Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tímamótakosningar í Úkraínu? Íbúar í Úkraínu ganga að kjörborði í dag til að kjósa sér nýjan forseta. Óttast er að til uppþota geti komið í landinu. Margir ganga svo langt að segja að valið standi á milli þess hvort Úkraína muni í framtíðinni fylgja Rússum eða Vestur-Evrópu að málum. 21.11.2004 00:01
Svíar líða fyrir Tsjernóbyl-slysið Talið er að ríflega áttahundruð manns í norðurhluta Svíþjóðar hafi fengið krabbamein í kjölfar kjarnorkuslyssins í Tsjernóbyl árið 1986. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar um afleiðingar slyssins. Geislavirk ský fóru yfir norðurhluta Evrópu í kjölfar slyssins og merkjanleg aukning varð á krabbameinstilfellum. 21.11.2004 00:01
Kuldamet slegin víða Kuldamet voru slegin víða á Norðausturlandi í nótt. Mestur var kuldinn við Mývatn þar sem frostið mældist 30 gráður klukkan sex í morgun. Frostið fór niður í 27 gráður í Möðrudal á Fjöllum og 24 gráður á Grímsstöðum. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu hefur slíkur kuldi ekki áður mælst í nóvembermánuði á þessum slóðum. 21.11.2004 00:01
Sveitarfélögin færri en hundrað Sameining fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu var samþykkt í gær og sömuleiðis sameining fjögurra sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar. Sveitarfélög í landinu eru þar með orðin færri en hundrað. 21.11.2004 00:01
Dönum fjölgar í Afganistan Fjöldi danskra hermanna í Afganistan mun þrefaldast á næsta ári samkvæmt því sem kemur fram í <em>Politiken</em> í dag. Hermennirnir eiga að sinna mannúðarstörfum og að taka þátt í þjálfun nýs hers Afganistans. Formaður samtakanna „Læknar án landamæra“ hefur áhyggjur af því að hermenn sinni einnig mannúðarstörfum. 21.11.2004 00:01
Fótbrotnaði illa í handbolta Harðdrægur markmaður Vals í fimmta flokki í handbolta og sókndjarfur Stjörnumaður skullu harkalega saman á lokamínútu leiks í gærkvöld með þeim afleiðingum að hinn þrettán ára gamli markvörður fótbrotnaði illa rétt fyrir ofan ökla. Stjörnumaðurinn tognaði á hné. 21.11.2004 00:01
Sneri aftur í veisluna með byssu Danska lögreglan telur að tæplega fimmtugur karlmaður frá fyrrverandi Júgóslavíu hafi drepið samlanda sinn með því að skjóta hann nokkrum skotum í samkomuhúsi á Kaupmannahafnarsvæðinu í gærmorgun. Maðurinn neitar sök en hann gaf sig fram við lögreglu síðdegis í gær. 21.11.2004 00:01
Fagna tillögu viðskiptaráðherra Ungir jafnaðarmenn fagna tillögu viðskiptaráðherra að Ríkisendurskoðun fari yfir fjármál stjórnmálaflokkanna og vilja einnig að sett verði skýr lög um fjárreiður þeirra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hreyfingunni sem send var fjölmiðlum í dag. 21.11.2004 00:01
Sjö manns sagt upp á Vogi Sjö starfsmönnum sjúkrahússins Vogs, sem er þungamiðja starfsemi SÁÁ, verður sagt upp og dregið saman í þjónustu við áfengis- og vímuefnasjúklinga. Ráðgjafavakt og sú bráðaþjónusta sem veitt hefur verið við göngudeild meðferðarstofnunarinnar verður lögð af. Innlögnum verður fækkað úr 2350 í 2100, eða um 10%, en við það mun svigrúm til bráða- og flýtiinnlagna minnka verulega. 21.11.2004 00:01
Af lista hinna vígfúsu ríkja Flokksráðsfundur Vinstri - grænna í Reykjavík um helgina ítrekar kröfu sína um að ríkisstjórnin falli frá stuðningi við stríðsreksturinn í Írak og að Ísland verði tekið af lista hinna vígfúsu ríkja, eins og það er nefnt í ályktuninni. Þá lýsir fundurinn vanþóknun á lagasetningu ríkisstjórnarinnar gegn fullkomlega lögmætu verkfalli grunnskólakennara. 21.11.2004 00:01
80% skuldanna felld niður Rússar hafa samþykkt að fella niður 80 prósent skulda Íraka sem hljóða upp á um það bil 125 milljarða dollara. Þetta er haft eftir bandarískum embættismanni en Bandaríkjamenn leggja mikla áherslu á að skuldirnar verði felldar niður. 21.11.2004 00:01
Fleiri lík finnast Lík þriggja manna sem skotnir höfðu verið í höfuðið fundust á götum Mósúl í Írak í dag. Líklegt er talið að mennirnir séu úr þjóðvarðaliði Íraka en það hefur ekki verið staðfest. Í gær fundust lík níu írakskra þjóðvarðliða á víðavangi í borginni sem einnig höfðu verið drepnir með skoti í höfuðið. 21.11.2004 00:01
Frænda Allawis sleppt? Mannræningjarnir sem rændu frænda Iyads Allawis, forsætisráðherra Íraks, létu hann lausan í dag að sögn arabískrar sjónvarpsstöðvar. Talsmaður íröksku ríkisstjórnarinnar sagðist ekki geta staðfest fréttirnar í samtali við Reuters-fréttastofuna. Frænda forsætisráðherrans var rænt fyrr í mánuðinum. 21.11.2004 00:01
Bílvelta á Reykjanesbraut Bíll valt á Reykjanesbraut skammt frá Álverinu í Straumsvík rétt fyrir klukkan 11 í morgun. Einn var í bílnum og var hann fluttur á slysadeild en ekki var vitað hversu alvarleg meiðslin eru. Nota þurfti klippur til að ná manninum út úr bílnum. Víkurfréttir greina frá. 21.11.2004 00:01
Fjögur morð á sólarhring í Napólí Fjórir menn hafa verið drepnir undafarinn sólarhring í borginni Napólí á Ítalíu. Lögreglan segir morðin að öllum líkindum tengjast innbyrðis átökum í mafíunni þar í borg. 21.11.2004 00:01
Boðað til kosninga í Írak Boðað hefur verið til þingkosninga í Írak þrítugasta janúar á næsta ári þrátt fyrir það upplausnarástand sem ríkir í landinu. Dagsetningin fyrir kosningarnar var kunngerð í dag en fyrirfram höfðu margir haft uppi varnaðarorð og efast um að kosningar geti verið óhlutdrægar við núverandi kringumstæður. 21.11.2004 00:01
Eitt kennileita Belfast sprengt Það mannvirki í Belfastborg á Norður-Írlandi, sem mest hefur borið á, var jafnað við jörðu í dag. Churchill-húsið hefur staðið í miðborg Belfast í fjörutíu ár en yfirvöld ákváðu að landsvæðið væri svo verðmætt að það borgaði sig að sprengja húsið í morgun til að rýma fyrir nýjum byggingum. 21.11.2004 00:01
Frír póstur fyrir lófatölvusíma Tæknifyrirtækið Hot Mobile Mail, sem er starfrækt í Bolungarvík, býður viðskiptavinum sínum ókeypis aðgang að þráðlausum tölvupósti fyrir lófatölvusíma. Tekjur fyrirtækisins koma frá auglýsendum sem auglýsa í póstkerfi þess. Kerfið gagnast hvort tveggja viðskiptavinum OgVodafone og Símans, að því gefnu að þeir séu eigendur lófatölvusíma. 21.11.2004 00:01
Yushchenko líklega sigurvegari Útgönguspár í forsetakosningunum í Úkraínu, sem voru birtar rétt í þessu, benda til þess að Viktor Yushchenko beri sigur úr býtum. Yushchenko boðar breytta tíma í Úkraínu og náin tengsl við Vesturlönd. Stuðningsmenn hans eru að safnast saman í miðborg Kíev því þeir óttast að sigurinn verði hafður af þeim með kosningasvindli. 21.11.2004 00:01
Ótrúleg skammsýni stjórnvalda Það er ótrúleg skammsýni að byggja hagvöxt á því að menga meira, segir náttúrufræðingurinn Hjörleifur Guttormsson. Forsætisráðherra sagði í gær að fyrirhugaðar skattalækkanir byggðust að hluta á Kyoto-bókuninni sem gerði Íslendingum kleift að losa meiri mengun út í andrúmsloftið. 21.11.2004 00:01
Umferðarslys við Hvalfjarðargöng Hvalfjarðargöngin eru lokuð vegna umferðarslyss sem þar varð upp úr klukkan hálf sjö í kvöld. Svo virðist sem ökumaður hafi misst stjórn á bifreið sinni og ekið utan í vegg ganganna. Mikið lið lögreglu og sjúkraliða eru á vettvangi en samkvæmt fyrstu upplýsingum frá lögreglu urðu ekki alvarleg slys á fólki. 21.11.2004 00:01
Vilja opið bókhald flokkanna Ungir jafnaðarmenn fagna tillögu viðskiptaráðherra um að Ríkisendurskoðun fari yfir fjármál stjórnmálaflokkanna. 21.11.2004 00:01
Matvælarannsóknir Háskólinn á Akureyri og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins munu halda sameiginlegan fund um matvælarannsóknir á Norðurlandi þriðjudaginn 23. nóvember. 21.11.2004 00:01
Bráðaþjónusta verður lögð af Vegna mikils hallareksturs á Vogi verður gripið til aðgerða sem spara sjúkrastofnuninni 45 milljónir á ári. Sjö starfsmönnum sagt upp. Innlögnum fækkað. Sjúklingar yngri en 16 ára ekki innritaðir. 21.11.2004 00:01
Lúpínan og rjúpan "Ég held að það sé ekkert hægt að gera til að útrýma lúpínunni - hún er komin til að vera," segir Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands. 21.11.2004 00:01
Hryðjuverkin í Madrid Eduardo Zaplana, fyrrverandi talsmaður ríkisstjórnar Spánar, heldur því fram að hryðjuverkárásunum í Madríd þann 11. mars á þessu ári hafi verið stýrt af erlendum aðila í von um að koma forsætisráðherranum, Jose Maria Aznar, frá völdum. 21.11.2004 00:01
Ghazi Allawi sleppt úr gíslingu Ghazi Allawi, frændi Iyads Allawi, forsætisráðherra Íraks, var látinn laus á sunnudag í Bagdad en hann var tekinn í gíslingu þann 10. nóvember. 21.11.2004 00:01
Þjónustan á Vogi minnkuð Sjö stöðugildi verða lögð niður á Vogi og þjónustu við áfengis- og vímuefnasjúklinga skert í sparnaðarskyni. SÁÁ hefur spennt bogann of hátt miðað við tekjur. Áfram verður staðið við þjónustusamning sem í gildi er milli heilbrigðisráðuneytisins og SÁÁ en önnur þjónusta skorin niður. 21.11.2004 00:01
Friður í suður-Súdan Sameinuðu þjóðirnar munu staðsetja þúsundir hermanna í Suður-Súdan þegar ríkisstjórnin í Khartoum, höfuðborg Súdans, og byltingarhreyfingin í suðrinu hafa skrifað undir friðarsamning. 21.11.2004 00:01
Kindur mótmæla Um það bil 1200 kindur ráfuðu um götur Madrídar í gær, 21. nóvember, til að vekja athygli á kröfu um verndun á árstíðabundnum flutningi búpenings milli beitilanda á láglendi og hálendi, en það er aldagömul hefð á Spáni. 21.11.2004 00:01
Sigurbjörn fluttur í Mosfellsbæinn Sigurbjörn Sævar Grétarsson sem nú bíður dóms fyrir kynferðislega misnotkun á ungum drengjum á Patreksfirði hefur fengið sér raðhús í Mosfellsbæ. Raðhúsið er við hliðina á barnaleikvelli. Uggur er í brjóstum nágranna sem óttast áreiti gegn börnum sínum og barnabörnum. 21.11.2004 00:01
Háð hreinu umhverfi Ný skýrsla um mannlíf á norðurslóðum var kynnt á Nordica hóteli í gær. Samantekt skýrslunnar var eitt af forgangsmálum Íslands í formennsku Norðurskautsráðsins árin 2002 til 2004. 21.11.2004 00:01
Segir gæsluna vanta rekstrarfé Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir Landhelgisgæsluna ekki hafa nægjanlegt fjármagn til rekstrar. Áður en farið verður út í byggingu nýs varðskips segir hann að tryggja verði fjármagn í þann rekstur sem Landhelgisgæslan er með í dag. 21.11.2004 00:01
Einstök efni gegn krabbameini Í íslenskum fléttum og sjávarlífverum er að finna einstök efni gegn sýklum, veirum og krabbameini vegna þess að þær eru svo harðgerðar. Þetta hefur ný íslensk rannsókn leitt í ljós. Næsta skrefið er lyfjaframleiðsla. 21.11.2004 00:01
Mývatnssveitin falleg í frosti Frostið mældist 30 gráður í Mývatnssveit klukkan sex í gærmorgun. Upp úr hádegi hafði hlýnað og frostið var 22 gráður og klukkan fimm síðdegis var það 17 gráður. Fáir voru á ferli í sveitinni í gær en menn skruppu vitanlega í messu og gufubað eins og gengur. </font /></b /> 21.11.2004 00:01
Týndir í Sahara Fimm þýskir ferðamenn fundust heilir á húfi eftir að hafa verið saknað í fjölda daga í Sahara-eyðimörkinni. Ferðalangarnir eiga yfir höfði sér kæru fyrir stuld á fornminjum. 21.11.2004 00:01
Kúrdar drepnir Tyrkneskir hermenn drápu tvo Kúrda sem réðust að herstöð í suðausturhluta Tyrklands í gær. Kúrdarnir skutu úr sjálfvirkum rifflum á hermennina en féllu þegar þeir svöruðu fyrir sig, samkvæmt heimildum hersins. 21.11.2004 00:01
Safn um helförina Safn í Jerúsalem um helförina hefur opnað heimasíðu með aðgangi að lífshlaupi um þriggja milljóna gyðinga sem deyddir voru af nasistum. Gagnasafnið er það yfirgripsmesta sinnar tegundar. 21.11.2004 00:01
Telur gerðardóm betri leið Kennarar líta til gerðardóms og telja niðurstöðu hans ekki geta orðið verri en nýs kjarasamnings. Reyndur samningamaður framhaldsskólakennara segir gerðardóm það versta sem gæti gerst í stöðunni. </font /></b /> 21.11.2004 00:01
Friður með vísindalegri þekkingu Nýjar Sameinaðar þjóðir verða stofnaðar í dag. Þeim er ætlað að koma á varanlegum friði í heiminum. 21.11.2004 00:01
Kusu tengsl við Vesturlönd Útgönguspár seinni umferðar forsetakosninga í Úkraínu sem voru í gær benda til þess að Viktor Júsjenko beri sigur úr býtum. 21.11.2004 00:01
Nauðsyn að huga að nemendunum Heimili og skóli - landssamtök foreldra hvetja kennara og foreldra til að sýna börnum á grunnskólaaldri nærgætni og umhyggju nú þegar þau hafi aftur sest á skólabekk eftir langt verkfall kennara. 21.11.2004 00:01
Ráðherra hlusti á launþega Formaður BSRB segir nær að forsætisráðherra hlusti á kröfur launþega í stað þess að skammast út í þá. Í ræðu sinni á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins í gær boðaði forsætisráðherra verri stöðu í efnahagsmálum, ef allir fengju jafnmiklar launahækkanir og kennarar. 21.11.2004 00:01
Spjallvefur kennara opnaður Spjallþráður kennara á vef Kennarafélags Reykjavíkur hefur legið niðri frá því á mánudag. Hann verður settur upp í dag, segir Ólafur Loftsson, formaður félagsins. 21.11.2004 00:01
Þorskeldi framtíð Vestfjarða Þorskeldi er vel á veg komið hjá fyrirtækinu Þóroddi í Tálknafirði. Því er spáð að eldinu vaxi ásmegin og verði jafnvel undirstaða atvinnulífsins eftir fimmtán ár. Þorskurinn er alinn á loðnu og etur úr lófa gjafara sinna. </font /></b /> 21.11.2004 00:01