Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldur við Sundahöfn í Reykjavík Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins berst við eldhaf á athafnasvæði endurvinnslustöðvar Hringrásar við Klettagarða 9. Slökkvilið varar fólk við að vera utandyra í nágrenni eldsins þar sem reykurinn sem frá honum berst er mjög eitraður. Fólki í nágrenninu er jafnframt ráðlagt að loka gluggum. 22.11.2004 00:01
Ekki pláss fyrir áfengissjúka Landspítalinn getur ekki tekið við hundruðum flýti- og bráðainnlagna áfengissjúkra sem Vogur hefur boðið upp á. Landlæknir segir mjög miður ef dregið verður úr meðferðarúrræðum unglinga og umönnun ópíumfíkla á vegum SÁÁ. 22.11.2004 00:01
Sjö milljörðum meira í bætur Öryrkjum fjölgar meira á þessu ári en árin á undan. Greiðslur til þeirra hafa hækkað úr fimm milljörðum í tólf. Fjölgar mikið eftir að læknar utan Tryggingastofnunarinnar tóku að meta örorku. Ráðherra vill rannsókn. 22.11.2004 00:01
Börnin óörugg og kvíðin Heimili og skóli - landssamtök foreldra hvetja kennara og foreldra til að sýna börnunum, sem nú setjast aftur á skólabekk eftir erfitt og langt óvissutímabil, nærgætni og umhyggju. Mörg börn hafi verið óörugg og kvíðin undanfarið og séu það enn, meðal annars vegna óvissu um hvernig skólastarfið verði á næstu vikum og mánuðum. 21.11.2004 00:01
53 létust í flugslysi Fimmtíu og þrír létust þegar flugvél endastakkst ofan í ísi lagt stöðuvatn aðeins nokkrum sekúndum eftir flugtak í svokallaðri Innri-Mongólíu í Kína í morgun. Ekki er vitað hvað kom upp á, veður var gott þegar slysið varð og margir á ferli við flugvöllinn. 21.11.2004 00:01
Eldur í bifreið Eldur varð laus í bifreið sem ekið var eftir Reykjanesbraut á Strandarheiði laust eftir miðnætti. Ökumaður náði að forða sér úr bifreiðinni og slökkvilið Hafnarfjarðar var kallað til slökkva eldinn. 21.11.2004 00:01
Stórveldin takast á Gamla Evrópa, eins og Bandaríkjamenn kalla Frakkland og Þýskaland, tregðast við að fella niður skuldir Íraka. Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Frakkar voni að þeim mistakist að endurreisa Írak. 21.11.2004 00:01
Kosningar í Írak 30. janúar Kosninganefnd Íraks ákvað í morgun dagsetningu á fyrirhugaðar kosningar í landinu og var ákveðið að Írakar gangi að kjörborðinu þann 30. janúar næstkomandi. Mikil óöld ríkir í landinu og margir fréttaskýrendur hafa talið óvarlegt að boða til kosninga að svo komnu máli á meðan ekki hefur tekist að ná tökum á uppreisnarhópum víðs vegar um landið. 21.11.2004 00:01
Reknir úr hernum fyrir pyntingar Sextán þýskum hermönnum hefur verið vikið tímabundið úr hernum vegna ásakana um að þeir hafi misþyrmt nýliðum með rafmagnsstuði og æfingum sem líktu eftir pyntingum skæruliða. Þetta er haft eftir talsmanni þýska varnarmálaráðuneytisins. Rannsókn er hafin á atvikunum sem eiga að hafa átt sér stað síðastliðið sumar. 21.11.2004 00:01
Indverjar bakka í deilunni Stjórnvöld í Indlandi hafa kallað um þrjú þúsund indverska hermenn heim frá Kasmír-héraði en þetta er liður í því að bæta samskiptin á milli nágrannanna og fjandþjóðanna Indlands og Pakistans. Löndin tvö hafa deilt um yfirráð og landamæri Kasmír-héraðs í fimmtán ár og hafa þrisvar sinnum farið í stríð sín á milli vegna þessa. 21.11.2004 00:01
Tvö mannskæð slys í Kína Fimmtíu og þrír létust þegar flugvél endastakkst ofan í ísi lagt stöðuvatn aðeins nokkrum sekúndum eftir flugtak í norðurhluta Kína í morgun. Níu námumenn létu jafnframt lífið í eldsvoða í sama landshluta í morgun. 21.11.2004 00:01
Tímamótakosningar í Úkraínu? Íbúar í Úkraínu ganga að kjörborði í dag til að kjósa sér nýjan forseta. Óttast er að til uppþota geti komið í landinu. Margir ganga svo langt að segja að valið standi á milli þess hvort Úkraína muni í framtíðinni fylgja Rússum eða Vestur-Evrópu að málum. 21.11.2004 00:01
Svíar líða fyrir Tsjernóbyl-slysið Talið er að ríflega áttahundruð manns í norðurhluta Svíþjóðar hafi fengið krabbamein í kjölfar kjarnorkuslyssins í Tsjernóbyl árið 1986. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar um afleiðingar slyssins. Geislavirk ský fóru yfir norðurhluta Evrópu í kjölfar slyssins og merkjanleg aukning varð á krabbameinstilfellum. 21.11.2004 00:01
Kuldamet slegin víða Kuldamet voru slegin víða á Norðausturlandi í nótt. Mestur var kuldinn við Mývatn þar sem frostið mældist 30 gráður klukkan sex í morgun. Frostið fór niður í 27 gráður í Möðrudal á Fjöllum og 24 gráður á Grímsstöðum. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu hefur slíkur kuldi ekki áður mælst í nóvembermánuði á þessum slóðum. 21.11.2004 00:01
Sveitarfélögin færri en hundrað Sameining fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu var samþykkt í gær og sömuleiðis sameining fjögurra sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar. Sveitarfélög í landinu eru þar með orðin færri en hundrað. 21.11.2004 00:01
Dönum fjölgar í Afganistan Fjöldi danskra hermanna í Afganistan mun þrefaldast á næsta ári samkvæmt því sem kemur fram í <em>Politiken</em> í dag. Hermennirnir eiga að sinna mannúðarstörfum og að taka þátt í þjálfun nýs hers Afganistans. Formaður samtakanna „Læknar án landamæra“ hefur áhyggjur af því að hermenn sinni einnig mannúðarstörfum. 21.11.2004 00:01
Fótbrotnaði illa í handbolta Harðdrægur markmaður Vals í fimmta flokki í handbolta og sókndjarfur Stjörnumaður skullu harkalega saman á lokamínútu leiks í gærkvöld með þeim afleiðingum að hinn þrettán ára gamli markvörður fótbrotnaði illa rétt fyrir ofan ökla. Stjörnumaðurinn tognaði á hné. 21.11.2004 00:01
Sneri aftur í veisluna með byssu Danska lögreglan telur að tæplega fimmtugur karlmaður frá fyrrverandi Júgóslavíu hafi drepið samlanda sinn með því að skjóta hann nokkrum skotum í samkomuhúsi á Kaupmannahafnarsvæðinu í gærmorgun. Maðurinn neitar sök en hann gaf sig fram við lögreglu síðdegis í gær. 21.11.2004 00:01
Fagna tillögu viðskiptaráðherra Ungir jafnaðarmenn fagna tillögu viðskiptaráðherra að Ríkisendurskoðun fari yfir fjármál stjórnmálaflokkanna og vilja einnig að sett verði skýr lög um fjárreiður þeirra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hreyfingunni sem send var fjölmiðlum í dag. 21.11.2004 00:01
Sjö manns sagt upp á Vogi Sjö starfsmönnum sjúkrahússins Vogs, sem er þungamiðja starfsemi SÁÁ, verður sagt upp og dregið saman í þjónustu við áfengis- og vímuefnasjúklinga. Ráðgjafavakt og sú bráðaþjónusta sem veitt hefur verið við göngudeild meðferðarstofnunarinnar verður lögð af. Innlögnum verður fækkað úr 2350 í 2100, eða um 10%, en við það mun svigrúm til bráða- og flýtiinnlagna minnka verulega. 21.11.2004 00:01
Af lista hinna vígfúsu ríkja Flokksráðsfundur Vinstri - grænna í Reykjavík um helgina ítrekar kröfu sína um að ríkisstjórnin falli frá stuðningi við stríðsreksturinn í Írak og að Ísland verði tekið af lista hinna vígfúsu ríkja, eins og það er nefnt í ályktuninni. Þá lýsir fundurinn vanþóknun á lagasetningu ríkisstjórnarinnar gegn fullkomlega lögmætu verkfalli grunnskólakennara. 21.11.2004 00:01
80% skuldanna felld niður Rússar hafa samþykkt að fella niður 80 prósent skulda Íraka sem hljóða upp á um það bil 125 milljarða dollara. Þetta er haft eftir bandarískum embættismanni en Bandaríkjamenn leggja mikla áherslu á að skuldirnar verði felldar niður. 21.11.2004 00:01
Fleiri lík finnast Lík þriggja manna sem skotnir höfðu verið í höfuðið fundust á götum Mósúl í Írak í dag. Líklegt er talið að mennirnir séu úr þjóðvarðaliði Íraka en það hefur ekki verið staðfest. Í gær fundust lík níu írakskra þjóðvarðliða á víðavangi í borginni sem einnig höfðu verið drepnir með skoti í höfuðið. 21.11.2004 00:01
Frænda Allawis sleppt? Mannræningjarnir sem rændu frænda Iyads Allawis, forsætisráðherra Íraks, létu hann lausan í dag að sögn arabískrar sjónvarpsstöðvar. Talsmaður íröksku ríkisstjórnarinnar sagðist ekki geta staðfest fréttirnar í samtali við Reuters-fréttastofuna. Frænda forsætisráðherrans var rænt fyrr í mánuðinum. 21.11.2004 00:01
Bílvelta á Reykjanesbraut Bíll valt á Reykjanesbraut skammt frá Álverinu í Straumsvík rétt fyrir klukkan 11 í morgun. Einn var í bílnum og var hann fluttur á slysadeild en ekki var vitað hversu alvarleg meiðslin eru. Nota þurfti klippur til að ná manninum út úr bílnum. Víkurfréttir greina frá. 21.11.2004 00:01
Fjögur morð á sólarhring í Napólí Fjórir menn hafa verið drepnir undafarinn sólarhring í borginni Napólí á Ítalíu. Lögreglan segir morðin að öllum líkindum tengjast innbyrðis átökum í mafíunni þar í borg. 21.11.2004 00:01
Boðað til kosninga í Írak Boðað hefur verið til þingkosninga í Írak þrítugasta janúar á næsta ári þrátt fyrir það upplausnarástand sem ríkir í landinu. Dagsetningin fyrir kosningarnar var kunngerð í dag en fyrirfram höfðu margir haft uppi varnaðarorð og efast um að kosningar geti verið óhlutdrægar við núverandi kringumstæður. 21.11.2004 00:01
Eitt kennileita Belfast sprengt Það mannvirki í Belfastborg á Norður-Írlandi, sem mest hefur borið á, var jafnað við jörðu í dag. Churchill-húsið hefur staðið í miðborg Belfast í fjörutíu ár en yfirvöld ákváðu að landsvæðið væri svo verðmætt að það borgaði sig að sprengja húsið í morgun til að rýma fyrir nýjum byggingum. 21.11.2004 00:01
Frír póstur fyrir lófatölvusíma Tæknifyrirtækið Hot Mobile Mail, sem er starfrækt í Bolungarvík, býður viðskiptavinum sínum ókeypis aðgang að þráðlausum tölvupósti fyrir lófatölvusíma. Tekjur fyrirtækisins koma frá auglýsendum sem auglýsa í póstkerfi þess. Kerfið gagnast hvort tveggja viðskiptavinum OgVodafone og Símans, að því gefnu að þeir séu eigendur lófatölvusíma. 21.11.2004 00:01
Yushchenko líklega sigurvegari Útgönguspár í forsetakosningunum í Úkraínu, sem voru birtar rétt í þessu, benda til þess að Viktor Yushchenko beri sigur úr býtum. Yushchenko boðar breytta tíma í Úkraínu og náin tengsl við Vesturlönd. Stuðningsmenn hans eru að safnast saman í miðborg Kíev því þeir óttast að sigurinn verði hafður af þeim með kosningasvindli. 21.11.2004 00:01
Ótrúleg skammsýni stjórnvalda Það er ótrúleg skammsýni að byggja hagvöxt á því að menga meira, segir náttúrufræðingurinn Hjörleifur Guttormsson. Forsætisráðherra sagði í gær að fyrirhugaðar skattalækkanir byggðust að hluta á Kyoto-bókuninni sem gerði Íslendingum kleift að losa meiri mengun út í andrúmsloftið. 21.11.2004 00:01
Umferðarslys við Hvalfjarðargöng Hvalfjarðargöngin eru lokuð vegna umferðarslyss sem þar varð upp úr klukkan hálf sjö í kvöld. Svo virðist sem ökumaður hafi misst stjórn á bifreið sinni og ekið utan í vegg ganganna. Mikið lið lögreglu og sjúkraliða eru á vettvangi en samkvæmt fyrstu upplýsingum frá lögreglu urðu ekki alvarleg slys á fólki. 21.11.2004 00:01
Vilja opið bókhald flokkanna Ungir jafnaðarmenn fagna tillögu viðskiptaráðherra um að Ríkisendurskoðun fari yfir fjármál stjórnmálaflokkanna. 21.11.2004 00:01
Matvælarannsóknir Háskólinn á Akureyri og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins munu halda sameiginlegan fund um matvælarannsóknir á Norðurlandi þriðjudaginn 23. nóvember. 21.11.2004 00:01
Bráðaþjónusta verður lögð af Vegna mikils hallareksturs á Vogi verður gripið til aðgerða sem spara sjúkrastofnuninni 45 milljónir á ári. Sjö starfsmönnum sagt upp. Innlögnum fækkað. Sjúklingar yngri en 16 ára ekki innritaðir. 21.11.2004 00:01
Lúpínan og rjúpan "Ég held að það sé ekkert hægt að gera til að útrýma lúpínunni - hún er komin til að vera," segir Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands. 21.11.2004 00:01
Hryðjuverkin í Madrid Eduardo Zaplana, fyrrverandi talsmaður ríkisstjórnar Spánar, heldur því fram að hryðjuverkárásunum í Madríd þann 11. mars á þessu ári hafi verið stýrt af erlendum aðila í von um að koma forsætisráðherranum, Jose Maria Aznar, frá völdum. 21.11.2004 00:01
Ghazi Allawi sleppt úr gíslingu Ghazi Allawi, frændi Iyads Allawi, forsætisráðherra Íraks, var látinn laus á sunnudag í Bagdad en hann var tekinn í gíslingu þann 10. nóvember. 21.11.2004 00:01
Þjónustan á Vogi minnkuð Sjö stöðugildi verða lögð niður á Vogi og þjónustu við áfengis- og vímuefnasjúklinga skert í sparnaðarskyni. SÁÁ hefur spennt bogann of hátt miðað við tekjur. Áfram verður staðið við þjónustusamning sem í gildi er milli heilbrigðisráðuneytisins og SÁÁ en önnur þjónusta skorin niður. 21.11.2004 00:01
Friður í suður-Súdan Sameinuðu þjóðirnar munu staðsetja þúsundir hermanna í Suður-Súdan þegar ríkisstjórnin í Khartoum, höfuðborg Súdans, og byltingarhreyfingin í suðrinu hafa skrifað undir friðarsamning. 21.11.2004 00:01
Kindur mótmæla Um það bil 1200 kindur ráfuðu um götur Madrídar í gær, 21. nóvember, til að vekja athygli á kröfu um verndun á árstíðabundnum flutningi búpenings milli beitilanda á láglendi og hálendi, en það er aldagömul hefð á Spáni. 21.11.2004 00:01
Sigurbjörn fluttur í Mosfellsbæinn Sigurbjörn Sævar Grétarsson sem nú bíður dóms fyrir kynferðislega misnotkun á ungum drengjum á Patreksfirði hefur fengið sér raðhús í Mosfellsbæ. Raðhúsið er við hliðina á barnaleikvelli. Uggur er í brjóstum nágranna sem óttast áreiti gegn börnum sínum og barnabörnum. 21.11.2004 00:01
Háð hreinu umhverfi Ný skýrsla um mannlíf á norðurslóðum var kynnt á Nordica hóteli í gær. Samantekt skýrslunnar var eitt af forgangsmálum Íslands í formennsku Norðurskautsráðsins árin 2002 til 2004. 21.11.2004 00:01
Segir gæsluna vanta rekstrarfé Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir Landhelgisgæsluna ekki hafa nægjanlegt fjármagn til rekstrar. Áður en farið verður út í byggingu nýs varðskips segir hann að tryggja verði fjármagn í þann rekstur sem Landhelgisgæslan er með í dag. 21.11.2004 00:01
Einstök efni gegn krabbameini Í íslenskum fléttum og sjávarlífverum er að finna einstök efni gegn sýklum, veirum og krabbameini vegna þess að þær eru svo harðgerðar. Þetta hefur ný íslensk rannsókn leitt í ljós. Næsta skrefið er lyfjaframleiðsla. 21.11.2004 00:01