Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ökumaðurinn grunaður um ölvun Ökumaður bíls, sem valt í Vatnsskarði á veginum til Krýsuvíkur í gærkvöld, er grunaður um ölvun. Fimm slösuðust, þar af einn lífshættulega, en hann slöngvaðist út úr bílnum. Mennirnir eru útlendingar en hafa verið búsettir hér á landi vegna starfa sinna. 25.7.2004 00:01
Byssumaðurinn látinn laus Tæplega þrítugur karlmaður, sem lögregla og sérsveitarmenn handtóku eftir að hann mundaði veiðiriffil og hleypti af skotum í miðbæ Akureyrar í gærkvöld, hefur verið látinn laus. 25.7.2004 00:01
Maðurinn kominn í leitirnar Tæplega fimmtugur maður sem lögreglan á Selfossi lýsti eftir og björgunarsveitir leituðu að á Laugarvatni er kominn í leitirnar. Hann ákvað að skilja við samferðafólk sitt í gærkvöldi og fara til Reykjavíkur. Leit var aflýst nú síðdegis um leið og lögreglan fékk vitneskju um hvers kyns var. 25.7.2004 00:01
Kona lést í eldsvoða Kona á níræðisaldri lést í eldsvoða í fjölbýlishúsi við Sundlaugaveg í Reykjavík í nótt. Það var um sexleytið í nótt sem vegfarandi sá reyk leggja út frá húsinu og hringdi strax í neyðarlínuna. Í húsinu eru fjórar íbúðir og var konan ein á efri hæð þess. 25.7.2004 00:01
13 skæruliðar létust í Írak Þrettán írakskir skæruliðar létust í bardögum við varnarliðsmenn og bandaríska hermenn rétt utan við borgina Bakúba í morgun. Hópur skæruliða réðst til atlögu að írökskum þjóðvarnarliðsmönnum með sprengjuvörpum og handsprengjum, þar sem þeir aðstoðuðu bandaríska hermenn við leit í búðum skæruliða, í Buhriz sem er um 5 km suður af Bakúba. 25.7.2004 00:01
Vísar á bug ummælum FÍB Guðmundur Sigurðsson hjá Samkeppnisstofnun vísar því á bug að rannsókn á tryggingafélögunum hafi verið óeðlileg. Menn geti hins vegar deilt um málalyktir. Hann fagnar því að áfrýjunarnefnd hafi vísað frá máli FÍB sem kærði rannsóknina. 25.7.2004 00:01
Flokksþing demókrata að hefjast Flokksþing Demókrataflokksins hefst með pompi og prakt í Boston á morgun. Á þinginu koma saman, auk demókrata, fimmtán þúsund fréttamenn hvaðanæva úr heiminum, m.a. frá Stöð 2. 25.7.2004 00:01
14 dóu í lestarslysi í Tyrklandi Lest og lítil rúta skullu saman á lestarteinum í vesturhluta Tyrklands í dag með þeim afleiðingum að fjórtán manns létu lífið og sex slösuðust, að sögn Anatolia-fréttastofunnar. Tildrög slyssins eru ekki ljós en rútan var að aka yfir teinana. 25.7.2004 00:01
Eldri kona lést í eldsvoða Eldri kona lét lífið eftir að eldur kom upp í íbúð hennar í húsi við Sundlaugaveg snemma í gærmorgun. Íbúar á jarðhæð og í kjallara hússins voru vaktir upp og varð ekki meint af. Íbúi í risi var ekki heima þegar eldurinn kom upp. 25.7.2004 00:01
Slasaðist lífshættulega Erlendur verkamaður var fluttur lífshættulega slasaður á sjúkrahús eftir bílveltu við Vatnsskarðsnámur á Krísuvíkurvegi í fyrrakvöld. Honum var haldið sofandi í öndunarvél í gær. Fimm voru í bílnum og voru hinir fjórir fluttir minna slasaðir á slysadeild. 25.7.2004 00:01
Fjöldi hátíða um helgina Fjöldi fólks lagði land undir fót um helgina og umferðin í átt til Reykjavíkur var farin að þyngjast verulega seinni partinn í gærdag að sögn lögreglunnar í Borgarnesi og á Selfossi. 25.7.2004 00:01
Frestun gæti breytt niðurstöðunni Réttarhöldum yfir morðingja hálfíslenskrar konu í Pensacola í Bandaríkjunum hefur verið frestað í áttunda sinn. Lögfræðingar, sem sérhæfa sig í að verja hagsmuni brotaþola, óttast að tafirnar hafi áhrif á dómsniðurstöðuna. Sonur hennar tekur í sama streng. 25.7.2004 00:01
Mikið álag á starfsfólki Þeir sem leita til slysadeildarinnar í Fossvogi geta þurft að bíða í allt að fjórar klukkustundir eftir þjónustu læknis. Yfirlæknir deildarinnar segir að mikið álag sé á starfsfólki, það fari örþreytt heim og sé ekki úthvílt þegar það mæti aftur til starfa. 25.7.2004 00:01
Áströlum og Írökum hótað Ástralíu og Ítalíu hafa borist hótanir um hryðjuverk frá samtökum, sem talin eru tengjast Al-Kaída, flytji löndin ekki heri sína heim frá Írak. Utanríkisráðherra Ástralíu segist taka hótunina alvarlega en ekki komi til greina að láta undan kröfum hryðjuverkamanna. 25.7.2004 00:01
Áfengisauglýsingar Moggans kærðar Morgunblaðið auglýsir áfengi í tímariti um helgina þrátt fyrir blátt bann við slíkum auglýsingum í lögum. Hildur Hafstein hjá Lýðheilsustofnun segir að auglýsingarnar verði kærðar. Hún segir nauðsynlegt að gera lög um áfengisauglýsingar skýrari en þau séu margoft brotin. 25.7.2004 00:01
Pyntingatól í Írak Pyntingartól sem Údei Hussein notaði til að refsa íþróttamönnum í stjórnartíð Saddams, föður hans, voru höfð til sýnis á þjóðarleikvangi Íraka í Bagdad í gær. Þetta var gert í tilefni Ólympíuleikanna sem haldnir verða í næsta mánuði til að minna á að ógnarstjórnin sé liðin undir lok. 25.7.2004 00:01
Draugabani á Ströndum Á Ströndum læra menn að kveða niður drauga og ekki er vanþörf á því allt er morandi í draugum, segir Sigurður Atlason draugabani sem fréttastofan hitti í Hólmavík. Hann segist vera búinn að kveða niður þrjátíu drauga í sumar. 25.7.2004 00:01
Vegagerð á Vestfjörðum á fullu Unnið er hörðum höndum að því að bæta vegi á Vestfjörðum. Gangi framkvæmdir að óskum verða aðeins 35 kílómetrar án bundins slitlags í Ísafjarðardjúpi á næsta ári. 25.7.2004 00:01
Geitungafaraldur í vændum Í kjölfar mikilla hlýinda í sumar má búast við miklu magni geitunga og stórra geitungabúa í ágúst. "Stóru búin er orðin mörg hver vígaleg og erum við að búa okkur undir mikinn hasar í ágúst," segir Smári G. Sveinsson, meindýraeyðir og eigandi Varna og eftirlits 25.7.2004 00:01
Fjórtán manns látast í lestarslysi Fjórtán manns, þar af fimm börn, létust þegar lítil rúta og lest skullu saman á lestarteinum í vesturhluta Tyrklands í gær. Rútan var að aka yfir teinana og létust allir þeir sem voru í henni en sex manns í lestinni slösuðust. 25.7.2004 00:01
Miklir skógareldar í Frakklandi Um þrjú þúsund hektarar af skóglendi brunnu og um tvö þúsund manns þurftu að flýja heimili sín vegna mikilla skógarelda norður af Marseille í Frakklandi um helgina. Þrír slökkviliðsmenn slösuðust við vinnu sína þar af tveir þegar þeir fengu á sig vatn sem sleppt var úr flugvél. 25.7.2004 00:01
Sjötíu þúsund mynduðu mótmælakeðju Um sjötíu þúsund Ísraela tókust í hendur og mynduðu keðju fólks allt frá Gaza til Jerúsalem í gær. Með þessu var fólkið að mótmæla áformum Ariels Sharon forsætisráðherra um að eyðileggja nokkrar landtökubyggðir gyðinga og draga herliðið frá Gaza-svæðinu. 25.7.2004 00:01
Láta ekki undan hótunum al-Kaída Alexander Downer, utanríkisráðherra Ástralíu, segir að hótanir evrópudeildar al-Kaída hryðjuverkasamtakanna um hryðjuverk í landinu verði teknar alvarlega þó stjórnvöld þar í landi ætli sér ekki að láta undan þeim. 25.7.2004 00:01
Hjálparsveitir snúa aftur Eftir nokkura daga hlé á hjálparstarfi hafa hjálparstofnanir aftur komið upp matarbirgðum í tveimur búðum fyrir súdanska flóttamenn í nágrannaríkinu Tsjad. Á svæðinu hafast fjörutíu þúsund súdanskir flóttamenn við eftir að leiðtogar búðanna hétu því að tryggja öryggi þeirra en hjálparstarfi þar var hætt í nokkra daga vegna ofbeldis. 25.7.2004 00:01
Ekki leitað um helgina Engin skipuleg leit fór fram að Sri Rahmawati um helgina. Konunnar hefur verið saknað í réttar þrjár vikur. Fyrrverandi sambýlismaður hennar verður yfirheyrður í dag. Hann kærir ekki úrskurð um framlengingu á gæsluvarðhaldi. 25.7.2004 00:01
Ólíklegt að Austurbær verði rifinn Það eru ekki miklar líkur á því að niðurrif Austurbæjar verði heimilað," sagði Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og forseti borgarstjórnar, er Fréttablaðið leitaði eftir viðbrögðum hans vegna niðurstaðna úr skoðanakönnun. 25.7.2004 00:01
Bólusett gegn fíkniefnum? Breska ríkisstjórnin er að hugleiða róttæk áform um að bólusetja börn gegn því að ánetjast fíkniefnum þegar þau eldast, að því er breska dagblaðið The Independent on Sunday segir frá. 25.7.2004 00:01
Blair ver umbreytingu flokksins Tony Blair sætir vaxandi gagnrýni frá vinstri armi Verkamannaflokksins. Hann varði umbreytingu flokksins í ræðu um helgina og hét flokksmönnum sigri í þriðju þingkosningunum í röð. </font /></b /> 25.7.2004 00:01
Baráttan við smyglara Fórnarlömb mansals trúa ekki sögum um örlögin sem bíða þeirra, segir sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli. Hann telur árangur hafa náðst bæði í baráttunni gegn smygli á fólki og fíkniefnum. </font /></b /> 25.7.2004 00:01
Maðurinn fannst látinn Eiríkur Örn Stefánsson, sem lögreglan lýsti eftir á fimmtudag og björgunarsveitir leituðu að, fannst látinn í gærkvöld skammt frá meðferðarheimilinu Vogi. Þar hafði síðast sést til hans 5. júlí. Ekki er talið að refsiverð háttsemi tengist láti hans. Eiríkur Örn var 48 ára að aldri. 24.7.2004 00:01
Skaut 3 skotum úr veiðiriffli Lögreglan á Akureyri handtók laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi karlmann á þrítugsaldri. Maðurinn hafði veifað kraftmiklum veiðiriffli sem hann hafði tekið ófrjálsri hendi í heimahúsi fyrr um kvöldið og skotið þremur skotum út í loftið. 24.7.2004 00:01
Embættismanni rænt í Írak Háttsettur embættismaður frá Egyptalandi er nú í haldi írakskra skæruliða ásamt sjö öðrum gíslum. Egyptinn, Momdoh Kotb að nafni, er einn af aðalerindrekum Egypta í Írak og segjast skæruliðarnir hafa tekið hann í gíslingu vegna tilboðs Egypta um að hjálpa til við öryggismál í landinu. 24.7.2004 00:01
Bretar telja Blair óheiðarlegan Meirihluti breskra kjósenda telur Tony Blair, forsætisráðherra Breta, óheiðarlegan samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Í könnuninni, sem gerð var fyrir dagblaðið Daily Mail, segjast 59% aðspurðra telja að Blair hafi logið til um gereyðingarvopn í Írak. 24.7.2004 00:01
Brúin endurreist eftir stríðið Mostar-brúin í Bosníu og Hersegóvínu var opnuð á nýjan leik í gær við hátíðlega athöfn. Brúin, sem byggð var á 16.öld, var sprengd upp í stríðinu á Balkanskaga árið 1993 og þykir enduruppbygging hennar táknræn fyrir bætt samband múslima og Króata. 24.7.2004 00:01
Alþjóðlegur laugardagur í miðbænum Í dag er alþjóðlegur laugardagur í „Magnaðri miðborg“ þar sem alþjóðlegur hluti miðborgarinnar fær að njóta sín. „Mögnuð miðborg“ er yfirskrift skipulagðrar dagskrár í sumar í miðborg Reykjavíkur. 24.7.2004 00:01
Boð Bandaríkjamanna falskt Norður-Kóreumenn hafa hafnað beiðni Bandaríkjamanna um að þeir eyði öllum kjarnorkuvopnum sínum og láti af kjarnorkuáætlunum í skiptum fyrir aðstoð og viðurkenningu alþjóðasamfélagsins. Haft er eftir talsmanni norðurkóreska utanríkisráðuneytisins að boð Bandaríkjamanna sé falskt og ekki vert umhugsunar. 24.7.2004 00:01
Lenti með hendi í sláttuvél Kona í Garðabæ lenti með hendi í garðsláttuvél í vikunni og missti framan af þremur fingrum. Lögregla og sjúkralið voru kölluð á vettvang og var konan í kjölfarið flutt á slysadeild. 24.7.2004 00:01
Fingralöng langamma 80 ára gömul langamma á Ítalíu hefur verið handtekin, grunuð um að hafa árum saman byrlað fólki lyf svo það líður út af og rænt fólkið í kjölfarið. Ítölsku lögreglunni tókst að hafa hendur í gráu hári þeirrar gömlu, Vittoriu Benetti að nafni, eftir að síðasta fórnarlamb hennar bar kennsl á hana á myndum lögreglunnar. 24.7.2004 00:01
Ekið á fjölda kinda árlega Ekið er á 20-25 kindur á ári í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði og eru þá ótaldar þær sem ekki er tilkynnt um til lögreglunnar. Í fæstum tilvikum verða slys á fólki en tjón á bílum hins vegar umtalsvert. 24.7.2004 00:01
Morðákæra á fyrrverandi forseta Luis Echeverria, fyrrverandi forseti Mexíkó, hefur verið ákærður fyrir sinn þátt í morðum á stúdentum sem áttu sér stað fyrir 33 árum. Að minnsta kosti 25 stúdentar voru drepnir í friðsamlegri mótmælagöngu um Mexíkóborg árið 1971. 24.7.2004 00:01
Markar ekki vatnaskil Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir ráðstefnu Alþjóðahvalveiðiráðsins sem lauk á fimmtudag ekki marka nein vatnaskil í umræðunni um hvalveiðar í atvinnuskyni. Mikið starf sé enn fyrir höndum til að fá hvalveiðibanninu aflétt. 24.7.2004 00:01
100 ára afmæli síldarvinnslu Þess er nú minnst á Siglufirði að hundrað ár eru liðin frá því að síldarvinnsla hófst þar í bæ. Skemmtun gærkvöldins stóð langt fram á morgun og en bærinn fór aftur að vakna til lífsins þegar nær dró hádegi. 24.7.2004 00:01
Á 176 km hraða á Reykjanesbraut Um eittleytið í nótt stöðvaði lögreglan í Hafnarfirði karlmann á þrítugsaldri á 176 km hraða á Reykjanesbraut skammt frá Hafnarfirði, en þar er leyfilegur hámarkshraði 90 km á klukkustund. Maðurinn var að taka fram úr öðrum bíl þegar hann mældist á þessum hraða. 24.7.2004 00:01
55 laxar á sex dögum Finnskur hópur veiddi 55 laxa á sex dögum í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi en alls voru 230 fiskar komnir á land þegar þeir luku „hollinu“ í fyrradag. Fréttavefur Bæjarins besta hefur eftir Sigurjóni Samúelssyni veiðiverði að Laugardalsá sé orðin fengsælasta á landsins á hverja stöng og slægi þar með út Blöndu sem hafði efsta sætið áður. 24.7.2004 00:01
Þrír menn ákærðir vegna slyssins Tyrknesk yfirvöld hafa ákært þrjá menn vegna lestarslyssins sem varð 37 manns að bana á fimmtudaginn. Mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa valdið dauða fleiri en eins manns með því að sýna vítavert kæruleysi. 24.7.2004 00:01