Lýsa vantrausti á Schröder 1. júlí 10. júní 2005 00:01
Vantrausti verður lýst á Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, þann 1. júlí næstkomandi. Það er fyrsta skrefið í átt að þingkosningum í haust en allt bendir til þess að Schröder tapi þeim. Nokkuð er síðan að Schröder lýsti vilja sínum að flýta þingkosningum um ár en það var fyrst í gær sem lausn fannst á því hvernig það væri hægt. Þýska stjórnarskráin gerir ekki ráð fyrir því að þingið sé leyst upp og því var ekki ljóst hvernig hægt væri að efna til kosninga snemma. Til deilna kom þegar Horst Köhler, forseti Þýskalands, tók undir með íhaldsmönnum sem sögðu einu leiðina þá að Schröder segði af sér, en það hann tók fyrir. Þýskir fjölmiðlar geta sér þó til um það að Schröder íhugi jafnvel brotthvarf af pólitískum vettvangi fyrir kosningar. Niðurstaðan varð sú að Schröder sækist eftir traustsyfirlýsingu í þinginu 1. júlí og talið er víst að hún verði felld enda vill Schröder það. Samkvæmt stjórnarskránni verður hann að gera grein fyrir ástæðu þess að hann sækist eftir stuðningi þingsins en hann ætlar ekki að gefa þá ástæðu upp fyrr en daginn sem atkvæðagreiðslan fer fram. Þó að nokkuð sé í þingkosningarnar er ástandið ekki beisið hjá Schröder og félögum í Jafnaðarmannaflokknum, SPD. Samkvæmt könnunum eru kristilegir demókratar í CDU, með formanninn Angelu Merkel í fremstu víglínu, í mikilli sókn. Jafnaðarmenn njóta að sama skapi lítils fylgis og hafa þokast til vinstri í málflutningi sínum í von um stuðning frá gamla flokkskjarnanum. En nú er líka sótt að SPD frá vinstri. Fyrrverandi formaður flokksins og harðasti vinstrimaðurinn þar, Oskar Lafontaine, hefur tekið saman við leyfar gamla austurþýska kommúnistaflokksins, PDS. Þar er gömul kempa og vinsæl, Gregor Gysi, enn á ný komin á kreik og er búist við því að þeir Gysi og Lafontaine sæki fylgi sitt ekki síst á vinstri væng SPD. Það er því ljóst að það verður mjög á brattann að sækja fyrir Schröder á næstu mánuðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Erlent Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Innlent Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Erlent Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Innlent „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ Erlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Fleiri fréttir Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Segir vopnahlé í höfn Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Handtóku Evrópubúa sakaðan um njósnir fyrir Ísrael Byrjað að smella af með stærstu myndavél í heimi Meira örplast í flöskum úr gleri en plasti Hífðu lystisnekkjuna sem sökk upp úr sjónum við Sikiley Segja aftur ráðist á neðanjarðarauðgunarstöð í Íran Ísraelar héldu árásum sínum áfram í nótt „Gríðarstór“ árás á höfuðborgina Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Tíu Íslendingar í Íran og fjórir í Ísrael Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Embættis- og ráðamenn tjá sig um árásina Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Bandaríkjamenn gera loftárásir á Írani Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Sjá meira