Erlent

Lungnabólgufaraldur í Kongó

Að minnsta kosti 60 hafa látist í mannskæðum lungnabólgufaraldri sem nú geisar í Kongó í Afríku. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) er þetta versti lungnabólgufaraldur sem greinst hefur í heiminum í 50 ár. Þeir 60 sem hafa látist eru allir námuverkamenn. Til viðbótar eru 350 námuverkamenn smitaðir af sjúkdómnum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ætlar að senda lækna á svæðið til að reyna að stemma stigu við sjúkdómnum. Faraldurinn gerði fyrst vart við sig í desember.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×