Erlent

Berklar í Hollandi

Berklasjúkdómurinn hefur gert vart við sig í borginni Zeist í Hollandi. Fyrr í mánuðinum greindist kona sem vinnur á búðarkassa í matvöruverslun með sjúkdóminn. Í kjölfarið fóru 21 þúsund manns, sem töldu sig mögulega hafa komist í snertingu við konuna, í berklapróf. 408 af þeim voru með jákvætt berklapróf. Af þessum 408 eru fjórir með berklasjúkdóminn því fólk getur fengið jákvæða niðurstöðu úr prófinu án þess að fá sjúkdóminn. Af þessum fjórum er ein manneskja smitandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×