Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Átök magnast aftur í Afganistan Þrír uppreisnarmenn og tveir almennir borgarar létust í átökum bandarískra hermanna og uppreisnarmanna í suðausturhluta Afganistans, nærri landamærum Pakistans, í síðustu viku. Frá þessu greindu bandarísk hermálayfirvöld í dag. Tveir bandarískir hermenn særðust lítillega í byssubardaganum. Ekki fæst gefið upp hvort borgararnir hafi orðið fyrir skotum hermanna eða uppreisnarmanna. 6.3.2005 00:01
Lést í slysi á Suðurlandsvegi Banaslys varð á Suðurlandsvegi við Þrengslaafleggjarann á sjöunda tímanum í morgun þegar fólksbíll og jeppi rákust saman. Annar bíllinn var á leið austur eftir Suðurlandsvegi en hinn á leið inn á Suðurlandsveg af Þrengslavegi. Lögreglan á Selfossi telur að annar ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum í beygjunni og keyrt í veg fyrir hinn, en talsverð hálka var á veginum. 6.3.2005 00:01
Taka lítið mark á Sýrlandsforseta Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar taka lítið mark á loforði forseta Sýrlands um brottflutning sýrlenskra hersveita frá Líbanon og segja löngu kominn tíma á raunverulegar efndir. 6.3.2005 00:01
Eldurinn virðist slokknaður Eldurinn í olíuflutningaskipinu Fjord Champion við suðurstrendur Noregs virðist dáinn út. Skipið verður dregið að landi þar sem olíunni verður dælt af skipinu og skemmdir kannaðar. 6.3.2005 00:01
Segir Bandaríkjaher ljúga Blaðakonan Guiliana Sgrena segir söguna af björgun sinni úr höndum mannræningja í ítölsku dagblaði í dag. Hún segir bandarísku hermennina sem skutu á bílinn sem flutti hana í frelsið ekki hafa gefið neinar viðvaranir. 6.3.2005 00:01
Vill ekki leggja niður lánasjóð Varaformaður Bændasamtaka Íslands leggst gegn hugmyndum um að leggja lánasjóð landbúnaðarins niður. Málefni sjóðsins verða eitthvert stærsta málið sem verður til umfjöllunar á Búnaðarþingi sem sett verður á Hótel Sögu klukkan hálftvö. 6.3.2005 00:01
Nýja lyftan fékk nafnið Kóngurinn Forseti Íslands tók nú fyrir hádegi formlega í notkun nýja stólalyftu í Bláfjöllum. Af því tilefni verður frítt í allar skíðalyftur á svæðinu og boðið upp á skíðakennslu við alla skála á svæðinu. Að sögn Jóhannesar Kr. Kristjánssonar fréttamanns er fjölmenni í Bláfjöllum og fólk virðist kunna vel við nýju lyftuna sem nefnd hefur verið Kóngurinn. 6.3.2005 00:01
Verðlaunuð fyrir Talstöðina Arna Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá fjármálaráðuneytinu, var á dögunum verðlaunuð fyrir nafngiftina á Talstöðinni, nýrri útvarpsstöð í eigu 365 - ljósvakamiðla. Arna sendi inn fjórar tillögur: Hljóðvarpið, Málstöðin, Útvarp Ísland og Talstöðin, en það var sem fyrr segir síðastnefnda tillagan sem varð fyrir valinu á nýju útvarpsstöðinni. 6.3.2005 00:01
Segir herflutninga hefjast á morgun Sýrlendingar hefja brottflutning herliðs síns frá Líbanon strax á morgun. Þetta fullyrti Abdul Rahim Mrad, varnarmálaráðherra Líbanons, í dag. Forsetar Sýrlands og Líbanons munu á morgun hittast í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, til þess að undirrita samkomulag um að sýrlenski herinn hverfi frá Líbanon og strax í kjölfarið verður hluti herliðsins fluttur til Beeka-dalsins og síðar til landamæra Líbanons og Sýrlands. 6.3.2005 00:01
Segir Hisbollah ekki afvopnast Hisbollah-skæruliðar í Líbanon munu ekki leggja niður vopn þar sem landið þarf enn á uppreisnarmönnum að halda til að verjast ágangi Ísraels. Þetta sagði yfirmaður samtakanna, Hassan Nasrallah, við fréttamenn fyrr í dag, en þrýst hefur verið á samtökin að afvopnast til þess að liðka um fyrir friðarumleitunum fyrir botni Miðjarðarhafs. 6.3.2005 00:01
Bylgjur hröktu höfrunga á land Leynileg kafbátaæfing bandaríska flotans er talin hafa orðið til þess að 60 höfrungar syntu upp í fjöru í Flórída í síðustu viku. Þriðjungur þeirra drapst eða var lógað en björgunarsveitir og sjálfboðaliðar björguðu hinum. Hugsanlegt er að öflugar hljóðbylgjur í mælitækjum sem eru notuð í kafbátum til að stjórna þeim og miða út skotmörk geti skaðað heila og heyrn sjávarspendýra, til dæmis hvala og höfrunga; þau verði svo rugluð í ríminu að þau syndi á land. 6.3.2005 00:01
Kjötbollur af kvöldverðarborðinu Kjúklingur og kjötsósa virðast hafa tekið við af kjötbollum sem vinsælasti kvöldmaturinn í Danmörku. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem matvælastofnun Danmerkur gerði nýverið og fjallað er um í danska blaðinu <em>Politiken</em>. 6.3.2005 00:01
Tók fyrstu skóflustungu Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, tók fyrstu skóflustunguna að stöðvarhúsi Hellisheiðarvirkjunar við Kolviðarhól á laugardag. Alfreð sagði þá að fjárfest yrði fyrir 6,3 milljarða króna í Hellisheiðarvirkjun á árinu og sagði framkvæmdirnar hafa mikil áhrif í samfélaginu. 6.3.2005 00:01
Nýtt merki nýs skóla Búist er við því að nemendur Háskólans í Reykjavík verði nálægt 2.500 talsins þegar hann tekur til starfa við skólasetningu 19. ágúst. Þá sameinast formlega Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands. 6.3.2005 00:01
Fjarstýra ratsjárstöðvum árið 2007 Ákveðið hefur verið að ratsjárstöðvum Ratsjárstofnunar verði fjarstýrt frá ratsjárstöðinni á Miðnesheiði frá og með haustinu 2007, eftir því sem fram kemur í frétt á vefsíðu Víkurfrétta. Stefnt er að því að auka smám saman sjálfvirkni í rekstri ratsjárstöðvanna á Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli og á Stokksnesi og verður þeim öllum fjarstýrt frá ratsjárstöðinni á Miðnesheiði haustið 2007. 6.3.2005 00:01
Vill færa 1. maí "Mér finnst ekkert því til fyrirstöðu að breyta fyrirkomulagi hátíðarhaldanna á 1. maí. Hins vegar gæti tekið lengri tíma að breyta fyrirkomulagi frídaga og þyrfti til þess heildstæða samstöðu á vinnumarkaðinum," segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands 6.3.2005 00:01
Brjálæðislega hátt verð "Þetta útboð segir allt um ástandið á fasteignamarkaðinum. Þetta verð er náttúrlega brjálæðislega hátt. Þó Reykjavíkurborg gæfi lóðina þá myndi sá sem fengi hana ekki lækka verðið til viðskiptavinarins," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri um lóðaútboðið í Norðlingaholti. 6.3.2005 00:01
Svipað veður í dag og í gær Veðrið lék við landann í gær og var blíðviðri um land allt með vætu á köflum. Samkvæmt tölum Veðurstofu Íslands var upp undir tíu stiga hiti um land allt og léttskýjað og má búast við svipuðu veðri í dag. 6.3.2005 00:01
Blessaði lýðinn á sjúkrahúsi Jóhannes Páll páfi annar kom stutta stund út í glugga á Gemelli-sjúkrahúsinu í Róm í morgun, þar sem hann dvelur nú vegna illvígrar flensu sem herjaði á hann, og blessaði mannfjöldann sem þar var saman kominn. Samkvæmt fréttaskeytum virkað páfi veikburða og er ekki búist við að hann yfirgefi sjúkrahúsið á næstunni. 6.3.2005 00:01
Enn nægur snjór í Bláfjöllum "Við erum afskaplega ánægðir með daginn og allt búið að ganga feykivel. Allir farið upp heilir og komið heilir niður. Veðrið er líka búið að leika við okkur," segir Hlynur Skagfjörð, rekstrarfulltrúi skíðasvæðisins í Bláfjöllum. 6.3.2005 00:01
Stjórnvöld bæti laun Aðalfundur félags eldri borgara í Kópavogi var haldinn laugardaginn 5. mars í Gullsmára 13. Þar var samþykkt reglugerð fyrir stuðningssjóðinn Hjálparhella sem á að greiða félögum í neyðartilfellum. 6.3.2005 00:01
Landbúnaðarverðlaunin afhent Garðyrkjustöðin Melar við Flúðir, ábúendur í Sveinungsvík í Þistilfirði og félagsbúendur á Helgavatni í Borgarfirði fengu í dag landbúnaðarverðlaunin árið 2005 á Búnaðarþingi sem fram fór á Hótel Sögu. 6.3.2005 00:01
Berjast saman gegn hryðjuverkum Pakistan og Úsbekistan samþykktu í dag að berjast saman gegn hryðjuverkum í löndunum tveimur og herða eftirlit við landamæri sín. Þá er í burðarliðnum samkomulag þar sem kveðið á um framsal úsbeskra hryðjuverkamanna í Pakistan til Úsbekistans og öfugt. 6.3.2005 00:01
Í einangrun vegna nefbrots Bobby Fischer var að eigin sögn varpað í einangrunarklefa í fangelsinu í Japan eftir átök við fangaverði sem lauk með því að hann nefbraut einn þeirra. Ástæðan var að honum var neitað um egg með matnum eins og aðrir fangar fá. Lögmaður Fischers ætlar að freista þess að fá vegabréf hans í hendur á morgun en það hefur verið í vörslu sendiráðs Íslands í rúma viku. 6.3.2005 00:01
Banaslys á Suðurlandsvegi Banaslys varð á Suðurlandsvegi á sjöunda tímanum í morgun þegar fólksbíll og jeppi rákust harkalega saman. 6.3.2005 00:01
Herör skorin upp gegn klámi Borgaryfirvöld í Moskvu eru búin að fá nóg af siðspillingunni sem þau telji að einkenni borgina og hafa sagt kynlífsleikfangabúðum stríð á hendur. 6.3.2005 00:01
200 al-Kaídamenn í Bretlandi Fyrrverandi yfirmaður Lundúnalögreglunnar, staðhæfði í blaðagrein um helgina að allt að tvö hundruð hryðjuverkamenn á snærum al-Kaída væru í Bretlandi og þeir gætu látið til skarar skríða hvenær sem er. 6.3.2005 00:01
Herflutningar hefjast í dag Sýrlendingar hefja flutninga á hersveitum sínum í Líbanon í dag. Líbanska stjórnarandstaðan er vantrúuð á að þær fari frá landinu í bráð. 6.3.2005 00:01
Útilokar ekki viljaverk Giuliana Sgrena hafnar því að bíl hennar hafi verið ekið of hratt og ekki sinnt stöðvunarmerkjum bandarískra hermanna. Hún útilokar ekki að skothríð hermanna hafi verið viljandi. 6.3.2005 00:01
Indónesar fá mest Stærstur hluti söfnunarfjár Alþjóða Rauða krossins vegna hamfaranna við Indlandshaf mun renna til Indónesa. 6.3.2005 00:01
Gefa út falsaða reikninga fyrir fé Dæmi eru um að menn taki þóknun fyrir að gefa út falsaða launareikninga í þeim tilgangi að leika á skattayfirvöld. 6.3.2005 00:01
Háskastraujun á Sólrisuhátíð Háskastraujun er meðal þess sem ísfirskir menntaskólanemar keppa í á Sólrisuhátíð sem nú stendur yfir. 6.3.2005 00:01
Segir kúvent í flugvallarmáli Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir samkomulag við samgönguráðherra sýna að borgarstjóri hafi kúvent í flugvallarmálinu. Borgarstjóri segir að aðeins sé um minnisblað að ræða sem skuldbindi ekki borgina. 6.3.2005 00:01
Segir árásina fyrirvaralausa Ítalska blaðakonan Giuliana Sgrena, sem særðist í skotárás bandarískra hermanna, nýfrelsuð úr höndum mannræningja, segir að hermennirnir hafi skotið fyrirvara- og viðvörunarlaust á bílinn. Árásin hefur aukið andstöðu á Ítalíu við Íraksstríðið og spennu milli Rómar og Washington. 6.3.2005 00:01
Brottflutningur hefst á morgun Sýrlendingar hefjast handa á morgun við að flytja hluta hersveita sinna frá Líbanon. Bandaríkjamenn gefa lítið fyrir loforðin og krefjast þess að allar erlendar hersveitir hverfi brott úr landinu strax. 6.3.2005 00:01
Verkjameðferð að lognast út af Þverfagleg verkjameðferð á Landspítala er að lognast út af vegna fjárskorts. Sérfræðingur í hjúkrun verkjasjúklinga telur ástandið ekki boðlegt lengur og hefur í bréfi til yfirstjórnar spítalans óskað eftir því að þjónustan verði formlega lögð af. 6.3.2005 00:01
Þróar harðkornaskósóla Íslendingur hefur náð góðum árangri í þróun harðkornaskósóla. Á morgun heldur hann til Bandaríkjanna til að taka þátt í samkeppni um viðskiptaáætlanir. 6.3.2005 00:01
Ungur ökumaður lést Tæplega tvítugur ökumaður lést og þrír jafnaldrar hans slösuðust alvarlega þegar bíll sem þeir voru í lenti í árekstri við jeppa sem kom úr gagnstæðri átt á Suðurlandsvegi á sjöunda tímanum í gærmorgun. Farþegarnir þrír eru þó ekki taldir í lífshættu. 6.3.2005 00:01
Tafir vegna færslu Hringbrautar Umferð verður hleypt á nýju Hringbrautina í áföngum í byrjun sumars. Búist er við töluverðum umferðartöfum á svæðinu vegna færslu brautarinnar. 6.3.2005 00:01
Afleysingalöggur fundu dóp 20 grömm af hassi, 10 grömm af amfetamíni og lítilræði af kókaíni fundust í bifreið í Hafnarfirði í fyrrinótt. Tveir menn voru teknir í yfirheyrslur en sleppt að þeim loknum og telst nú málið upplýst. Mennirnir þóttu hegða sér grunsamlega þegar lögreglan hafði afskipti af þeim við hefðbundið eftirlit og var því leitað í bílnum. 6.3.2005 00:01
Fjölmenni við opnun Kóngsins Forseti Íslands setti nýja stólalyftu í Bláfjöllum af stað í dag að viðstöddu fjölmenni. Nýja lyftan hefur fengið nafnið Kóngurinn. 6.3.2005 00:01
Aðskilnaður kristilegt baráttumál Séra Hjörtur Magni Jóhannsson og Magnús Axelsson voru um helgina kjörnir í stjórn SARK, samtaka um aðskilnað ríkis og kirkju, en þeir eru fulltrúar Fríkirkjunnar. "Okkur var boðin þátttaka," segir Hjörtur, en hann hefur ekki starfað áður á vettvangi samtakanna. 6.3.2005 00:01
Vill umræðu um vinnubrögð Í bréfi til háskólasamfélagsins kallar Helga Kress bókmenntafræðiprófessor eftir opinni umræðu um vinnumat og rannsóknaraðferðir. Þetta gerir hún í framhaldi af umræðu um vinnubrögð prófessors Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar við ritun bókar um Halldór Laxness, sem út kom árið 2003. 6.3.2005 00:01
Páfi kom út í glugga "Frá dýpstu rótum míns litla hjarta óska ég þess að þér batni fljótt," skrifaði Pálína, ung stúlka í pólska bænum Wadowice, fæðingarbæ Jóhannesar Páls páfa, í bók með kveðjum og heillaóskum til páfa, sem honum verður færð á næstunni. 6.3.2005 00:01
Nýr háskóli boðar bændum nýja tíma Staða landbúnaðarins er styrk, að því er fram kom í setningarræðu Haraldar Benediktssonar, formanns Bændasamtaka Íslands, við setningu Búnaðarþings á Hótel Sögu í Reykjavík í gær. Hann sagði milda tíð og mikla afurðasölu endurspegla styrk landbúnaðarins. 6.3.2005 00:01