Fleiri fréttir

Dagar salkjöts og bauna

Fólk velur heldur magrara saltkjöt en áður og saltminna, segir sölustjóri Sláturfélags Suðurlands. Sala hafi heldur aukist en dregist saman síðustu ár.

Fleiri gista á hótelum

Á sama tíma og erlendum ferðamönnum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp þrettán prósent milli áranna 2003 og 2004, fjölgaði gistinóttum á heilsárshótelum um tæp níu prósent.

Vopnahlé eftir fjögurra ára stríð

Ariel Sharon og Mahmoud Abbas lýsa í dag yfir formlegu vopnahléi í átökum Ísraela og Palestínumanna sem kostað hafa þúsundir manna og kvenna lífið síðustu fjögur árin. </font /></b />

Þrjátíu létust í árásum vígamanna

Í það minnsta þrjátíu manns létust í árásum vígamanna í Írak í gær. Fimmtán létu lífið og sautján særðust í bílsprengjuárás í Baquba þegar bifreið var lagt fyrir utan höfuðstöðvar lögreglunnar þar og hún sprengd í loft upp. Mörg fórnarlambanna voru menn sem sóttust eftir vinnu hjá lögreglunni. Árásin í Baquba var sú mannskæðasta í Írak í gær.

Páfi lengur á sjúkrahúsi

Sjúkrahúslega Jóhannesar Páls II páfa verður nokkrum dögum lengri en talið var í síðustu viku. "Læknar hans hafa ráðlagt honum að dvelja hér nokkra daga í viðbót," sagði Joaquin Navarro-Valls, talsmaður og samstarfsmaður páfa.

Saksóttir fyrir hleranir

Réttarhöld eru hafin yfir átta fyrrum yfirmönnum finnska farsímafélagsins Sonera sem gefið er að sök að hafa fyrirskipað að símtöl og tölvupóstskeyti starfsmanna fyrirtækisins skyldu rakin, slíkt brýtur í bága við finnsk lög sem heimila aðeins lögreglu að rekja fjarskipti fólks.

Banna flakk andanna

Víetnömsk yfirvöld hafa skipað þarlendum bændum að hafa eftirlit með öndum sem þeir ala og gæta þess að þær flakki ekki langt frá bóndabæjum þeirra. Þetta er gert til að sporna gegn útbreiðslu fuglaflensunnar.

Skotbardagar flestar nætur

Tóbakssmygl frá Rússlandi hefur aukist verulega eftir að Litháen varð aðili að Evrópusambandinu og er nú svo komið að flestar nætur kemur til skotbardaga milli tollvarða og smyglara.

Átján létust eftir afmælisveislu

Átján manns létu lífið á hóteli í Todolella þar sem þeir voru viðstaddir afmælisveislu. Einungis tveir veislugesta, annar þeirra afmælisbarnið, lifðu af.

Gott að vera kominn aftur heim

"Ég hef það gott og það er gott að vera heima hjá fjölskyldunni aftur," sagði Fabian Bengtsson í tilkynningu á heimasíðu fyrirtækisins Siba sem fjölskyldan á og hann stýrir. Bengtsson sem er sænskur auðmaður var í haldi mannræningja í sautján daga.

Tvöföldunin boðin út á árinu?

Búist er við að samgönguráðherra tilkynni á fundi í Njarðvík í kvöld að næsti áfangi í tvöföldun Reykjanesbrautar verði boðinn út á þessu ári.

Grunaður um íkveikju

Karlmaður á sextugsaldri er í haldi lögreglunnar í Kópavogi grunaður um að vera valdur að eldsvoða í einbýlishúsi við Kársnesbraut. Samkvæmt upplýsingum lögreglu kom eldur upp í húsinu um tvöleytið í dag en nágrannar höfðu gert slökkviliði viðvart.

Uppsagnir á Hofsósi

"Við erum að fara yfir þetta allt saman og kanna hvort þessar uppsagnir séu lögmætar og samkvæmt bókunum," segir Jón Karlsson, formaður stéttarfélagsins Öldunnar á Sauðárkróki. Fjórtán starfsmönnum fiskvinnslunnar Kolku á Hofsósi hefur verið sagt upp störfum og er það talsvert áfall fyrir ekki stærra bæjarfélag.

Elsta húsið fær andlitslyftingu

"Þetta samkomulag þýðir að Minjavernd tekur Aðalstræti 10 í sína vörslu næstu 35 árin og mun færa húsið í sitt upprunalega horf næstu mánuði," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri. Reykjavíkurborg hefur gert samning við Minjavernd um að lagfæra Aðalstræti 10 en það hús er það elsta í borginni.

Vilja breytingar á útvarpslögum

"Okkar mat er að ríkið eigi ekki að skipta sér af einkarekstri með neinum hætti og frumvarpið er í fullu samræmi við þá skoðun okkar," segir Hafsteinn Þ. Hauksson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.

Halldór áhyggjulaus

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra kippir sér ekki upp við það að skoðanakönnun sýni að hann sé sá stjórnmálamaður sem þjóðin ber minnst traust til. Hann segir að kannanir séu líka mismunandi vandaðar.

Vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs

Skjótt skipast veður í lofti fyrir botni Miðjarðarhafs. Leiðtogar Ísraels og Palestínu sem hittast á sögulegum leiðtogafundi á morgun hafa ákveðið að tilkynna um vopnahlé á milli stríðandi fylkinga. Þá hafa þeir líka þekkst heimboð Bush Bandaríkjaforseta um annan leiðtogafund í Washington í vor.

Frumvarp til að leyfa enska þuli

Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins að ráðherrum undanskildum hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem gerir það að verkum að hægt verður að sýna frá íþróttaviðburðum án þess að nota íslenska þuli eða þýðingartexta. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins neitar því að flokkurinn sé að rétta Skjá einum hjálparhönd.

Hafa áhyggjur af frumvarpi

Verkalýðsforystan hefur áhyggjur af væntanlegu frumvarpi um útgáfu atvinnuleyfa til útlendinga. Hún óttast að sjónarmið vinnumarkaðarins munu ekki ráða för og frumvarpið sé til þess fallið að stuðla að skattsvikum.</font /></b />

Getur ekki mælt með vatninu

Lýðheilsustöð getur ekki mælt með því að sett sé á markað fólasínbætt íslenskt sódavatn, þrátt fyrir að stöðin mæli með því á sama tíma að landsmenn auki neyslu á því vítamíni. Meðal röksemda er að vítamínbætt, erlent morgunkorn er talið metta þörf „barna“ á þessu tiltekna B-vítamíni.

Danska stjórnin heldur meirihluta

Aukin spenna er hlaupin í kosningabaráttuna í Danmörku, en þingkosningar fara þar fram á morgun. Bilið minnkar milli tveggja stærstu flokkanna en stjórnin heldur naumum meirihluta samkvæmt skoðanakönnunum.

Kynmök við 287 skólasystkini

Um 2000 Íslendingar smitast árlega af klamydíu. Ný stór bandarísk rannsókn um kynlífshegðan ungs fólks sýndi að námsmaður hafði haft kynmök - með óbeinum hætti - við 287 skólasystkini. Hann hefði því getað smitað þau öll af kynsjúkdómi. Smitsjúkdómalæknir minnir á að smokkurinn sé eina vörnin.

Iceland fái ekki einkaleyfi

Formaður Vinstri grænna og starfandi utanríkisráðherra leggjast báðir gegn því að verslunarkeðjan „Iceland“ fái einkaleyfi á orðinu Iceland í löndum Evrópusambandsins. Þeir eru hins vegar ósammála um hvort það gæti verið mönnum til framdráttar að skrá sig fyrir léninu steingrimurjod.is.

Hafnar sprautuáætlun SÞ

Breska dagblaðið <em>The Observer</em> skýrir frá því í dag að andstaða Bandaríkjastjórnar við sprautuáætlun Sameinuðu þjóðanna setji baráttu samtakanna gegn alnæmi í uppnám. Sameinuðu þjóðirnar hafa stutt að fíklum séu gefnar hreinar sprautur til að vinna gegn því að þeir smiti hver annan af alnæmi með því að skiptast á sprautum.

Rólegt um allt land

Nóttin fór að mestu leyti vel fram um land allt þrátt fyrir hefðbundið mánaðamótafyllirí eins og einn lögreglumaður orðaði það í samtali við fréttastofu. Lögreglan á Selfossi vill beina þeim tilmælum til ökumanna að taka tillit til aðstæðna en víða eru hálkublettir.

Þúsundir minnast Marleys í Eþíópíu

Þúsundir aðdáenda reggíkóngsins Bobs Marleys komu saman á tónleikum í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, í gær til að minnast tónlistarmannsins sem hefði orðið sextugur í dag, en hann lést úr krabbameini árið 1981, 36 ára að aldri. Marley, sem var frá Jamaíku, leit á Eþíópíu sem sitt andlega föðurland eins og aðrir rastafarar.

Gefa lítið fyrir orð Rice

Írönsk stjórnvöld gefa lítið fyrir yfirlýsingar Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um að Íranar virði mannréttindi að vettugi og reyni að halda því leyndu að verið sé að smíða kjarnorkusprengju í landinu. Rice sagði fyrir helgi að stjórnvöld í Washington hefðu lítinn áhuga á að taka þátt í viðræðum Evrópuríkja við Íran um efnahagsaðstoð ef hætt verður framleiðslu á kjarnorkueldsneyti í Íran.

Stórsigur stjórnar í Taílandi

Stjórnarflokkurinn í Taílandi vann stórsigur í þingkosningum sem þar voru haldnar í dag ef marka má útgönguspár. Allt bendir því til þess að auðjöfurinn Thaksin Shinawatra sitji fjögur ár til viðbótar á forsætisráðherrastóli. Demókrataflokkurinn, sem er aðalstjórnarandstöðuflokkurinn í Taílandi, hefur þegar játað sig sigraðan og óskað Shinawatra til hamingju.

27 látnir í rútuslysi í Indlandi

Að minnst kosti 27 létust og 14 slösuðust lavarlega þegar rúta fór út af vegi og endaði ofan í gili í Kashmir-héraði á Indlandi í dag. Samkvæmt lögreglu á svæðinu virðist sem bílstjóri rútunnar hafi misst stjórn á henni í beygju, en vegir á svæðinu eru mjög hálir vegna mikilla rigninga að undanförnu.

Þarf að fá ríkisborgararétt

Lögfræðingar Bobbys Fischers segja að það sé grundvallaratriði að íslensk stjórnvöld veiti honum íslenskan ríkisborgararétt. Ríkisborgararéttur myndi marka tímamót og koma máli hans loks á hreyfingu.

Páfi blessaði fólk í Róm

Jóhannes Páll páfi kom út í glugga á herbergi sínu á Gemelli-spítalanum í Róm nú fyrir stuttu, veifaði til mannfjöldans og blessaði hann. Páfi líktist sjálfum sér, var hrumur og veikburða og líklega engu meira veikburða en hann hefur verið undanfarin ár. Aðstoðarmaður hans las upp yfirlýsingu frá páfa þar sem hann þakkaði heimsbyggðinni fyrir sýnda umhyggjusemi í veikindum sínum.

Auðkýfingur áfram forsætisráðherra

Stjórnarflokkurinn í Taílandi með geysivinsælan en umdeildan auðkýfing í fararbroddi vann stórsigur í þingkosningum sem þar voru haldnar í dag.

Tilkynnt um blaðamannaverðlaun

Dómnefnd Blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands hefur komist að niðurstöðu um tilnefningar til verðlaunanna fyrir árið 2004. Þrjár tilnefningar eru í hverjum flokki fyrir sig og verður tilkynnt um sigurvegara á Pressuballi sem haldið verður næstkomandi laugardag.

Gerir athugasemdir við álit

Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni hefur borist álit Lýðheilsustöðvar vegna umsóknar sem Ölgerðin sendi Umhverfisstofnun og varðar vítamínbætingu á drykknum Kristal Plús, en Umhverfisstofnun stöðvaði dreifingu hans í síðasta mánuði. Ölgerðin gerir alvarlegar athugasemdir við álitið og segi það einkennast af mótsögnum og ómálefnalegum útreikningum.

Stjórnin enn sterk í Danmörku

Stjórn Anders Foghs Rasmussens, forsætisráðherra Danmerkur, heldur velli í kosningunum í landinu samkvæmt skoðanakönnun Gallups sem birt var Berlingske Tidende í dag. Flokkur Rasmussens, Venstre, og samstarfsflokkarnir fengju 94 af 179 sætum á danska þinginu ef kosið yrði í dag.

Íranar hóta að svara fyrir sig

Íranar munu svara fyrir sig og reyna að flýta kjarorkuáætlun sinni ef Bandaríkjamenn eða Ísraelar gera árás á staði í Íran þar sem unnið er að kjarnorkumálum. Þetta sagði yfirmaður þjóðaröryggisráðs Írans í dag og bætti við að Vesturlönd gætu ekki komið í veg fyrir að Íranar héldu áfram framleiðslu kjarnorkueldsneytis.

Reyna að bjarga regnskógunum

Leiðtogar ríkja í Mið-Afríku undirrituðu um helgina samkomulag um að vinna að varðveislu annars stærsta regnskógar jarðar sem teygir sig yfir 200 milljónir hektara og nær inn í sex ríki. Á ráðstefnu um helgina hétu leiðtogarnir því að ráðast gegn veiðiþjófnaði og ólöglegu og óábyrgu skógarhöggi til þess að reyna að varðveita fjölskrúðugt dýra- og plöntulíf á svæðinu.

Mótmæli hafa ekki áhrif á áform

Stjórnvöld í Frakklandi hyggjast ekki hverfa frá áformum um að lengja vinnuvikuna þar í landi þrátt fyrir fjölmenn mótmæli í gær. Þetta segir fjármálaráðherra Frakklands, en áformin eru liður í umbótum sem m.a. snerta vinnulöggjöf, lífeyri og skóla.

Vill að leiðtogar semji sjálfir

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ætlar ekki að sitja leiðtogafund Sharons og Abbas á þriðjudag þótt hún sé nú í heimsókn fyrir botni Miðjarðarhafs. Rice segist kjósa að leiðtogarnir semji sín á milli sjálfir án þess að erlendir leiðtogar eða embættismenn sinni hlutverki sáttasemjara.

Lykketoft ekki slegið í gegn

<b><font face="Helv" color="#008080"> Séra Þórir Jökull Þorsteinsson í Danmörku segir að kosningabaráttan standi milli Jafnaðarflokksins undir forystu Mogens Lykketoft og Venstre með Anders Fogh Rasmussen í broddi fylkingar. Lykketoft virðist ekki hafa slegið í gegn meðal kjósenda eða ögra veldi Venstre. </font></b>

Eldgos í 22 ár

Hraun úr eldfjallinu Kilauea á Havaí rennur nú í sjóinn á tveimur nýjum stöðum í gosi sem hefur staðið yfir í 22 ár. Eldgosið er í eldfjallaþjóðgarði Havaí og ferðalangar sem þangað koma verða ekki sviknir. Glóandi hraunið rennur í sjóinn sem hvæsir við að fá svo óvæntan gest.

Íranir gagnrýna Vesturlönd

Íranar skora á Evrópusambandið að taka viðræður um kjarnorkuáætlun Írana alvarlegar. Fulltrúi stjórnarinnar sagði á blaðamannafundi að Íranar hefðu slegið á frest áætlunum sínum um að auðga úran, en það er forsenda framleiðslu kjarnorkuvopna.

Ætluðu að sprengja ísbíla

Embættismenn í Kúvæt staðfestu í gær að þeir hefðu handtekið grunaða hryðjuverkamenn sem lagt hefðu á ráðin um árásir á bandaríska hermenn.

Stofna nefnd um lausn fanga

Forystumenn í Palestínu og Ísrael samþykktu á laugardag að stofna sameiginlega nefnd sem fjalla á um lausn pólitískra fanga sem Ísrealar hafa í haldi. Þetta kemur í kjölfar þess að Ísraelar létu níu hundruð fanga lausa í síðustu viku.

Hætt að sýna auglýsingar

Birtingar á auglýsingum frá Umferðarstofu hafa nú verið stöðvaðar tímabundið, eftir að Samkeppnisstofnun fór þess á leit við Umferðarstofu.

Sjá næstu 50 fréttir