Fleiri fréttir

Fréttamenn gefa kennurum pening

Félag fréttamanna hefur gefið 220 þúsund krónur í verkfallssjóð kennara. Frá þessu er greint á heimasíðu Kennarasambandsins. Segir þar að borist hafi bréf frá Karli Eskil Pálssyni gjaldkera Félags fréttamanna þar sem tilkynnt er um styrkinn. Í félagi fréttamanna eru fréttamenn sem starfa hjá Ríkisútvarpinu, útvarpi og sjónvarpi.

Skipulagði gamla hafnarsvæðið

Þresti Þórssyni hugnuðust ekki hugmyndir hins opinbera um skipulag hafnarsvæðisins í miðborginni og tók til sinna ráða. </font /></b />

Í heljargreipum heróínsins

Bókin Eftirmál eftir feðgana Frey Njarðarson og Njörð P. Njarðvík kemur út í dag. Í henni er sagt frá hrikalegu lífi Freys í viðjum heróínfíknar en hún hefur fylgt honum um undirheima Kaupmannahafnar og Amsterdam. </font /></b />

Gáfu skotum egg heiðargæsarinnar

Forseti Alþingis, Halldór Blöndal, afhenti forseta skoska þingsins, George Reid, nýlega gjöf frá Alþingi í tilefni af opnun nýs skosks þinghúss, sem tekið var í notkun við hátíðlega athöfn í Edinborg 9. októktóber. Gjöfin er egg heiðargæsarinnar, mótað úr graníti sem hvílir á hraunhellu frá Þingvöllum.

Minnst átta létust í flugslysi

Að minnsta kosti átta létust þegar lítil flugvél nauðlenti nálægt Missouri í morgun. Þá er fimm þeirra fimtán sem í vélinni voru saknað, en tveir komust lífs af. Ekki er vitað hver orsök slyssins er, en líklegt er talið að vont veður hafi orðið þess valdandi að flugstjórinn hafi misst stjórn á vélinni.

Lán verði 90% af matsverði

Félagsmálaráðherra lagði fram á Alþingi í dag stjórnarfrumvarp um að húsnæðislán frá Íbúðalánasjóði geti numið allt að 90 prósentum af matsverði íbúðar. Gert er ráð fyrir að breytingin taki gildi um næstu áramót. Hámarkslánshlutfall hefur fram til þessa verið 65%, eða 70% ef um er að ræða fyrstu íbúðakaup lántaka.

Minnst 15 látnir

Minnst 15 hafa látist og nokurra er saknað eftir mikinn fellibyl sem gekk yfir suðvesturströnd Japan í morgun. Þá hafa 30 manns slasast í bylnum, sem farið hefur vel yfir 40 metra á sekúndu. Óttast er að bylurinn gangi yfir Tokyo síðar í dag. Á ákveðnum stöðum í suðurhluta Japans liggur öll starfsemi niðri vegna fellibylsins.

Mikill mannfjöldi í kröfugöngu

Mikill mannfjöldi er nú saman kominn í miðbæ reykjavíkur. Þúsundir manna fylla Ingólfstorg, Austurstræti, Bankastræti og uppá laugaveg. Kennarasambandið stendur fyrir kröfugöngu og útifundi á Ingólfstorgi sem nú stendur yfir en nákvæmlega mánuður er liðinn frá því yfirstandandi verkfall félagsmanna í félagi grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands hófst.

Margir með illlæknanleg sár

Þeir sem þjást af slæmum langvarandi sárum eru þögull hópur. En nú er komið að stofnun samtaka.

Bill mætir til leiks

Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, mun líklega þátt í kosningafundi fyrir John Kerry, forsetaframbjóðanda Demókrata, í Philadelphiu í næstu viku. Ekki er ljóst hvort Kerry sjálfur verður á fundinum, en Clinton hefur ákveðið að heiðra viðstadda með nærveru sinni.

Hvað á hann að heita?

Enn er óvíst hvað nýr sameinaður skóli Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands mun heita enda barnið svo að segja ný fætt. Þeir sem unnu að sameiningunni létu það ógert að velta nafnamálum fyrir sér og ætla nýrri stjórn hins sameinaða skóla að sjá um málið.

Um 260 milljóna heimildir ónýttar

Hátt í þriðja hundrað milljónir vantaði upp á að Tryggingastofnun fullnýtti heimildir sínar til niðurgreiðslu á tannlæknakostnaði á síðustu þremur árum. Tannlæknir telur, að fjárhæðina hefði átt að nota til að hækka gjaldskrá heilbrigðisráðherra. </font /></b />

Tannheilsa rannsökuð

Innan skamms verður hrundið af stað stórri rannsókn á stöðu tannheilsu barna. Er þetta gert til að bæta úr þeim skorti á nýjum upplýsingar um þennan heilsuþátt að sögn Gunnars Leifssonar tannlæknis.

Misnotaði Oppfeldt fleiri drengi?

Grunur leikur á að Flemming Oppfeldt, þingmaður Venstre í Danmörku, sem var handtekinn í gær og sakaður um að hafa beitt þrettán ára dreng kynferðisofbeldi, hafi níðst á fleiri drengjum. Danska lögreglan kannar vísbendingar um að Oppfeldt hafi ítrekað boðið ungum drengjum borgun fyrir kynmök.

Bannar skopparabuxur

Enginn er unglingur meðal unglinga nema hann klæðist svokölluðum skopparabuxum sem hanga varla uppi á mjöðmunum þannig að það skín í bæði nafla og nærbuxur. Ítalskur skólastjóri hefur nú fengið nóg af þessari tísku og bannar nemendum sínum að koma svona klæddum í skólann.

Kosningunum mótmælt

Átök brutust út í Minsk, höfuðstað Hvíta Rússlands í nótt, þegar andstæðingar Lukashenkos, forseta landsins, komu saman til að mótmæla því að hann hefur verið kosinn forseti ævilangt. Eftirlitsmenn segja að kosningasvindl hafi verið víðtækt í kosningunum sem fram fóru á sunnudaginn.

Danskur þingmaður í gæsluvarðhald

Danskur þingmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir kynferðislega misnotkun á þrettán ára dreng. Þingmaðurinn er talinn hafa reynt margoft að tæla til sín unga drengi gegn borgun. </font /></b />

Beittu ofbeldi, brutu og brömluðu

Þrír menn réðust inn á ritstjórn DV í dag og gengu í skrokk á fréttastjóra blaðsins. Þeir unnu einnig skemmdarverk á skrifstofunni áður en þeir hurfu á braut. Lögregla telur sig vita hvaða menn voru að verki og leitar þeirra. Laust eftir klukkan eitt í dag ruddust mennirnir inn á ritstjórn DV.

Rúmur helmingur tekna í fræðslu

Rúmur helmingur tekna íslenskra sveitarfélaga var notaður til fræðslu- og uppeldismála í fyrra. Tvö sveitarfélög vörðu rúmlega 90 prósentum tekna sinna til þessa málaflokka. Samtals vörðu sveitarfélögin tæplega 48 milljörðum króna til fræðslu og uppeldismála í fyrra. Það eru 51,1% tekna þeirra.

Kjarabarátta sem þarf að heyja

"Ég ætla að vona að kennararnir standi sig enda er þetta kjarabarátta sem þarf að heyja. Það lifir enginn á 150 þúsundkallinum nú á dögum," segir Birgir Hólm Björgvinsson, sjómaður, spurður um hvað honum finnist um verkfall kennara.

Segja styrk ekki stuðning

Félag fréttamanna á Ríkisútvarpinu og Ríkissjónvarpinu hefur afthent verkfallssjóði Kennarasambands Íslands styrk að upphæð 220 þúsund krónur. Jón Gunnar Grjetarsson, formaður félagsins vísar því á bug að með þessu séu fréttamenn ríkisfjölmiðlanna orðnir vanhæfir til að fjalla um kennaradeiluna.

Farþegarnir bera ábyrgðina sjálfir

Það er mjög slæmt mál og algjörlega óviðunandi að einungis tveir af fjörutíu sem voru í rútunni sem valt á veginum undir Akrafjalli í fyrradag skuli hafa verið spenntir í bílbelti. Þetta segir Sigurður Helgason, verkefnastjóri hjá Umferðarstofu.

Karlar varist beinþynningu

Á síðasta áratug hafa komið fram vísbendingar um að beinþynning sé ekki síður fylgifiskur öldrunar hjá körlum en konum. Vegna þessa var yfirskrift Alþjóðlega beinverndardagsins í gær "Karlar og beinþynning".

Uppgreiðslugjald leyfilegt

Valgerður Sverrisdóttir, viðskipta- og iðnaðarráðherra segir uppgreiðslugjald ekki bannað í íslenskum neytendalögum og sama gildi um löggjöf í nágrannalöndunum. Ákvæði um þetta mætti að hluta rekja til tilskipana Evrópusambandsins.

Þörf á hugarfarsbreytingu

Báðir þeir sem voru í beltum þegar rútan fór út af veginum undir Akrafjalli í fyrradag og endaði á hvolfi sluppu ómeiddir. Sigurður Guðmundsson landlæknir segir þetta sýna hversu brýnt það sé að fólk fari eftir reglum og spenni beltin.

Láta ekki hótanir stoppa sig

Ritsjórar DV ætla ekki að láta af umfjöllun sinni um handrukkara og aðra glæpamenn, þrátt fyrir árásir og hótanir frá þrem mönnum fyrr í dag. Ritstjórarnir segjast ekki vita hvað mönnunum hafi gengið til, en umfjöllun blaðsins um handrukkara og glæpamenn muni halda áfram hvað sem öllum hótunum líður.

Stutt við skógrækt

Jón Loftsson skógræktarstjóri og Sigurður E. Ragnarsson, framkvæmdastjóri byggingasviðs BYKO, hafa skrifað undir samning um fjárstuðning BYKO við viðarnýtingarnefnd skógræktargeirans.

ME heldur upp á 25 ára afmæli

Menntaskólinn á Egilsstöðum heldur um þessar mundir upp á 25 ára afmæli sitt. Formleg hátíðarhöld verða á laugardaginn og lýkur þeim með dansleik um kvöldið.

Ein mínúta um lýðræði og ungt fólk

Tuttugu ungmenni frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi eru samankomin í Reykjavík til þess að vinna að framleiðslu einnar-mínútu myndbanda um lýðræði og þátttöku ungs fólks í samfélaginu.

Benni gefur skátunum 400 þúsund

Bílabúð Benna hefur ákveðið að styrkja skátahreyfinguna um 400 þúsund krónur og renna peningarnir í útilífsmiðstöð skáta að Úlfljótsvatni.

Embættismenn firra sig ábyrgð

Það er ekki rétt að kalla það mistök þegar Gullhamrar ehf., eigendur verslunarhúsnæðisins við Þjóðhildarstíg í Grafarholti, fengu verslunarleyfi að sögn Salvarar Jónsdóttur, sviðsstjóra skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur. Nóatún leigir nú húsnæðið og rekur verslun á staðnum.

Fjármálaeftirlitið beiti sektum

Valgerður Sverrisdóttir, viðskiptaráðherra segir koma til greina að Fjármálaeftirlitið fái heimild til að beita stjórnvaldssektum.

Íkveikjur þrefaldast milli ára

Það sem af er ári hafa komið þrisvar sinnum fleiri íkveikjur inn á borð lögreglu en allt árið í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá tölfræðideild Ríkislögreglustjóra er þá átt við mál þar sem vísvitandi er kveikt í eigum, en ekki talin með tilvik þar sem kveikt er í rusli á sorphaugum eða við vinnustaði.

Sauðkrækingar þéna mest

Meðallaun íbúa Sauðárkróks eru umtalsvert hærri en laun annarra íbúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Atvinnuþróunarfélags Norðurlands vestra. Skýrslan er unnin fyrir atvinnu og ferðamálanefnd sveitarfélagsins.

Samgöngubót fyrir vestan

Í nóvemberlok á að taka í notkun nýja 230 metra langa brú yfir Kolgrafafjörð á Snæfellsnesvegi, skammt austan Grundarfjarðar. Hingað til hafa þeir sem farið hafa um Snæfellsnes norðanmegin þurft að aka fjörðinn, en leiðin styttist nú um 7,3 kílómetra.

Skutu í gegnum bíl

Sprengingar og byssuskot kváðu við á öryggisnámskeiði sem Rauði kross Íslands hélt um helgina fyrir sendifulltrúa sína.

Kokkar heimsóttu leikskóla

Matreiðslumenn heimsóttu í gær 30 leikskóla í Reykjavík með það fyrir augum að kynna hollan mat og gott mataræði. Heimsóknirnar voru í tilefni af alþjóðlega kokkadeginum sem haldinn var hátíðlegur í fyrsta sinn í gær.

Netumferð tryggari á eftir

Netumferð innanlands á ekki að truflast þó svo að samband falli niður við umheiminn eftir að settur var upp speglunarpunktur fyrir einn af rótarnafnaþjónum netsins við skiptipunkt íslenskrar netumferðar (RIX - Reykjavík Internet Exchange) í Tæknigarði við Dunhaga í Reykjavík síðasta fimmtudag.

Brottfall á undanhaldi

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra sagði á Alþingi í gær að brottfall úr framhaldsskólum væri "á undanhaldi". Þetta kom fram í svari ráðherranns við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, Samfylkingunni.

Segist ekki mega spyrja um Skjá 1

Geir H. Haarde, fjármálaráðherra neitaði í gær á Alþingi að svara spurningu Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar um kostnað Símans á helmingshlut í Skjá 1. Sagðist fjármálaráðherra sem fer með 99% hlut ríkisins i Símanum ekki hafa rétt til þess umfram aðra eigendur að afla slíkra upplýsinga

Hvetja hjálparstofnanir til dáða

Íröksk yfirvöld hvetja hjálparstofnanir til að gefast ekki upp og hætta starfsemi í landinu þrátt fyrir ítrekuð mannrán og sprengjuárásir. Öfgahópur rændi yfirmanni alþjóðlegu hjálparstofnunarinnar Care International í Bagdad gær.

17 prósenta kynbundinn launamunur

Launamunur kynjanna er sá sami hjá ríki og bæ og viðgengst á almennum vinnumarkaði. Ný rannsókn HASLA sýnir að fólk telur launaleynd skaðlega, en hún viðgengst í auknum mæli. Margir stunda símenntun sem þó hækkar ekki laun. Karlar eru með 17 prósent hærri heildarlaun á mánuði en konur.

Kennarar í kröfugöngu

Grunnskólakennarar og stuðningsmenn þeirra fjölmenntu í kröfugöngu í miðborg Reykjavíkur í dag, nú þegar verkfall hefur staðið yfir í heilan mánuð.

Hjálparstarfsmenn í hættu

Breskum starfsmanni hjálparstofnunarinnar CARE var rænt í Írak í vikunni. Mannránið vekur upp spurningar um öryggi fulltrúa hjálparsamtaka.

Sjá næstu 50 fréttir