Yushchenko líklega sigurvegari 21. nóvember 2004 00:01
Útgönguspár í forsetakosningunum í Úkraínu, sem voru birtar rétt í þessu, benda til þess að Viktor Yushchenko beri sigur úr býtum. Yushchenko boðar breytta tíma í Úkraínu og náin tengsl við Vesturlönd. Stuðningsmenn hans eru að safnast saman í miðborg Kíev því þeir óttast að sigurinn verði hafður af þeim með kosningasvindli. Þetta er önnur og síðasta lota forsetakosninganna. Of mjótt var á mununum síðast og því reyndist nauðsynlegt að kjósa á milli efstu manna. Reyndar var talið að úrslitin þá hefðu að einhverju leyti verið fölsuð. Valið stendur á milli tveggja manna. Annars vegar er það núverandi forsætisráðherra landsins, Viktor Yanukovych, sem nýtur stuðnings Rússlandsstjórnar og hefur enda heitið fólki tvöföldum ríkisborgararétti, úkraínskum og rússneskum ,og ætlar að gera rússnesku að öðru opinberu tungumáli landsins. Hann nýtur mikils stuðnings í rússneskumælandi austurhluta Úkraínu. Hins vegar er það hagfræðingurinn Viktor Yushchenko sem nýtur óopinbers stuðnings vestrænna leiðtoga. Hann hefur heitið því að berjast gegn spillingu, opna markaði og auka tengsl við Evrópu og Atlantshafsbandalagið. Hann nýtur aðallega stuðnings í vesturhluta landsins og í höfuðborginni Kiev. 500 kosningaeftirlitsmenn fylgjast grannt með framgangi kosninganna enda er mjög óttast að yfirvöld í Úkraínu reyni að hafa áhrif á úrslitin, Yanukovych í hag. Þá hefur Yushchenko einnig verið gagnrýndur fyrir að hvetja til óeirða en hann hefur beðið stuðningsmenn sína til að safnast saman í miðborg Kiev í kvöld til að mótmæla hugsanlegu kosningasvindli og sýna umheiminum hvar stuðningurinn liggur.
Erlent Fréttir Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira