Tímamótakosningar í Úkraínu? 21. nóvember 2004 00:01
Íbúar í Úkraínu ganga að kjörborði í dag til að kjósa sér nýjan forseta. Óttast er að til uppþota geti komið í landinu. Kosið er á milli annars vegar núverandi forsætisráðherra landsins, Viktor Yanukovich, sem nýtur stuðnings fráfarandi forseta, Leonids Kuchma, og stjórnvalda í Rússlandi, og hins vegar leiðtoga stjórnarandstöðunnar, Viktor Yushchenko, sem hefur boðað breytingar í átt að meira frjálslyndi og samstarfi við Vesturlönd. Margir ganga svo langt að segja að valið standi á milli þess hvort Úkraína muni í framtíðinni fylgja Rússum eða Vestur-Evrópu að málum. Afar mjótt er á mununum og óttast er að stjórnvöld grípi til einhvers konar falsana til að tryggja Yanukovich sigurinn. Verði það gert má búast við að stuðningsmenn stjórnarandstæðingsins Yushchenkos rísi upp í mótmælum. Lögregla og her er í viðbragðsstöðu í höfuðborginni Kiev og um fimmhundruð kosningaeftirlitsmenn á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu eru víðs vegar í Úkraínu til að skrá hvernig kosningarnar fara fram. Yushchenko vann fyrri lotu forsetakosninganna með naumindum en munurinn var svo lítill að kjósa þurfti aftur á milli tveggja efstu manna og eftirlitsmenn töldu að úrslitin hefðu verið fölsuð að einhverju leyti, forsætisráðherranum Yanukovich í hag. Kjörstöðum verður lokað í Úkraínu um klukkan sex að íslenskum tíma en búist er við að það taki nokkra daga að telja atkvæðin og fá endanlega niðurstöðu í málið.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira