Erlent

Hryðjuverkaleiðtogi bjó í Danmörku

Líbanskur maður, sem bjó í Danmörku í fjórtán ár, er nú leiðtogi hryðjuverkasamtakanna Ansar al-Islam sem hafa myrt að minnsta kosti eitt þúsund manns í Írak. Í Danmörku var maðurinn dæmdur fyrir rán á peningaflutningabíl og er einnig talinn hafa átt þátt í öðru ráni. Jyllandsposten segir að þau ár sem maðurinn hafi búið í Danmörku hafi hann meðal annars notað til þess að afla sér sambanda og tengsla í Evrópu. Yfirvöld telja að sellur séu starfandi í mörgum Evrópulöndum sem útvegi Ansar al-Islam fé til þess að fjármagna hryðjuverk.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×