Fleiri fréttir

Gert að sæta geðrannsókn

Gæsluvarðhald yfir Hákoni Eydal, manninum sem grunaður er um að hafa banað Sri Rahmawati, var framlengt um þrjár vikur í gær eða til 11. ágúst. Þá var honum einnig gert að sæta geðrannsókn. Hákon hefur tekið sér þriggja daga frest til að ákveða hvort hann kæri gæsluvarðhaldsúrskurðinn.

Skaðsemi áfengisdrykkju mæðra

Eitt af hverjum hundrað börnum skaðast vegna þess að móðirin hefur neytt áfengis á meðgöngu. Þá getur jafnvel lítil drykkja leitt til námserfiðleika og andlegra truflana.

Landhelgin óvarin

Landhelgin er nú óvarin þar sem bæði varðskipin sem Landhelgisgæslan rekur eru í höfn. Samþykkt var að smíða nýtt varðskip fyrir átta árum en ekkert hefur orðið af því.

Rannsókn á áhrifum háspennulína

Drífa Hjartardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að heilbrigðisyfirvöld rannsaki möguleg áhrif háspennulína, spennistöðva og fjarskiptamastra á mannslíkamann. Hún er ásamt Sigríði Önnu Þórðardóttur, verðandi umhverfisráðherra, og fleirum, flutningsmaður þingsályktunartillögu um málið. 

Varnarsvæðið nær út fyrir girðingu

Vopnaðir bandarískir hermenn hafa þrisvar á skömmum tíma haft afskipti af ljósmyndurum Víkurfrétta. Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli segir varnarsvæðið ná út fyrir girðinguna sem umlykur herstöðina.

Davíð á sjúkrahúsi

Davíð Oddsson forsætisráðherra var í nótt fluttur á Landspítala háskólasjúkrahús vegna verkja í kviðarholi og er hann í rannsókn á sjúkrahúsinu, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Engin fjölmiðlalög

Öll takmarkandi ákvæði er varða fjölmiðla hafa verið tekin út úr breyttu frumvarpi er kynnt verður á ríkisstjórnarfundi í dag. Einungis verða ákvæði um brottfall fyrri laga og breytingu á skipun útvarpsráðs. Samkomulag Davíðs og Halldórs kveður á um völd forseta verði einungis formleg.

Stjórnmálaleiðtogi myrtur

Írakskur stjórnmálaleiðtogi í Basra, annarri stærstu borg landsins, var myrtur í morgun. Talsmaður héraðsstjórnarinnar í Basra segir að menn í öryggisbúningum hafi skotið meðlim stjórnarinnar, al-Anachi, við varðstöð í borginni. Undanfarið hafa nokkrir stjórnmálaleiðtogar í Írak verið drepnir.

Gíslinn laus úr haldi

Filippeyski gíslinn, Angelo de la Cruz, 46 ára bílstjóri, er laus úr haldi mannræningja í Írak. Hann var afhentur stjórnarerindrekum í sendiráði Sameinuðu Arabísku furstadæmanna í morgun.

Fischer í haldi lögreglu í Japan

Bandaríski skámeistarinn Bobby Fisher situr enn í haldi lögreglu í Japan og er grunaður um að hafa brotið innflytjendalög. Fisher, sem er 61 árs gamall, er sagður hafa verið með falsað vegabréf þegar hann hugðist ferðast frá Japan til Filipseyja í síðustu viku.

Hvalfriðunarsinnar anda léttar

Tillaga Japana um að heimila leynilegar atkvæðagreiðslur í Alþjóðahvalveiðiráðinu var felld á ársfundinum í Sorrento í gær. Japanar hóta að segja sig úr ráðinu, verði hvalveiðar í atvinnuskyni ekki leyfðar í síðasta lagi árið 2006. 

Sharon er velkominn í Frakklandi

Michel Barnier, utanríkisráðherra Frakklands, sagði í útvarpsviðtali nú fyrir stundu, að orðrómur um að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, væri ekki velkominn til Frakklands, væri byggður á misskilningi. Svo virðist sem franska forsetaembættið hafi oftúlkað orð Sharons, sem varð til þess að Chirac forseti brást hinn versti við.

Yfir 400 fiskiskip á miðunum

Yfir 400 fiskiskip eru nú á veiðum á Íslandsmiðum, enda veður með eindæmum gott. Nú rétt fyrir fréttir streymdu enn fleiri smábátar frá höfnum landsins og verða líklega fleiri en 500 skip á miðunum fyrir hádegi.

Dornier fugvél hætti við lendingu

Viðbúnaður var á Vestmannaeyjaflugvelli í morgun þegar Dornier vél Íslandsflugs var að koma frá Reykjavík. Þegar vélin var að koma inn til lendingar hætti flugmaðurinn skyndilega við og tók upp hjólin.  Vélin hringsólaði yfir eyjunum í nokkurn tíma og lenti síðan í þriðju tilraun.

5,2% hækkun byggingavísitölu á ári

Vísitala byggingakostnaðar hefur hækkað um 5,2 % á einu ári. Vísitalan í júlí hækkar um 0,3 % frá fyrra mánuði og er 301,7 stig.

Páfi rannsakar kynlífshneyksli

Kaþólski páfinn hefur tilnefnt sérstakan rannsóknarmann til að skoða nokkur kynlífshneyksli sem upp hafa komið í Austurríki að undanförnu og hafa hrisst stoðir austurrísku rómversk kaþólsku kirkjunnar. Líklegt er talið að Klaus Kung biskup muni skoða vel biskupsdæmi St Poelten og þann prestaskóla sem virðist miðpunktur hneykslisins.

Borell kosinn forseti þingsins

Þingmenn Evrópusambandsins gengu til atkvæða í morgun og kusu í embætti forseta þings Evrópusambandsins. Spánverjinn Josep Borrell úr sósíalistaflokki hlaut meirihluta atkvæða en hann tekur við af Íranum Pat Cox sem barðist gegn spillingu í Evrópusambandinu.

Qurie áfram forsætisráðherra

Forsætisráðherra Palestínu, Ahmed Qurie, hefur dregið afsögn sína til baka eftir að Yasser Arafat, forseti Palestínu, neitaði að samþykkja afsögnina. Arafat hefur mætt aukinni andstöðu á síðustu dögum og neitar að gefa eftir hervöld sín.

Mörgum gistihúsum lokað

Mörgum gistihúsum á landsbyggðinni verður lokað á næstu árum, vegna strangari krafna um brunavarnir. Margir gististaðir á landinu fengu slæma einkunn hjá brunamálastofnun, í nýútkominni skýrslu hennar.

Hallinn meiri en leyfilegt er

Hallinn á rekstri Ríkisendurskoðunar í fyrra var meiri en leyfilegt er samkvæmt reglum fjármálaráðuneytisins. Sagt var frá því í fréttum Stöðvar 2 í gær að Ríkisendurskoðun fór 43 milljónir króna fram úr fjárlögum í fyrra, á sama tíma og embættið gagnrýndi aðrar ríkisstofnanir fyrir agaleysi í fjármálum.

Saga fjölmiðlamálsins

Það var fyrir réttum þremur mánuðum, 20. apríl í vor, sem frumvarp um eignarhald á fjölmiðlum var kynnt í ríkisstjórn. Daginn eftir las Páll Magnússon  inngang að frétt á Stöð 2 um að forsætisráðherra hafi kynnt í ríkisstjórn lagafrumvarp um eignarhald á fjölmiðlum, þótt skýrsla um sama efni hafi ekki enn verið gerð opinber. Strax þá fór málið í harðan hnút.

Enginn fyrsti bekkur á Patró

Enginn fyrsti bekkur verður í Grunnskóla Vesturbyggðar á Patreksfirði í vetur, því aðeins eitt barn í þeim árgangi er til staðar til að hefja nám. Foreldrar barnsins óskuðu eftir því að að það fengi að hefja nám ári fyrr til þess að vera ekki eitt í bekk og var fallist á það.

Fundi ríkisstjórnar lokið

Davíð Oddsson sagðist hress eftir ríkisstjórnarfund sem haldinn var í morgun. Hann telur að allir séu sammála um það, fyrir utan þá sem eru hrein handbendi aðila útí bæ, að setja verði lög um fjölmiðla þó það verði gert síðar. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir engan standa uppi sem sigurvegari í fjölmiðlamálinu.

Málskotsréttur forseta úr sögunni

Til þess að afnema málskotsrétt forseta Íslands þarf stjórnarskrárbreytingu. Stjórnarskrárbreyting verður ekki gerð nema á tveim þingum og er því ferli sem tekur langan tíma.

Lögin voru hefndarleiðangur

Stjórnarandstaðan gagnrýnir vinnubrögð ríkisstjórnarinnar harðlega og segir greinilegt að hún hafi viðurkennt uppgjöf í fjölmiðlamálinu. Efast er um að heimilt sé að hætta við þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem skýrt sé kveðið á um hana í stjórnarskrá.

Tveir hermenn létust

Tveir ísraelskir hermenn létust og annar særðist þegar ísraelski herinn og Hizbollah skæruliðar skiptust á skotum við landamæri Ísraels og Líbanons í morgun. Skothríðin hófst eftir að leyniskyttur úr Hizbollah-hreyfingunni gerðu árás á varðturn Ísraelshers.

Mótmælendur skutu upp neyðarblysum

Tilkynning barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 12:24 í gær um að neyðarblys hefði sést út af Gróttu á Seltjarnarnesi. Stjórnstöðin óskaði þegar eftir því við strandarstöðvarnar að þær kölluðu út til skipa á svæðinu. Slysavarnarfélagið Landsbjörg var einnig beðið um að senda björgunarbát þangað.

Kínverskur læknir laus úr haldi

Jiang Yanyong, kínverskur læknir sem afhjúpaði HABL-veirusýkinguna í Kína á síðasta ári var látinn laus úr fangelsi í dag eftir sjö vikur í haldi. Jiang, sem er 72 ára, krafðist þess í fjölmiðlum að yfirvöld í Kína færu ofan í saumana á atburðunum sem áttu sér stað á torgi Hins himneska friðar árið 1989 þegar hundruð, jafnvel þúsundir námsmanna voru drepnir.

Arafat stal milljörðum

Fyrrverandi gjaldkeri PLO samtaka Yassers Arafats, segir að leiðtoginn hafi stolið milljörðum króna úr sjóðum þeirra. Jawid al Ghussein var gjaldkeri PLO í tólf ár, en varð að flýja land fyrir tveim árum, eftir að hafa sakað leiðtoga samtakanna, opinberlega, um spillingu.

Tugir fórust í sprengingu

Á fjórða tug manna lét lífið þegar sprenging varð í úkraínskri kolanámu. Björgunarstarfsmenn börðust við mikið bál, banvænar gasgufur og allt að fimmtíu stiga hita þegar þeir reyndu að bjarga nokkrum kolanámumönnum sem var saknað eftir slysið.

Hefði viljað kosningar

Ólafur Hannibalsson, talsmaður Þjóðarhreyfingarinnar, sem barist hefur gegn fjölmiðlalögunum, segist telja að lögin séu ekki á hendi Alþingis og að þjóðin hafi stjórnarskrárvarinn rétt til þess að greiða um þau atkvæði.

Blóðið er úr Sri Ramawati

Niðurstaða hefur nú borist á DNA prófum vegna hvarfs Sri Ramawati. Í ljós hefur komið að blóð sem fannst í íbúð og bíl mannsins sem hefur verið handtekinn vegna hvarfs hennar, er allt úr Sri Ramawati.

Staðfestir að fallið sé frá lögum

Fundi allsherjarnefndar er lokið. Bjarni Benediktsson, formaður nefndarinnar, rakti niðurstöður hans fyrir fréttamönnum, og var þar í fyrsta skipti staðfest opinberlega að fallið yrði frá lögum um takmarkanir á eignarhaldi fjölmiðla.

SH festir kaup á Seachill Ltd.

Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur fest kaup á 80% hlutafjár í breska matvælafyrirtækinu Seachill Ltd. sem sérhæfir sig í framleiðslu kældra sjávarafurða. Kaupverð hlutarins er 4,9 ma.kr. en áætluð velta Seachill er 12 ma.kr. á þessu ári.

Eldur í rafstöðinni slökktur

Eldurinn sem kviknaði í gömlu rafstöðinni í Elliðaárdalnum á 3. tímanum í dag hefur verið slökktur. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á vettvang og tókst fljótlega að ráða niðurlögum eldsins.

Yfir 500 látin

Náttúruhamfarirnar í Suður-Asíu halda áfram að kosta fjölda manns lífið. Sautján létust af völdum eldinga í Bangladess og 49 Indverjar drukknuðu þegar þeir lentu í hringiðu í miklum vatnavöxtum í Assam héraði í noðausturhluta Indlands.

Ljósmyndari umkringdur hermönnum

Ljósmyndari Víkurfrétta var í dag umkringdur af hermönnum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli þar sem hann var við störf sín fyrir utan hliðið að Patterson flugvelli. Hermenn og herlögreglumenn gerðu athugasemdir við störf ljósmyndarans og meinuðu honum að taka myndir af flugvellinum.

Eldur í Elliðaárdal

Allt tiltækt slökkvilið var kallað út að gömlu rafstöðinni í Elliðaárdal rétt fyrir klukkan tvö í gær. Talsvert mikinn reyk lagði frá húsinu sem hýsir enga starfsemi og notað er sem geymsla.

Flugþjónar börðu farþega

Tveir drukknir flugþjónar börðu farþega eftir að hann gerði athugasemd við drykkju þeirra og bað um að vera afgreiddur af allsgáðum flugþjóni.

Erfitt að endurgreiða skattinn

Skattayfirvöld í Singapúr standa frammi fyrir óvenjulegum vanda. Þau vita ekki hvernig þau eiga að koma andvirði tæps milljarðs króna til réttmætra eigenda sinna.

Kúgaði stórfé út úr skólabróður

Ellefu ára fauti neyddi bekkjarfélaga sinn um nokkurra ára skeið til að láta sig hafa pening fyrir tölvuleikjum og sælgæti með hótunum um að beita hann barsmíðum ella. Þegar upp var staðið hafði sá sem lagður var í einelti afhent honum vel yfir hálfa milljón króna.

Hefði átt að kjósa

Þarna er verið að gefa sér að þjóðin hefði hafnað lögunum og ekki síst gengið á rétt þeirra sem hefðu viljað fá tækifæri til þess að sýna samþykki sitt við lögin," segir Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður.

Vilja meiri vinnu fyrir sömu laun

Starfsmenn Bosch í Frakklandi samþykktu í kosningum að lengja vinnuvikuna um eina klukkustund gegn engri launahækkun. Forsvarsmenn Bosch höfðu hótað uppsögnum. Aðeins tvö prósent starfsmanna í verksmiðjum Bosch höfnuðu hugmyndinni.

Landhelgin óvarin

Útlit er fyrir að ekkert íslenskt varðskip gæti landhelgi Íslands sem og öryggis sjómanna á hafi úti næstu tvo til þrjá dagana en eina varðskipið sem er við skyldustörf á hafi úti er á leið í land í vikufrí.

Funda um miðjan ágúst

Það verður ekkert fundað vegna þessa máls fyrr en stjórnarmenn eru komnir til baka úr sumarfríum sínum," segir Hörður Harðarson, stjórnarformaður Mjólkurfélags Reykjavíkur, en margir félagsmenn krefjast rannsóknar á meintum brotum fyrrverandi stjórnarformanns, Kristins Gylfa Jónssonar.

Sjá næstu 50 fréttir