Fleiri fréttir

Kusu tengsl við Vesturlönd

Útgönguspár seinni umferðar forsetakosninga í Úkraínu sem voru í gær benda til þess að Viktor Júsjenko beri sigur úr býtum.

Nauðsyn að huga að nemendunum

Heimili og skóli - landssamtök foreldra hvetja kennara og foreldra til að sýna börnum á grunnskólaaldri nærgætni og umhyggju nú þegar þau hafi aftur sest á skólabekk eftir langt verkfall kennara.

Ráðherra hlusti á launþega

Formaður BSRB segir nær að forsætisráðherra hlusti á kröfur launþega í stað þess að skammast út í þá. Í ræðu sinni á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins í gær boðaði forsætisráðherra verri stöðu í efnahagsmálum, ef allir fengju jafnmiklar launahækkanir og kennarar.

Spjallvefur kennara opnaður

Spjallþráður kennara á vef Kennarafélags Reykjavíkur hefur legið niðri frá því á mánudag. Hann verður settur upp í dag, segir Ólafur Loftsson, formaður félagsins.

Þorskeldi framtíð Vestfjarða

Þorskeldi er vel á veg komið hjá fyrirtækinu Þóroddi í Tálknafirði. Því er spáð að eldinu vaxi ásmegin og verði jafnvel undirstaða atvinnulífsins eftir fimmtán ár. Þorskurinn er alinn á loðnu og etur úr lófa gjafara sinna. </font /></b />

Göngin opnuð á ný

Loka þurfti Hvalfjarðargöngunum í tvo klukkutíma eftir umferðaróhapp sem varð á sjöunda tímanum í kvöld. Langar bílaraðir mynduðust við gangamunnana en umferð var hleypt í gegn á nýjan leik laust fyrir klukkan níu í kvöld.

ESB ekki á dagskrá í Noregi

Þrátt fyrir að meirihluti Norðmanna sé fylgjandi aðild að Evrópusambandinu og tveir stærstu stjórnmálaflokkar Noregs einnig, þá eru Evrópumálin ekki á dagskrá í norskri stjórnmálaumræðu.

Margar nýjar sjávardýrategundir

Fjörutíu nýjar tegundir af sjávardýrum hafa fundist undanfarið við Íslandsstrendur. Þar að auki hafa uppgötvast hundruð tegunda sem menn vissu ekki að lifðu hér við land.

Eftirlitsmenn í fjölveiðiskipum

Til greina kemur að eftirlitsmenn verði settir um borð í fjölveiðiskip til að kanna hversu algengur lax er sem meðafli í Norðurhöfum. Vitað er að hann veiðist í síldartroll, en engar tölur liggja fyrir um hversu algengt það er, né heldur hvaðan laxinn kemur.

Sveitarfélögum fækkaði um sex

Sveitarfélögum landsins fækkaði um sex á laugardag, þegar íbúar fjögurra hreppa í Austur-Húnavatnssýslu samþykktu í kosningum sem fram fóru á laugardag að sameinast í eitt sveitarfélag auk þess sem íbúar fjögurra hreppa sunnan Skarðsheiðar samþykktu að sameinast.

Kosningar í Írak ákveðnar

Tilkynnt var í gær að fyrstu kosningarnar í Írak eftir fall Saddams Hussein verði haldnar 30. janúar. Ekki á að fresta kosningum vegna átaka í landinu. "Kjörstjórn hefur einróma samþykkt að íhuga 30. janúar sem kjördag," sagði formaður kjörstjórnar, Abdel Hussein al-Hindawi, við fréttamenn í Bagdad.

Hafa lækkað verulega

Jóhanna Sigurðardóttir segir á heimasíðu sinni að barnabætur hafi lækkað verulega að raungildi frá því sem þær voru árið 1995.

Svanfríður í bæjarstjórastólinn

I-listi Sameiningar er í oddastöðu í viðræðum um nýjan meirihluta á Dalvík. Svanfríði Jónasdóttur, fyrrum þingkonu Samfylkingar, hefur verið boðinn bæjarstjórastóllinn.

Nú liggja Danir í því

Hundruð Dana eru öskureiðir vegna umdeildra póstkorta frá lífeyrissjóði þeirra. Talsmaður sjóðsins biðst afsökunar og segir fyrirtækið hafa farið yfir strikið. Póstkortið er stílað á karlmanninn á heimilinu en vekur meiri athygli og jafnvel reiði hjá unnustum og eiginkonum, þegar það svífur inn um bréfalúguna eða póstkassann.

Fé brann inni í Hrútafirði

Hlaða og fjárhús við bæinn Hrútatungu í Hrútafirði brann til kaldra kola í gærkvöld. Um 100 skepnur voru í fjárhúsinu og tókst að bjarga flestum. Einhverjar munu þó hafa brunnið inni. Slökkvilið frá Hvammstanga, Borðeyri og Búðardal voru kölluð út en húsið var alelda þegar þau mættu á staðinn á níunda tímanum.

Danski þingmaðurinn látinn laus

Danskur þingmaður, Flemming Oppfeldt, sem er sakaður um að hafa kynferðislega misnotað þrettán ára dreng, hefur verið látinn laus. Úrskurður dómstóla þess efnis er þvert á úrskurð undirréttar sem á þriðjudaginn framlengdi gæsluvarðhald yfir þingmanninum. Flemming segist í dönskum fjölmiðlum vera saklaus.

Fékk sjúkragögn Arafats afhent

Ekkja Arafats, Suha, sótti í gær sjúkragögn hins látna eiginmanns síns á hersjúkrahúsið í París þar sem hann naut aðhlynningar síðustu daga ævi sinnar. Í gögnunum er dánarorsök tilgreind en palestínsk yfirvöld hafa sóst eftir að fá þær upplýsingar.

Tugur fallinn í morgun

Skæruliðar vopnaðir sjálfvirkum rifflum og sprengjuvörpum börðust við bandarískar og írakskar hersveitir í hverfum súnní-múslima í Bagdad í morgun. Að minnsta kosti sjö skæruliðar féllu og þrír lögreglumenn.

BSRB mótmælir kennaralögunum

BSRB mótmælir harðlega lögum sem sett voru á kjaradeilu kennara og sveitarfélaga en lýsir jafnframt ánægju yfir því að Kennarasamband Íslands hafi ákveðið að ganga til samninga í stað þess að lúta vilja ríkisvaldsins um að hlíta niðurstöðum gerðardóms. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar bandalagsins sem haldinn var í gær.

Fanga sleppt vegna mistaka

Lögregluyfirvöld í Manchester á Englandi leita nú manns sem ákærður er fyrir sex morðtilraunir en honum var sleppt fyrr í vikunni vegna mistaka. Maðurinn, sem sagður er mjög hættulegur, var hnepptur í gæsluvarðhald í síðustu viku og átti að mæta fyrir dómara í gær.

Enn kýta Frakkar og Bandaríkjamenn

Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Frakkar voni að þeim mistakist að koma á friði og lýðræði í Írak.

Velferðarsjóður barna verðlaunaður

Velferðarsjóður barna fékk í dag verðlaun Barnaheilla fyrir sérstakt framlag í þágu barna og réttinda þeirra. Áður hafa Barnahús og Hringurinn hlotið viðurkenningu Barnaheilla. Velferðarsjóð barna stofnuðu Íslensk erfðagreining og heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið snemma árs 2000.

Viðurkenndi morðið á banabeði

Móðir í Kaliforníu viðurkenndi fyrir dóttur sinni á banabeði sínu að hún hefði myrt föður hennar. Líkið hefði hún geymt í frystikistu í 14 ár og látið fjölskylduna halda að hann hefði dáið í bílslysi. Móðirin lést úr krabbameini fyrir viku. Á fimmtudag fannst lík hins myrta þar sem hún hafði vísað á það, í birgðageymslu.

Hindra endurtekið ófremdarástand

Fræðsluráð Reykjavíkur vill láta finna leiðir til að koma í veg fyrir að viðlíka ófremdarástand og skapaðist þegar skólar voru lokaðir vikum saman vegna verkfalls kennara, endurtaki sig. Ráðið hefur farið fram á að gerð verði stjórnsýsluúttekt á öllu samningaferli grunnskólakennara og sveitarfélaganna. 

Belafonte opnar ljósmyndasýningu

Harry Belafonte, velgerðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna og heimsfrægur skemmtikraftur og söngvari, opnar áhrifamikla ljósmyndasýningu um UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, í Smáralind í dag klukkan hálffjögur. Þangað er öllum boðið sem vilja fagna 15 ára afmæli Barnasáttmálans í dag.</font />

Aftökurnar halda áfram

Írakskir hryðjuverkamenn myrtu í dag enn tvo gísla sína og settu aftöku þeirra á Netið. Að þessu sinni voru fórnarlömbin tveir Kúrdar sem morðingjarnir segja að hafi tilheyrt lýðræðisflokki þjóðflokksins. Sá flokkur er annar af tveimur stjórnmálahreyfingum Kúrda sem á aðild að bráðabirgðastjórninni í Írak.

40 kindur drápust í brunanum

Fjörutíu kindur brunnu inni þegar kviknaði í hlöðu og fjárhúsi við bæinn Hrútatungu í Hrútafirði í gærkvöld. Um 100 skepnur voru í fjárhúsinu. Slökkvilið frá Hvammstanga, Borðeyri og Búðardal voru kölluð út en húsið var alelda þegar þau mættu á staðinn á níunda tímanum.

Einstök líffræðiráðstefna

Matarlyst hvala, sálarlíf burstaorma og fegurðarskyn almennings með hliðsjón af náttúru landsins eru meðal þeirra rannsókna sem kynntar eru á afmælisráðstefnu um líffræðirannsóknir á Íslandi sem stendur yfir hér á landi um helgina.

Deilt um skuldir Íraka

Ríkustu þjóðum heims gengur erfiðlega að ná samkomulagi um hvort og hversu mikið af skuldum Íraka þær felli niður. Erlendar skuldir Íraka eru um 122 milljarðar króna og hafa þeir beðið um niðurfellingu á þeim þar sem byrðin sé að sliga landið og hindra eðlilega uppbyggingu.

Nýnasistar skipuleggja hryðjuverk

Hópur sænskra nýnasista hefur verið handtekinn, grunaður um áætlun um morð og hryðjuverk. Fjórir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Nýnasistarnir höfðu gert áætlun sem gerði ráð fyrir að lama mikilvægar stofnanir samfélagsins, svo sem orkuver, skóla, sjúkrahús og ráðhús.

Endurbætur í Fallujah

Bandarískir hermenn vinna nú að því að koma aftur á vatni, rafmagni og öðrum nauðsynlegum þjónustuþáttum í lag í borginni Fallujah í Írak. Það gæti tekið tímann sinn því Fallujah er nánast í rúst eftir bardagana undanfarnar vikur. Bandaríkjamenn treysta sér ekki til þess að segja til um hvenær íbúarnir, sem flúðu bardagana, geti snúið aftur. </font />

Bush varar Írana við

George Bush Bandaríkjaforseti varar Írana við að halda áfram framleiðslu kjarnavopna eins og fullyrt er að þeir geri í skýrslu Alþjóða kjarnorkustofnunarinnar, IAEA, sem gerð var opinber í vikunni.

13 tróðust undir

Að minnsta kosti þrettán tróðust undir og fjölmargir slösuðust í fagnaðarlátum vegna loforða Evrópusambandsins um fjárhagaðstoð í Vestur-Afríkuríkinu Togo í dag. Mannfjöldinn hafði fylkt liði í höfuðborginni Lome til að hylla forseta landsins í tilefni tíðindanna en hann hefur farið mikinn undanfarna mánuði í að fá Evrópusmabndið í lið með sér.

Tvennar sameiningarkosningar í dag

Tvennar sameiningarkosningar fara fram í dag: atkvæðagreiðsla um sameiningu fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu og atkvæðagreiðsla um sameiningu fjögurra sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar.

Flugeldasýning skáta í Garðabæ

Skátarnir í Garðabæ halda flugeldasýningu klukkan sex í tilefni af því að opnuð var björgunar- og skátamiðstöð við Bæjarbraut. Hjálparsveit skáta í Garðabæ og skátafélagið Vífill verða þar með aðstöðu og hefur hið nýja aðsetur, ásamt tækjum og tölum skátanna, verið til sýnis nú síðdegis.

Kannar ensk máláhrif í íslensku

Hanna Óladóttir, stúdent við Háskóla Íslands, hlaut í dag hálfa milljón króna í styrk frá Mjólkursamsölunni í tengslum við málræktarþing. Hanna vinnur að lokaverkefni sem byggist á könnun á viðhorfi til enskra máláhrifa í íslensku.

Dæmdur fyrir morð á blaðamönnum

Afganskur maður úr hersveitum talíbana var í dag dæmdur til dauða fyrir að myrða fjóra blaðamenn í stríðinu árið 2001. Hann hafði einnig myrt eiginkonu sína og limlest fjölda manns.

Meirihlutinn á Dalvík sprakk

Meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Dalvíkur sprakk í dag. Ekki reyndist unnt að leysa ágreining um grunnskólann á Húsabakka í Svarfaðardal. Sjálfstæðismenn vildu leggja hann niður en framsóknarmenn ekki. Líklegt þykir að Sjálfstæðisflokkurinn myndi nýjan meirihluta með I-lista.

Sjö létust í sprengingu á Ítalíu

Að minnsta kosti sjö manns létu lífið í mikilli gassprengingu í tveggja hæða íbúðarhúsi á Ítalíu í dag. Slysið varð í smábænum Foggía í suðurhluta landsins. Sprengingin var svo öflug að hlutar úr útveggjum og þaki hússins þeyttust langar leiðir, og svo hrundi húsið til grunna.

Gagnast eignamiklu hátekjufólki

Fyrirhugaðar skattabreytingar ríkisstjórnarinnar gagnast helst eignamiklu hátekjufólki að mati hagfræðings Félags eldri borgara. Hann segir að nær hefði verið að hækka skattleysismörk til að koma á móts við þá tekjulægstu. Framkvæmdastjóri ASÍ segir þær ekki vera aðgerð til tekjujöfnunar, heldur þvert á móti.

Heimastjórnin fær sjúkraskrána

Frakkar hafa fullvissað heimastjórn Palestínu um að frændi Jassers Arafats, sem er erindreki í heimastjórninni, fái sjúkraskrá Arafats frá sjúkrahúsinu sem hann dó í. Alls kyns sögusagnir ganga um dánarorsökina, svo sem að eitrað hafi verið fyrir Arafat, hann hafi verið með skorpulifur, alnæmi og jafnvel fleiri banvæna sjúkdóma.

Lofthernaður gegn engisprettum

Ísraelar hafa enn einu sinni hafið mikinn lofthernað, en í þetta skipti gegn engisprettum, sem ráðast inn í landið í stórum hópum frá Afríku. 

Aukast mest hjá þeim launalægstu

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir það einfaldlega rangt að skattar lækki mest hjá hátekjufólki. Ráðstöfunartekjur aukist mest hjá þeim sem minnst hafa og langmest hjá barnafjölskyldum.

Alnæmisfaraldur herjar á ketti

Banvænn alnæmisfaraldur herjar á ketti í Vestur-Noregi. Dýraeftirlitið í Bergen krefst þess að allir kattaeigendur geldi dýrin áður en þau verða kynþroska. Sama veira hefur fundist í köttum hér á landi.

Sjá næstu 50 fréttir