Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Siv segist ekki muna Siv Friðleifssdóttir, fyrrverandi ráðherra, segist ekki muna hvort stuðningur Íslands við innrásina í Írak hafi verið ræddur á ríkisstjórnarfundi þann 18. mars árið 2003. Þetta kom fram í þættinum Silfur Egils á Stöð 2 í hádeginu í dag. 30.1.2005 00:01
Skipin nálgast land Varðskipin Týr og Ægir eru nú aftur lögð af stað með Dettifoss í togi eftir að hafa haldið sjó fyrir austan land í sólarhring vegna veðurs. Tæpir tveir sólarhringar eru liðnir frá því stýrisblað Dettifoss brotnaði í tvennt. Björgunaraðgerðir hafa gengið treglega enda hefur haugasjór og vonskuveður hamlað aðgerðum. 30.1.2005 00:01
Þakplötur fuku og malbik fór af Hvassviðri var víðast hvar um landið um helgina og loka þurfti veginum við Mýrdalssand sökum vatnavaxta aðfaranótt sunnudags. Á Akureyri fuku þakplötur af raðhúsalengjum og vörubifreið fauk út af veginum rétt norðan við bæinn. 30.1.2005 00:01
Heimsmet í snjókasti Það er gott að hafa metnað en spurningin er hvernig menn fá útrás fyrir hann. Í Illinois í Bandaríkjunum var til að mynda efnt til heimsmeistarakeppni í snjókasti um helgina. Skipuleggjendur segja daginn merkisdag og að metið hafi verið slegið þar sem vel yfir 3000 manns tóku þátt í snjóboltaslag sem stóð í tíu mínútur. 30.1.2005 00:01
Getur þjóðarsálin búið í buxum? Getur þjóðarsálin búið í klakaboxi, á snaga eða í gallabuxum? Þessari spurningu er varpað fram á sýningu sem opnuð var á Þjóðminjasafninu fyrir helgi. Sýningin ber nafnið „Ómur - Landið og þjóðin í íslenskri hönnun“ og þar getur að líta verk 42 hönnuða sem valin voru í sex flokkum: snjórinn, sauðkindin, sjórinn, þjóðbúningurinn, hraunið og þjóðlegt. 30.1.2005 00:01
Flugu aftur inn um gluggann Jóhannes Páll páfi hugðist ásamt tveimur börnum sleppa hvítum dúfum út um glugga á íbúð sinni í Páfagarði í gær, en dúfurnar vildu ekki út í kuldann sem hefur ríkt í Róm undanfarið og flugu aftur inn í hlýjuna. 30.1.2005 00:01
Formennirnir viðurkenni mistök Steingrímur Hermannson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segist halda að Davíð Oddsson hafi einn tekið ákvörðun um að styðja innrásina í Írak. Hann hvetur stjórnarherrana til að tala opinskátt um málið, birta fundargerðir utanríkismálanefndar og viðurkenna að mistök hafi verið gerð. 30.1.2005 00:01
Íran ógn við Mið-Austurlönd John Bolton, öryggis- og afvopnunarmálafulltrúi í bandarísku stjórninni, sagði á fundi í Barein í vikunni að löndum í Mið-Austurlöndum stafaði veruleg hætta af kjarnorkuvopnaeign Írana. 30.1.2005 00:01
Ekki lengur með hreinan skjöld Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins telur það hafa verið við hæfi að jafn mikilvægt mál og stuðningur Íslands við innrásina í Írak hefði átt að vera tekið upp og rætt í ríkisstjórn. 30.1.2005 00:01
Tekið undir hugmyndir Georgs "Ég fagna mjög sjónarmiðum Georgs um að íhuga leigu á skipi," segir Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði í viðtali við Fréttablaðið á laugardag að hagkvæmara væri að leigja nýtt varðskip í stað þess að kaupa það. 30.1.2005 00:01
Flóðbylgja gæti náð til Grindavíku Gjósi Katla af öllum mætti gæti flóðbylgja skollið á suðurströnd landsins. Þessi möguleiki er fjarlægur en engu að síður raunhæfur og út frá honum verður unnið þegar aðgerðir vegna hugsanlegs Kötlugoss verða ákveðnar. 30.1.2005 00:01
Hagkvæmasti kosturinn valinn Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra finnst sjálfsagt að skoða til hlítar möguleikann á að taka nýtt varðskip á leigu í stað þess að festa á því kaup. 30.1.2005 00:01
Safnar sorpi í kjallaraíbúð Rottugangur og flær hrjá nágranna konu við Hverfisgötu sem er aftur byrjuð að safna rusli í kjallaraíbúð sína eftir fimm ára hlé. Konan var borin út fyrir fimm árum vegna subbuskapar. Hún neitar að flytja úr húsinu eða bæta umgengina. Nágrannarnir geta hvergi leitað réttar síns. Þeir geta aðeins skorað á hana skriflega að bæta umgengnina. <b><font face="Helv" color="#000080" size="2"></font></b> 30.1.2005 00:01
Skattsvik rædd í þinginu Skattsvik og aðgerðir gegn þeim verða til umræðu á Alþingi í dag. 30.1.2005 00:01
Kjósendur sýndu þrautseigju Kosningarnar í Írak í dag voru blóði drifnar. Þær einkenndust af árásum hryðjuverkamanna og þrautseigju Íraka, sem flykktust á kjörstaði þrátt fyrir hættuna. 30.1.2005 00:01
Enginn ráðherra sagt af eða á Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi ráðherra, segist ekki muna hvort stuðningur Íslands við innrásina í Írak hafi verið ræddur á ríkisstjórnarfundi 18. mars árið 2003. Þegar ummæli ráðherra Framsóknarflokksins eru skoðuð kemur í ljós að enginn þeirra hefur sagt af eða á um það hvort ákvörðunin hafi verið rædd á fundinum. 30.1.2005 00:01
Hvorki kynja- né innanflokksátök Páll Magnússon, varaþingmaður Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi, segist ekki hafa gert upp við sig hvort hann sækist eftir að leiða lista flokksins í næstu bæjarstjórnarkosningum í Kópavogi. Ýmsir innan flokksins telja að tilgangur hallarbyltingar í Freyju, félagi framsóknarkvenna í Kópavogi í liðinni viku, hafi verið að tryggja honum oddvitastöðu í bænum. 30.1.2005 00:01
Dettifoss kominn á lygnan sjó Búist var við því í gærkvöldi að varðskipin Týr og Ægir kæmu kæmi með flutningaskipið Dettifoss í togi til hafnar á Eskifirði í nótt. Þau voru stödd í mynni Reyðarfjarðar um klukkan sjö í gærkvöld. Stýrisblað skipsins brotnaði af um klukkan átta á föstudagskvöld þar sem það var statt austur af landinu á leið til Eskifjarðar frá Reykjavík. 30.1.2005 00:01
40% neita líffæragjöf Fjörutíu prósent aðstandenda látinna sem geta gefið líffæri neita slíkum beiðnum. Íslendingar gefa færri líffæri en aðrir Norðurlandabúar. 30.1.2005 00:01
Pompei norðursins í Vestmannaeyjum Pompei norðursins mun rísa í Vestmannaeyjum. Grafa á upp hús og aðrar minjar sem urðu undir í gosinu árið 1973 og setja á fót sýningarsvæði um liðna tíð. Menningarfulltrúi Vestmannaeyja segir verkefnið verða unnið í samstarfi við fyrrum íbúa húsanna. 30.1.2005 00:01
Líkan til að finna kuml Fornleifafræðingar hafa gert líkan til að finna út líklega staðsetningu heiðinna grafa. Miklar vonir eru bundnar við að það skili því að heil og óskemmd kuml komist í hendur fornleifafræðinga. 30.1.2005 00:01
Íslenk stuttmynd um einelti Einelti getur eyðilagt líf fólks til frambúðar, segir ungur aðalleikari nýrrar íslenskrar stuttmyndar um einelti og afleiðingar þess sem frumsýnd var í Laugarásbíói í dag. 30.1.2005 00:01
Leiðtogafundur í Miðausturlöndum Leiðtogafundur er næsta skref í friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Unnið er að því að byggja upp gagnkvæmt traust og efla samvinnu stjórnvalda Palestínumanna og Ísraela. 30.1.2005 00:01
250 þúsund til að rétta námið af Grunnskólar Reykjanesbæjar fá hver um sig 250 þúsund króna styrk frá bæjaryfirvöldum. Styrkina á að nýta til að bæta nemendur 10. bekkja skólanna í stærðfræði og íslensku fyrir samræmd próf í vor. 30.1.2005 00:01
Ótímabært að meta sérsamninginn Algerlega ótímabært er fyrir samninganefndir kennara og sveitarfélaga að tjá sig um hvernig þeim lítist á sérkjarasamning í Sjálandsskóla fyrr en þeir hafi hann í höndunum, segir Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri í Garðabæ. 30.1.2005 00:01
Garðabær getur ekki ákveðið launin Sérsamningur við kennara í Sjálandsskóla, nýjum grunnskóla Garðabæjar, getur ekki orðið að veruleika nema launanefnd sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands samþykki hann. 30.1.2005 00:01
Um sextíu prósent kosningaþátttaka Tæplega fimmtíu manns létust í árásum uppreisnarmanna í Írak í gær þegar fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í fimmtíu ár fóru fram. Stjórnmálasérfræðingar hafa áhyggjur af lítilli kosningaþátttöku súnní-múslíma. </font /></b /> 30.1.2005 00:01
Rödd frelsis ómar frá Írak Forseti Bandaríkjanna lýsti mikilli ánægju sinni með framkvæmd kosninganna í Írak í gær. Hann heitir Írökum áframhaldandi aðstoð. Öldungardeildarþingmaður demókrata vill hermennina heim. 30.1.2005 00:01
Ríkið á í 200 fyrirtækjum Ríkið á eignarhlut í 206 fyrirtækjum. Ríkissjóður á 24 fyrirtæki. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að sameina eigi Byggðastofnun og Nýsköpunarsjóð. Sjóðirnir fjárfesti jafnvel í sömu fyrirtækjunum. </font /></b /> 30.1.2005 00:01
Staða formanns rædd Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur verið boðuð til fundar á mánudag til að ræða stöðu mála eftir að formaður félagsins sagði upp starfi sínu á Stöð 2 eftir að fréttastofa stöðvarinnar dró til baka og baðst afsökunar á frétt hans. Róbert lýsti því yfir að hann hygðist áfram gegn formennsku í Blaðamannafélaginu. 29.1.2005 00:01
Deilt um túlkun Halldórs á 1441 Stjórnarandstæðingar telja Halldór Ásgrímsson rangtúlka lykilályktun öryggisráðsins með því að segja að hún snúist um að velta Saddam. Aðstoðarmaður Halldórs segir orð hans mistúlkuð. </font /></b /> 29.1.2005 00:01
Hyggst semja á ný við kennara Garðabær ætlar að sérsníða kjarasamning fyrir grunnskólakennara sem koma til með að vinna í Sjálandsskóla. Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri segir nýtt ákvæði í kjarasamningi Kennarasambandsins og sveitarfélaga gefa ráðrúm til breytinganna. Sérsamningurinn sé tilraun til að fara nýjar leiðir í kjaramálum starfsfólks Garðabæjar. 29.1.2005 00:01
Víglína þvert yfir eldhúsborðið Svilfólkið Össur Skarphéðinsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir háir sitt fyrsta einvígi í formannskosningu Samfylkingarinnar í kvöld á Akureyri. Mikill ótti er við átök í flokknum enda ekki aðeins fjölskyldur formannsefnanna sem er klofin. </font /></b /> 29.1.2005 00:01
Týr með Dettifoss í togi Varðskipið Týr lónar nú um 18 sjómílur austur af Papey með bilaðan Dettifoss í togi og kemst hvorki lönd né strönd vegna veðurs. Stýrið í Dettifossi bilaði í gærkvöldi þegar skipið var statt út af Lóni, austan við Hornafjörð. Engin hætta var talin á ferðum þar sem skipið rak frá landi en óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar. 29.1.2005 00:01
Fimm óbreyttir borgarar drepnir Átta fórust í sjálfsmorðssprengjuárás í norðausturhluta Bagdad-borgar í morgun. Sjálfsvígsmaðurinn sprengdi sig í loft upp utan við herstöð Bandaríkja- og Íraksherja. Fimm þeirra sem fórust voru óbreyttir borgarar. 29.1.2005 00:01
Fischer þjáist af áfengisskorti Heilsa Bobby Fischers er sögð slæm þar sem hann situr í fangelsi útlendingaeftirlitsins í Japan. Nú segja japanskir fjölmiðlar að sjálfur telji hann eina megin ástæðuna þá að hann fái ekkert áfengt að drekka í haldi. 29.1.2005 00:01
Skýli yfir rúllubaggastæður Rúllubaggar eru sjónmengun og skemma ásýnd landsins - því ætti að styrkja bændur til að byggja skýli yfir rúllubaggastæður sínar. Þetta er skoðun formanns Samtaka sauðfjárbænda. Fréttamaður Stöðvar 2 heimsótti bónda sem þótti ekki mikið til hugmyndarinnar koma - en hann vandar sig við að raða böggunum og segir staflana búmannlega. 29.1.2005 00:01
Flutningabíll fauk út af Flutningabíll fauk út af vegi í Hörgárbyggð norðan við Akureyri um klukkan hálf átta í morgun. Ökumaður var fluttur á slysadeild. Að sögn lögreglu er oft og tíðum mikill vindstrengur á þessum slóðum. Þess má geta að hálka, hálkublettir og éljagangur er á fjallvegum landsins. 29.1.2005 00:01
Handtekinn með fíkniefni Lögreglan á Akranesi hafði afskipti af einum góðkunningja lögreglunnar í gærkvöld þar sem hann var á gangi í bænum. Maðurinn tók til fótanna þegar hann varð var við lögreglu en hún náði að hlaupa hann uppi og handsama. Þegar lögreglumenn handsömuðu manninn náði hann að kasta frá sér tveimur litlum bögglum sem reyndust innihalda fíkniefni. 29.1.2005 00:01
Ræða atvinnumál á Stöðvarfirði Byggðarráð Austurbyggðar hefur óskað eftir fundi með þingmönnum Norðausturkjördæmis til að ræða atvinnumál á Stöðvarfirði. Samherji íhugar að hætta allri landvinnslu á Stöðvarfirði sem myndi þýða að um 35 manns misstu vinnuna. 29.1.2005 00:01
Hundruð við útför Ziyangs Hundruð voru í morgun við útför Zhaos Ziyangs sem var formaður kínverska Kommúnistaflokksins þegar atburðirnir á Torgi hins himneska friðar urðu árið 1989. Fólkið lét ekki lögreglueftirlit hræða sig en ráðamenn óttuðust að útförin yrði tilefni til mótmæla og rósturs. 29.1.2005 00:01
Skíðasvæðið við Tindastól opið Skíðasvæðið við Tindastól verður opið frá 12-17, færi gott og nægur snjór, vestan sex metrar og él. 29.1.2005 00:01
Konur yfirgefa Jafnaðarmenn Konur eru yfir níutíu prósent þeirra kjósenda sem danski Jafnaðarmannnaflokkurinn hefur misst frá því að kosningabaráttan hófst fyrir tæpum hálfum mánuði. Innan flokksins eru uppi raddir um að formaðurinn, Mogens Lykketoft, hætti ef spár rætast um sögulega útreið flokksins í þingkosningum eftir tíu daga. Sighvatur Jónsson, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er í Danmörku. 29.1.2005 00:01
Össur og Ingibjörg takast á Formannsframbjóðendur Samfylkingarinnar takast á á opnum fundi í dag í fyrsta sinn síðan formannsslagur flokksins hófst. Össur Skarphéðinssonm, formaður Samfylkingarinnar, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varaformaður munu mætast á almennum, opnum stjórnmálafundi sem hefst á Akureyri klukkan hálffjögur. 29.1.2005 00:01
Hryðjuverkaárás óumflýjanleg Hryðjuverkaárás á Bandaríkin er óumflýjanleg. Þetta segir Tom Ridge, fráfarandi heimavarnarráðherra Bandaríkjanna. 29.1.2005 00:01