Gíslinn laus úr haldi 20. júlí 2004 00:01
Filippeyski gíslinn, Angelo de la Cruz, 46 ára bílstjóri, er laus úr haldi mannræningja í Írak. Hann var afhentur stjórnarerindrekum í sendiráði Sameinuðu Arabísku furstadæmanna í morgun. Forseti Filippseyja, Gloria Arroyo, talaði við Cruz í síma og segir að hann sé við góða heilsu. Síðustu filippeysku hermennirnir fóru frá Írak í gær vegna hótana um að ella yrði gíslinn tekinn af lífi. Arroyo var harðlega gagnrýnd fyrir að láta undan kröfum mannræningja, en hún varði ákvörðun sína með því að benda á að Cruz væri saklaus faðir átta barna, sem ætti skilið að halda lífi. Á blaðamannafundi í morgun þakkaði hún guði fyrir að málið hefði fengið farsælan endi og sagðist viss um að hún hefði breytt rétt. Bandaríkjastjórn hefur gagnrýnt Filippseyinga harðlega fyrir að hafa gefið eftir í baráttunni við hryðjuverkamenn. Forsetinn sagði hins vegar að hvert mannslíf væri verðmætt og að Cruz væri engin undatekning í þeim efnum og því hefði henni borið skylda til að gera allt sem í hennar valdi stæði til að bjarga honum frá hræðilegri aftöku. Fá ríki hafa viljað tjá sig um málið en Suður Kórea varð til að mynda ekki við kröfu mannræningja um að hverfa frá Írak með þeim afleiðingum að Suður Kóreumaður var tekinn af lífi. Kona Angelo de la Cruz þakkaði í dag mannræningjunum fyrir að láta mann sinn lausan og skaða hann ekki. Hún bíður nú eftir að fá að hitta mann sinn í sendiráði Filippseyja í Jórdaínu.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira