Stórveldin takast á 21. nóvember 2004 00:01
Gamla Evrópa, eins og Bandaríkjamenn kalla Frakkland og Þýskaland, tregðast við að fella niður skuldir Íraka. Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Frakkar voni að þeim mistakist að endurreisa Írak. Sjö helstu iðnríki heims funda nú í Þýskalandi og eitt aðalmálið á dagskrá er erlendar skuldir Íraka, sem nema 122 milljörðum króna. Írakar hafa beðið um að þessar skuldir verði felldar niður þar sem byrðin sé svo þung að hún standi endurreisn landsins fyrir þrifum. Bandaríkjamönnum er einnig mjög umhugað um að skuldirnar verði afskrifaðar. Það gengur hins vegar treglega að fá iðnríkin til þess að samþykkja beiðni Íraka. Fjármálaráðherra Þýskalands sagði að vísu í dag að tillaga hefði komið fram um að fella niður áttatíu prósent skuldarinnar á átta árum. Það finnst Bandaríkjamönnum bæði seint og of lítið, en Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, er nokkuð sama. Hann segir að ef ástandið í Írak fari batnandi verði að vera hægt að endurskoða málið, með hliðsjón af því að Írak er ríkt olíuríki. Frakkar eru nokkuð sama sinnis og Þjóðverjar og óvildin milli gömlu Evrópu og Bandaríkjanna hefur blossað upp á nýjan leik. Jacques Chirac, forseti Frakklands, sagði fyrr í vikunni að innrás Bandaríkjamanna í Írak hefði gert heiminn hættulegri en hann var. Richard Armitage, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, brást reiður við og sagði að Frakkar beinlínis vonuðust til að Bandaríkjamönnum takist ekki að koma á friði og lýðræði í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira