Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þar sem tíminn stóð í stað Áform eru um að grafa upp hús í Vestmannaeyjum sem urðu undir vikri í eldgosinu 1973 og kallast verkefnið Pompeii norðursins. Nafn sitt dregur verkefnið af rómverska bænum Pompeii en hann eyddist í eldgosi árið 79 e. Kr. 6.2.2005 00:01
Sextán fíkniefnamál í miðbænum Sextán fíkniefnamál komu upp á tæplega þremur klukkutímum í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardags. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, segir málafjöldann staðfesta að mikil fíkniefnaneysla sé samfara skemmtanalífinu í miðborginni. Mest fannst af kókaíni og amfetamíni en þó eitthvað af kannabis. 6.2.2005 00:01
Leggst gegn vítamínbættum drykk Lýðheilsustöð leggst gegn því að Kristall Plús frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar verði settur á markað vegna fólasíns í drykknum. Framleiðandinn furðar sig á þessu þar sem nokkuð vantar upp á neyslu slíks vítamíns hjá þjóðinni að mati Lýðheilsustöðvar. Þá segir hann fólasín algjörlega hættulaust efni. 6.2.2005 00:01
Samfylking spurulust allra flokka Alþingismenn spyrja um allt á milli himins og jarðar, stjórnarandstæðingar þó sýnu meira en stjórnarliðar. Kynþroski þorsks og símtöl til Grænlands eru á meðal fyrirspurna sem bornar hafa verið upp á yfirstandandi þingi. 6.2.2005 00:01
Geta tekið á móti stærri skipum Miklar framkvæmdir standa yfir við höfnina í Bolungarvík en eftir að búið er að dýpka innsiglinguna allverulega á allur loðnuflotinn að geta lagst að höfn í Bolungarvík sem og stærri flutningaskip. Framkvæmdirnar kosta um 54 milljónir. 6.2.2005 00:01
Segir útvarpslög gölluð Sjónvarpsstjóri Skjás eins telur að stuttur texti um gang mála í ensku knattspyrnunni fullnægi þýðingarskyldu útvarpslaga. Hann segir að ef þess verði krafist að íslenskir þulir lýsi öllum leikjum verði það gert en útvarpslögin séu gölluð. 6.2.2005 00:01
Fimm á sjúkrahús eftir ofsaakstur Fimm voru fluttir á slysadeild eftir ofsaakstur í nótt. Lögreglan í Reykjavík mældi ökumann á 190 kílómetrahraða í Ártúnsbrekkunni um klukkan þrjú og náðist hraðaksturinn á myndband lögreglunnar. Ökumaðurinn stöðvaði ekki bílinn þegar hann mætti laganna vörðum heldur hélt áfram ferðinni og hafnaði aftan á bifreið sem var að taka af stað við umferðarljósin á mótum Miklubrautar og Grensásvegar. 5.2.2005 00:01
Hafnar hugmyndum Breta Bandaríkjastjórn hefur hafnað tillögu Breta um hvernig sé best að ráða að niðurlögum fátæktar og lækka skuldir þriðja heims ríkja. Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, kynnti tillögur sínar á fundi fjármálaráðherra sjö helstu iðnríkja heims í gær en þær felast í því að kom á fót nokkurs konar Marshall-áætlun fyrir fátækustu lönd heims. 5.2.2005 00:01
Skíðasvæði víða opin Skíðasvæðin í nágrenni höfuðborgarsvæðisins eru opin í dag frá klukkan tíu og fram eftir degi. Þar er frost á milli níu og ellefu stig og léttskýjað. Þá er skíðasvæði Tindastóls við Sauðárkrók opið til klukkan fimm. Að sögn staðarhaldara er þar nýfallinn snjór og afskaplega gott færi. Opið er til fjögur á skíðasvæðinu á Siglufirði. 5.2.2005 00:01
Páfi á hægum batavegi Jóhannes Páll páfi annar er á hægum batavegi og nærist eðlilega, eftir því sem talsmaður Vatíkansins segir. Búist er við að páfi muni messa á morgun eins og aðra sunnudaga en að ávarpinu verði sjónvarpað beint frá sjúkrabeðinum. Páfi sem er 84 ára fékk slæma flensu um síðustu helgi og hefur legið á sjúkrahúsi síðan. 5.2.2005 00:01
Bið á heimför til Súdans Nokkur bið gæti orðið á því að flóttmenn frá Suður-Súdan geti snúið til síns heima, eftir því sem fram kemur hjá fulltrúa Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Úganda. Ástæðan er sögð sú að innviðir samfélagsins eru í rúst auk þess sem stór svæði eru undirlögð af jarðsprengjum. 5.2.2005 00:01
Flak flugvélar fundið í Afganistan Enginn komst lífs af í flugslysinu sem varð í Afganistan fyrir tæpum tveimur sólarhringum. Flak vélarinnar fannst fyrst í morgun skammt frá þorpi sem liggur aðeins 35 kílómetra suðaustur af höfuðborginni Kabúl. 5.2.2005 00:01
Upplýsingalög notuð í kosningum Stjórnmálaflokkar Bretlands saka nú hver annan um að notfæra sér bresku upplýsingalögin til að grafa upp persónuleg smáatriði, skít og áróður gegn einstaka frambjóðendum til að nota í kosningabaráttu sinni. Þingkosningar verða haldnar í Bretlandi í maí og flokkarnir eru þegar komnir á fullt í baráttuna. 5.2.2005 00:01
Sjö hermenn felldir í Írak Sjö írakskir hermenn liggja í valnum eftir árásir uppreisnarmanna í morgun. Árásum hefur heldur fækkað eftir kosningarnar um síðustu helgi, sem uppreisnarmönnum mistókst að eyðileggja, en þó hafa að minnsta kosti 20 írakskir hermenn fallið síðustu vikuna. 5.2.2005 00:01
Neitar að ráðast gegn fátækt Bandaríkjastjórn neitar að taka þátt í því að ráða að niðurlögum fátæktar og lækka skuldir þriðja heims ríkja samkvæmt breskri tillögu. Bandaríkjamenn segjast vilja fara sínar eigin leiðir í þessum efnum. 5.2.2005 00:01
Þurfa að taka útreið alvarlega Framsóknarmenn þurfa að taka slæma útreið í skoðanakönnunum alvarlega segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann hvetur félaga sína til að líta yfir sviðið nú, óróa og fylgistap, og skoða í því ljósi að í haust hafi hann þótt helsta vandamál flokksins. 5.2.2005 00:01
Skorinn á háls en fær ekki bætur "Ég er breyttur maður eftir árásina," segir Ásgeir Elíasson sem varð fyrir hrottafenginni árás þegar hann var leigubílstjóri í afleysingum. Eina nóttina komu fjórir menn inn í bíl til hans. Þegar kom að greiðslu var Ásgeir skorinn á háls. Ofbeldi gegn leigubílstjórum er algengt og vekur því furðu að þeir séu ekki tryggðir í starfi. 5.2.2005 00:01
Aðalfundur Freyju ólöglegur Laganefnd Framsóknarflokksins komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöld að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, sem fram fór 27. janúar síðastliðinn hefði verið ólöglegur. Ástæðan fyrir því er sögð sú að láðst hafi að samþykkja breytingar á lögum félagsins fyrir fundinn en ekki sú að fjörutíu og þrjár konur hafi gengið í félagið daginn sem hann var haldinn. Halda verður nýjan aðalfund í þessum mánuði. 5.2.2005 00:01
Taldir tengjast árásum í Madríd Dómari á Spáni úrskurðaði í dag að hálfbræður af marokkóskum uppruna sem handteknir voru á þriðjudag skuli sæta gæsluvarðhaldi þar sem talið er að þeir hafi starfað með þeim sem stóðu á bak við hryðjuverkaárásirnar í Madríd í mars í fyrra. 5.2.2005 00:01
550 þúsund safnast að Kárahnjúkum Starfsmenn Impregilo við Kárahnjúka söfnuðu á dögunum ríflega 250 þúsund krónum til handa þeim sem urðu illa úti í hamförnunum í Suðaustur-Asíu annan dag jóla. Fyrirtækið sjálft rúmlega tvöfaldaði þá upphæð og því voru 550 þúsund krónur lagðar inn á reikning Rauða kross Íslands til hjálpar fórnarlömbum flóðbylgjunnar. 5.2.2005 00:01
Vill meira lýðræði í Rússlandi Conoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti í dag til meira lýðræðis í Rússlandi á blaðamannafundi í Varsjá í Póllandi. Rice er nú á ferðalagi um Evrópu og mun í dag hitta rússneskan starfsbróður sinn, Sergei Lavrov, í Ankara í Tyrklandi. Á blaðamannafundinum í Varsjá sagði Rice að mikilvægt væri fyrir Rússa efla vægi laga og óháðra dómstóla ásamt því að leyfa frjálsum og óháðum fjölmiðlum að starfa í landinu. 5.2.2005 00:01
Unnið að afskrift skulda Fjármálaráðherrar sjö helstu iðnríkja heims samþykktu á ráðstefnu sinni í Lundúnum í dag að vinna frekar að því að afskrifa opinberar skuldir fátækustu ríkja heims auk þess sem stefnt er að því að styrkja efnahag fátækra ríkja og verslun og viðskipti. 5.2.2005 00:01
Mótmæla lengri vinnuviku Talið er að rúmlega fimmtíu þúsund Frakkar hafi gengið um götur borga landsins í dag til þess að mótmæla áætlunum stjórnvalda um að lengja vinnuvikuna í Frakklandi. Samkvæmt lögum í Frakklandi er vinnuvikan nú 35 klukkustundir en Jean Pierre Raffarin, forsætisráðherra landsins, hefur lýst því yfir að lengja þurfi vinnuvikuna til þess að gera Frakkland samkeppnishæfara og til að draga úr atvinnuleysi sem er nú um 10 prósent. 5.2.2005 00:01
Vilja stól forsætisráðherra „Sjítar vilja forsætisráðherraembættið í nýrri stjórn og munu ekki láta það af hendi,“ sagði Hamed Al-Bayati, varautanríkisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak, við Reuters-fréttastofuna í dag. Al-Bayati tilheyrir bandalagi sjíta sem hefur fengið um tvo þriðju hluta atkvæða í kosningunum í Írak nú þegar 35 prósent hafa verið talin. 5.2.2005 00:01
Páfi flytur blessun á morgun Jóhannes Páll páfi annar er ekki orðinn nógu hraustur til þess að messa á morgun en hann mun í staðinn fara með blessun sem sjónvarpað verður frá sjúkrabeði hans. Þetta segja talsmenn Vatíkansins og bæta við að páfi muni einnig missa af guðsþjónustu í basilíku heilags Péturs á öskudag en henni hefur hann aldrei sleppt áður á þeim 26 árum sem hann hefur setið á valdastóli. 5.2.2005 00:01
Mikil mildi að ekki varð stórslys Mikil mildi þykir að ekki hlaust af stórslys þegar ökumaður, sem ekið hafði á tæplega 200 kílómetra hraða eftir Miklubraut, ók aftan á kyrrstæða bifreið sem í voru fjórir farþegar. 5.2.2005 00:01
Getur skipt upp fyrirtækjum Nýtt Samkeppniseftirlit fær skýra lagaheimild til að skipta upp fyrirtækjum sem hafa markaðsráðandi stöðu verði nýtt frumvarp viðskiptaráðherra að lögum. Þrjú frumvörp um breytingar á samkeppnislögum hafa verið til umræðu í þingflokkum stjórnarflokkanna frá því í nóvember. 5.2.2005 00:01
Fíkniefni fundust við húsleit Sextíu grömm af ætluðu amfetamíni og smáskammtur af LSD fundust við húsleit á Selfossi í gærmorgun. Fjórir voru handteknir. 5.2.2005 00:01
Innbrot upplýst Við húsleit á Selfossi í vikunni fannst þýfi úr fimm eða sex innbrotum í bænum síðustu daga. 5.2.2005 00:01
Fimm ára stúlka á batavegi Fimm ára stúlka sem féll ofan af svölum á fjórðu hæð fjölbýlishúss við Háaleitisbraut fyrr í vikunni er á batavegi. Hún er komin af gjörgæsludeild og að sögn sérfræðings á Landspítalanum í Fossvogi er líðan stúlkunnar stöðug, hún úr hættu og með meðvitund. Hún hlaut slæm beinbrot og innvortis blæðingar en virðist hafa sloppið við höfuðmeiðsl og meiðsl á hrygg. 5.2.2005 00:01
Fór betur en á horfðist Fimm sluppu með minniháttar meiðsl í umferðaróhappi sem varð um áttaleytið í fyrrakvöld á Norðurlandsvegi í Skagafirði. 5.2.2005 00:01
Bílvelta á svörtum bletti Ökumaður missti stjórn á jeppabifreið sinni í hálku og endaði í hrauninu utan við þjóðveginn austan við Kirkjubæjarklaustur um miðnætti aðfaranótt föstudags 5.2.2005 00:01
Hvasst eða stormur um vesturland Gert er ráð fyrir hvassviðri eða stormi á vestanverðu landinu síðdegis og í kvöld 5.2.2005 00:01
Nýári fagnað við Kárahnjúka Í dag verður kínverska nýárinu fagnað við Kárahnjúka en miðvikudaginn 9. febrúar lýkur hinu kínverska ári apans og ár hanans hefst. 5.2.2005 00:01
Hálf milljón á Kárahnjúkum Hópur erlendra starfsmanna við Kárahnjúka á ættingja og vini sem urðu illa úti eða létust í flóðbylgjunni í löndunum við Indlandshaf í lok desember 2004. 5.2.2005 00:01
Aðalfundur Freyju ógiltur <b><font face="Helv" color="#008080"> Fylkingarnar í kvenfélaginu Freyju í Kópavogi eru báðar ánægðar með niðurstöðu laganefndar Framsóknarflokksins. Gamla stjórnin telur valdaráni afstýrt en nýju konurnar telja hann sýna að vinnubrögð þeirra hafi verið í lagi. </font></b> 5.2.2005 00:01
Enskur bolti með íslenskum texta Enski boltinn var sendur út með afar hnitmiðuðum íslenskum texta í gær. 5.2.2005 00:01
Segir valdaráni afstýrt Naumlega tókst að afstýra valdaráni þegar laganefnd Framsóknarflokksins komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöld að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, hefði verið ólöglegur, að mati Unu Maríu Óskarsdóttir varaformanns. Aðalheiður Sigursveinsdóttir sem var stjórnarmaður í Freyju segir gleðilegt að nýjar aðildarkonur hafi verið hreinsaðar af áburði um vafasaman tilgang með veru sinni í félaginu. 5.2.2005 00:01
Reynt að semja um skuldalækkun Mikilvæg tímamót eða enn ein marklaus viljayfirlýsingin? Ekki eru allir á einu máli um niðurstöðu fjármálaráðherra ríkustu þjóða heims sem reyndu í dag, með litlum árangri, að komast að samkomulagi um það hvernig bjarga ætti Afríku úr fátæktargildru og lækka skuldir þriðja heims ríkja. 5.2.2005 00:01
Erlent vinnuafl notað í hagstjórn Fyrrverandi forstjóri Útlendingastofnunar segir Íslendinga ekki standa sig nógu vel í málefnum innflytjenda. Hann segir erlent vinnuafl á vissan hátt notað sem hagstjórnartæki. 5.2.2005 00:01
Spillingu mætt af hörku „Spillingu verður mætt með hörku,“ segir Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og heitir því að sækja yfirmenn í olíusöluhneykslinu til saka. Annan hefur sjálfur verið sakaður um að tengjast málinu og enn eru ekki öll kurl komin til grafar. 5.2.2005 00:01
Lítil hafmeyja í Perú Hún hefur fengið viðurnefnið litla hafmeyjan og hefur heillað landa sína í Perú upp úr skónum. Þessi litla stúlka er í þann mund að leggjast undir skurðhnífinn í aðgerð sem mun breyta lífi hennar. 5.2.2005 00:01
Bjóðast til að sýna leiki á Sýn Sjónvarpsstjóri Sýnar hefur boðið sjónvarpsstjóra Skjás eins að senda út á Sýn þá leiki í ensku knattspyrnunni sem Skjár einn sendir út án þula. 5.2.2005 00:01
Vinna að lausn blaðakonu Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segir að stjórnvöld hafi þegar hafið undirbúning að samningaviðræðum við þá sem rænt hafi Giuliönu Sgrena, blaðakonu ítalska blaðsins Il Manifesto, í miðju viðtali nærri háskólanum í Bagdad fyrr í dag. Berlusconi vildi ekki tjá sig frekar um málið, en blaðakonan er áttundi Ítalinn sem rænt er í Írak eftir innrásina í landið. 4.2.2005 00:01
Segjast hafa myrt 29 lögreglumenn Uppreisnarhópur í Írak sendi frá sér yfirlýsingu á Netinu í dag þar sem hann sagðist hafa drepið 29 írakska lögreglumenn og tekið sjö til fanga í fyrirsát í vikunni. Hópurinn kallast Her Ansars al-Sunna og segist hann hafa setið fyrir bílalest írakskra lögreglumanna við Abu Ghraib, vestur af Bagdad. 4.2.2005 00:01