. 27.8.2005 00:01
Hryggskekkja æ algengari Tuttugu og sex prósent 15 ára stúlkna horfa meira en fjóra klukkutíma á dag á sjónvarp og tæp fjörutíu prósent 15 ára drengja eru fjóra tíma eða meira í tölvuleikjum á degi hverjum. Sjúkraþjálfarar segja hryggskekkju hjá unglingum orðna mun algengari vegna langvarandi setu og hreyfingarleysis. 27.8.2005 00:01
Samvinna í jarðhitamálum Það er margt hægt að læra af Íslendingum í jarðhitamálum segir fulltrúi sendinefndar frá Níkaragva sem kominn er til landsins til að kynna sér tækni og þekkingu á því sviði. Sendinefndin undirbýr fyrirhugaða samvinnu stjórnvalda í Níkaragva og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í jarðhitamálum. 27.8.2005 00:01