Reynt að afstýra trúarbragðastríði 18. febrúar 2005 00:01
Öfgahópar súnnímúslima í Írak hafa ráðið að minnsta kosti 27 sjítamúslima af dögum í dag. Árásir súnníta á sjíta fara vaxandi dag frá degi en yfirvöld reyna hvað þau geta til að afstýra trúarbragðastríði í landinu. Þetta er það sem margir fréttaskýrendur óttuðust að myndi gerast; að þjóðarbrot og trúarbragðahópar Íraks myndu rísa upp hverjir gegn öðrum. Enn sem komið er er ekki hægt að tala um trúarbragðastríð eða átök á milli þjóðarbrota en atburðir dagsins í dag gætu þó verið vísbending um það sem koma skal. Öfgamenn úr röðum súnníta gerðu þrjár árásir á sjítamúslima í dag, tvær í moskum þeirra og eina á kaffihúsi í hverfi sjíta í Bagdad. Árásirnar í dag virðast tengjast Ashura, trúarhátíð sjíta, sem nær hápunkti á morgun. Þetta er ein af mikilvægari hátíðum sjíta til minningar um píslarvættisdauða barnabarns Múhameðs spámanns. Á þessari hátíð í fyrra létu tæplega 200 sjítar lífið í árásum öfgamanna. Gróft má segja að Írakar skiptist í þrjá meginhópa: sjíta sem eru fjölmennastir en hafa ætíð þurft að lúta stjórn súnníta sem höfðu töglin og hagldirnar í Írak undir stjórn Saddams Husseins. Þriðji hópurinn er svo Kúrdar í norðurhluta landsins. Sjítar unnu sigur í nýafstöðnum þingkosningum eins og búist var við og fengu meirihluta atkvæða. Súnnítar sátu að mestu heima og fengu því nær ekkert fylgi í kosningunum. Forsvarsmenn sjíta hafa samt sem áður lagt áherslu á að fulltrúar frá öllum þessum þremur meginhópum eigi fulltrúa í ríkisstjórninni sem nú er verið að mynda. Fréttaskýrendur telja að það sé eina færa leiðin til að reyna að koma í veg fyrir átök þessara hópa í framtíðinni.
Erlent Fréttir Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira