Fleiri fréttir

Sprenging fyrir utan lögreglustöð

Að minnsta kosti fimm létust og tuttugu og einn særðist þegar bílsprengja sprakk fyrir utan lögreglustöð suður af Bagdad í Írak í morgun. Uppreisnarmenn skutu einnig eldflaugasprengju að brú í Bagdad. Þá börðust bandarískir hermenn og írakskar öryggissveitir við skæruliða úr röðum írakska klerksins Moqtada al-Sadr í borginni Najaf í nótt.

Dauðarefsing tekin upp í Indónesíu

Dauðarefsing hefur verið framkvæmd í fyrsta sinn í Indónesíu eftir þriggja ára hlé. Indverskur maður, sem var dæmdur til dauða árið 1995 fyrir eiturlyfjasmygl, var tekinn af lífi í gærkvöldi. Sveit lögreglumanna skaut manninn til bana.

Gosdrykkur gegn Sharon

Gosdrykkurinn Mecca-Cola er kominn í verslanir í Palestínu. Hagnaður af sölu drykkjarins, sem er nefndur eftir borginni Mecca, helgasta stað múslima, rennur til velferðarmála Palestínumanna og er þannig beint gegn ísraelsku ríkisstjórninni. Mecca-Cola kom reyndar fyrst á markað í Frakklandi fyrir tveimur árum.

Gistinóttum fjölgaði um 11%

Gistinóttum fjölgaði um 11% í júní samkvæmt tölum Hagstofunnar og fjölgaði þeim í öllum landshlutum nema á Austurlandi. Gistinætur í mánuðinum voru tæplega 112 þúsund. Aukningin var mest á Suðurlandi, eða 18%, og á Norðurlandi var hún 14%.

7 unglingar látast í bruna

Sjö unglingar á aldrinum þrettán til fimmtán ára létust í miklum bruna í hesthúsi í Savoie-héraði í Austur-Frakklandi í nótt. Ekki er vitað um afdrif tveggja fullorðinna sem talið er að hafi verið í húsinu og einn er alvarlega slasaður en hann mun hafa komist undan. Fjöldi slökkviliðsmanna barðist við eldinn fram undir morgun en eldsupptök eru óljós.

Bandarísk þyrla skotin niður

Bandarísk þyrla var skotin niður af uppreisnarmönnum í borginni Najaf í Írak í morgun. Þrír hermenn í þyrlunni særðust og voru þeir fluttir í burtu.

Sleppa líklega um 6000 löxum

Búast má við að laxveiðimenn sleppi aftur um það bil 6.000 löxum sem þeir veiða í sumar ef sleppihlutfallið verður álíka og í fyrra. Þá var tæplega sextán prósentum veiðinnar sleppt aftur eða rösklega 5.300 löxum. Ef hlutfallið verður það sama í ár verður talan hærri því heildarveiðin er talsvert meiri í ár en í fyrra.

Varnarliðið greiðir launahækkanir

Starfsmannahald varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hefur fengið heimild til að greiða starfsfólki sínu launahækkanir sem voru innifaldar í kjarasamningum frá árinu 2000 samkvæmt heimildum Víkurfrétta. Þar verða greiddar upp hækkanir frá marsmánuði og launaskrið frá nóvember síðastliðnum.

Bílabrennuvargurinn ófundinn

Brennuvargur sem kveikti í fjórum bílum í Vesturbænum í fyrrinótt er enn ófundinn. Finnist hann ekki er hætt við því að einhverjir bílaeigendanna verði fyrir verulegu fjárhagslegu tjóni.

Hjónin enn í lífshættu

Líðan hjóna á sjötugsaldri sem slösuðust í hörðum árekstri á Suðurlandsvegi á mánudaginn er enn óbreytt. Þau liggja þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítala-háskólasjúkrahúss og eru enn í lífshættu. Þeim er báðum haldið sofandi og í öndunarvél.

Hryðjuverkárás á Heathrow í bígerð

Hryðjuverkamenn ætluðu að gera árás á Heathrow-flugvöll við London samkvæmt upplýsingum frá pakistönsku leyniþjónustunni. Nýjar upplýsingar gefa einnig til kynna að Al-Kaída ætli að gera árásir á flutningaskip.

Vinna við Kárahnjúka stöðvast

Vinna við undirstöðu Kárahnjúkastíflu hefur legið niðri síðan í gærkvöldi þar sem vatn hefur lekið í gegnum varnargarð og inn á vinnusvæðið. Þar er nú dælt af svæðinu með öflugum dælum en ekki munu hafa orðið skemmdir á þeim mannvirkjum sem þegar eru komin þrátt fyrir að vatnið hafi orðið allt að þriggja metra djúpt í nótt.

Mótmæli við argentíska þingið

Mikill viðbúnaður var í höfuðborg Argentínu, Búenos Aíres, þegar fimm þúsund atvinnulausir Argentínumenn söfnuðust saman fyrir utan þing landsins í morgun og kröfðust umbóta á velferðakerfinu. Hópurinn mótmælti einnig nýjum öryggisreglum sem forseti landsins, Nestor Kirchner, reynir nú að koma í gegnum þingið.

Nýnemum án stúdentsprófs fækkar

Rektor Háskólans á Akureyri segir að skólanum hafi verið gert skylt að fækka nýnemum sem fá inngöngu í skólann án stúdentsprófs. Á árunum 2002 og 2003 voru 36% nýnema metnir inn á grundvelli þroska og þekkingar en líklega verður þetta hlutfall undir 20% í haust.

Enn barist í Najaf

Enn er barist að hluta til á götum borgarinnar Najaf í Írak en að sögn talsmanna bandaríska hersins hefur þeim tekist að einangra uppreisnarmennina og halda þeim í skefjum. Vígamenn gerðu árás á lögreglustöð í borginni í gærkvöldi og í kjölfarið brutust út átök milli lögreglunnar og uppreisnarmanna.

Skjár einn til Bolungarvíkur?

Bolvíkingar ætla að efna til samskota í bænum til að fjármagna uppsetningu á búnaði sem gerir þeim kleift að fylgjast með útsendingum sjónvarpsstöðvarinnar Skjás eins. Forsvarsmenn Skjás eins buðust nýverið til þess að setja upp sendi á Bolungarvík ef heimamenn kostuðu hann til hálfs á móti stöðinni að því er fram kemur á fréttavefnum vikari.is.

2,5 milljarða halli sveitarfélaga

Sveitarfélögin í landinu voru rekin með rúmlega tveggja og hálfs milljarðs króna halla í fyrra eftir 700 milljóna króna hagnað árið áður samkvæmt upplýsingum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Handbært fé frá rekstri, eða það fjármagn sem sveitarfélögin hafa til ráðstöfunar í fjárfestingar, lækkar úr 5,7 milljörðum árið 2002 í 4,3 milljarða í fyrra.

Samfylkingin mótmælir takmörkunum

Þingflokkur Samfylkingarinnar lýsir eindreginni andstöðu við þær fjöldatakmarkanir sem eru nú teknar upp í Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri og telur að þær vinni beint gegn þeim markmiðum að hækka menntunarstig þjóðarinnar. Nú sé fólki vísað frá frekari menntun, þeim og þjóðinni til skaða.

Nýtt met í jarðgangagerð

Verktakar við gerð jarðganga undir Almannaskarð, skammt frá Höfn í Hornafirði, hafa sett glæsilegt Íslandsmet í gerð tvíbreiðra vegganga að því fram kemur á fréttavef Hornafirðinga. Fyrra metið átti Ístak, í Hvalfjarðargöngum og í Fáskrúðsfjarðargöngum, og Impreglio í aðgöngum Kárahnjúkavirkjunar, um það bil 80 metrar á viku.

Chicciolina borgarstjóri Mílanó?

Ítalska klámmyndadrottningin Chicciolina, sem reyndar er ungversk að uppruna, vill verða borgarstjóri í Mílanó þegar kosið verður til þess embættis eftir tæp tvö ár. Chicciolina varð heimsfræg þegar hún sat á ítalska þinginu í nokkur ár fyrir Róttæka flokkinn.

Sameining á Austurlandi

Sameining Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs var í gærkvöldi formlega ákveðin og undirrituðu oddvitar sveitarfélaganna beiðni um formlega staðfestingu félagsmálaráðuneytisins. Stefnt er að kosningum til nýrrar sveitarstjórnar 16. október næstkomandi og að sameiningin taki gildi 1. nóvember.

Áfengisþorsti Finna hjálpar Eistum

Þyrstir Finnar ferðast í það miklum mæli yfir til nágranna sinna í Eistlandi til áfengiskaupa að efnahagur Sovétríkisins fyrrverandi hefur batnað umtalsvert að sögn eistneska fjármálaráðuneytisins. Finnar hafa gert þetta í fjölda ára þar sem áfengið er miklu ódýrara í Eistlandi en takmörk hafa verið fyrir því mikið áfengi frændur vorir mega kaupa.

Vatnsborðið nálgast burðarbitana

Vatnsborðið í Jökulsá á Dal er nú að nálgast burðarbitana undir brúnni og er fastlega búist við að áin flæði aftur yfir brúna eins og í gærkvöldi. Við það laskaðist brúin talsvert og skekktist og hefur verið unnið að því í dag að styrkja hana og lagfæra skemmdir frá í gærkvöldi.

Lögreglumenn fá byssur að nýju

Ísraelska varnarmálaráðuneytið hefur samþykkt að leyfa palestínskum lögreglumönnum að bera byssur að nýju til að stuðla að auknum friði fyrir botni Miðjarðarhafs.

Davíð útskrifaður af gjörgæslu

Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild og er líðan hans sögð góð. Að missa skjaldkirtilinn hefur lítil áhrif á líf fólks, segir sérfræðingur í efnaskiptum.

Kom ekki í endurskoðun í vor

Eigandi vörubílsins sem gjöreyðilagðist þegar hann fór fram af einbreiðri brú yfir Laxá í Laxárdal fékk mánaðarfrest til að láta gera við hemlunarbúnað eftir aðalskoðun. Það var í apríl en þegar slysið varð hafði ekki enn verið komið með bílinn í endurskoðun. 

Kerry ekki stríðshetja?

Hópur hermanna úr Víetnam-stríðinu hefur keypt auglýsingapláss í fjölmiðlum til að koma höggi á John Kerry, forsetaframbjóðanda úr flokki Demókrata. Hermennirnir segja Kerry ljúga um hetjudáð sína í Víetnam-stríðinu.

Námuslys í Rússlandi

Þremur námuverkamönnum var bjargað úr kolanámu í borginni Vorkuta í Norður-Rússlandi eftir sólarhringsveru í námunni. Náman féll skyndilega saman í gær og var lengi vel talið að allir mennirnir hefðu farist. Einn maður lést og þriggja er enn saknað.

Síamstvíburar aðskildir

Tveggja ára gamlir síamstvíburar frá Indónesíu voru aðskildir á sjúkrahúsi á Filippseyjum í dag. Að sögn lækna heilsast tvíburunum vel en þeir voru undir skurðarhnífnum í ríflega sautján klukkustundir.

Vandi færður milli borgarhluta

Ákvörðun Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur um að fjarlægja aðra færanlega kennslustofu af tveimur sem Brosbær, frístundaheimili Engjaskóla, hefur til umráða, raskar starfsemi leikjanámskeiða sem nú fara fram á staðnum.

Hverfandi áhrif vegna háspennulína

Umhverfisnefnd Austur-Héraðs berst á næstunni svar frá Landsvirkjun varðandi athugasemdir Sigurðar Arnarsonar, bónda á Eyrarteigi í Skriðdal, vegna deiliskipulags við bæinn þar sem Fljótsdalslínur 3 og 4 liggja. Sigurður segir nálægð við línustæðið gera hús hans óíbúðarhæft og verðlaust.

Unnið í kapp við tímann

Miklir vatnavextir eru í Jökulsá á Dal, þriðja daginn í röð, og þeir mestu hingað til. Flæðir nú vel yfir brúna. Unnið er í kapp við tímann að hækka varnarstíflu við vinnusvæðið en vinna lagðist niður eftir að vatn lak í gegnum stífluna. Nokkrar skemmdir urðu í gærkvöldi á brúnni. Búast má við flóðum næstu daga.

Cartier-Bresson látinn

Franski ljósmyndarinn Henri Cartier-Bresson er látinn, 95 ára að aldri. Bresson er þekktur fyrir götuljósmyndir sínar en hann var einn af fyrstu ljósmyndurum í heiminum sem gerðu daglegt líf að viðfangsefni sínu og var frumkvöðull á sviði fréttaljósmynda.

Afskipti stjórnvalda auka vandann

Kjarasamningar milli útvegsmanna og sjómanna taka ekki mið af aukinni afkastagetu og tækninýjungum nýrra fiskiskipa, segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna.

Athugasemdir gerðar við hemlabúnað

Flutningabíllinn, sem ekið var út af brúnni í Laxá í Laxárdal á þriðjudaginn, stóðst ekki skoðun í apríl vegna athugasemda sem meðal annars voru gerðar við aksturshemla og stýrisbúnað, að sögn Jóns Hjalta Ásmundssonar, tæknistjóra ökutækjasviðs Frumherja.

Afstýri deilum við stjórnarkjör

Nýjar reglur hafa verið settar um inntöku nýrra félaga í Sjálfstæðisflokkinn eftir að hluti Heimdellinga kærði meðferð stjórnar á inntökubeiðnum nýrra félaga í aðdraganda aðalfundar og kosninga í stjórn félagsins í fyrra. </font />

Árás á Heathrow undirbúin

Hryðjuverkamenn ætluðu að gera árás á Heathrow-flugvöll við London samkvæmt upplýsingum frá pakistönsku leyniþjónustunni. Nýjar upplýsingar gefa einnig til kynna að Al-Kaída hafi uppi áform um að gera árásir á flutningaskip.

Haglél seinkar Sumarferðum

Seinkun varð á flugi ferðaskrifstofunnar Sumarferða til og frá Alicante á Spáni vegna hagléls á Spáni. Flugvélin sem átti að flytja farþega á milli Spánar og Íslands fékk á sig haglél í fyrradag þannig að lakk á nefi flugvélarinnar flagnaði af. 212 farþegar áttu að fara með sömu vél til Spánar í hádeginu í gær.

Vörubíll varð alelda

Vörubíll varð alelda á Snæfellsnesvegi vestan við Stykkishólm um miðjan dag í gær. Tveir menn voru í bílnum. Þeir drápu á vél bílsins og forðuðu sér út þegar þeir urðu varir við reyk í húsi bílsins. Þar biðu þeir eftir hjálp.

Kveikti í tveimur húsum

Húsráðendur á Vopnafirði sáu að kveikt hafði verið í gardínum í svefnherberginu þegar þeir komu heim úr ferðalagi í fyrrakvöld.

Stefnir í stórslys við Geysi

"Það stefnir í stórslys við Geysi ef ekki verða settar upp nákvæmar merkingar á svæðinu," sagði Harpa Harðar leiðsögumaður og starfsmaður í Goethestofnuninni í Reykjavík. Hún kveðst hafa orðið vitni að því að fólk hafi beinlínis sett sig í lífshættu við að standa of nærri Geysi í Haukadal, sem hafi þá gosið, öllum að óvörum.

Óttaðist um líf sonar síns daglega

Sólbjörg Linda Reynisdóttir, móðir fjögurra ára drengs með bráðaofnæmi fyrir jarðhnetum, óttaðist á hverjum degi í tvö ár um líf sonar síns, Arnþórs Birkis Sigurðssonar. Hún telur vítamíndropa hafa vakið ofnæmið en segist heldur vera farin að slaka á núna.

Tekið fastar á aukaefnunum

Í endurskoðaðri reglugerð um merkingar á matvælum með tilliti til hugsanlegra ofnæmisvalda verður tekið fastar á merkingu aukaefna heldur en í gildandi reglugerð, að sögn Helgu Bjarnadóttur, staðgengils forstöðumanns matvælasviðs Umhverfis- og heilbrigðisstofu. Endurskoðun reglugerðarinnar er þegar hafin.

Arafat hylltur í Ramallah

Hundruð stuðningsmanna Yassers Arafats, forseta Palestínu, voru samankomin á götum Ramallah borgar á Vesturbakkanum í dag til að hylla forsetann. Stuðningur við Arafat hefur minnkað síðustu misseri en samkoman í dag sýnir að hann nýtur enn mikils stuðnings meðal þegna sinna.

Sjá næstu 50 fréttir