Erlent

Páfi kom út í glugga

"Frá dýpstu rótum míns litla hjarta óska ég þess að þér batni fljótt," skrifaði Pálína, ung stúlka í pólska bænum Wadowice, fæðingarbæ Jóhannesar Páls páfa, í bók með kveðjum og heillaóskum til páfa, sem honum verður færð á næstunni. Þar í bæ, rétt eins og annars staðar í hinum kaþólska heimi, hafa menn áhyggjur af heilsufari páfa og biðja ákaft fyrir bata hans. Páfi hefur verið veikburða undanfarið, en kom þó í gær út að glugga á sjúkrahúsinu í Róm þar sem hann hefur dvalist í nærri tvær vikur og blessaði mannfjöldann fyrir utan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×