Fleiri fréttir

Viðræður um kjarnorkumál N-Kóreu?

Kim Jong-Il, leiðtogi Norður-Kóreu, segist reiðubúinn að hefja viðræður um kjarnorkumál landsins á nýjan leik, að því gefnu að Bandaríkjamenn sýni af sér heilindi í slíkum viðræðum. Þá segir leiðtoginn einnig að uppfylla þurfi ákveðin skilyrði ef viðræðurnar eigi að hefjast á nýjan leik, en tiltekur ekki hver þau skilyrði séu.

Stúlkunnar enn leitað

Lögreglan í Reykjavík lýsir enn eftir Jónu Thuy Phuong Jakobsdóttur, fjórtán ára af asískum uppruna. Hún er 160 sm á hæð, svarthærð með brún augu. Ekki er vitað hvernig hún er klædd.

Hagnaður Actavis 5 milljarðar

Lyfjafyrirtækið Actavis hagnaðist um fimm milljarða króna í fyrra sem er nokkuð undir væntingum, þrátt fyrir að vera 55% meiri hagnaður en í hitteðfyrra. Slakari afkomu en búist var við má meðal annars rekja til mun minni sölu í Búlgaríu en gert var ráð fyrir.

Uppreisnarmennirnir vel að sér

Hópur uppreisnarmanna í Írak, sem hefur það að markmiði að skerða birgðir olíu, vatns og raforku í landinu, býr yfir mikilli þekkingu á innviðum orkumála í höfuðborginni Bagdad. Dagblaðið<em> New York Times</em> hefur eftir embættismönnum í Írak og Bandaríkjunum að aðgerðir hópsins upp á síðkastið beri þess merki að hann sé orðinn mjög skipulagður.

450 ástralskir hermenn til Íraks

Ástralar ætla að senda 450 hermenn til viðbótar til Írak. Ætlunin er að hermennirnir muni leysa af hólmi hluta þeirra 1400 hermanna frá Hollandi sem fara frá Írak í mars. Fyrir eru nærri 900 hermenn frá Ástralíu í Írak.

Féllu í sjóinn í samförum

Karl og kona sem nutu holdsins lystisemda í bíl niður á fáfarinni bryggju í Ósló í gærkvöldi hugðu ekki að sér og rákust í gírstöngina með þeim afleiðingum að bíllinn rann af stað. Hann steyptist fram af bryggjunni og sökk i sjóinn en fólkið komst út úr honum og upp á bryggjuna við illan leik.

Ekki flugfært frá Reykjavík

Ekkert hefur verið flogið innanlands frá Reykjavíkurflugvelli í morgun vegna þokunnar í borginni. Flugfarþegum hefur því verið ekið með rútum til Keflavíkur svo unnt væri að koma þeim með flugi á áfangastað.

Níu létust þegar veggur hrundi

Í það minnsta níu rússneskir hermenn létust þegar húsveggur í verksmiðju hrundi ofan á þá í Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu, í nótt. Að sögn talsmanns hersins eru engin ummerki um að hvers kyns sprenging hafi orsakað þetta heldur hafi veggurinn, og þar með stór hluti verksmiðjunnar, hreinlega hrunið af sjálfsdáðum.

Björgunarstarfi að mestu lokið

Alþjóðlegar björgunarsveitir hafa að mestu lokið störfum á hamfarasvæðunum í Indónesíu en vinnan undanfarnar vikur hefur aðallega snúist um hreinsun og að finna og grafa líkamsleifar þeirra sem létust. Fundist hafa yfir 123 þúsund lík í Indónesíu en yfirvöld segja nú að líklegast verði aldrei vitað nákvæmlega hversu margir fórust.

VG á móti sölu Landsvirkjunar

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík áskilur sér allan rétt til að leggjast gegn áformum um fyrirhugaða sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Það þjóni hvorki hagsmunum Reykvíkinga né annarra landsmanna að málið fari lengra á þeim forsendum sem iðnaðarráðherra hafi lagt upp.

Frekari skuldbindingar NATO í Írak

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra situr í þessum töluðum orðum með Bush Bandaríkjaforseta á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel. Frekari skuldbindingar NATO-ríkja í Írak og Afganistan er meðal þess sem Bush er talinn ætla að mæla fyrir á fundinum.</font />

Gríðarlegt tjón vegna skjálftans

Að minnsta kosti 400 manns létust í snörpum jarðskjálfta í miðhluta Írans í nótt. Gríðarlegt tjón er af völdum skjálftans og meðal annars er talið að nokkur þorp og bæir hafi lagst í rúst.

Skátar í hávegum í Hafnarfirði

Hafnarfjarðarbær verður fyrst bæjarfélaga til að semja um rekstur á skátastarfsemi. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, mun undirrita samstarfssamning við skátafélagið Hraunbúa í kvöld.

Stofna samráðshóp um húsarifin

Húsarif á Laugavegi og breytingar þar hafa vakið sterk viðbrögð og nú hafa borgaryfirvöld ákveðið að stofna samráðshóp, skipulagsnefnd til ráðgjafar. Hópurinn á að starfa á meðan breytingarnar standa yfir en gert er ráð fyrir að þær taki tvo áratugi.

Nemendur njóta ekki sannmælis

Margir nemendur njóta ekki sannmælis í skriflegum prófum, segir formaður Félags grunnskólakennara, en félagið vill að samræmd próf verði lögð niður í núverandi mynd.

Óvíst um sameiningu orkufyrirtækja

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, segir engar ákvarðanir hafa verið teknar um sameiningu orkufyrirtækja í eigu ríkisins. Hann segir að það eigi að vera útgangspunktur við undirbúning hugsanlegra sameininga að störfum á landsbyggðinni fækki ekki í kjölfarið.

Ríkið hætti afskiptum

Það hlýtur að vera tímaspursmál hvenær síðustu afskiptum ríkisvaldsins af fjármálamarkaðnum lýkur og ótrúlegt að stjórnvöld hafi enn ekki áttað sig að fullu á þeim ávinningi sem frelsisvæðing fjármálakerfisins hefur skilað samfélaginu. Þetta sagði Einar Sveinsson, formaður bankaráðs Íslandsbanka, á aðalfundi bankans fyrir stundu.

Konur starfi meira í friðargæslu

Leita ber leiða til að auka tækifæri kvenna til að taka þátt í friðargæslu á vegum Íslands. Þetta er niðurstaða skýrslu sem tekin var saman að frumkvæði UNIFEM á Íslandi. Birna Þórarinsdóttir,  framkvæmdastjóri samtakanna hér á landi, kannaði starfsemi friðargæslunnar á árunum 1994-2004, einkum með hliðsjón af jafnréttis- og kynjasjónarmiðum.

Norræn menningarhátíð í Berlín

Norræn menningarhátíð hefst á fimmtudaginn kemur í Berlín og verður þar boðið upp á margskonar menningarviðburði frá öllum Norðurlöndunum: tónlist, leiklist, dans, bóklestur, listsýningar og meira að segja íþróttakappleiki.

Forsætisráðherraefni sjíta valið

Stjórnmálabandalag sjíta í Írak hefur tilnefnt Ibrahim al-Jaafari sem forsætisráðherraefni sitt. Bandalagið fékk mest fylgi í kosningunum í landinu á dögunum.

Mósa - bakteríur af sama stofni

Talið er sennilegt að Mósa-bakteríur þær sem greindust á hjartadeild Landspítala háskólasjúkrahúss og Hrafnistu séu af sama stofni, að sögn Guðrúnar Sigmundsdóttur yfirlæknis hjá sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins.

Flug liggur enn niðri

Annan daginn í röð liggur þykk þoka yfir höfuðborginni og truflar m.a. innanlandsflug. Vélar hafa lent í Keflavík í allan en reynt verður að lenda í Reykjavík núna á næstunni. Farþegar hafa verið ferjaðir frá Reykjavíkurflugvelli til Keflavíkur með rútum og verður því að líkindum haldið áfram þangað til léttir til.

Tenórarnir tveir að koma

Stórtenórarnir José Carreras og Placido Domingo syngja báðir á tónleikum í Reykjavík í næsta mánuði, Carreras í Háskólabíói 5. mars og Domingo í Egilshöll 13. mars. Miðar í bestu sætin kosta 30 þúsund krónur. Miðasala gengur vel. </font /></b />

Sigsteinn gefur Rauða krossinum

Sigsteinn Pálsson, sem um áratugaskeið var bóndi á Blikastöðum en býr nú í hárri elli á dvalarheimilinu Hlaðhömrum í Mosfellsbæ, lét gott af sér leiða á dögunum.

Tottenham-maður á hafnfirsku fleyi

Velski knattspyrnumaðurinn Simon Davies, sem leikur með lundúnska liðinu Tottenham Hotspur, hefur keypt íslenskan bát í félagi við föður sinn og bræður. Verður hann gerður út á humar og krabba og mun Lee, eldri bróðir Simons, stjórna útgerðinni.

Ökumaður virtist látinn

Lögreglan og sjúkrabíll voru send með hraði á Vogastapa um hádegisbil eftir að tilkynnt var um kyrrstæða bifreið þar sem ökumaðurinn virtist ekki vera með lífsmarki. Því var neyðarlið sent á staðinn í flýti. Í þann mund er hjálpin barst varð vart við lífsmark í bílnum.

Allt í góðu hjá Brynju og Freyju

Fréttir af átökum framsóknarkvenna í Kópavogi og stofnun framsóknarkvennafélagsins Brynju til höfuðs Freyju sem starfað hefur um árabil hafa ekki náð eyrum vinkvennanna Brynju og Freyju sem búa í Grafarholti í Reykjavík.

Aurbleyta á Suðurlandi

Vegna vætutíðar og hlýinda síðustu daga þarf Vegagerðin að takmarka ásþunga ökutækja á vegum í Árnes-, Rangárvalla- og Vestur - Skaftafellssýslu við tíu tonn.

Fischer fær útlendingavegabréf

Bobby Fischer fær svokallað útlendingavegabréf hér á landi. Útlendingastofnun samþykkti þetta rétt áðan að sögn Einars S. Einarssonar í Stuðningshópi Fischers. Sendiherra Íslands í Japan mun annast afhendingu á vegabréfinu.

Leita að nýjum yfirmanni

Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir leitað logandi ljósi að nýjum yfirmanni flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna en Hollendingurinn Ruub Lubbers sagði embættinu af sér um helgina vegna ásakana um kynferðislega áreitni.

Vanhugsaðar hugmyndir ráðherra

Vinstri - grænir í Skagafirði mótmæla harðlega „vanhugsuðum hugmyndum“ iðnaðarráðherra um sameiningu og einkavæðingu Landsvirkjunar, RARIK og Orkubús Vestfjarða. Þeir segja markaðs- og einkavæðing almannaþjónustu á sviði orkuframleiðslu og orkudreifingar ganga þvert gegn vilja og hagsmunum íbúa landsbyggðarinnar.

Óttast um líf sitt í kjölfar morða

Auknar komur í kvennaathvarfið urðu í kjölfar tveggja morða og umfjöllunar um þau á síðasta ári. Drífa Snædal, fræðslu- og framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf, segir sumar konur sem leituðu til athvarfsins hafa verið hræddar um að ofbeldið sem þær höfðu orðið fyrir gæti endað með morði.

Flugferðir á áætlun verða farnar

Innanlandsflug um Reykjavíkurflugvöll liggur enn niðri og fer allt innanlandsflug um Keflavíkurflugvöll. Farþegar eru ferjaðir þangað í rútum. Áætlun hefur eðli máls samkvæmt ekki haldist en þær ferðir sem eru á áætlun það sem eftir er dags verða farnar.

Götueftirlit komið til að vera

32 fíkniefnamál hafa komið upp í götueftirliti fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík frá 1. febrúar og hafa 35 verið kærðir í kjölfarið.

Geri allt til að bjarga barninu

Ung móðir hefur leitað að 14 ára syni sínum síðan í síðustu viku. Hún sá hann í fyrrakvöld og kallaði til hans. Hann lét sig hverfa. Hún frétti af honum á tilteknum stað í gær. Fósturfaðir hans fór þangað í hvelli, - en of seint. </font /></b />

Opið í Bláfjöllum og Skálafelli

Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins eru opin. Opið er í Bláfjöllum og Skálafelli til klukkan 21 í kvöld. Þar er skafheiður himinn, sólskin, logn og fjögurra stiga hiti. Færið er gott og stólalyftan í Kóngsgili er í gangi í Bláfjöllum sem og diskalyftur. Í Skálafelli eru allar lyftur opnar.

800 milljóna hótel nærri tilbúið

Nýtt hótel í gamla Eimskipafélagshúsinu við Pósthússtræti verður opnað í byrjun í apríl. Ferðaskrifstofan Heimsferðir keypti húsið á 510 milljónir króna í fyrra. Tómas. J. Gestsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Heimsferða, segir að samið hafi verið við Radisson-SAS, sem einnig rekur Hótel Sögu, um að reka hótelið.

Bann á Nýju Skátabúðina

Eigendur Nýju Skátabúðarinnar í Faxafeni verða að breyta nafni verslunarinnar eftir að Bandalag íslenskra skáta kvartaði til Einkaleyfastofu.

Borgin hafnar túlkaþjónustu

Borgaryfirvöld hafa hafnað beiðni Félags heyrnarlausra um að viðurkennd verði skylda Reykjavíkurborgar til að tryggja endurgjaldslausa túlkaþjónustu fyrir heyrnarlausa foreldra grunnskólabarna. Hafdís Gísladóttir, framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra, segist ekki sætta sig við niðurstöðuna. Líklega verði farið með málið fyrir dómstóla.

500 hið minnsta látnir

Talið er að að minnsta kosti 500 manns hafi látið lífið í öflugum jarðskjálfta sem reið yfir miðhluta Írans í nótt. Fjöldi þorpa er rústir einar og um 30 þúsund manns hafa ekki í nokkur hús að venda. 

Harma orð Halldórs

Höfuðborgarsamtökin harma ummæli Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra á stjórnmálafundi á Akureyri fyrir skömmu. Halldór sagði að flugvöllur yrði að vera í Vatnsmýrinni til frambúðar til að tryggja greiðar samgöngur landsbyggðarbúa við höfuðborgina.

Guðni vill rífa Steingrímsstöð

Landbúnaðarráðherra lýsir því yfir að hann vilji fjarlægja Steingrímsstöð í Efra-Sogi. Það væri lítil fórn fyrir Landsvirkjun. Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir ekki víst að það yrði urriðanum til bóta að fjarlægja stöðina.

Ætla með málið til Brussel ef þarf

Hafdís Gísladóttir, framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra, segist ekki sætta sig við að borgaryfirvöld skuli hafa hafnað beiðni félagsins um að viðurkennd verði skylda Reykjavíkurborgar til að tryggja endurgjaldslausa túlkaþjónustu fyrir heyrnarlausa foreldra grunnskólabarna.

Sjá næstu 50 fréttir