Innlent

Í einangrun vegna nefbrots

Bobby Fischer var að eigin sögn varpað í einangrunarklefa í fangelsinu í Japan eftir átök við fangaverði sem lauk með því að hann nefbraut einn þeirra. Ástæðan var að honum var neitað um egg með matnum eins og aðrir fangar fá. Lögmaður Fischers ætlar að freista þess að fá vegabréf hans í hendur á morgun en það hefur verið í vörslu sendiráðs Íslands í rúma viku. Stuðningshópur Fischer fór í íslenska sendiráðið í Tókýó dag og áttti óformlegan upplýsingafund með Þórði Ægi Óskarssyni sendiherra. Var sendiherranum gert ljóst að á morgun myndi Suzuki, lögmaður Fischers, koma í sendiráðið með umboð til þess að taka við vegabréfi hans. Stuðningsmennirnir eru orðnir langþreyttir á að bíða eftir því að íslensk stjórnvöld afhendi vegabréfið sem nú hefur verið í íslenska sendiráðinu í Tókýó í meira en viku. Eftir fundinn í sendiráðinu hélt stuðningshópurinn fund á hóteli sínu og skoðaði meðal annars á Netinu meðför Spaugstofunnar á ferð Sæma Rokk til Japans til að frelsa Fischer með dansskóna að leynivopni í farteskinu. Sæmundur heyrði loks í Fischer í dag eftir að hann hafði lokið fjögurra daga einangrunarvist í innflytjendafangelsinu. Fischer var settur í einangrun á miðvikudag á meðan Sæmundur beið í fordyri fangelsisins eftir að komast til fundar við vin sinn. Sæmundur segir að ástæðan fyrir refsingunni hafi verið, að sögn Fischers, beiðni hans um að fá egg með matnum eins og aðrir fangar. Þegar beiðni hans var hafnað með þjósti hafi komið til átaka milli hans og fangavarða. Þeir hafi ráðist á hann og hann barið frá sér. Sæmundur segir að Fischer hafi sent einn fangavörðinn nefbrotinn á sjúkrahús. Þar sem bandarísk stjórnvöld hyggjast ákæra Fischer fyrir skattalagabrot og krefjast framsals frá Japan á þeim grundvelli þykir stuðningsmönnum hans brýnt að íslensk stjórnvöld afhendi honum ferðavegabréfið tafarlaust, ella hafi útgáfa þess verið til einskis. Ljóst er að japönsk stjórnvöld fylgjast grannt með málinu sem þegar er orðið þeim til óþæginda. Japanskir fjölmiðlar hafa sýnt baráttu stuðningsmanna Fischers aukinn áhuga, meðal annars varð málið að forsíðufrétt í einu stærsta dagblaði Japans um helgina.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×