Fleiri fréttir

Námið bjargaði lífi mínu

Þóra Kristín Vilhjálmsdóttir er ein úr stórum hópi geðsjúkra, sem hafa nýtt sér nám það sem Fjölmennt og Geðhjálp hafa boðið upp á undanfarin ár. Hún segir námið hafa bjargað lífi sínu. En nú liggur engin fjárveiting fyrir og öllum kennurunum hefur verið sagt upp. </font /></b />

Súdanar uggandi um refsiaðgerðir

Súdanska ríkisstjórnin fordæmdi hugmyndir um erlendar hersveitir í Darfur-héraði í gær. Bandaríkjamenn hafa endurskoðað uppkast að ályktun Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í héraðinu. Arabar eru áhyggjufullir.

Jón Gerald yfirheyrður í allan dag

Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur yfirheyrt Jón Gerald Sullenberger í allan dag vegna meintra fjármálabrota forsvarsmanna Baugs. Málið snýr aðeins að forsvarsmönnum fyrirtækisins en er óskylt þeirri sátt sem náðist á milli Jóns Geralds og Baugs í fyrra. Allir aðilar málsins neita því að nokkur sátt hafi verið gerð á bak við tjöldin.

Áhersla lögð á Kjalarnes

Umfangsmikil leit björgunarsveita að Sri Rahmawati stendur nú yfir sem á annað hundrað björgunarsveitarmanna taka þátt í. Sérstök áhersla er lögð á leit á Kjalarnesi en þó verður farið um allt stór-Reykjavíkursvæðið. Ekkert hefur spurst til Sri frá 4. júlí síðastliðnum. 

Clinton fagnað gríðarlega

Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, og Hillary Clinton, kona hans og þingmaður í New York ríki, töluðu á flokksþingi demókrata í gær. Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður sótti fundinn og að hans sögn ætlaði allt um koll að keyra þegar Clinton steig í pontu.

Háhyrningur tryllist

Gestum í skemmtigarðinum Sea World Adventure Park í borginni San Antonio brá heldur betur í brún þegar háhyrningur réðst á dýratemjara sinn í miðri sýningu. Háhyrningurinn reyndi í sífellu að berja manninn ofan í vatninu og reyndi svo að bíta hann. Dýratemjarinn komst upp úr lauginni og voru meiðsl hans ekki talin alvarleg.

Hluthöfum býðst skjótfenginn gróði

Stórir hluthafar í KB-banka eiga möguleika á auðveldum gróða í mesta hlutafjárútboði Íslandssögunnar sem hefst á fimmtudaginn kemur. Hluthöfum býðst að auka hlutafé sitt á sérkjörum og sannast þá hið fornkveðna, að hinir ríku verða enn ríkari. 

Stjórnarkreppu í Palestínu lokið

Ahmed Qureia, forsætisráðherra Palestínu, dró afsögn sína til baka í dag. Þar með líkur tveggja vikna stjórnarkreppu í Palestínu. 

D-listi vill vernda húsið

Sjálfstæðismenn í borgarstjórn vilja vernda Austurbæjarbíó og vilja að kannað verði hvort hægt verði að reka þar menningarstarfsemi til frambúðar. Meirihlutinn í borgarstjórn telur ekki að borgin eigi að skipta sér af rekstri í húsinu.

Útihátíðir og ungmenni

Ungmenni undir 16 ára aldri þurfa að vera í fylgd forráðamanna ef þau hyggjast leggja leið sína á útihátíð um Verslunarmannahelgina. Þetta segja lögin sem þó hafa verið þverbrotin síðustu áratugi. 

Sex tíma í skýrslutöku

Jón Gerald Sullenberger var í sex klukkustundir í skýrslutökum hjá Ríkislögreglustjóra í gær vegna rannsóknar á meintum efnahagsbrotum forsvarsmanna Baugs. Hann er boðaður aftur í skýrslutöku í dag. Rannsóknin hefur staðið í tæp tvö ár.

Færeyingar fækka sóknardögum

Fiskistofnar á Færeyjabanka eru svo illa farnir að færeysk stjórnvöld hyggjast draga mjög úr sókn skipa þar. Lagt er til að sóknardögum verði fækkað um tíu prósent og að svæðið verði friðað fyrir veiðum í fjórar til sex vikur yfir hrygningartímann.

Dýrara að flytja búslóð

Það er orðið dýrara en áður að flytja búslóð í gámum til og frá Íslandi, þ.e.a.s. fari menn að lögum. Samkvæmt nýjum lögum þarf sérstakur farmverndarfulltrúi að fylgjast með hleðslu gámanna. Skipafélögin telja þetta til ama fyrir viðskiptavini sína og gámum er enn hleypt úr landi án eftirlits, í andstöðu við gildandi lög.

Meiri fuglaveiðar í Reykjavík

Fjöldi fólks hefur tilkynnt veiðar á öndum, gæsaungum og jafnvel spörfuglum í Hljómskálagarði, Laugardal og Fossvogsdal í kjölfar frétta af andaveiðum í borginni. Ljóst er að fuglaveiðar í borginni eru mun umfangsmeiri en talið var.

Herferð gegn nauðgunum

V-Dagurinn, samtök gegn ofbeldi á konum, hafa hafið herferð gegn nauðgunum um Verslunarmannahelgina.

Elliðaár freyða

Froða á yfirborði Elliðaár vakti athygli manna og óttuðst sumir að jafnvel væri um mengun að ræða af völdum útrásar.

Slysahætta í Hallormsstað

Það er tímaspursmál þangað til alvarlegt slys verður á veginum í gegnum Hallormsstaðarskóg, en hraðakstur er viðvarandi vandamál þar. Samkvæmt þremur hraðakönnunum sem gerðar voru í júlí, aka aðeins 45 prósent ökumanna á löglegum hámrkshraða.

Breytti venju samkvæmt

Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra í fjarveru Davíðs Oddssonar, segir að hann hafi vænt þess að forsetinn staðfesti að fella lagafrumvarp um fjölmiðla úr gildi eins og venja sé til.

Átti von á staðfestingu forseta

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, segir að hann hafi frekar átt von á því að forsetinn staðfesti að fella lagafrumvarpið úr gildi miðað við þróun málsins.

IRA-foringi borinn til grafar

Joe Cahill var borinn til grafar í gær. Það var hann sem stjórnaði írska lýðveldishernum í Belfast snemma á áttunda áratugnum þegar samtökin hófu mannskæðar árásir sínar á Norður-Írlandi.

Aldrei fleiri fangar

Föngum og öðrum þeim sem falla undir refsikerfi Bandaríkjanna heldur áfram að fjölga og nálgast nú að vera sjö milljónir manna. Umfang fangelsiskerfisins hefur aukist stórkostlega og hefur verið áætlað að fjögur prósent af vinnuafli Bandaríkjanna tengist löggæslu- og réttarkerfi landsins.

15 laumufarþegar í Finnlandi

Fimmtán laumufarþegar frá Asíu fundust um borð í flutningaskipi sem lagðist að bryggju í finnsku borginni Hamína í morgun en skipið var að koma frá Antwerpen. Ellefu þeirra eru frá Víetnam og fjórir frá Indlandi. 

Hvassviðri á Snæfellsnesi

Hvassviðri gerði óvænt á norðanverðu Snæfellsnesi í gærkvöldi og kallaði lögregla út björgunarsveitir til að hemja lausa hluti sem voru farnir að fjúka. Fellihýsi fauk meðal annars um koll á tjaldstæðinu í Stykkishólmi, flaggstöng brotnaði og lausamunir fuku um hafnarsvæðið í Ólafsvík.

Lífi gíslanna þyrmt

Hópur íslamskra skæruliða í Írak sem heldur sjö erlendum borgurum í gíslingu hefur framlengt frest sem þeir höfðu gefið samningamönnum. Lífi gíslanna verður því þyrmt um sinn en hópurinn ítrekar kröfur sínar um að kúveiskt fyrirtæki, sem starfsmennirnir vinna fyrir, dragi sitt fólk frá Írak.

Kerry í hafnabolta

John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata í Bandaríkjunu, kastaði fyrsta boltanum í hafnaboltaleik Boston Red Sox og New York Yankess sem fram fór í Boston í gær. Kerry er í Boston vegna flokksþings demókrata sem hefst í dag. Sá sem tók við boltanum var hermaður sem hefur tekið þátt í stríðinu í Afganistan.

Samstarf um loðnuleit í haust

Útgerðarmenn og Hafrannsóknastofnun hafa þegar ákveðið að hafa samstarf um loðnuleit í október, líkt og gert var nú í vor, en sumarvertíðinni lauk um helgina. Aðeins veiddust 44 þúsund tonn sem er helmingi minni afli en á sama tíma í fyrra.

Kínverskur flugræningi yfirbugaður

Kínverji sem gerði tilraun til að ræna Boeing 737 farþegaflugvél með 108 farþegum um borð, nokkru eftir flugtak frá Peking í morgun, var yfirbugaður á flugvelli í borginni Zhengzhou eftir að flugstjórinn lenti þar í skyndingu.

Missti stjórn á kranabíl

Ökumaður 60 tonna kranabíls missti stjórn á bílnum þegar hann ók eftir Ólafsvíkurvegi, vestan við Borgarnes, í gærkvöldi og hafnaði bíllinn utan vegar. Þar er mýrlent og sökk kranabíllinn nokkuð í mýrina. Stór jarðýta og hjólaskófla voru flutt á vettvang til aðstoðar og náðist kraninn upp eftir mikla fyrirhöfn. Ökumann hans sakaði ekki.

Hryðjuverkabæklingur í Bretlandi

Upplýsingabæklingur um hvernig bregðast skuli við, verði hryðjuverkaárás gerð á Bretlandi, verður sendur inn á hvert heimili þar í landi á næstunni. Bæklingurinn inniheldur upplýsingar um fyrstu hjálp og í honum má finna leiðbeiningar um undirbúning, svo sem að gott sé að birgja sig upp af dósamat.

Sprengingar í Indónesíu

Sprengjur heyrðust springa í morgun við kosningamiðstöð í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, rétt áður en tilkynna átti úrslit forsetakosninga sem hafa farið fram í landinu. Vitni segist hafa séð fólk hlaupa út úr byggingunni.

Laxveiðimenn fagna rigningunni

Laxveiðimenn á suðvesturhorni landsins binda miklar vonir við vætutíðina sem nú er gengin í garð þar sem margar ár eru orðnar mjög vatnslitlar. Veiði hefur hins vegar verið allgóð þrátt fyrir það og í gær var t.d. búið að veiða 840 laxa í Norðurá. Blanda kemur verulega á óvart með 820 laxa og 550 löxum hefur verið landað úr Laxá í Kjós.</font />

77 ára kona kveikir í syni sínum

77 ára gömul norsk kona frá bænum Refsnesi var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gær, grunuð um að hafa kveikt í í fimmtugum syni sínum. Mæðginin höfðu setið að sumbli á heimili þeirra þegar eitthvað slettist upp á vinskapinn. Lögreglan telur að þegar þar var komið sögu hafi konan skvett rótsterkum spíra á drenginn sinn og kveikt svo í.

Einmana Danir

Óvenju margir Danir þjást af einmanaleika nú yfir sumarleyfistímann ef marka má aukið álag á neyðarlínur þar sem fólki í vanda er svarað. Fólkið kvartar yfir sumarlokunum verslana og þjónustufyrirtækja og að vinir og kunningjar séu úti um hvippinn og hvappinn þannig að ekki náist samband við þá.

Loftbyssa tekin af 11 ára dreng

Lögreglan í Keflavík tók loftbyssu af 11 ára gömlum dreng þar í bæ í gær þar sem hann var að skjóta út í loftið. Meðhöndlun slíkra gripa er stranglega bönnuð og þykir mildi að ekki hafi orðið slys á fólki.

Bann á asísku fuglakjöti framlengt

Evrópusambandið framlengdi í dag bann við innflutningi á kjúklingakjöti og lifandi fuglum frá níu Asíuríkjum af ótta við að ekki hafi náðst að útrýma fuglaflensu í löndunum. Bannið átti að falla úr gildi þann 15. ágúst nk. en það hefur verið framlengt til 15. desember.

Morðingi faldist í runnum í viku

Lögreglan í Bretlandi handsamaði í gær mann sem grunaður er um fjögur morð en hann hafði þá verið á flótta undan lögreglu í eina viku. Maðurinn, Mark Hobson að nafni, er 34 ára gamall og hafðist við í runnum á bak við verslunarmiðstöð í Jórvíkurskíri þessa sjö daga sem hans var leitað.

Kókaín vinsælasta fíkniefnið

Kókaín er orðið lang vinsælasta fíkniefnið í Danmörku og nær nú til allra þjóðfélagshópa. Nákvæmlega sama þróun virðist vera upp á teningnum hér á landi þar sem dagsskammturinn kostar rösklega tíu þúsund krónur.

Skipum Hafró snúið til lands?

Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar stöðvast í dag ef samninganefndir ríkisins og Sjómannafélags Reykjavíkur ná ekki samkomulagi á fundi sem nú stendur hjá Ríkissáttasemjara.

Bakslag verði húsið ekki rifið

Árni Jóhannesson, framkvæmdarstjóri byggingarfyrirtækisins sem á Austurbæjarbíó, segir ummæli forseta borgarstjórnar um að litlar líkur séu á að húsið verði rifið verulegt bakslag fyrir uppbyggingu á svæðinu. Árni segir málinu ekki lokið og fundar með borgaryfirvöldum í næstu viku.

Háttsettur Íraki myrtur

Þrír létust í sjálfsmorðsárásum í borginni Mósúl í Írak í morgun og háttsettur embættismaður var myrtur á heimili sínu í Bagdad. Árásum í Írak fer fjölgandi.

Lögin komin í forsætisráðuneytið

Nýjustu fjölmiðlalögin, sem samþykkt voru á Alþingi á fimmtudag, bárust forsætisráðuneytinu laust fyrir hádegi og hafa því ekki borist forsetanum til undirritunar. Hann þarf að fá ný lög til staðfestingar innan hálfs mánaðar frá því að Alþingi samþykkir þau.

Samtök um frelsun Fischers stofnuð

Íslendingar vinna að stofnun alþjóðlegrar hreyfingar um frelsun Bobbys Fischers. Hrafn Jökulsson, einn forsvarsmannanna, segir að fyrst hægt hafi verið að stofna hreyfingu um frelsun roskins háhyrnings, þá hljóti það sama að vera hægt um roskinn skáksnilling. 

Forsætisráðherra Tékka tilnefndur

Forseti Tékklands, Vaclav Klaus hefur tilnefnt leiðtoga Sósíaldemókrataflokksins til að leiða næstu ríkisstjórn landsins. Fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Vladimir Spidla, sagði af sér eftir að flokkur hans tapaði í Evrópuþingskosningum í síðasta mánuði.

Sjá næstu 50 fréttir