Erlent

Gasflutningabíll og lest óku saman

Ótrúlegt þykir að enginn skuli hafa látist eða slasast er gasflutningabíll og farþegalest lentu í hörðum árekstri í norðurhluta Frakklands í gær. Gasflutningabíllinn bilaði þegar hann var að fara yfir járnbrautarteina og náði bílstjórinn að forða sér áður en lestin lenti á honum. Sjónarvottar segja miklar sprengingar hafa orðið strax við áreksturinn og hafi nokkrir bílar í kjölfarið rekist saman þegar ökumenn þeirra reyndu að flýja af svæðinu. Um 150-200 farþegar voru í lestinni og eins og gefur að skilja þurftu margir þeirra áfallahjálp eftir atvikið. Greiðlega gekk að koma fólki út úr lestinni sem og að slökkva eldinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×