Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. júlí 2026 10:30 Ryan Hurst og Ólafur Darri áttu að leika saman í God of War en nú er búið að endurráða í hlutverk hins fyrrnefnda. Getty Leikarinn Ryan Hurst átti að fara með aðalhlutverk Kratosar í sjónvarpsþáttunum God of War sem byggja á samnefndri tölvuleikjaseríu en slasaðist alvarlega á tökustað og þurfti að leggjast undir skurðhnífinn. Af þeim sökum verður hann frá í marga mánuði og ákváðu framleiðendur að endurráða í hlutverkið.
God of War er meðal vinsælustu tölvuleikjasería allra tíma og fjallar um spartneska stríðsmanninn Kratos sem þarf að kljást við ýmsar kynjaverur og guði úr grískri og norrænni goðafræði. Því fögnuðu eflaust margir þegar tilkynnt var um sjónvarpsþætti upp úr leikjunum fyrir nokkrum árum. Í byrjun árs bárust fréttir af leikhópi seríunnar þar sem kom fram að Ryan Hurst, Callum Vinson, Mandy Patinkin og Ólafur Darri Ólafsson væru í aðalhlutverkum. Bandaríski leikarinn Ryan Hurst sem er þekktastur fyrir að leika í mótorhjólaþáttunum Sons of Anarchy (2008-12) hafði lagt mikið á sig fyrir aðalhlutverkið, bætt á sig tæpum tuttugu kílóum af vöðvum og varið mörgum mánuðum á tökustað. Svo gerðist það í júní síðastliðnum að Hurst var að framkvæma áhættuatriði og reif á sér annan tvíhöfðann. Tökur á þáttaröðinni voru samstundis stöðvaðar og hafa skiljanlega ekki enn farið aftur af stað. Ryan Hurst gerði það gott í Sons of Anarchy. Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs hefur Hurst þegar lagst undir skurðhnífinn vegna meiðslanna en ekki liggur fyrir hvað hann verður lengi að jafna sig. Almennt taka slík meiðsli um fjóra til sex mánuði og jafnvel enn lengri tími til að ná fyrri styrk. Af þeim sökum tóku framleiðendur þáttaraðarinnar þá ákvörðun að endurskipa í hlutverk Kratosar og búist við því að tökur hefjist á ný í október. Serían fjallar um feðgana Kratos og Atreus (Vinson) sem halda í ferðalag til að dreifa ösku Faye, móður Atreusar og eiginkonu Kratosar. Á ferðalaginu kynnast þeir feðgar betur og rekast á guði á borð við Óðinn (Patinkin) og Þór (Ólafur Darri). Tökur fyrir seríuna hófust í Vancouver í febrúar og á að taka þar upp tvær þáttaraðir í einu. Þegar var búið að taka upp fjóra þætti þegar Hurst slasaðist en væntanlega verður að skjóta þá upp á nýtt.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Hollywood Tengdar fréttir Laufey fær eigin God of War leik Sony og Santa Monica Studios hafa birt stiklu fyrir nýjan God of War leik, sem fjallar um Laufeyju, eiginkonu Kratorsar, stríðsguðsins gríska. Hún þarf að berjast við nýja stríðsguði og alls konar óvætti á þeirra vegum. 3. júní 2026 10:33 Guðir verða drepnir hjá Amazon Amazon hefur gert samkomulag við Sony og Santa Monica Studio um að framleiða God of War sjónvarpsþætti. Þættirnir verða sýndir á streymisveitunni Prime Video og munu byggja á hinni gífurlega vinsælu leikjaseríu um gríska stríðsguðinn Kratos. 14. desember 2022 19:39 Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Fleiri fréttir Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Sjá meira
Laufey fær eigin God of War leik Sony og Santa Monica Studios hafa birt stiklu fyrir nýjan God of War leik, sem fjallar um Laufeyju, eiginkonu Kratorsar, stríðsguðsins gríska. Hún þarf að berjast við nýja stríðsguði og alls konar óvætti á þeirra vegum. 3. júní 2026 10:33
Guðir verða drepnir hjá Amazon Amazon hefur gert samkomulag við Sony og Santa Monica Studio um að framleiða God of War sjónvarpsþætti. Þættirnir verða sýndir á streymisveitunni Prime Video og munu byggja á hinni gífurlega vinsælu leikjaseríu um gríska stríðsguðinn Kratos. 14. desember 2022 19:39