Erlent

Kínverskur læknir laus úr haldi

Jiang Yanyong, kínverskur læknir sem afhjúpaði HABL-veirusýkinguna í Kína á síðasta ári var látinn laus úr fangelsi í dag eftir sjö vikur í haldi. Jiang, sem er 72 ára, krafðist þess í fjölmiðlum að yfirvöld í Kína færu ofan í saumana á atburðunum sem áttu sér stað á torgi Hins himneska friðar árið 1989 þegar hundruð, jafnvel þúsundir námsmanna voru drepnir. Jiang hefur verið fyrirskipað að ræða ekki við fjölmiðla og hefur verið hótað frekari fangelsisvist.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×