Innlent

Fjölmenni við opnun Kóngsins

Forseti Íslands setti nýja stólalyftu í Bláfjöllum af stað í dag að viðstöddu fjölmenni. Nýja lyftan hefur fengið nafnið Kóngurinn.

Það var mikið af fólki í Bláfjöllum þegar nýja skíðalyftan var sett af stað í dag. Lyftan hlaut nafnið Kóngurinn enda stendur hún við Kóngsgil. Í fyrstu ferðina fóru Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík. Ólafur sagði lyftuna frábært mannvirki sem opnaði fyrir öðruvísi rennsli niður.

Ólafur segist hafa komið upp í Bláfjöll fyrst fyrir um 40 árum og þá hafi aðeins verið lítil toglyfta. Hann segir að þetta hefði verið ævintýraveröld í augum þess fólks sem var að skíða þá. Hann hvetji alla til að skella sér á skíði og njóta þeirrar útivistarparadísar sem Bláfjöll séu.

Í lyftunni eru líka kláfar en fjórir komast í hvern kláf. Logi Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, segir að lyftan sé sú flottasta sem sett hafi verið upp á Íslandi og hún sé aðeins tvær og hálfa mínútu upp í stað sex áður. Þá sé mjög þægilegt að geta farið í kláfinn þegar það blási svolítið. Logi segir aðspurður að með nýju lyftunni ættu biðraðir að heyra sögunni til því flutningsgetan aukist um 2200 manns á klukkustund.

Aðspurður hvort hann eigi eftir að nota liftuna mikið segir Ólafur Ragnar Grímsson að það eigi hann eftir að gera og sömuleiðis Dorrit kona hans. Hún sé enn þá meiri skíðamanneskja en hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×