Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Glitský á austurhimni í Reykjavík Mjög falleg glitský sáust á austurhimninum frá Reykjavík séð á níunda tímanum í morgun, en þau sjást að jafnaði aðeins á nokkurra ára fresti frá Reykjavík. Að sögn Friðjóns Magnússonar eru þetta líka kölluð perlumóðuský, dregið af litbrigðunum sem sjást þegar horft er inn í perlumóðuskel. 18.2.2005 00:01
Sprengdi sig í loft upp í mosku Sjálfsmorðsárásarmaður drap fjóra hið minnsta og særði tuttugu og tvo inni í mosku sjíta í suðurhluta Bagdad í morgun. Sjónarvottar segja að árásarmaðurinn hafi borið sprengjubelti um sig miðjan og kveikt í því þegar hann kom inn í moskuna. Sjítamúslimar fagna þessa dagana Ashura sem er mikilvæg trúarhátíð til minningar um píslarvætti barnabarns Múhameðs spámanns. 18.2.2005 00:01
Börn sögð hríðfalla vegna kulda Talið er að ríflega eitt þúsund afgönsk börn hafi látið lífið úr sjúkdómum sem rekja má til óveðurs og óvenjumikils snjóþunga og kulda um miðbik landsins síðustu vikurnar. Hjálparstarfsmenn sem könnuðu aðstæður í sextán þorpum í Ghor-héraði segja að ástandið sé skelfilegt og börn undir fimm ára aldri hríðfalli. 18.2.2005 00:01
Árás á aðra sjítamosku í Bagdad Árás var gerð á aðra sjítamosku í Bagdad í Írak fyrir stundu með þeim afleiðingum að að minnsta kosti einn lést og fjórir særðust. Moskan er í vesturhluta Bagdad og samkvæmt lögreglu var eldflaug skotið á hana. Fyrr í morgun myrti sjálfsmorðsárásarmaður að minnsta kosti fjóra og særði 22 inni í mosku sjíta í suðurhluta Bagdad. 18.2.2005 00:01
Tugir látnir í árásum á moskur Tugir liggja í valnum eftir árásir sem voru gerðar á að minnsta kosti tvær moskur sjítamúslíma í Bagdad í Írak í morgun. Sjítar halda eina mikilvægustu trúarhátíð sína þessa dagana. 18.2.2005 00:01
Löng bið eftir skilríkjum Fischers Útlendingastofnun lét kalla á stuðningsmenn Bobbys Fischers úr beinni útvarpsútsendingu í desember til þess að spyrja um fæðingardag hans og annað vegna skilríkja handa honum. Síðan hefur ekkert gerst. Forstjóri Útlendingastofnunar ætlar að funda með stuðningshópnum eftir helgi. 18.2.2005 00:01
Negroponte stjórnar leyniþjónustu John Negroponte, sendiherra Bandaríkjanna í Írak, hefur verið skipaður í stöðu yfirmanns allrar leyniþjónustu í Bandaríkjunum. Negroponte mun hafa yfirumsjón með öllum fimmtán leyniþjónustustofnunum Bandaríkjanna, meðal annars bæði FBI og CIA. Staðan er ný af nálinni, en hún var sett á laggirnar í kjölfar árásanna 11. september árið 2001. 18.2.2005 00:01
Mótmælir reykingabanni Frjálshyggjufélagið hefur sent frá sér ályktun vegna lagafrumvarps um bann við reykingum á veitinga- og skemmtistöðum. Þar ítrekar félagið að það sé óréttlætanlegt að ríkið banni fólki að stunda löglegar athafnir á eign sinni. 18.2.2005 00:01
Brúnni yfir Kaldaklifsá lokað Brúnni yfir Kaldaklifsá, austur undir Þorvaldseyri, hefur verið lokað vegna vatnavaxta. Búist er við að hún verði opnuð aftur síðar í dag. 18.2.2005 00:01
Undrast áform iðnaðarráðherra Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lýsir í tilkynningu furðu sinni á bollaleggingum Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um sameiningu orkufyrirtækja. Þingflokkurinn mótmælir harðlega öllum áformum ráðherrans um frekari markaðs- og einkavæðingu almannaþjónustu á sviði orkuframleiðslu og orkudreifingar á næstu árum. 18.2.2005 00:01
Pútín treystir Írönum Vladímír Pútín, forseti Rússland, lýsti því yfir í dag að hann væri sannfærður um að Íranar hygðust ekki smíða kjarnorkuvopn heldur nýta kjarnorkuframleiðslu sína eingöngu í friðsamlegum tilgangi. Þetta lét forsetinn hafa eftir sér fyrir fund með aðalsamningamanni Írana í kjarnorkudeilum Írans við Bandaríkin og Evrópusambandið. 18.2.2005 00:01
Fimmta kjarnorkuverið í Finnlandi Finnska ríkisráðið hefur veitt Industrins Kraft leyfi til að byggja fimmta kjarnorkuverið í Finnlandi. Bygging versins, sem mun bera heitið Olkiluoto 3, mun sennilega hefjast nú þegar. Pólitísk ákvörðun um bygginguna var tekin í þinginu fyrir þremur árum og sveitarfélagið Eurajoki, þar sem verið kjarnorkuverður byggt, veitti fyrr í þessari viku byggingarleyfi. 18.2.2005 00:01
Mágurinn yfirmaður leyniþjónustu Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, hefur skipað mág sinn yfirmann leyniþjónustu hersins. Bashar al-Assad erfði forsetaembættið eftir föður sinn, Hafes al-Assad, og því má segja að fjölskylda þeirra sé æði valdamikil í Sýrlandi. 18.2.2005 00:01
Handtekinn fyrir að hjóla nakinn Tuttugu og fjögurra ára gamall maður var handtekinn á Nýja-Sjálandi síðastliðinn sunnudag fyrir að hjóla um berrassaður á reiðhjóli sínu. Hann var að mótmæla of mikilli bílanotkun og mengun sem af henni stafaði. Honum var gert að mæta fyrir dómara vegna ósiðsamlegs framferðis og hann mætti samviskusamlega - enn þá berrassaður. 18.2.2005 00:01
Fegurðardrottning tapar máli Fyrrverandi þátttakandi í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland.is tapaði í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur máli sem hún höfðaði á hendur aðstandendum keppninnar og íslenska ríkinu. Stúlkan hafði tekið þátt í kynningu á torfærukeppni og slasast þegar hún keyrði yfir sandbing. Hún krafðist bóta upp á tæplega tvær milljónir króna. 18.2.2005 00:01
Hótar að boða til kosninga Formaður grænlensku landsstjórnarinnar hótar að boða til almennra kosninga ef hann verður ekki endurkjörinn formaður flokks síns. Hans Enoksen er formaður Síúmút sem er stærsti stjórnmálaflokkur Grænlands. Landsfundur flokksins stendur nú yfir og fer formannskjör fram á morgun. 18.2.2005 00:01
Níu mosa - tilfelli frá áramótum Mosa - sýkingabakteríur hafa fundist í níu manns hér frá áramótum, að sögn Ólafs Guðlaugssonar yfirlæknis sýkingavarnadeildar á Landspítala háskólasjúkrahúsi 18.2.2005 00:01
Hryðjuverkaleiðtogi bjó í Danmörku Líbanskur maður, sem bjó í Danmörku í fjórtán ár, er nú leiðtogi hryðjuverkasamtakanna Ansar al-Islam sem hafa myrt að minnsta kosti eitt þúsund manns í Írak. Í Danmörku var maðurinn dæmdur fyrir rán á peningaflutningabíl og er einnig talinn hafa átt þátt í öðru ráni. 18.2.2005 00:01
Þúsundir hrafna skotnar árlega Fjöldi þeirra dýra sem veidd eru hérlendis ár hvert skiptir hundruðum þúsunda. Flest þessara dýra eru veidd til matar en nokkrar tegundir teljast meindýr. Þar á meðal eru hrafnar. 18.2.2005 00:01
Kakkalakkar fangaðir með eigin þef Hugsanlegt er að hægt verði að nota sérstaka lykt sem kvenkyns kakkalakkar gefa frá sér til þess að hafa hemil á dýrategundinni. Að þessu hafa vísindamenn við ríkisháskólann í New York komist, en þeir hafa unnið að því að efnagreina ferómón sem kvenkyns kakkalakkar senda út til þess að lokka karldýr til sín. 18.2.2005 00:01
Yfir 120 rænt í Írak undanfarið ár Yfir 120 útlendingum hefur verið rænt í Írak síðastliðið ár og hefur um þriðjungur þeirra verið tekinn af lífi en sumum sleppt eftir að komið hefur verið til móts við kröfur mannræningja. Tyrkir eru fjölmennastir á lista þeirra sem rænt hefur verið, eða alls 14, en 12 Nepölum var rænt í fyrra og þeir allir teknir af lífi. 18.2.2005 00:01
Mótmælir ákvörðun vegna auglýsinga Samband íslenskra auglýsingastofa, SÍA, mótmælir þeirri ákvörðun Samkeppnisstofnunar að mælast til þess að Umferðarstofa taki þrjár sjónvarpsauglýsingar sínar úr umferð. Í yfirlýsingu frá SÍA segir meðal annars: „Ekki verður séð að sú fullyrðing Samkeppnisstofnunar fái staðist, að í auglýsingum Umferðarstofu sé sýnt hættulegt atferli sem haft geti þannig áhrif á börn að þau líki eftir þeirri hegðun sem sýnd er í auglýsingunum.“ 18.2.2005 00:01
Nota krana og vélmenni í niðurrif Fjarstýrðir kranar verða notaðir til þess að rífa niður skelina af Windsor-skýjakljúfinum sem brann í Madríd um síðustu helgi. Byggingin er þrjátíu og tvær hæðir. Ekkert er eftir af henni nema burðargrindin en hún er svo veikburða eftir eldinn að ekki er talið óhætt að senda menn inn í hana til vinnu. 18.2.2005 00:01
Aðgerðir vegna gigtarlyfja Lyfjastofnun Evrópu hefur tilkynnt aðgerðir vegna COX-2 lyfjaflokksins, sem fela í sér viðvaranir til lækna um ávísun lyfjanna. Þessar aðgerðir eiga einnig við á Íslandi. 18.2.2005 00:01
Aðgerðir vegna COX-2 hemla Lyfjastofnun Evrópu hefur tilkynnt aðgerðir vegna lyfjaflokksins COX-2 hemla sem eiga einnig við á Íslandi. Hér á landi eru fjögur lyf á markaði sem tilheyra þessum flokki: Arcoxia, Celebra Dynastat og Bextra samkvæmt fréttatilkynningu frá Lyfjastofnun. 18.2.2005 00:01
Skoðar viðskipti með fasteignir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir til skoðunar hversu langt starfsheimildir bankanna nái hvað varðar viðskipti með fasteignir. 18.2.2005 00:01
Áfram í 96 milljóna ábyrgð Reykjavíkurborg verður áfram í ábyrgðum fyrir Landsvirkjun þó að 44,5 prósenta hlutur borgarinnar í fyrirtækinu verði seldur. 18.2.2005 00:01
Reynt að afstýra trúarbragðastríði Öfgahópar súnnímúslima í Írak hafa ráðið að minnsta kosti 27 sjítamúslima af dögum í dag. Árásir súnníta á sjíta fara vaxandi dag frá degi en yfirvöld reyna hvað þau geta til að afstýra trúarbragðastríði í landinu. 18.2.2005 00:01
Ísraelar hætta niðurrifi Stjórnvöld í Ísrael hafa komist að þeirri niðurstöðu að sú stefna að brjóta og eyðileggja hús aðstandenda sjálfsmorðsárásarmanna skili engum árangri og hafa ákveðið að hætta þeirri iðju. Þetta er í anda þeirrar þíðu sem nú er brostin á í samskiptum Ísraels- og Palestínumanna. 18.2.2005 00:01
Kosið um stjórnarskrá ESB á Spáni Spánverjar verða fyrstir Evrópusambandsþjóða til að kjósa um nýja stjórnarskrá ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag. Spænska ríkisstjórnin hefur varið stórfé til að kynna stjórnarskrána en þrátt fyrir það er búist við lélegri kosningaþátttöku enda virðast fáir Spánverjar hafa áhuga á málinu. 18.2.2005 00:01
Thatcher neitar aðild að valdaráni Sonur Margrétar Thatchers, Mark Thatcher, mætti fyrir rétt í morgun vegna gruns um að hann hafi fjármagnað misheppnað valdarán í Miðbaugs-Gíneu í Afríku á síðasta ári. Thatcher yngri, sem hefur stundað almennt brask um alla Afríku og keypti meðal annars þyrlu fyrir valdaránsmennina, harðneitar sök. 18.2.2005 00:01
Nokkurra saknað eftir fellibyl Nokkurra manna er saknað á smáeyjum á Suður-Kyrrahafi en tveir fellibyljir, Nancy og Ólafur, hafa gengið yfir svæðið síðustu daga. Alls er fjögurra fiskibáta saknað og hafa flugvélar og þyrlur frá Nýja-Sjálandi leitað á hafsvæðinu. 18.2.2005 00:01
Konungshjón Svíþjóðar í Taílandi Karl Gústaf Svíakonungur og Silvía drottning eru nú í opinberri heimsókn í Taílandi þar sem þau hafa skoðað þau svæði sem urðu hvað verst úti þegar flóðbylgjan gekk þar á land á öðrum degi jóla. Að minnsta kosti 113 Svíar létu lífið í hamförunum í Taílandi. 18.2.2005 00:01
Kim Jong-il fagnar afmæli sínu Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hélt upp á sextugasta og þriðja afmælisdag sinn í dag með því að koma fyrir almenningssjónir í fyrsta sinn í tvo mánuði. Sögusagnir hafa verið á kreiki um veikindi Kims en hann virtist við hestaheilsu og sat rússneska danssýningu. 18.2.2005 00:01
bjorn.is tíu ára "Ég sá það ekki fyrir fyrir áratug síðan hvað þetta yrði stórt og veit það svo sem ekki enn," segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, en á þessum degi fyrir réttum tíu árum birtist fyrsta greinin á vefsíðu hans bjorn.is sem haldið hefur verið úti allar götur síðan. 18.2.2005 00:01
Magni hættir í haust "Í haust verð ég sjötugur og vil hafa einhvern tíma til að leika mér sjálfur, þannig að í október eða nóvember ætla ég að sjá hvort einhver vill kaupa búðina og halda áfram að vera jókerinn við Laugaveg," segir Magni Magnússon kaupmaður, sem hefur ákveðið að setjast í helgan stein. 18.2.2005 00:01
Ekki úr greipum Bandaríkjamanna Það sækir enginn menn í greipar Bandaríkjamanna ef þeir vilja ekki láta þá lausa, segir Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, og telur allt hafa verið gert til að hjálpa Aroni Pálma Ágústssyni sem situr í stofufangelsi í Texas. Vonbrigði, segja ættingjar Arons. 18.2.2005 00:01
Hægt að rýma miðbæinn á 20 mínútum Það gæti tekið á aðra klukkustund að rýma miðbæ Reykjavíkur ef öryggi fólks þar væri ógnað þar sem ekki er til nein rýmingaráætlun. Væri hún til tæki aðeins innan við tuttugu mínútur að rýma miðborgina á menningarnótt. 18.2.2005 00:01
Fá greiddar 450 krónur á tímann Talið er að tugir erlendra manna starfi ólöglega við iðnaðarstörf á höfuðborgarsvæðinu. Dæmi eru um að þeir séu látnir búa í gámum, hjólhýsum og fokheldum byggingum og fái greiddar 450 krónur á tímann. 18.2.2005 00:01
Hljóta að geta fyrirgefið Fischer Ef menn gátu fyrirgefið Khadafi Líbíuleiðtoga hljóta þeir að geta fyrirgefið Bobby Fischer, segir utanríkisráðherra, og vill ekki meina að Bandaríkjamenn hafi beitt íslensk stjórnvöld þrýstingi til að draga boð um dvalarleyfi til handa Fischer til baka. 18.2.2005 00:01
Segir seinagang óviðunandi Dómsmálaráðherra telur óviðunandi að sýslumenn og lögregla leggi ekki fram ákærur í málum fyrr en mörgum mánuðum eftir að rannsókn lýkur og ætlar að gera gangskör að því að auka hraðann. Embættin fá þó ekki meira fé. 18.2.2005 00:01
Í fótspor Vesturfara Hópur reiðmanna mun feta í fótspor íslenskra landnema í Kanada í sumar og ferðast um slóðir Vestur-Íslendinga á íslenskum hrossum. Það er ungur Kanadamaður sem skipuleggur ferðina en segja má að kveikjan að þessum leiðangri hafi verið snjóbrettaiðkun í kanadískum fjallshlíðum. 18.2.2005 00:01
Berklar í Hollandi Berklasjúkdómurinn hefur gert vart við sig í borginni Zeist í Hollandi. Fyrr í mánuðinum greindist kona sem vinnur á búðarkassa í matvöruverslun með sjúkdóminn. Í kjölfarið fóru 21 þúsund manns, sem töldu sig mögulega hafa komist í snertingu við konuna, í berklapróf. 18.2.2005 00:01
Lungnabólgufaraldur í Kongó Að minnsta kosti 60 hafa látist í mannskæðum lungnabólgufaraldri sem nú geisar í Kongó í Afríku. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) er þetta versti lungnabólgufaraldur sem greinst hefur í heiminum í 50 ár. 18.2.2005 00:01
Rússar styðja Írani Vladimir Pútín, forseti Rússlands, segist sannfærður um að Íranir séu ekki að reyna að þróa kjarnorkuvopn. Eftir fund í Moskvu með Hassan Rowhani, yfirmanni kjarnorkumála Írana, sagði Pútín að rússnesk stjórnvöld myndu áfram vinna með Írönum og hjálpa að ljúka smíði kjarnakljúfs í borginni Bushehr í suðurhluta Írans. 18.2.2005 00:01