Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ný stjórn væntanlega samþykkt Kosið verður um nýja framkvæmdastjórn Evrópusambandsins innan skamms. Jose Manuel Barosso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, neyddist sem kunnugt er til þess að gera breytingar á tillögu sinni að framkvæmdastjórn, einkum vegna Ítalans Rocco Buttiglione, 18.11.2004 00:01
50 störf tapast Fimmtíu störf munu tapast um næstu mánaðamót í Mývatnssveit vegna lokunar Kísiliðjunnar, og allt að þrjátíu önnur eru talin í hættu. Formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur lýsir eftir viðbrögðum stjórnvalda og segir furðu sæta að ekki skuli hafa verið brugðist við þessu nú þegar. 18.11.2004 00:01
Mun reyna á forsendur annarra Sveitarstjórnarmenn segja að kostnaðarauki vegna nýrra samninga við kennara nemi hátt í þrjátíu prósent fyrir sveitarfélögin og formaður Starfsgreinasambandsins segir að þeir muni reyna á samningsforsendur allra á hinum almenna vinnumarkaði, frá A til Ö. 18.11.2004 00:01
Öðruvísi heili Heili þeirra sem neyta kókaíns er öðruvísi en heilinn í öðru fólki. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar lækna í Boston í Bandaríkjunum. Í rannsókninni, þar sem borin var saman gerð og starfsemi heila í þeirra sem neyta kókaíns og samanburðarhóps, kom í ljós að svokölluð heilamandla, var mun minni í kókaínneytendunum. 18.11.2004 00:01
Mest aukning í Bretlandi Notkun þunglyndislyfja meðal barna og unglinga hefur aukist meira í Bretlandi en nokkru öðru landi, samkvæmt nýrri rannsókn. Á árunum 2000 til 2002 jókst notkun þunglyndislyfja og annara lyfja sem hafa áhrif á boðefnabúskap heilans um heil 68% á Bretlandseyjum. 18.11.2004 00:01
Beinni tennur með brjóstamjólk Börn sem fá brjóstamjólk hafa beinni tennur en börn sem fá mjólk úr pela snemma á lífsleiðinni. Þetta er niðurstaða rannsóknar lækna við háskólann í Mílanó á Ítalíu. Þannig er að börnin sem fá mjólkina úr brjósti móður, eru ólíklegri til þess að sjúga á sér þumalputtan og vera langi með snuð, sem hvoru tveggja getur orðið til þess að skekkja tennur barnsins. 18.11.2004 00:01
Framkvæmdastjórnin samþykkt Evrópuþingið hefur lagt blessun sína yfir nýja framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Jose Manuel Barosso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, neyddist sem kunnugt er til þess að gera breytingar á tillögu sinni að framkvæmdastjórn 18.11.2004 00:01
Setur stöðugleikann í hættu Nýir kjarasamningar grunnskólakennara urðu í dag tilefni harðra umræðna á Alþingi. Einar Oddur Kristjánsson Sjálfsstæðisflokki, sem er varaformaður Fjárlaganefndar, fór mikinn í ræðustól og gagnrýndi launanefnd sveitarfélaga. 18.11.2004 00:01
Sérhæfð í málefnum innflytjenda Landsbanki Íslands og Alþjóðahúsið hafa gert með sér samstarfssamning um menntun starfsfólks bankans í málefnum innflytjenda á Íslandi. Tólf starfsmenn úr jafnmörgum útibúum Landsbankans, víðsvegar að af landinu sitja þessa dagana á námskeiði og sérhæfa sig í málefnum innflytjenda. 18.11.2004 00:01
Google fyrir fræðimenn Fyrirtækið Google hefur komið á fót leitarvél fyrir háskólasamfélagið. Leitarvélin, sem nefnist Google Scholar, mun gera fræðimönnum og öðrum fróðleiksfúsum einstaklingum kleyft að leita í ritgerðum, útdráttum og tæknilegum skýrslum, með einfölsum hætti. Þjónustan verður ókeypis fyrst um sinn. 18.11.2004 00:01
Fini nýr utanríkisráðherra Ítala Gianfranco Fini var í dag skipaður utanríkisráðherra Ítalíu, er ljóst var að Franco Fattini myndi hverfa til Brussel og taka þar sæti í nýrri framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sem samþykkt var í dag. Fini hefur í gegnum tíðina verið afar umdeildur, enda er flokkur hans arfleið nýnasistaflokks Ítalíu og hefur Fini meðal annars sagt Mussolini besta stjórnmálamann 20. aldarinnar. 18.11.2004 00:01
Chirac og Blair stilltir Jacques Chirac og Tony Blair sýndu á sér sínar prúðustu hliðar á sameiginlegum blaðamannafundi sem þeir héldu í Bretlandi í dag. Undanfarna daga hefur Chirac látið móðann mása um daprar afleiðingar innrásarinnar í Írak, en á fundinum í dag lögðu leiðtogarnir báðir áherslu á að Írak væri eini stóri ágreiningsvettvangur þjóðanna 18.11.2004 00:01
Dæmdur fyrir umboðssvik Jón Ragnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Lykilhótela, var í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umboðssvik. En hann tók 37 milljóna króna lán í nafni félagsins hjá Framkvæmdasjóði Íslands. 18.11.2004 00:01
Krefst afsökunar vegna auglýsingar Friðbjörn Möller, faðir grunnskólabarna á Akureyri, krefst þess að kennarar við Brekkuskóla biðjist formlega afsökunar á auglýsingu sem þeir settu í Dagskrána, rits sem dreift er í hús. Auglýsingin ber yfirskriftina Andlátsfregn, en í henni er gefið í skyn að með lagasetningu á verkfall kennara hafi skólastefna, ánægðir kennarar og góður skóli beðið bana. 18.11.2004 00:01
600 milljóna tekjuaukning Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður telur að tekjur ríkisins af virðisaukaskatti á eldsneyti hafi aukist um um það bil sexhundruð milljónir vegna ólögmæts samráðs olíufélaganna. Nauðsynlegt sé að framkvæmd verði úttekt á því hvað mikið af því sem hún kallar ránsfeng olíufélaganna rann í ríkissjóð. 18.11.2004 00:01
Flutti inn fíkniefni í vösunum Tæplega fertugur maður hefur verið ákærður fyrir innflutning á tæpu kílói af kókaíni og tæpu kílói af amfetamíni. Hann var handtekinn á Keflavíkurflugvelli þegar hann var að koma hingað til lands í maí. 18.11.2004 00:01
Stakk mann fjórum sinnum Tveir menn, nítján og tuttugu ára, hafa verið ákærðir, annar fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, fyrir framan Broadway í Ármúla í september í fyrra. Annar mannanna stakk þolandann fjórum sinnum með hnífi víðs vegar um líkamann. Aðalmeðferð í málinu var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 18.11.2004 00:01
Verðið var lækkað segir Hjörleifur Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Olíufélagsins, segir það rangt að Esso standi ekki við áður gefin fyrirheit um að láta útsöluverð á bensíni hérlendis fylgja verðþróun í heiminum. Félagið hafi þannig lækkað verð sl. fimmtudag. 18.11.2004 00:01
Mestur hagvöxtur á Íslandi Mestum hagvexti á Norðurlöndunum er spáð á Íslandi næsta ár samkvæmt nýútkominni skýrslu norrænu efnahagsnefndarinnar. Nefndin spáir 5,5 prósenta hagvexti hér á landi á þessu ári og 4,9 prósenta hagvexti árið 2005. Heldur minni hagvexti er spáð á hinum Norðurlöndunum. 18.11.2004 00:01
Ráðinn í forsætisráðuneytið Steingrímur Ólafsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi í forsætisráðuneytinu. Steingrímur nam fjölmiðlafræði við blaðamannaháskólann í Osló og hefur starfað um árabil við blaða- og fréttamennsku. Hann hefur að undanförnu starfað sem kynningarstjóri Fróða. 18.11.2004 00:01
Léttklæddum dvergum stolið Léttklæddum garðdvergum hefur verið stolið úr skemmtigarði í Þýskalandi. Dverganna er sárt saknað en þeir eru helsta aðdráttarafl Dwarf Park Trusetal þar sem gægjuhneigð gesta er fullnægt. Í gegnum skráargöt sést í hold garðdverganna sem þekktir eru fyrir djarfar stellingar. 18.11.2004 00:01
Steingrímur í forsætisráðuneytið Steingrímur Sævarr Ólafsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi í forsætisráðuneytinu. Starfið er nýtt og undir það fellur meðal annars umsjón með heimasíðu ráðuneytisins, upplýsingagjöf af ýmsu tagi og afgreiðsla fyrirspurna og skýrslubeiðna. 18.11.2004 00:01
Nýr árgangur af rauðvínum Frakkar sjá rautt þessi dægrin því fyrstu flöskurnar af nýjum rauðvínsárgangi eru komnar á markað. Það er ævinlega kátt á hjalla þegar Beaujolais Nouveau flöskurnar streyma inn á bari í Frakklandi, þriðja fimmtudag í nóvember, og það sama var uppi á teningunum í morgun. 18.11.2004 00:01
Lítið traust á leiðtogum Tveir af hverjum þremur Íslendingum telja að stjórnmálaleiðtogar láti undan þrýstingi þeirra sem hafa meiri völd en þeir sjálfir og góður meirihluti landsmanna telur að viðskiptaleiðtogar hafi of mikil völd og ábyrgð. Næstum þrír af hverjum tíu telja íslenska viðskiptaleiðtoga óheiðarlega og tveir af hverjum tíu segja það sama um stjórnmálaleiðtoga. 18.11.2004 00:01
Kyoto-sáttmálinn tekur brátt gildi Eftir langa bið og endalaust japl, jamm og fuður stendur nú ekkert í vegi fyrir því að Kyoto-sáttmálinn um hlýnun jarðar taki gildi 16. febrúar næstkomandi. Rússar skrifuðu í morgun undir sáttmálann og því verða þær þjóðir, sem áður höfðu undirritað sáttmálann, skuldbundnar til að hlýta skilmálum hans og að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. 18.11.2004 00:01
Stjórnmálamenn eru óheiðarlegir Stjórnmálamenn eru óheiðarlegir og haga sér ósiðlega. Þeir hafa of mikil völd og ábyrgð og láta aðra valdamikla menn hafa of mikil áhrif á sig. Þetta eru meginniðurstöður alþjóðlegrar könnunar, sem kynnt var í dag. 18.11.2004 00:01
Ónýt eftir nauðhemlun Gríðarlegur hvellur varð til þess að flugmenn á breiðþotu Atlanta-flugfélagsins hættu við flugtak í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, á dögunum. Mikinn reyk lagði frá vélinni þegar flugmennirnir nauðhemluðu og beygðu svo út af flugbrautinni. 18.11.2004 00:01
Samræmdum prófum frestað Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmdum prófum í fjórða og sjöunda bekk verði frestað fram í febrúarbyrjun vegna verkfallsins. 18.11.2004 00:01
BHM harmar lagasetninguna Bandalag háskólamanna harmar að Alþingi hafi bundið enda á verkfall grunnskólakennara með lagasetningu. 18.11.2004 00:01
Uppsagnir á Ólafsfirði Stjórnendur sveitarfélaganna leita ráða dyrum og dyngjum til að mæta 30 prósenta kostnaðarauka sem samningur kennara hefur í för með sér. Víða verður niðurskurður í þjónustu. Á Ólafsfirði verða uppsagnir starfsmanna. </font /></b /> 18.11.2004 00:01
Karl prins vekur reiði Breta Karl prins vakti mikla óánægju í Bretlandi þegar efni minnismiða varð opinbert, þar sem hann fer hörðum orðum um leti, hæfileikaleysi og óeðlilegan metnað landa sinna. 18.11.2004 00:01
Framkvæmdastjórnin loks samþykkt Þingmenn á þingi Evrópusambandsins samþykktu í gær nýja framkvæmdastjórn sambandsins, þremur vikum eftir að andstaða þeirra við upphaflega tillögu að skipan framkvæmdastjórnarinnar varð til þess að hún var dregin til baka. 18.11.2004 00:01
Skutu þrjá egypska hermenn Ísraelskir hermenn skutu þrjá egypska lögreglumenn til bana á landamærum Gaza og Egyptalands í gærmorgun. Ísraelarnir urðu varir við mannaferðir nærri landamærunum og töldu að þar væru á ferð Palestínumenn að smygla vopnum. Þeir skutu því á þá úr skriðdreka. 18.11.2004 00:01
Fá sjúkraskýrslu Arafats Palestínska heimastjórnin fær sjúkraskýrslu Jassers heitins Arafats í sínar hendur þrátt fyrir að frönsk lög heimili einungis að nánir ættingjar hans hafi aðgang að þeim. Ástæðan er sú að frændi Arafats, Nasser al-Qidwa, sem er fulltrúi Palestínu hjá Sameinuðu þjóðunum, á rétt á að fá gögnin og ætlar að afhenda Palestínustjórn þau. 18.11.2004 00:01
Afganistan að verða fíkniefnaríki Afganistan er komið langt á leið með að verða fíkniefnaríki og til marks um það er að ópíumframleiðsla hefur aukist um nær tvo þriðju á einu ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Þar er hvatt til þess að hersveitir Atlantshafsbandalagsins í Afganistan ráðist gegn fíkniefnaframleiðslu. 18.11.2004 00:01
Óvíða meiri lífsgæði en hérlendis Ísland er sjöunda besta land í heimi til að búa í samkvæmt úttekt breska tímaritsins The Economist á lífsgæðum í 111 ríkjum. Best er að búa á Írlandi en verst eru lífsgæðin í Simbabve samkvæmt könnuninni sem unnin er fyrir "World in 2005", árlegt rit sem The Economist gefur út. 18.11.2004 00:01
Ráðherra sagður sniðganga þing Kolbrún Halldórsdóttir, vinstri-grænum gagnrýndi menntamálaráðherra harkalega á Alþingi í gær fyrir að hafa átt hlut að stofnun Íþróttaakademíu í Reykjanesbæ án þess að hafa svo mikið sem kynnt málið á þingi 18.11.2004 00:01
Á annan tug létust Í það minnsta sautján Írakar létust í gær vegna ofbeldisöldunnar sem riðið hefur yfir landið frá því að bandarískar og íraskar hersveitir réðust til atlögu í Falluja fyrir tæpum tveimur vikum. Sjö létust í sprengjuárásum á þjóðvegum nærri Samarra og Baiji. 18.11.2004 00:01
Varaformaður veldur írafári Sjálfstæðismaðurinn Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar, olli talsverðu írafári á Alþingi í gær þegar hann lýsti því yfir að nýundirritaðir samningar kennarasambandsins og sveitarfélaganna væru skelfilegir, eins og hann orðaði það. 18.11.2004 00:01
Óveður hamlar samgöngum í Danmörku Loka þurfti brúnni yfir Stóra belti næturlangt vegna óveðurs sem gekk yfir Danmörku í fyrrinótt. Vindurinn reif upp tré og feykti þökum af húsum auk þess sem sjávarborð hækkaði um allt að fjóra metra í mörgum höfnum á vesturströnd Danmerkur. 18.11.2004 00:01
Íranar þróa kjarnorkueldflaugar Bandarísk stjórnvöld hafa undir höndum gögn sem gefa til kynna að Íranar vinni að þróun eldflauga sem geta flutt kjarnorkusprengjur til skotmarka sinna, sagði Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann sagðist í engum vafa um að Íranar hefðu áhuga á að koma sér upp kjarnorkuvopnum og eldflaugum sem gætu flutt þau. 18.11.2004 00:01
Skildi við mömmu sína Sautján ára stúlka hefur fengið lögskilnað frá móður sinni. Lögskilnaðinn fékk hún á grundvelli nýrra laga sem gefa börnum að segja skilið við foreldra sína ef þeim er ómögulegt að búa saman. 18.11.2004 00:01
Skelfileg mistök? Sveitarstjórnarmenn hafa gert skelfileg mistök með samningum sínum við kennara, segir Einar Oddur Kristjánsson varaformaður fjárlaganefndar Alþingis. Ríkisstjórnin hafi verið búin að draga þá í land með því að setja deiluna í gerðardóm en þeir hafi sjálfviljugir kosið að fara sér að voða. 18.11.2004 00:01
Kosið um sameiningu á morgun Kosið verður um sameiningu hreppanna sunnan Skarðsheiðar á morgun. Það verður í fyrsta sinn sem íbúum sveitarfélaganna gefst kostur á að kjósa um sameininguna en sameiningarviðræður hafa verið uppi á borðinu í um það bil fimmtán ár. 18.11.2004 00:01
Hafnir við Faxaflóa sameinaðar Fjórar hafnir á Faxaflóasvæðinu hafa verið sameinaðar í einu sameignarfélagi, Faxaflóahafnir. Samningur um þetta var undirritaður í gær. 18.11.2004 00:01