Fleiri fréttir

Farið að kostunarreglum

Kolbrún Halldórsdóttir alþingiskona hefur lagt fram fyrirspurn til menntamálaráðherra á Alþingi um kostun dagskrárliða í útvarpi og sjónvarpi.

Myrti einn kennara og særði annan

Nú er komið í ljós að japanski drengurinn sem réðst vopnaður hnífi inn í barnaskóla í bænum Neyjagawa skammt frá Osaka í Japan myrti 52 ára kennara. Þá særði drengurinn tvo aðra alvarlega með hnífi, sextuga kennslukonu sem er talin í lífshættu og starfsmann mötuneytis.

Tryggingavernd lægri hér

Lágmarksfjárhæð tryggingaverndar er lægri hér en á hinum Norðurlöndunum. Hún er hins vegar í samræmi við lágmarksfjárhæð tryggingaverndar í flestum ESB-ríkjunum.

Fangelsið ekki mannsæmandi

Fangelsið á Akureyri er ekki mannsæmandi. Fangarnir hafa ekkert við að vera, aðstaða til útivistar er ófullnægjandi, loftræsting í klefum léleg. Taka þarf bygginguna í gegn frá grunni, segir fangelsisstjórinn. </font /></b />

Breytt skipulag vegna stækkunar

Breyting á skipulagi sem tengist fyrirhugaðri stækkun á barna- og unglingageðdeildinni á Dalbraut hefur nú verið auglýst.

Komust burt með tíu milljónir

Bankaræningjar komust undan með andvirði tíu milljóna íslenskra króna eftir bankarán í miðborg Kaupmannahafnar í morgun. Ræningjarnir voru tveir og hótuðu starfsfólki með skammbyssu og afsagaðri haglabyssu. Þeir voru í bankanum í tæpa klukkustund og yfirheyrðu starfsfólkið hvert í sínu lagi um hver hefði aðgang að bankahólfum.

Tvær lóðir auglýstar á Reyðarfirði

Á næstu vikum verða auglýstar tvær lóðir sem liggja að álverinu á Reyðarfirði. Þær eru sérstaklega ætlaðar fyrir aðila sem vilja þjónusta álverið í framtíðinni og jafnvel fleiri álver frá Reyðarfirði.

Rauð blóm bönnuð í Sádi-Arabíu

Vesturlandabúar tjá margir hverjir ást sína með rauðum rósum á Valentínusardaginn, sem er í dag. Í Sádi-Arabíu er hins vegar með öllu bannað að selja rauð blóm í kringum þennan dag elskenda. Strangtrúaðir múslímar eru í herferð gegn þessum degi því samkvæmt þeirra sannfæringu eru aðeins tvær trúarhátíðir á ári, hátíðarhöld eftir föstuna og Haj-pílagrímaförin.

Harma ályktun þingmanna

Samtök íþróttafréttamanna hafa sent frá sér ályktun þar sem þau harma þingsályktunartillögu fimmtán þingmanna Sjálfstæðisflokksins um að afnema beri þýðingarskyldu á beinum útsendingum frá íþróttaviðburðum. Þá segir í ályktuninni að Samtök íþróttafréttamanna fordæmi ítrekuð lögbrot Skjás eins með því að sjónvarpa enskum knattspyrnuleikjum og samantektarþáttum af þeim með lýsingum á ensku.

Vill eitt landsnet

Þingflokkur Vinstri - grænna hvetur til þess að grunnnet Símans, Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar verði sameinuð í eitt landsnet sem verði í eigu ríkis og sveitarfélaga og nái til allra landsmanna. Þingflokkurinn telur að verði Síminn seldur með grunnnetinu muni verða til í landinu tvöfalt, að hluta til einkavætt gagnaflutningskerfi með gríðarlegum tilkostnaði.

Syrgja Hariri á götum úti

Stuðningsmenn Rafiks Hariris, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, sem lét lífið þegar öflug bílsprengja sprakk í miðborg Beirútar í dag, fara nú hrópandi um götur borgarinnar til að láta í ljós reiði sína og sorg vegna tilræðisins. Alls fórust tólf manns og tugir slösuðust þegar sprengjan sprakk í sömu andrá og bílalest forsætisráðherrans fyrrverandi ók hjá.

35 látnir í eldsvoða í Teheran

Þrjátíu og fimm létust um það bil 200 slösuðust í eldsvoða í mosku í Teheran í Íran fyrr í dag. Íranska ríkissjónvarpið segir að eldur hafi kviknað út frá rafmagnshitablásara, en fjölmenni var við bænir í moskunni enda stutt í mikla trúarhátíð hjá sjítamúslímum.

Öngþveiti í Madrid

Loka þurfti götum kringum háhýsið sem brann til kaldra kola í Madríd um helgina. Samgöngur lömuðust og fleiri þúsundir komust ekki til vinnu sinnar þar sem hætta var á að turninn félli alveg saman. </font /></b />

Grunaður um ölvun undir stýri

Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður með Chelsea og Íþróttamaður ársins 2004, var tekinn ölvaður undir stýri aðfaranótt sunnudagsins eftir að hafa tekið þátt í gleðskap með öðrum leikmönnum Chelsea. Voru þeir að fagna góðu gengi liðsins en á laugardaginn lagði liðið Everton á útivelli og skoraði Eiður Smári sigurmark liðsins.

Skattayfirvöld draga lappirnar

Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins vill að skattayfirvöld rannsaki sérstaklega fyrirtæki sem grunuður eru um að stunda svarta atvinnustarfsemi. Óþolandi sé fyrir heiðarleg fyrirtæki að keppa við fyrirtæki sem svíkist um. Ríkisskattstjóri bíður eftir ábendingum.

Skorið úr um foreldra

Nú liggur fyrir hverjir eru foreldrar þriggja mánaða gamals drengs sem lagður var inn á sjúkrahús eftir flóðbylgjuna á Indlandshafi. Niðurstaða lífsýnatöku sýnir að hjón sem börðust hvað harðast fyrir því að fá drenginn eru raunverulegir foreldrar hans.

Cesar kominn til Maryland

Cesar Arnar Sanchez, íslenski hermaðurinn sem særðist alvarlega í Írak, er kominn á hersjúkrahús í Maryland í Bandaríkjunum. Móðir hans fór utan í dag og vonast hún til að hitta hann strax á morgun. Cesar Arnar særðist alvarlega í sprengjuárás og missti meðal annars sjón á öðru auga.

625 lík hafa fundist

Staðfest er að 625 erlendir ríkisborgarar voru á meðal þeirra ríflega 167 þúsund fórnarlamba flóðbylgjunnar í Indlandshafi sem hafa fundist látin. Enn er tuga þúsunda manna saknað, þar af meira en tvö þúsund erlendra ríkisborgara.

Háir hælar og Viagra til Indónesíu

Vesturlandabúar hafa verið duglegir að safna hjálpargögnum fyrir fórnarlömb flóðbylgjunnar í Indlandshafi. Þó hafa gjafirnar komið að misjöfnu gagni og í raun ótrúlegustu hlutir sem hafa verið sendir til fólks sem á um sárt að binda.

Íranir sverja af sér sakir

Írönsk stjórnvöld eru ekki að þróa kjarnorkuvopn að sögn Kamel Kharrazi, utanríkisráðherra Írans. Bandarískt stjórnvöld og Evrópusambandið hafa haft miklar áhyggjur af kjarnorkuáætlun Írana.

Björguðu lífi vinar síns

Ellefu ára gamlir drengir björguðu lífi vinar síns á laugardaginn sem fékk gat á lungað. Þeir óku honum í búðarkerru og héldu á honum í strætó. Þetta eru ofurhetjur segir móðir drengsins sem veiktist.

Álag og forgangsröðun valda töfum

Álag og forgangsröðun valda töfum á minni háttar sakamálum, segir sýslumaðurinn í Hafnarfirði. Svona verði þetta áfram, segir hann, þótt héraðsdómari segi embættið hafa brotið bæði lög og mannréttindi þegar það dróst í fjórtán mánuði að gefa út ákæru.

700 króna verðmunur á soðningu

Allt að sjö hundruð króna verðmunur getur verið á soðningunni út úr búð þessa dagana. Skýringanna er að leita í mismunandi kröfum viðskiptavina.

Windsor-byggingin ekki endurreist

Háhýsið sem brann í Madríd á Spáni um helgina er rústir einar, en það tók slökkviliðið sólarhring að slökkva eldinn. Windsor-byggingin er 32 hæða en lítið stendur eftir annað en burðarveggir. Byggingin var þekkt í Madríd en ekki er búist við því að hún verði endurreist. Svæðið í kring er enn lokað af þar sem óttast er að byggingin hrynji. Ekki liggur enn fyrir hvað olli brunanum.

Byggðakvóti með kvöðum

Þeim sem fá byggðakvóta úthlutað í Sandgerði verður gert að auka heildarkvóta bæjarfélagsins. Ekki hefur verið ákveðið hvort þeim verði gert að kaupa eða leigja hann.

Kristall plús ekki leyfður börnum

Hinn vítamínbætti Kristall Plús fær leyfi gegn því að drykkurinn verði merktur sem óæskilegur börnum yngri en sjö ára.

Aðstandendur MS sjúklinga funda

Rétt tæplega tíu manns greinast með MS sjúkdóminn hér á landi á ári. Fyrsti fundur MS félagsins sem eingöngu er fyrir aðstandendur verður í kvöld.

Flutningaskip með íslenskan fána?

Skráning kaupskipa á íslenskri skipaskrá hefur verið tekin til nánari skoðunar stjórnvalda. Með því á að skoða hvort hægt sé að gera kaupskipum kleift að sigla undir íslenskum fána.

Mesta árás frá styrjaldarlokum

Gríðaröflug sprengja kostaði þrettán lífið í Líbanon í dag, en þetta er mannskæðasta árás þar síðan að borgarastyrjöldinni lauk. Íslamskur öfgahópur lýsti tilræðinu á hendur sér.

Vill þyrma þrem húsum við Laugaveg

Borgarminjavörður vill þyrma þremur gömlum húsum við Laugaveg af þeim 25 sem borgaryfirvöld hafa leyft að verði rifin. Meðal vegfarenda um Laugaveg voru mjög skiptar skoðanir. Kofarnir mega fjúka, sögðu sumir, á meðan aðrir gráta gamlar minjar.

Óttast að nýr stofn breiðist út

Nýr og ógnvekjandi stofn HIV-veirunnar var greindur í New York í síðustu viku. Engin lyf virðast duga á veiruna og hún leiðir til alnæmis mun hraðar en þekkst hefur hingað til. Óttast er að nýr stofn lyfjaónæmrar HIV-veiru breiðist nú út.

Vill vernd fyrir sparifjáreigendur

Íslendingar eiga 280 milljarða króna inni á bankareikningum sínum. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, óttast að sú staða komi upp að bankarnir geti ekki greitt þetta út og vill aukna vernd fyrir sparifjáreigendur.

Svaf ekki eftir ránið

Starfsfólk í verslunum þar sem ræningi lét til skarar skríða í fyrri viku segist vera að jafna sig. Starfsmaður í söluturni átti við svefntruflanir að stríða í kjölfar ráns. Eigandinn segir fólk almennt svartsýnt á þjóðfélagsástandið. </font /></b />

Björguðu lífi vinar síns

Tveir ellefu ára drengir unnu hetjudáð um helgina þegar þeir björguðu lífi tíu ára vinar síns. Þremeningarnir voru í Kringlunni þegar einn þeirra fann fyrir miklum verk, en í ljós kom að hann var með gat á lunga. Hundur eins var með þeim og varð það til þess að strætóbílstjóri neitaði þeim um far.

Skýjakljúfur á Spáni í björtu báli

Einn hæsti skýjakljúfur Madrídar, höfuðborgar Spánar, stóð í björtu báli í nótt. Eldur kom upp í Windsor-turninum svokallaða, sem er 110 metra hár, á 21. hæð hans um klukkan 9 í gærkvöld. Eldurinn breiddist hratt út og upp á við.

Fékk heilahristing í áflogum

Tilkynnt var um líkamsárás til lögreglunnar á Ísafirði snemma í morgun. Áflog höfðu brotist út milli manna sem slógust í íbúðargötu í bænum. Þau enduðu með því að einn var fluttur á sjúkrahús og talið var að hann hefði fengið heilahristing. Þá var maður íklæddur lögreglubúningi handtekinn í Reykjavík.

Sjítar með 60% atkvæða?

Sameinaða Íraks-bandalagið, sem er samsteypa margra pólitískra samtaka sjíta-múslima, segir því hafi verið tilkynnt að það hafi fengið sextíu prósent atkvæða í þingkosningunum sem haldnar voru á dögunum. Opinberlega verður greint frá úrslitum kosninganna í Írak síðar í dag.

Mosfellsheiði ófær fólksbílum

Í nágrenni Reykjavíkur er aðeins fært jeppum og stórum bílum um Mosfellsheiði og Kjósarskarð. Á Vestfjörðum og Norðurlandi er víða verið að hreinsa vegi, um hálsa til Patreksfjarðar og um Ísafjarðardjúp til Ísafjarðar.

Hætta á fleiri kjarnorkuvopnum

Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag að ef þjóðir heims hertu ekki eftirlit og reglur um kjarnorkuvopn væri hætta á því að hvert landið af öðru kæmi sér upp slíkum vopnum.

Skíðasvæði víða opin

Skíðasvæðið á Siglufirði er opið til klukkan fjögur í dag. Þar er ágætis veður, gott færi og nægur snjór. Skíða- og snjóbrettasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri verður opið til klukkan fimm. Þar lítur vel út með veður og dagurinn ætti því að geta orðið góður til útiveru nyrðra.

Pyntaður með rafmagni á Guantanamo

Ástrali sem nýlega var látinn laus úr Guantanamo-fangelsinu á Kúbu segist hafa verið laminn og pyntaður á meðan hann var í haldi Bandaríkjamanna. Þetta kemur fram í viðtali við hann í fréttaþættinum <em>60 mínútur</em> sem sýndur verður í Bandaríkjunum í kvöld.

Skattur á flugvélaeldsneyti

Þjóðverjar munu í þessari viku leggja til við fjármálaráðherra Evrópusambandsins að sérstakur skattur verði lagður á flugvélaeldsneyti. Það mun valda hækkun á flugfargjöldum. Búist er við að Þjóðverjar leggi til að þessi skattur verði 25 þúsund krónur á hvert tonn af flugvélaeldsneyti.

Safna fyrir sneiðmyndatæki

Hollvinasamtök Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað standa þessa dagana fyrir söfnun til að fjármagna kaup á sneiðmyndatæki sem samtökin ætla að gefa sjúkrahúsinu. Sigurður Rúnar Ragnarsson, sóknarprestur í Neskaupstað, segir að svona tæki kosti um 18 milljónir króna.

Missir sjón á öðru auga

Íslenski hermaðurinn sem slasaðist í Írak í síðustu viku missti sjón á öðru auga. Hann fékk líka járnflís undir aðra hnéskelina sem skar í sundur taugar og gerir það að verkum að Cesar getur ekki lyft tánum

Sjá næstu 50 fréttir