Innlent

Vill færa 1. maí

"Mér finnst ekkert því til fyrirstöðu að breyta fyrirkomulagi hátíðarhaldanna á 1. maí. Hins vegar gæti tekið lengri tíma að breyta fyrirkomulagi frídaga og þyrfti til þess heildstæða samstöðu á vinnumarkaðinum," segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Í ályktun Rafiðnaðarsambandsins segir að félagið vilji að stéttarfélög í Reykjavík sameinist um að halda víðtæka fjölskylduhátíð í Laugardalnum í stað kröfugöngu. Einnig vill sambandið að hátíðarhöldin 1. maí flytjist á fyrsta föstudag hvers mánaðar því mikið óhagræði sé fyrir atvinnulífið þegar stakir frídagar lenda á virkum dögum. Mundi þessi regla þá eiga við fleiri frídaga, eins og til dæmis 17. júní. Guðmundur segir fáa í kröfugöngum. Þar séu öfgahópar mest áberandi og skemmi áferð 1. maí. "Mér er ekkert illa við í sjálfu sér að ræða breytingar um fyrirkomulag hátíðarhaldanna 1. maí. Ég er reyndar frekar íhaldssamur gagnvart kröfugöngunni og vil ekki missa hana. Við verðum líka að hafa í huga að þetta er baráttudagur en ekki bara hátíðisdagur," segir Guðmundur Þ. Jónsson, annar varaformaður Eflingar stéttarfélags og situr í 1. maí nefnd.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×