Fleiri fréttir

Páll kom til greina

Allar líkur eru taldar á því að Hansína Ásta Björgvinsdóttir, oddviti framsóknarmanna í bæjarstjórn Kópavogs, taki við starfi bæjarstjóra. Formleg ákvörðun um hver muni gegna starfinu verður tekin á fulltrúaráðsfundi framsóknarmanna í Kópavogi á morgun.

Þyrlan sótti dreng

Þriggja ára drengur slasaðist á höfði þegar hann datt á svelli í Grundarfirði í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór til móts við sjúkrabíl til að sækja drenginn og lenti á Kaldármelum.

Eldur í timburhúsi í miðborginni

Eldur kom upp á matsölustaðnum Kebabhúsinu í Lækjargötu 2 í gærkvöld. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út klukkan hálf níu og var allt tiltækt lið sent á staðinn auk þess sem kallað var á slökkviliðsmenn á aukavakt þar sem um timburhús í hjarta miðborgarinnar var að ræða.

Tveir á slysadeild

Tveir meiddust alvarlega í árekstri sem varða á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar seint í gærkvöld. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík voru þeir fluttir á slysadeild meðvitundarlitlir.

Svört starfsemi skekkir samkeppni

Formaður Rafiðnaðarsambandsins telur hætt við að hér verði sama þróun og í Noregi og Svíþjóð þar sem svört atvinnustarfsemi hefur aukist. Forsvarsmenn þriggja verkalýðsfélaga telja að auka þurfi eftirlit hins opinbera með skattgreiðslum.

Akureyringar vilja á Alþingi

Hópur Akureyringa íhugar að mynda nýtt þverpólitískt stjórnmálafl og bjóða fram lista í næstu Alþingiskosningum. Að sögn Ragnars Sverrissonar, kaupmanns á Akureyri og talsmanns hópsins, mun listinn eingöngu verða skipaður Akureyringum.

Alvarlega slasaður eftir árás

Karlmaður var fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús eftir líkamsárás á veitingastað í Mosfellsbæ í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var vopnum ekki beitt, en til átaka mun hafa komið. Karlmaður á miðjum aldri er í haldi lögreglunnar og bíður yfirheyrslu.

Þrjár bílveltur í nótt

Þrjár bílveltur urðu í Árnes- og Rangárvallasýslum í gærkvöldi og í nótt. Sú fyrsta varð við Ingólfshvokl laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi. Ökumaður og farþegi voru fluttir á heilsugæslustöðina á Selfossi til aðhlynningar, en meiðsli þeirra munu ekki hafa verið mikil.

Að minnsta kosti 6 létust

Að minnsta kosti 6 manns fórust og þrír tugir særðust eftir sprengingu á markaði á Filipseyjum í morgun. Ekki liggur fyrir hvort að um slys var að ræða eða hvort að hryðjuverkamenn voru að verki, en lögreglan segir tengsl Abu Sayyaf við Jemaah Islamiah á Filipseyjum.

Afbrotum fækkar

Skráðum afbrotum á Íslandi fækkaði um tíund á síðasta ári miðað við árið á undan, samkvæmt skýrslu Ríkislögreglustjóra, en fíkniefnabrotum fjölgaði hins vegar og hefur sú fjölgun verið stöðug frá árinu 2001. Í skýrslunni er líkum að því leitt að aukin áhersla lögreglu og tollgæslu á þennan málaflokk, talin skýra fjölgun mála.

Eitrunin rannsökuð

Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að hefja lögreglurannsókn á því hvort eitrað hafi verið fyrir Viktor Júsjenkó, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Úkraínu. Austurrískir læknar tilkynntu í gær að orsökin fyrir veikindum hans, sem meðal annars lýsa sér með útbrotum í andliti og margskonar einkennum frá líffærum, væri díoxín eitrun.

Viðræður um nýja stjórn

Viðræður eru hafnar um nýja stjórn í Ísrael, samsteypustjórn Líkúdflokks Ariels Sharons og Verkamannaflokksins, sem er í stjórnarandstöðu. Þessi nýja stjórn sem er í burðarliðnum er sammála um að eftirláta Palestínumönnum Gasasvæðið og flytja á brott þaðan alla Ísraelsmenn.

Eldri ökumenn batna síður

Eldri ökumenn eiga erfiðara með að breyta og bæta ökulagi sínu, samkvæmt könnun sem Gallup gerði. Umferðarstofa hefur undanfarin tvö ár reynt að fækka slysum í umferðinni með betra aksturslagi og vann auglýsingaherferð Umferðarstofu, Hægðu á þér, til gullverðlauna í helstu auglýsingasamkeppni Evrópu á dögunum.

Rúmenar kjósa

Rúmenar ganga að kjörborðum í dag, þar sem kosið verður í síðari hluta forsetakosninga í landinu. Valið stendur á milli þierra Adrian Nastase, sem er þrautreyndur stjórnmálamaður sem á rætur sínar að rekja í gamla kommúnistaflokkinn í Rúmeníu og Traian Basescu, sem er borgarstjóri Búkarest og sá valkostur sem flest vestræn ríki kjósa.

Palestínskir fangar látnir lausir

Stjórnvöld í Ísrael ákváðu í morgun að láta lausa nokkra palestínska fanga af þeim sex þúsund sem þeir hafa í haldi, Talið er að þarna séu stjórnvöld að undirbúa góðan jarðveg þegar eftirmaður Arafats, hinum nýlátna forseta Palestínu, verður kosinn þann 9. janúar næstkomandi.

Farinn í hungurverkfall

Saddam Hussein og 11 aðrir háttsettir ráðamenn úr stjórn hans hafa ákveðið að fara í hungurverkfall til þess að mótmæla slæmri meðferð á sér. Saddam og félagar hans dvelja nú í fangabúðum í Írak, þar sem þeir bíða eftir að réttað verði yfir þeim vegna meintra glæpa gegn mannkyni.

Umræður á villigötum

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir á heimasíðu sinni að umræður um innflytjendamál séu á villigötum. Það sé ekki ámælisvert að aðeins einum flóttamanni hafi verið veitt hér pólitískt hæli.

Íhuga gæsluvarhald

Lögreglan í Reykjavík íhugar að úrskurða karlmann á miðjum aldri, sem slasaði annan mann alvarlega á veitingastað í Mosfellsbæ í nótt, í gæsluvarðhald. Maðurinn sem fyrir árásinni varð slasaðist alvarlega og hefur legið þungt haldinn með höfuðáverka á gjörgæsludeild í dag.

10 létust í Ísrael

Tíu Ísraelsmenn létust í dag þegar skæruliðar frá Palestínu sprengdu bílsprengju við herstöð Ísraelsmanna við landamæri Egyptalands og hófu síðan skothríð. Hamas samtökin hafa lýst tilræðinu á hendur sér.

Harðari skilyrði fyrir Tyrki

Forsætisráðherra Tyrklands segir Evrópusambandið ætla að setja strangari skilyrði fyrir inngöngu Tyrkja í sambandið en annarra þjóða. Hann segir ekkert land hafa þurft að bíða í meira en 40 ár eftir aðild og Evrópusmbandið sé enn hikandi þó að Tyrkir hafi gengið að öllum kröfum sambandsins.

Lést eftir líkamsárás

Maður á sextugsaldri lést í dag, eftir líkamsárás, á veitingastað, í gærkvöldi. Árásarmaðurinn, sem er 25 ára gamall, var handtekinn og verður gæsluvarðhalds krafist yfir honum.

Lögreglurannsókn vegna eitrunar

Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að hefja lögreglurannsókn á því hvort eitrað hafi verið fyrir Júsjenkó, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Úkraínu, og forsetaframbjóðanda. Kannanir sýna að Júsénkó hefur tíu prósentustiga forskot á keppinaut sinn, en kosningarnar verða endurteknar þann 26. desember næstkomandi.

Ný stjórn tryggir brottflutning

Takist að mynda nýja stjórn í Ísrael er brottflutningur Ísraela frá Gaza-svæðinu tryggður og friðvænlegra horfir á svæðinu. Viðræður eru hafnar um stjórn sem er sammála um að leggja niður landnemabyggðir Ísraela á Gaza-svæðinu og eftirláta Palestínumönnum svæðið.

Stuldur á við kostnað menntakerfis

Skattsvikarar stela jafn miklu af samfélaginu á hverju ári og kostar reka allt skólakerfið á Íslandi. Skattsvikin eru talin nema allt að þrjátíu og fimm milljörðum. Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður fagnar tillögum starfshóps fjármálaráðherra sem vill stórefla skatteftirlit og veita eftirlitsmönnum auknar heimildir til að fylgjast með stórfyrirtækjum og afla upplýsinga um bankainnistæður og fjármagnsflutninga.

Fólk verslar dýrari vöru

Kaupmenn búast við mun meiri jólaverslun í ár en fyrir síðustu jól. Emil B. Karlsson hjá Samtökum verslunar og þjónustu segir áberandi að fólk sé að kaupa dýrari gjafavöru en áður enda séu meiri peningar í umferð.

Eldra fólki í auknum mæli sagt upp

Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir æ algengara að roskið fólk sé rekið úr vinnu skömmu áður en það fer á eftirlaun í nafni hagræðingar. Sterk tengsl eru milli ástands á vinnumarkaði og örorku, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt er í Læknablaðinu.

Fimm bílar ultu í hálku

Fimm bílar ultu á Suðurlandi á tæpum sólarhring í gær og fyrradag. Lögreglan á Selfossi segir að gífurlega mikil hálka hafi verið í uppsveitum Árnessýslu. Lögreglan á Selfossi lýsir eftir ökumanni nýlegrar rauðrar Nissan Patrol jeppabifreiðar sem var líklega valdur að einu slysinu.

Ók á fjögur hreindýr

Ekið var á fjögur hreindýr á Kárahnjúkavegi á Fljótsdalsheiði um klukkan níu í gærmorgun. Þoka var á svæðinu og hált. Tvö hreindýr drápust í árekstrinum og hin tvö þurfti að aflífa vegna sára. Ökumaðurinn sagðist ekki hafa séð dýrin í myrkrinu.

Róttækar aðgerðir gegn skattsvikum

Fjárhæðir sem skotið er undan skatti samsvara kostnaði við rekstur alls skólakerfis á landinu. Nefnd sem kannaði umsvif skattsvika leggur til róttækar tillögur til að taka á vandanum. Þingmaður Samfylkingar vill loka strax fyrir smugur fyrir skattsvik. </font /></b />

Hækkun á ábyrgð orkufyrirtækja

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að fyrirhugaðar hækkanir Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja á raforkuverði standist ekki skoðun. Forsvarsmenn fyrirtækjanna hafa sagt að ný raforkulög leiði til mikillar hækkunar á raforkuverði á höfuðborgarsvæðinu um áramót.

Lést af völdum hnefahöggs

Maður á sextugsaldri lést á sjúkrahúsi í gær af völdum höfuðhöggs. Maðurinn hafði verið að skemmta sér með eiginkonu sinni og var komið undir lokun þegar hann var sleginn þungu höggi neðarlega á kjálka á veitingastaðnum Ásláki í Mosfellsbæ. Hálfþrítugur maður hefur játað að hafa lent í átökum á veitingastaðnum. Sá hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald.

Teikningar Sigmunds á 18 milljónir

Ríkið mun greiða Sigmund Jóhannssyni átján milljónir króna fyrir skopteikningar sem birst hafa í Morgunblaðinu síðastliðna hálfa öld. Vefmiðilinn eyjar.net greinir frá þessu. Einnig kemur fram að sett verði á stofn sérstakt Sigmundssafn í Vestmannaeyjum.

Hillir undir samstarf

Forsætisráðherra Ísrael, Ariel Sharon, hóf í gær viðræður við stjórnmálaflokka strangtrúaðra gyðinga um myndun nýrrar stjórnar. Þær viðræður munu fara fram á sama tíma og Sharon ræðir við Verkamannaflokkinn, sem er helsti stjórnarandstöðuflokkurinn í Ísrael.

Hóta sniðgöngu

Stærsti stjórnmálaflokkur súnníta í Írak hefur aftur hótað að sniðganga kosningarnar sem fram eiga að fara í janúar, verði þeim ekki frestað.

Biður Kúvæta afsökunar

Leiðtogi PLO, Mahmud Abbas, bað Kúvæta afsökunar á því að styðja Saddam Hussein í innrás Íraka í Kúvæt 1990, þegar hann heimsótti emírsdæmið í gær.

Sprengja á markaði

Að minnsta kost 15 létust og 58 slösuðust þegar sprengja sprakk á fjölmennum markaði í suðurhluta Filippseyja í gær. Heimagerð sprengja, eða handsprengja, falin í kassa sprakk á markaðnum í General Santosborg. Öryggisgæslan var þegar hert, því óttast var að árásirnar yrðu fleiri. 

Vilja sambærileg laun og kennarar

Fulltrúar leikskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna verða boðaðir til fundar hjá Ríkssáttasemjara í dag, að sögn Ásmundar Stefánssonar. Upp úr viðræðum slitnaði á föstudag. Ásmundur segir að tilkynnt verði um næstu skref í viðræðunum eftir þann fund.

Þögul mótmæli

Um þúsund manns komu saman í miðborg Kaíró í Egyptalandi á sunnudag. Margir þeirra voru með gula límmiða límda yfir munn sinn, sem á stóð "Nóg".

Áskorun afhent

Síðastliðinn föstudag, sem var alþjóðlegi mannréttindadagurinn, lauk 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Í tilefni þess afhentu aðstandendur átaksins forsætisráðherra, forseta Alþingis og forseta Hæstaréttar áskorun.

Eldur í JL húsinu

Eldur kom upp í versluninni Nóatúni í JL húsinu við Hringbraut fyrr í kvöld. Slökkvilið er á staðnum og vinnur að reykræstingu.

Skip NATO á Íslandi

Nokkur skip úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins eru komin til Reykjavíkur og liggja í Sundahöfn. Skipin hafa að undanförnu verið að æfingum. Almenningi gefst tækifæri til að skoða skipin í dag og á morgun.

Samstarfsmaður Berlusconi dæmdur

Ítalskir dómstólar dæmdu í morgun náinn samstarfsmann Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, og viðskiptafélaga, í níu ára fangelsi fyrir að vinna með mafíunni. Berlusconi sjálfur var í gær sýknaður af ákæru um að hafa þegið mútur.

Fíkniefni í íbúðarhúsi á Akranesi

Lögreglan á Akranesi lagði í gærkvöldi hald á nokkuð af fíkniefnum við húsleit í íbúðarhúsi í bænum. Tíu grömm af hassi fundust og 13 grömm af amfetamíni. Einn karlmaður var handtekinn vegna málsins og viðurkenndi hann við yfirheyrslur að vera eigandi efnanna og var sleppt að loknum yfirheyrslum.

Minnst 5 látnir eftir árásir

Andspyrnumenn í Bagdad í Írak réðust í morgun að öryggissveitum og inn á lögreglustöðvar á nokkkrum stöðum í landinu. Að minnsta kosti fimm eru látnir og munn fleiri eru særðir. Þá gerðu þeir árás á starfsmenn menntamálaráðuneytisins, þar sem þeir sátu í rútu.

Trillu hjálpað nálægt Garðskaga

Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein kom 15 tonna trillu til aðstoðar í nótt. Stýri trillunnar bilaði þegar hún var sjö sjómílur norðvestur af Garðskagavita og var björgunarskipið kallað út klukkan fjögur. Ágætis veður var á þessum slóðum í nótt, hægur vindur og úrkomulaust og því lítil hætta á ferðum.

Sjá næstu 50 fréttir