Erlent

Boð Bandaríkjamanna falskt

Norður-Kóreumenn hafa hafnað beiðni Bandaríkjamanna um að þeir eyði öllum kjarnorkuvopnum sínum og láti af kjarnorkuáætlunum í skiptum fyrir aðstoð og viðurkenningu alþjóðasamfélagsins. Haft er eftir talsmanni norðurkóreska utanríkisráðuneytisins að boð Bandaríkjamanna sé falskt og ekki vert umhugsunar. Líbía tók svipuðu boði í desember sl. og hafa hafið eyðingu kjarnorkuvopna sinna. Myndin er af John Bolton, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, en hann er staddur á ráðstefnu um kjarnorkumál í Seúl í Suður-Kóreu og lagði þar fram áðurnefnda beiðni Bandaríkjamanna í vikunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×