Fleiri fréttir

Hákon Eydal játar morðið á Sri

Hákon Eydal, fyrrverandi sambýlismaður Sri Ramawati, hefur viðurkennt að hafa banað henni og varpað líkinu af í sjóinn við Hofsvík á Kjalarnesi. Fjölskylda hins grunaða á hús á svæðinu.

Tekjur deCode minnka og tap eykst

Tap Íslenskrar erfðagreiningar hefur aukist um tvær milljónir dollara eða tæplega 144 milljónir króna sé miðað við sama tímabil í fyrra. Fyrirtækið kynnti afkomuna eftir annan ársfjórðung á erlendum mörkuðum í gær.

Grunsamlegur hlutur í farþegarými

Flugvél bandaríska flugfélagsins United Airlines, með 246 manns um borð, lenti í morgun heilu og höldnu á flugvellinum í Sydney í Ástralíu eftir að grunsamlegur hlutur fannst í farþegarýminu. Vélin var á leið frá Sydney til Los Angeles þegar hluturinn fannst. Ekki hefur verið upplyst hvaða hlutur þetta var eða hvort hann var hættulegur.

Leigubílstjóri stunginn með hnífi

Leigubílstjóri var stunginn með hnífi í vesturborg Reykjavíkur um klukkan hálf tvö í nótt og eru fjórir menn í haldi lögreglu vegna rannsóknar málsins. Lögregla telur mildi að ekki fór verr þar sem eggvopn var notað við árásina og fékk bílstjórinn stungu í hálsinn.

Clinton harðorður í garð Bush

Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, var harðorður í garð George Bush forseta í ræðu sinni við setningu flokksþings Demókrataflokksins í Boston í gærkvöldi og sagði stefnu hans sundra þjóðinni.

Sjónvarpsútsendingar lágu niðri

Sjónvarpsútsendingar Stöðvar tvö lágu niðri á norðausturlandi í gærkvöldi og fram á nótt þar til viðgerð lauk á bilun sem varð í endurvarpa á Húsavíkurfjalli.

Sleppt frá Guantanamo

Fjórum frönskum föngum hefur verið sleppt úr haldi Bandaríkjamanna á Guantanamo-flóa á Kúbu eftir að hafa setið inni, án ákæru, í tvö ár. Í yfirlýsingu frá franska utanríkisráðuneytinu segir að eftir viðræður franskra og bandarískra stjórnvalda hafi Bandaríkjamenn fallist á að sleppa fjórum af þeim Frökkum sem eru í haldi.

Met í löndun uppsjávarfisks

Hundrað þúsundasta kolmunnatonninu í ár var landað hjá verksmiðju Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði í nótt og hefur þá alls verið landað 158 þúsund tonnum af uppsjávarfiski til verksmiðjunnar frá áramótum. Það er algjört met til þessa. Kolmunninn, sem landað var í nótt, kom úr Áskeli EA.

Egypska embættismanninum sleppt

Mannræningjar í Írak slepptu egypskum embættismanni úr haldi í gær. Utanríkisráðherra Egypta segir manninn við góðu heilsu en honum var rænt á föstudag þegar hann var að ganga út úr bænahúsi.

Eldflaugarárás nærri Græna svæðinu

Að minnsta kosti einn írakskur borgari lést og annar særðist þegar skæruliðar skutu eldflaugasprengju í miðri Bagdad í morgun. Sprengjan lenti nærri „Græna svæðinu“ svokallaða þar sem eru sendiráð Bandaríkjanna og aðsetur íröksku bráðabirgðastjórnarinnar. Nokkrir bílar skemmdust í árásinni en sprengjum hefur ítrekað verið skotið á svæðið.

Þreyttar á áreiti klámkarla

Norskar hótelþernur eru orðnar þreyttar á því að karlmenn, sem kaupa sér klámefni á sjónvarpsrásum hótela, áreiti þær kynferðislega. Eli Ljunggreen, forsvarsmaður starfsfólks á norskum hótelum, segir að aðallega séu það karlmenn úr viðskiptalífinu sem stundi þetta áreiti.

Engan þvott á snúrurnar

Borgarstjóri Nikósíu, höfuðborgar Kýpurs, hefur ákveðið að banna borgarbúum framvegis að hengja þvott sinn út á snúrur sem strengdar eru á milli húsa yfir þröngar götur borgarinnar. Sektir liggja við ef fólk fer ekki eftir þessu.

Hraðakstur í Hallormsstaðaskógi

Hraðakstur á veginum í gegnum Hallormsstaðaskóg er viðvarandi vandamál að sögn umferðarfulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Umferðarstofu á Austurlandi, Reynis Arnórssonar. Að hans mati einungis tímaspursmál hvenær alvarleg slys verða á þessum slóðum.

Herferð gegn nauðgunum

V-dagssamtökin hafa hafið herferð gegn nauðgunum fyrir verslunarmannahelgina. Í tilkynningu frá samtökunum segir að herferðin eigi að beina þeim skilaboðunum til stráka að þeir þurfi að vera vissir um að samþykki til kynlífs sé til staðar því kynlíf án samþykkis sé alltaf nauðgun.

Gagnrýndi repúblikana harkalega

"Demókratar vilja byggja Bandaríkin á sameiginlegri ábyrgð og sameiginlegum tækifærum. Repúblikanar trúa því að rétta fólkið eigi að stjórna Bandaríkjunum, þeirra fólk," sagði Bill Clinton, fyrrum forseti Bandaríkjanna, þegar hann ávarpaði flokksþing demókrata í Boston.

Risarotta á Seltjarnarnesi

Seltirningur sá í nótt hvar stór rotta var að ganga yfir götuna fyrir utan hús hans og gerði lögreglunni viðvart. Hún brá skjótt við og kom rottunni fyrir kattarnef eins og það er bókað í skrám lögreglunnar frá nóttinni.

Hjónaband samkynhneigðra ógilt

Franskur dómstóll ógilti í gær fyrsta hjónaband samkynhneigðra þar í landi. Athöfnin leiddi til þess að ríkisstjórn Frakklands gerði tilraun til þess að losa sig við hinn vinsæla borgarstjóra Bordeaux sem bar ábyrgð á henni.

Samkynhneigt hjónaband ógilt

Fyrsta hjónaband samkynhneigðra einstaklinga í Frakklandi var ógilt í borginni Bordeaux í morgun. Stjórnvöld höfðu þá þegar lýst því yfir að gifting Stephanes Chapins og Bertrands Charpentiers væri ógild og ráku í kjölfarið borgarstjóra í úthverfi Bordeaux-borgar sem gaf mennina saman.

Jón Gerald fyrir Héraðsdóm í dag

Jón Gerald Sullenberger kemur fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag vegna kæru á hendur forsvarsmönnum Baugs. Jón Gerald rekur fyrirtækið Nordica og annaðist um áralangt skeið innkaup Bónusverslana í Bandaríkjunum.

Arafat og Qureia sættast

Yasser Arafat, forseti Palestínu, og Ahmed Qureia, forsætisráðherra landsins, sættust í morgun á fundi í borginni Ramallah á Vesturbakkanum. Þar með lýkur tveggja vikna stjórnarkreppu í Palestínu.

Skar hársbreidd frá slagæð

Lögregla telur það mildi að ekki fór verr en raunin varð þegar leigubílstjóri var skorinn sextán sentímetra löngum skurði á háls með hnífi í vesturborg Reykjavíkur í nótt.

Viðamikil leit að Sri hefst í dag

Björgunarsveitir hefja skipulagða leit að Sri Rahmawati klukkan 17 í dag. Leitarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, allt frá Suðurnesjum upp í Borgarfjörð og að Selfossi, að meðtöldum björgunarsveitunum á höfuðborgarsvæðinu, munu taka þátt í leitinni að því er segir í tilkynningu.

Fékk skilnað frá föður sínum

Fjórtán ára gamall drengur fékk löglegan skilnað frá föður sínum í Massachusetts í Bandaríkjunum í gær. Þetta er fyrsta mál sinnar tegundar í Bandaríkjunum.

Þróa enn kjarnorkubúnað

Íranir hafa haldið áfram byggingu búnaðar sem hægt er að nota til þess að búa til kjarnavopn. Með því hafa þeir rofið samkomulag sem gert var við stórþjóðir Evrópu.

Ríkisskattstjóri lýkur álagningu

Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga í ár og verða álagningar- og innheimtuseðlar bornir út á föstudag. Þeir sem skiluðu rafrænum framtölum geta skoðað sína seðla, ásamt endurskoðuðu framtali, á vefsíðu ríkisskattstjóra frá og með morgundeginum.

Ekki áfellisdómur yfir nefndinni

Stjórnarmaður í eftirmenntunarnefnd rafeindavirkja vísar því alfarið á bug að nefndin eigi að bera halla af því að hafa ekki, sem skyldi, séð um fjárreiður eftirmenntunarsjóðsins og fylgst með verkum fyrrverandi skólastjóra Rafiðnaðarskólans. Hann segist ekki líta svo á að dómur Héraðsdóms frá í gær sé áfellisdómur yfir starfi nefndarinnar.

Popptónleikar eða flokksþing?

Flokksþing Demókrataflokksins í Bandaríkjunum hófst í Boston í gær. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar sem staddur er á þinginu, segir gríðarlegan mun vera á þessu flokksþingi og íslensku. Þetta sé meira líkt því að vera á popptónleikum eða „Hallelúja-samkomu“.

Eldur á Reynimel

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir stundu vegna tilkynningu um að eldur væri laus í íbúð við Reynimel 92. Ekki er ljóst á þessari stundu hversu mikill eldurinn er.

Forseti staðfesti lagafrumvarpið

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur ákveðið að staðfesta lagafrumvarpið sem fellir úr gildi fjölmiðlalögin sem hann synjaði staðfestingar fyrr í sumar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ólafur Ragnar sendi frá sér í dag.

50 ár síðan K-2 var fyrst klifið

Fimmtíu ár eru liðin síðan næsthæsta fjall heims, K-2, var klifið í fyrsta skipti. Þrátt fyrir að fjallið sé ekki alveg jafnhátt og hæsta fjallið Mount Everest er talið um þrisvar sinnum erfiðara að klífa K-2.

Frumvarp um kynjakvóta á Indlandi

Hópur kvenna safnaðist saman fyrir utan þinghúsið í Nýju-Delí á Indlandi í dag til að hvetja þingmenn til að samþykkja frumvarp um kynjakvóta. Samtök sem berjast fyrir auknum rétti kvenna stóðu að mótmælunum. Framfarabandalagið situr nú í ríkisstjórn Indlands. Nái frumvarpið samþykki þarf þriðjungur þingmanna í fylkjaþingunum að vera konur. </span />

Sjálfsmorð hermanna aukast um 40%

Hundrað og níu rússneskir hermenn hafa framið sjálfsvíg það sem af er árinu að sögn yfirmanns hersins. Það er tæplega fjörutíu prósenta aukning miðað við sama tíma í fyrra.

Norðurlöndin verði útundan í ESB

Eftir að José Manuel Durao Barroso var valinn sem forseti framkvæmdastjórnar ESB verður sambandinu stjórnað af þremur einstaklingum frá Pýrenaskaga. Margir óttast því að norræn málefni verði út undan. Frá þessu er sagt í norska blaðinu Hufvudstadsbladet í dag.</font />

Qureia situr áfram

Forsætisráðherra Palestínu, Ahmed Qureia, dró til baka uppsögn sína eftir fund með leiðtoganum Jasser Arafat í Ramallah í gær. Þannig lauk tíu daga átökum milli mannanna tveggja sem valdið hafa miklum sviptingum í palestínskum stjórnmálum.

Samkomulag ríkra og fátækra fjarri

Yfirmaður Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, í Genf segir enn langt í land áður en hægt verður að tryggja nýtt samkomulag á milli vel stæðra ríkja og hinna fátækari um alþjóðaviðskipti.

Pottur gleymdist á eldavél

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á þriðja tímanum vegna tilkynningar um að eldur væri laus í íbúð við Reynimel 92. Þegar það mætti á staðinn kom í ljós að pottur hafði gleymst á heitri eldavélahellu en húsráðandi hafði brugðið sér út í veðurblíðuna.

Ólögleg áfengissala í Svíþjóð

Lögreglan í Svíþjóð telur að nær annar hver matvörukaupmaður í Malmö stundi ólöglega sölu á áfengi. Smygl á áfengi hefur aukist um helming síðastliðin fjögur ár og það verður sífellt algengara að verslað sé með áfengi sem keypt er í öðrum ESB-ríkjum en Svíþjóð, að því er fram kemur á norræna fréttavefnum.

Hæsta verð nautgripakjöts á Hellu

Sláturhúsið á Hellu greiðir nú hæsta verð á alla flokka nautgripakjöts hérlendis og hefur jafnframt lækkað þungaviðmiðun úr 230 kílógrömmum í 200 kg. Í morgun var gerð breyting á gildandi verðlista hjá Sláturhúsinu þar að lútandi að því er segir í fréttatilkynningu á heimasíðu Landsambands kúabænda.

Pútín sakaður um hefndaraðgerðir

Vladimir Pútín, forseti Rússlands, er sakaður um að reyna að eyðileggja fjármálaveldi Mikhails Kodorkhovskys, auðkýfings og aðaleiganda rússneska olíurisans Yukos, en Kodorkhovsky hefur verið í fangelsi að undanförnu vegna gruns um fjársvik og skattsvik.

Fjölmiðlalögin fallin úr gildi

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun staðfesta lögin sem fella úr gildi fjölmiðlalögin sem hann synjaði staðfestingar 2. júní. Ólafur Ragnar sendi frá sér svohljóðandi yfirlýsingu í gær:

Sleppt úr Guantanamo

Fjórir Frakkar sem verið hafa meira en tvö ár í haldi Bandaríkjamanna í Guantanamoflóa á Kúbu komu heim í gær. Viðræður um hvort þrír fangar í viðbót fáist framseldir standa yfir milli franskra og bandarískra stjórnvalda að sögn Jacques Chirac Frakklandsforseta.

Vörugjald áfengis hækkar um 200%

Fjármálaráðherra hefur hækkað vörugjöld á áfengi um tæp 200% samkvæmt nýrri gjaldskrá. Fyrir mánuði lýsti samgönguráðherra því yfir að lækka yrði skatta á áfengi. Eftir hækkunina eru gjöld á áfengi 983 krónur á tonn en var 346 krónur. 

Ekki sannfærðir um auglýsingabann

Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar og fulltrúi í allsherjarnefnd Alþingis er ekki viss um að rétt sé að viðhalda banni við áfengisauglýsingum.

Fimm milljónir til Súdans

Fimm milljónir króna verða látnar rakna til mannúðar- og mannréttindamála í Darfur-héraði í Súdan. Tillagan var lögð fram af utanríkisráðherra á ríkisstjórnarfundi í gær og var hún samþykkt.

Sjá næstu 50 fréttir