Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Neitar að ósamræmi sé í gögnum Ríkisendurskoðandi segir ekkert ósamræmi í gögnum Ríkisendurskoðunar hvað varðar hæfi Halldórs Ásgrímssonar í sölu ríkisbankanna. Stofnunin hafi ekki vitað af eignarhlut fjölskyldufyrirtækis Halldórs í Hesteyri fyrr en á fundi fjárlaganefndar 28. apríl, þrátt fyrir að frá því hafi verið skýrt í fréttum í lok árs 2002. 11.6.2005 00:01
Sátt hefur ekki skapast Þrátt fyrir að tveir meðlimir stjórnar Landakotsskóla hafi sagt sig frá stjórninni, til að sátt megi skapast um framtíð skólans, sendu sjö kennarar frá sér harðorða yfirlýsingu í gær. 11.6.2005 00:01
Segist læsa prestinn úti Sóknarpresturinn Í Garðabæ ætlar ekki að hlíta úrskurði áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar. Hann segir nefndina og biskup ekki hafa völd til að færa hann til í starfi. Formaður sóknarnefndar íhugar að skipta um skrár í safnaðarheimilinu. 10.6.2005 00:01
Hæfi Halldórs í rannsókn Ríkisendurskoðandi rannsakar hvort eignatengsl Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu hans valdi því að hann hafi verið vanhæfur við sölu á Búnaðarbankanum. Sigurður Þórðarson segir verið sé að afla gagna um eignarhluti og atburðarrás. 10.6.2005 00:01
Helmingur krefst afsagnar stjórnar Átta kennarar af fimmtán í Landakotsskóla krefjast þess að stjórn skólans segi af sér þar sem hún vilji ekki veita skólastjóra skólans það vald sem honum beri að hafa samkvæmt grunnskólalögum. Fjölmennur fundur foreldra, kennara og stjórnar Landakotsskóla var haldinn í gærkvöldi og sendu kennarar frá sér yfirlýsingu að honum loknum þar sem þess var krafist að stjórnin segði af sér. 10.6.2005 00:01
Flóðbylgjan allt að 25 m há Sjávarskaflinn sem olli gífurlegum hamförum í Suðaustur-Asíu um jólin var 25 metra hár þar sem hann var hæstur. Í fyrstu vísindalegu skýrslunni um flóðbylgjuna, sem gefin hefur verið út, er þetta staðfest. Hana gerði sérfræðingur við háskólann í Suður-Karólínu sem mældi hæð flóðbylgjunnar út frá skemmdum á trjám, mannvirkjum, hólum og hæðum. 10.6.2005 00:01
Velti bíl utan við Flateyri Ölvaður ökumaður á stolnum bíl, að því að talið er, er nú á sjúkrahúsinu á Ísafirði eftir að hann velti bílnum utan við Flateyri á sjötta tímanum í morgun. Maðurinn er til rannsóknar á sjúkrahúsinu en ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður. Bíllinn er hins vegar töluvert skemmdur. 10.6.2005 00:01
Gasflutningabíll og lest óku saman Ótrúlegt þykir að enginn skuli hafa látist eða slasast er gasflutningabíll og farþegalest lentu í hörðum árekstri í norðurhluta Frakklands í gær. Gasflutningabíllinn bilaði þegar hann var að fara yfir járnbrautarteina og náði bílstjórinn að forða sér áður en lestin lenti á honum. 10.6.2005 00:01
Íhaldsflokkur stærstur í Svíþjóð Íhaldsflokkurinn er stærsti flokkurinn í Svíþjóð samkvæmt skoðanakönnun sem sænska blaðið <em>Dagens Industri</em> lét gera. Flokkurinn nýtur næstum helmingi meira fylgis en í kosningunum árið 2002. Jafnaðarmenn, sem verið hafa öflugasti stjórnmálaflokkurinn í Svíþjóð um mjög langt skeið, njóta tæplega 32 prósenta fylgis en Íhaldsflokkurinn hefur tveggja og hálfs prósents forskot. 10.6.2005 00:01
Biskup hafnar ásökunum um vanhæfi Karl Sigurbjörnsson biskup hafnar alfarið alvarlegum ásökunum lögmanns Hans Markúsar Hafsteinssonar, sóknarprests í Garðasókn, sem lýst hefur biskup vanhæfan til að fjalla um deilu prestins og hluta sóknarnefndar. Í yfirlýsingu frá Biskupsstofu, þar sem þessu er hafnað, segir enn fremur að Biskupsstofa tjái sig ekki frekar um innihald bréfs lögmannsins til biskups á meðan málið er til meðferðar hjá áfrýjunarnefnd þjóðkirkjunnar. 10.6.2005 00:01
Enn mikil flóð í Kína Að minnsta kosti 225 manns hafa farist eftir mikil flóð í suðurhluta Kína að undanförnu. Björgunaraðgerðir fara fram bæði dag og nótt en heilu þorpin hafa þurrkast út á svæðinu. Flóðin hafa haft áhrif á yfir 17 milljónir manna og hafa um 140 þúsund heimili eyðilagst vegna þeirra. 10.6.2005 00:01
Kastaði sprengju inn í skólastofu Að minnsta kosti fimmtíu manns slösuðust er nemandi í japönskum menntaskóla henti flösku sem innihélt sprengjuefni inn í bekkjarstofu skóla síns í morgun. Drengurinn, sem er 18 ára, hefur verið handtekinn. Lögreglan hefur ekki viljað gefa upp hvers konar efni voru í flöskunni en sjónarvottar segja að um nokkurs konar mólotovkokkteil hafi verið að ræða. 10.6.2005 00:01
Hæstaréttardómari verður forseti Eduardo Rodriguez, forseti Hæstarréttar Bólivíu, hefur verið skipaður forseti landsins til bráðabirgða en stefnt er að því að halda forsetakosningar í landinu innan fimm mánaða. Vonast er til að með þessu muni mótmælum í höfuðborg landsins, La Paz, ljúka en almenningur hefur krafist þess að auðlindir landsins verði þjóðnýttar. 10.6.2005 00:01
Gripnir við hassreykingar Þrír unglingspiltar voru gripnir glóðvoldir við hassreykingar við Hamraskóla í Grafarvogi á fjórða tímanum í nótt. Þeir voru utan við skólann og stöðvaði lögreglan reykinarnar, málið telst upplýst og var piltunum sleppt eftir skýrslutöku á staðnum. 10.6.2005 00:01
9 mánaða fangelsi fyrir umboðssvik Fyrrverandi afgreiðslustjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar var dæmdur í níu mánaða fangelsi í morgun og til að greiða sparisjóðnum liðlega átta milljónir króna fyrir umboðssvik en afgreiðslustjórinn sveik með ýmsum hætti umrædda fjárhæð út úr sparisjóðnum. Hluti fangelsisvistarinnar er skilorðsbundinn þar sem dráttur varð á rannsókn málsins hjá sýslumanninum í Hafnarfirði. 10.6.2005 00:01
Fjórir sækja um forstjórastarf Fjórir sækja um starf forstjóra Samkeppniseftirlitsins sem kemur í stað Samkeppnisstofnunar. Þeir eru Eggert B. Ólafsson héraðsdómslögmaður, Guðmundur Sigurðsson, forstöðumaður samkeppnissviðs Samkeppnisstofnunar, Páll E. Halldórsson hag- og rekstrarfræðingur og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Umsóknarfrestur rann út í gær. 10.6.2005 00:01
Sprengja sprakk í Zaragoza Sprengja sprakk skammt frá flugvellinum í Zaragoza á Spáni fyrir stundu og er ljóst að hryðjuverkasamtök aðskilnaðarsinna úr röðum Baska, ETA, komu henni fyrir. Áður en sprengjan sprakk barst viðvörun frá ETA. Engar fregnir hafa borist af skemmdum eða mannskaða. 10.6.2005 00:01
Lýsa vantrausti á Schröder 1. júlí Vantrausti verður lýst á Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, þann 1. júlí næstkomandi. Það er fyrsta skrefið í átt að þingkosningum í haust en allt bendir til þess að Schröder tapi þeim. 10.6.2005 00:01
Íhuga að stofna nýjan barnaskóla Óánægðir kennarar við Landakotsskóla íhuga ásamt foreldrum að setja á fót nýjan barnaskóla þar sem séra Hjalti Þorkelsson yrði skólastjóri. Átta kennarar af fimmtán í Landakotsskóla krefjast þess að stjórn skólans segi af sér. 10.6.2005 00:01
Handtöku Mladic að vænta Ríkisstjórn Serbíu veit um felustað Ratkos Mladic, stríðsglæpamanns og yfirmanns hers Bosníu-Serba í borgarastríðinu fyrir áratug. Handtöku er að vænta, samkvæmt fréttum serbneskra fjölmiðla. Þrýstingur á stjórnvöld í Serbíu og Bosníu hefur verið stóraukinn í von um að þau afhendi stríðsglæpamenn. 10.6.2005 00:01
Stórskemmdu lögreglubíl Fjórir karlar og ein kona réðust í nótt á lögreglumenn í Hafnarfirði og stórskemmdu lögreglubifreið. 10.6.2005 00:01
Gleymdist í varðhaldi Tuttugu og fjögurra ára gamall karlmaður frá Gíneu-Bissá sat í 22 daga í fangelsi í Danmörku án þess að eiga að vera þar vegna þess að lögreglan gleymdi honum. Dómari úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald í byrjun maí og átti það að renna út þann átjánda þess mánaðar. Honum var hins vegar fyrst slepp í gær, 9. júní, og skýring fangelsismálayfirvalda er sú að danska lögreglan hafi gleymt máli mannsins. 10.6.2005 00:01
Rjúpnastofninn vex um 80 prósent Rjúpnastofninn stækkaði um tæplega 80 prósent milli ára samkvæmt tölum Náttúrufræðistofnunar Íslands. Stofnunin vill að veiðar verði takmarkaðar verulega, verði þær leyfðar á annað borð, svo að stofninn haldi áfram að vaxa. 10.6.2005 00:01
Plássið minnkar í flugvélum Það er lítið pláss á almennu farrými hjá flestum flugfélögum og miðað við nýjustu breytingar er hætt við að munurinn á farþegaflutningum og hreinum gripaflutningum snarminnki á næstunni. 10.6.2005 00:01
Átelja seinagang embættis Fyrrverandi afgreiðslustjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar var dæmdur í fangelsi í morgun fyrir að svíkja liðlega átta milljónir króna út úr sparisjóðnum. Hluti refsingarinnar er skilorðsbundinn, þar sem dráttur varð á rannsókn málsins. Dómstólar hafa ítrekað gert athugasemdir við seinagang hjá embættinu. 10.6.2005 00:01
Segir forsendur leyfis brostnar Forsendur fyrir starfsleyfi Alcoa eru brostnar segir Hjörleifur Guttormsson um þann dóm Hæstaréttar að ógilda umhverfismat vegna álvers í Reyðarfirði. Hjörleifur, sem höfðaði málið, segir umhverfisvernd vera sigurvegarann í málinu. 10.6.2005 00:01
Lögreglumenn semja við ríkið Landssamband lögreglumanna samþykkti kjarasamning sambandsins við fjármálaráðherra með 64 prósentum greiddra atkvæða gegn tæpu 31 prósenti. Þetta kemur fram á heimasíðu BSRB. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var rúm 60 prósent. Talningu atkvæða lauk á hádegi í dag en samningurinn var undirritaður 30. apríl síðastliðinn. 10.6.2005 00:01
Halldór á fund Noregskonungs Halldór Blöndal, forseti Alþingis, verður í opinberri heimsókn í Noregi boði Stórþingsins dagana 11.-14. júní þar sem hann hittir meðal annars Harald Noregskonung. Með þingforseta í för verða eiginkona hans, Kristrún Eymundsdóttir, Guðmundur Árni Stefánsson, 1. varaforseti Alþingis, Jónína Bjartmarz, 2. varaforseti Alþingis, Birgir Ármannsson, 6. varaforseti Alþingis, og Karl M. Kristjánsson, rekstrar- og fjármálastjóri skrifstofu Alþingis. 10.6.2005 00:01
Fundu lík af 16 Írökum Lík af 16 Írökum fundust í dag í vesturhluta Íraks en flest bendir til að fólkið hafi verið tekið af lífi. Líkin fundust á tveimur stöðum nærri bænum Qaim í Anbar-héraði og hafði höfuðið verið höggvið af tveimur þeirra. Ekki er vitað hvaðan fólkið er en ólíklegt er talið að um sé að ræða hluta af þeim 22 hermönnum sem uppreisnarmenn rændu í fyrradag þegar hermennirnir héldu frá herstöð í Qaim. 10.6.2005 00:01
Tjón mest á Suðurlandsvegi Samfélagskostnaður vegna tjóna á Suðurlandsvegi er mun hærri en á öðrum vegum. Þetta kemur fram í úttekt sem Vinir Hellisheiðar létu gera í samstarfi við tryggingarfélögin. Á blaðamannafundi í dag var kynnt samantekt yfir tjón á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfoss frá 1990 og þar til í mars í ár og þar kom fram að kostnaðurinn nam fimm milljörðum króna. 10.6.2005 00:01
Dæmdar bætur vegna vinnuslyss Ísfélag Vestmannaeyja var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða manni rúmlega eina milljón króna í skaðabætur. Maðurinn varð fyrir slysi í febrúar í fyrra þegar hann var að vinna við svokallaða brettastöflunarvél sem er hluti af pökkunarvél í hraðfrystihúsi Ísfélagsins. Vélin bilaði með þeim afleiðingum að dragplata gekk út og dró með sér öskjur sem duttu yfir manninn þar sem hann stóð. 10.6.2005 00:01
Komi ekki að stofnun nýs skóla Séra Hjalti Þorkelsson, fyrrverandi skólastjóri Landakotsskóla, segist ekki eiga hlut að stofnun nýs grunnskóla sem óánægðir kennarar við Landakotsskóla íhuga að setja á laggirnar í samvinnu við foreldra skólabarna. Samkvæmt heimildum fréttastofu Bylgjunnar er verið að setja saman undirbúningshóp fyrir stofnun nýs skóla, en kennarar og foreldrar eru ósáttir við ástandið í Landakotsskóla eins og það er, og telja að stjórn skólans sé með aðgerðum sínum að undanförnu að eyðileggja skólastarfið. 10.6.2005 00:01
Fangelsuð fyrir dýraníðingsskap Bresk kona var í dag dæmd til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir illa meðferð á dýrum, en hún hélt alls 271 gæludýr á heimili sínu. Það blasti við ófögur sjón þegar dýraverndaryfirvöld tóku hús á hinni 55 ára Rosalind Gregson í Preston á Englandi en á heimilinu voru 246 hundar sem flestir voru í búrum sem staflað hafði verið hvert ofan á annað. 10.6.2005 00:01
Bilun í háspennustreng í Garðabæ Fyrir stundu varð bilun í háspennustreng í Garðabæ sem veldur því að stór hluti bæjarins er rafmagnslaus. Unnið er að viðgerð. 10.6.2005 00:01
Víkja sæti úr stjórn skóla Gunnar Örn Ólafsson, formaður stjórnar Landakotsskóla sjálfseignarfélags, og Jóhanna Long, ritari stjórnar, hafa ákveðið að víkja sæti úr stjórn félagsins í því skyni að sátt megi skapast um framtíð skólahalds að Landakoti. Í yfirlýsingu sem stjórn skólans sendi frá sér fyrir stundu segir að nýr stjórnarformaður, Björg Thorarensen, prófessor og foreldri, og Þórunn Erhardsdóttir, formaður foreldraráðs, hafi tekið sæti þeirra í stjórninni. 10.6.2005 00:01
Nýir óháðir aðilar skoði bankasölu Formenn stjórnarandstöðuflokkanna telja það stórpólitísk tíðindi að bankasölumálið hafi komist á svo alvarlegt stig að hæfi sjálfs forsætisráðherra sé dregið í efa. Þeir segja óþægilega stöðu Ríksendurskoðunar í málinu kalla á þá spurningu hvort ekki sé tímabært að fá nýja óháða skoðun á sölu ríkisbankanna. 10.6.2005 00:01
Rafmagn komið aftur á í Garðabæ Rafmagn er nú komið á á ný í Garðabæ eftir að rafmagnslaust hafði verið í rúma klukkustund. Grafið var í háspennustreng við Móaflöt sem olli rafmagnsleysi í stórum hluta bæjarins og niður í Smárahverfi í Kópavogi. 10.6.2005 00:01
Afagengi dæmt fyrir bankarán Þýskur dómstóll dæmdi í dag þrjá eldri menn í níu til tólf ára fangelsi fyrir fjölmörg bankarán á 16 ára tímabili. Mennirnir hafa gengið undir nafninu afagengið í þýskum fjölmiðlum, en þeir eru á aldrinum 64-74 ára. Þeir rændu alls 14 banka á tímabilinu og höfðu meira en eina milljón evra, um 80 milljónir króna, upp úr krafsinu en þeir notuðu bæði skammbyssur og gervihandsprengjur til þess að hræða bankastarfsmenn. 10.6.2005 00:01
Cantoni kemur heim Ítalski hjálparstarfsmaðurinn Clementina Cantoni sneri í dag til heimalands síns en henni var í gær sleppt úr haldi mannræningja í Afganistan. Cantoni lenti á Ciampino-flugvelli í Róm nú síðdegis og var Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, meðal þeirra sem tóku á móti henni, en heimkoman var sýnd í beinni útsendingu í ítölsku sjónvarpi. 10.6.2005 00:01
Fellir úrskurð ráðherra úr gildi Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag úr gildi úrskurð dómsmálaráðherra, sem synjað hafði Lilju Sæmundsdóttir um að ættleiða barn frá Kína á þeim forsendum að hún væri of þung. Lilja, sem er 48 ára, er með kennaramenntun og sérkennaramenntun og sótti um að ættleiða barn frá Kína fyrir tveimur árum. 10.6.2005 00:01
Töldu sig þekkja mann í löggubíl Lögreglan í Hafnarfirði handtók rétt fyrir hádegi tvo karlmenn og eina konu í húsi í Reykjavík sem eru grunuð um að hafa í félagi við tvo aðra karla, sem handteknir voru í nótt, ráðist á óeinkennisklædda lögreglumenn og stórskemmt ómerkta lögreglubifreið. Árásarmennirnir töldu sig þekkja einhvern í lögreglubílnum sem þeir áttu sökótt við og þess vegna létu þeir til skarar skríða. 10.6.2005 00:01
Sóknin á safnaðarheimilið Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Hans Markúsar, segist ekki geta séð að það sé löglegt að úthýsa sóknarpresti með því að skipta um skrár í safnaðarheimili Garðasóknar. "Það er sóknin sem á safnaðarheimilið, en ekki sóknarnefndin." 10.6.2005 00:01
Tveir fá styrk til listrannsókna Rannsóknarsjóður Listasafns Háskóla Íslands úthlutaði í gær tveimur styrkjum, báðum að upphæð kr. 400.000. Hrafnhildur Schram listfræðingur fékk annan styrkinn vegna vinnslu bókar um listakonuna Júlíönu Sveinsdóttur. Hinn styrkinn fékk Viktor Smári Sæmundsson forvörður til að stunda rannsóknir á höfundarmerkingum frumherja íslenskrar myndlistar. 10.6.2005 00:01
Velti stolnum bíl með þýfi Á sjötta tímanum í gærmorgun valt lítil fólksbifreið í Önundarfirði. Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni. Hann var fluttur á sjúkrahús en reyndist ekki alvarlega slasaður. Hann er grunaður um að hafa tekið bifreiðina ófrjálsri hendi og ekið henni undir áhrifum lyfja. Hann reyndist vera með útrunnin ökuréttindi. 10.6.2005 00:01
Kjartan lagður af stað Kjartan Jakob Hauksson komst loksins af stað frá Reykjafirði eftir hádegi í gær eftir að hafa verið veðurtepptur þar í fjóra daga. Vindur var þó enn nokkur og hann hélt sig nærri landi. 10.6.2005 00:01