Fleiri fréttir

Margdæmdur aftur í steininn

29 ára gamall maður var í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot, þjófnað og umboðssvik. Maðurinn hefur oft verið dæmdur áður fyrir þjófnað.

Afgreiðslustjóri sparisjóðs dæmdur

37 ára gömul kona var fyrir helgi dæmd í níu mánaða fangelsi og til greiðslu rúmlega átta milljóna króna skaðabóta til Sparisjóðs Hafnarfjarðar vegna umboðssvika í störfum sínum fyrir sjóðinn árin 2000 til 2003. Konan starfaði sem afgreiðslustjóri hjá sparisjóðnum.

Sextugur sýknaður af hasssmygli

Sextugur karl var í Héraðsdómi Reykjaness í gær sýknaður af ákæru um að hafa reynt að smygla til landsins 304 grömmum af hassi. Efnið fannst í tösku mannsins við gegnumlýsingu á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn.

NATO krefst rannsóknar

Norður-Atlantshafsbandalagið hefur krafist alþjóðlegrar rannsóknar á voðaverkunum sem urðu í Andijan í austurhluta Úsbekistan fyrir um mánuði síðan.

Tóku feil og réðust á lögreglumenn

Fjórir karlmenn og ein kona réðust að ómerktum lögreglubíl í Hafnarfirði og skemmdu töluvert skömmu fyrir klukkan eitt á aðfaranótt föstudags. Í bílnum voru tveir óeinkennisklæddir lögreglumenn við eftirlit. Fólkið fór mannavillt og var handtekið.

Í fangelsi fyrir brot gegn barni

Maður var í gær dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn þá 10 ára gamalli stúlku, en tveir mánuðir refsingarinnar voru skilorðsbundnir í tvö ár. Brotið átti sér stað í ágúst í fyrra. Þá var honum gert að greiða sakarkostnað auk 300 þúsund króna í miskabætur til stúlkunnar.

Ráðuneytið gekk of langt

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í gær úr gildi úrskurð dómsmálaráðuneytisins þess efnis að Lilju Sæmundsdóttur væri óheimilt að ættleiða barn frá Kína. Ráðuneytið studdist í úrskurði sínum við að Lilja gæti átt á hættu heilsubrest vegna offitu. Þá voru henni dæmdar 600.000 krónur í málskostnað.

Tíma sóað fyrir þrjósku og hroka

"Þetta sýnir að almenningur hefur möguleika á að hafa áhrif og stjórnvöld mega ekki hunsa lög og reglur," sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, um nýfallinn dóm Hæstaréttar varðandi umhverfismat álverksmiðju Alcoa.

Opnar umræður um stjórnarskrána

Stjórnarskrárnefnd, sem stýrir endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins, heldur í dag opið málþing um stjórnarskrána. Ráðstefnan fer fram á Hótel Loftleiðum, en á henni fá þau félagasamtök, sem sent hafa erindi til stjórnarskrárnefndar, alls 21 að tölu, tækifæri til að ræða við nefndarmenn.

Konungleg brúarvígsla

Konungar Noregs og Svíþjóðar vígðu við hátíðlega athöfn í gær nýja brú milli landanna. Á miðri brúnni, sem liggur yfir Svínasund suður af Óslófirði, afhjúpuðu konungarnir minnismerki í formi tveggja útréttra handa, tákn fyrir vináttu grannlandanna þegar rétt 100 ár eru liðin síðan Norðmenn slitu ríkjasambandinu við Svíþjóð.

Ísland tekur við forystu í Eystras

Davíð Oddsson ávarpaði í gær fund utanríkisráðherra aðildarríkja Eystrasaltsríkjanna sem stendur yfir í Stettin í Póllandi. Ísland hefur tekið við formennsku í Eystrasaltsráðinu og mun gegna henni í eitt ár.

Fimm milljarðar á fimmtán árum

Heildarkostnaður samfélagsins vegna tjóna á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfoss á árunum 1990-2005 er um fimm milljarðar króna. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Vinir Hellisheiðar héldu á Hótel Selfossi í gær. Meðalkostnaður vegna umferðarslysa á Suðurlandsvegi er rúmlega 5,6 milljónir en kostnaður á sambærilegum vegum annars staðar á landinu er ein og hálf milljón. 

Færri í nám en vilja

Mun færri komast í nám í Háskólanum í Reykjavík og í Bifröst en óska. Yfir eitt þúsund fá ekki skólavist. Rektorinn í Bifröst segir góða þjónustu við nemendur skila árangri.

Mikil aðsókn í HHS

Aðsókn í nýju námsleiðina HHS á Bifröst hefur farið framar björtustu vonum. Bifröst er fyrsti íslenski háskólinn sem býður upp á námsleiðina hér á landi.

Rannsókn sé stórpólitísk tíðindi

Stjórnarandstaðan kallar það stórpólitísk tíðindi að Ríkisendurskoðandi dragi í efa hæfi forsætisráðherra þegar tekin var ákvörðun um sölu ríkisbankanna. Formaður Vinstri - grænna segir að það yrði ekki einungis áfellisdómur yfir forsætisráðherra, yrði hann talinn vanhæfur, heldur einnig yfir fyrri störf Ríkisendurskoðunar.

Fengu helmingi meiri launahækkun

Ráðherrar og þingmenn hafa fengið helmingi meiri launahækkun en aðrir í þjóðfélaginu frá árinu 2003. Þeir hafa fengið yfir tuttugu prósenta launahækkun á sama tíma og laun á almennum vinnumarkaði hafa hækkað um tíu prósent.

Starfsleyfi Alcoa ekki afturkallað

Lögmaður Umhverfisstofnunar segir starfsleyfi Alcoa fyrir álveri í Reyðarfirði ekki verða afturkallað þrátt fyrir dóm Hæstaréttar um að álverið þurfi að fara í umhverfismat. Hjörleifur Guttormsson telur að stöðva þurfi framkvæmdirnar í Reyðarfirði á meðan umhverfisáhrif verði metin.

Rökstuðningur ekki fullnægjandi

Kona, sem dómsmálaráðuneytið neitaði um að ættleiða barn vegna offitu, vann mál sitt gegn íslenska ríkinu í dag. Dómari taldi rökstuðning dómsmálaráðuneytisins fyrir neitun ekki fullnægjandi.

Skagafjarðarlisti ekki aftur fram

Samfylkingin í Skagafirði ákvað á félagsfundi 6. júní sl. að við næstu sveitarstjórnarkostningar, sem fram fara 2006 myndi Samfylkingin bjóða fram undir eigin merkjum.  Jafnframt samþykkti fundurinn að fela stjórn félagsins að hefja undinbúning að framboði flokksins í næstu sveitarstjórnarkosningu m.a. með að skoða aðferðir við skipan framboðslista, undirbúning málefna og fleiri atriða.

Deilt um greiðslur til ESB

Eins og stjórnarskrárkreppan sé ekki nóg, deila leiðtogar Evrópusambandsins líka innbyrðis um hve mikið hver eigi að borga til sambandsins.

Meðalkostnaður tjóns 5,6 milljónir

Kostnaður við tjón á Suðurlandsvegi vegna árekstra á árinu 2003 nam rúmum einum milljarði króna. Meðalkostnaður við hvert tjón sama ár var rúmar 5,6 milljónir króna.

Lækningalind opnuð í Bláa lóninu

Lækningalind Bláa lónsins var formlega opnuð síðdegis. Aðstaðan á að stórbæta þjónustu við psoriasis-sjúklinga hér á landi.

Náðunarnefnd fjallar um Aron Pálma

Mál Arons Pálma Ágústsonar hefur verið tekið til meðferðar hjá náðunarnefnd Texas í Bandaríkjunum. Þetta segir Einar S. Einarsson, talsmaður RJF-hópsins, en hópurinn hefur barist fyrir frelsi Arons Pálma úr stofufangelsi í Beaumont í Texas. Náðunarnefndin mun væntanlega taka afstöðu í málinu innan sex mánuða en það er svo ríkisstjórans að taka endanlega afstöðu til náðunarinnar.

Efi um Ríkisendurskoðun

Ríkisendurskoðun rannsakar nú upplýsingar sem snerta hugsanlegt vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra í söluferli ríkisbankanna síðla árs 2002. Gögn sem gáfu tilefni til athugasemda lágu þegar fyrir í minnisblaði ríkisendurskoðunar á fundi hennar með fjárlaganefnd á miðvikudag.

Stjórnvöld með minnimáttarkennd

Fyrir helgina vann Hjörleifur mál fyrir Hæstarétti sem margir telja að verði fordæmisgefandi fyrir umhverfisvernd og aðild almennings að ákvörðunum sem valdið geta spjöllum á náttúrunni ellegar mengun af mannavöldum.

Guðmundur Árni til Svíþjóðar

Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, verður sendiherra Íslands í Svíþjóð í haust samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins. Jafnframt er ákveðið að Svavar Gestsson, núverandi sendiherra í Stokkhólmi, flytjist til Danmerkur.

Álversframkvæmdir ekki stöðvaðar

Hjörleifur Guttormsson telur að stöðva beri framkvæmdir við álverið í Reyðarfirði á meðan beðið er eftir nýju umhverfismati. Umhverfisstofnun hyggst ekki afturkalla starfsleyfi og Fjarðabyggð mun ekki afturkalla framkvæmdaleyfi og því halda framkvæmdir áfram.

Allt að eitt ár í vinnslu

Hrönn Pétursdóttir, starfsmanna- og kynningarstjóri hjá Alcoa Fjarðaráli, segir að vinna við nýtt umhverfsimat geti tekið allt að einu ári.

Hætt við Dalsbraut

Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt tillögu Kristjáns Þórs Júlíussonar bæjarstjóra þess efnis að hætt verði við lagningu Dalsbrautar, sunnan Þingvallastrætis, en þess í stað verði lagður göngu- og hjólastígur í götustæðið.

Gögn ríkisendurskoðunar stangast á

Stjórnarandstaðan telur ótækt að Ríkisendurskoðun rannsaki sjálf hvort hennar eigin skýrslur gefi tilefni til vanhæfisathugunar á þætti forsætisráðherra við sölu ríkisbankanna. Gögn embættisins fela í sér misvísandi upplýsingar um þátt félags í eigu ættingja forsætisráðherra í söluferli ríkisbankanna.

Flaug burt með lambið

Það var ófögur sjón sem blasti við Jóhönnu Kristjánsdóttur sauðfjárbónda við Ísafjarðardjúp á fimmtudag þegar hún varð vitni af því þegar haförn kom aðvífandi, greip með sér um hálfs mánaðar gamalt lamb og flaug burt með það.

Hætta borun eftir heitu vatni

Borun eftir heitu vatni á Berserkseyri á Snæfellsnesi hefur verið hætt í bili. Borstangir brotnuðu í vinnsluholunni og er búið að reyna í sex vikur að ná þeim upp.

Danska lögreglan í vafa

Danska lögreglan er ekki sannfærð um að samtök, sem segjast hafa kveikt í bíl ráðherra innflytjendamála í Danmörku í gær, standi að baki verknaðinum. Enginn hefur enn verið handtekinn eftir að kveikt var í bíl Rikke Hvilshöj en rannsókn lögreglunnar beinist nú að ákveðnum manni sem dæmdur hefur verið fyrir svipað ódæði.

Bankarnir mega krefjast gjalds

Samkeppnisráð segir bönkum og lánastofnunum heimilt að krefjast gjalds fyrir uppgreiðslu lána. Neytendasamtökin og Alþýðusamband Íslands sendu ráðinu erindi þar sem stofnunin var beðin að skera úr um það hvort slík gjaldtaka samræmdist lögum.

Eiga mjög öflug kjarnorkuvopn

Norður-Kórea á kjarnorkuvopn, nógu öflug til að verjast Bandaríkjunum. Þetta hefur bandaríska sjónvarpsstöðin ABC fengið staðfest en fréttamenn stöðvarinnar hafa fengið leyfi til að fara til landsins og hyggjast senda þaðan fréttaskýringaröð næstu vikuna.

Íbúaþing D-lista í Laugardalnum

Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna efnir til íbúaþings í dag klukkan 17 í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal</u />. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti borgarstjórnarflokksins, setur íbúaþingið og mun kynna hugmyndir um betri borg.

Mótmælendur drepnir í Eþíópíu

Að minnsta kosti 22 féllu og yfir 40 særðust þegar eþíópískar öryggissveitir skutu á mótmælendur í höfuðborg landsins, Addis Ababa, í morgun en vitni segja mörg fórnarlambanna hafa mótmælt friðsamlega. Mótmælaaðgerðir hafa verið uppi í landinu undanfarna daga í kjölfar birtingar úrslita þingkosninganna sem fram fóru í landinu þann 15. maí.

Bílþjófnaður og skemmdarverk

Tveir piltar eru nú í haldi lögreglunnar í Reykjavík vegna bílþjófnaðar og skemmdarverka. Þeir voru handteknir á fjórða tímanum í nótt eftir að þeir höfðu brotist inn í og skemmt nokkra bíla í Höfðahverfi og í framhaldinu stolið einum og ekið honum í sandgryfju Björgunar þar skammt frá.

Ætlaði að sprengja upp spítala

Hópur fólks sem er sagður tengjast hryðjuverkasamtökunum Al-Qaida ætlaði að sprengja upp spítala og stórmarkaði í Bandaríkjunum. Þetta segir alríkislögreglan þar í landi sem segist þó hafa komið upp um málið eftir að hún handtók 22 ára gamlan mann í síðustu viku sem tengdist hópnum.

Fíkniefni ætluð til sölu

Lögreglan í Kópavogi handtók tvo menn í bíl upp úr miðnætti í nótt og fannst á þeim töluvert magn fíkniefna. Fíkniefnin voru í sölupakkningum. Mennirnir, sem eru tvítugir, játuðu við yfirheyrslur sinn þátt og telst málið upplýst.

Útiloka ekki lokun Guantanamo

Bandarísk stjórnvöld útiloka ekki að fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu verði lokað. Rekstur búðanna hefur verið gagnrýndur harkalega en þar eru nú 540 fangar sem sumir hafa setið inni í rúm þrjú ár, án þess að hafa verið ákærðir.

Diez verður líklega forseti

Í dag mun forseti þingsins í Bólivíu, Hormando Vaca Diez, líklega taka við embætti forseta landsins, mörgum til mikillar gremju, en slæmt ástand ríkir í landinu eftir að mótmælendur úr röðum frumbyggja tóku á sitt vald olíulindir BP og Repsoil í austurhluta landsins.

Full grein gerð fyrir lekanum

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra vill að breska ríkisstjórnin geri fulla grein fyrir lekanum sem varð í kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield. Umhverfisráðherra skrifaði Margaret Beckett, hinni bresku starfsystur sinni, bréf vegna þessa.

Juncker áhyggjufullur vegna ESB

Forsætisráðherra Lúxemborgar, Jean Claude Juncker, hefur miklar áhyggjur af framtíð Evrópusambandsins. Á ráðstefnu sem haldin verður dagana 16.-17. júní átti umræðuefnið upphaflega að snúast um efnahag sambandsins en þar sem Frakkar og Hollendingar höfnuðu stjórnarskrá sambandsins, sem ætti að taka gildi í júlí 2006, ekki alls fyrir löngu verða þau mál í brennidrepli.

Brottflutningur frá Gasa löglegur

Brottflutningur Ísraelsmanna frá Gasa og fjórum stöðum á Vesturbakkanum er löglegur samkvæmt dómi hæstaréttar Ísraels í dag. Andstaða við brottflutninginn fer þó stigmagnandi meðal almennings í Ísrael.

Sjá næstu 50 fréttir