Upp­gjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Ís­lands­meistarar þriðja árið í röð

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Líf Joostdóttir van Bemmel fagnar sigurmarkinu sínu í kvöld.
Líf Joostdóttir van Bemmel fagnar sigurmarkinu sínu í kvöld. Vísir/Anton Brink

Hin nítján ára gamla Líf Joostdóttir van Bemmel tryggði Breiðabliki 21. Íslandsmeistaratitilinn í kvennafótboltanum í kvöld þegar hún skoraði sigurmarkið í Garðabænum.

Breiðablik vann 1-0 sigur á Stjörnunni í síðasta leik næstsíðustu umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Sigurinn færir Blikum sex stiga forskot á FH á toppnum þegar aðeins ein umferð er eftir. Blikakonur nýttu sér óvænt tap FH um helgina og því verður ekkert af úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn á föstudagskvöldið kemur.

Breiðablik byrjaði leikinn betur og voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.

Líf kom gestunum yfir á 24. mínútu eftir frábært spil. Agla María Albertsdóttir sendi boltann inn fyrir vörn Stjörnunnar á Þórdísi Elvu Ágústsdóttur sem kom boltanum fyrir markið þar sem Líf mætti á fjærstöngina og kom boltanum í netið.

Stjörnukonur fengu ágætis færi en skorti gæði á síðasta þriðjungi vallarins. Þá var Herdís Halla Guðbjartsdóttir örugg í marki Blika þegar á reyndi.

Leikurinn var nokkuð jafn í síðari hálfleik og fengu bæði lið marktækifæri en fleiri urðu mörkin ekki.

Blikar fögnuðu titlinum að leik loknum.Vísir/Anton Brink

Atvik leiksins

Aðdragandinn að marki Lífar var frábær, virkilega fallegt samspil hjá Blikum.

Þórdís Elva, Hrafnhildur Ása og Líf hlaupa í átt að liðsfélögum sínum til að fagna marki Lífar.Vísir/Anton Brink

Stjörnur og skúrkar

Líf skoraði eina mark leiksins og tryggði liðinu þar með þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð. Líf var spræk í sóknarleik Blika í dag og skapaði hættu við mark Stjörnunnar.

Stemning og umgjörð

Frábær mæting hjá stuðningsmönnum Breiðabliks í dag. Það var sungið og trallað nánast allan leikinn. Virkilega gaman að sjá!

Blikar fögnuðu vel með stúkunni eftir leik.Vísir/Anton Brink

Dómarar

Gunnar Freyr Róbertsson var á flautunni í dag. Honum til aðstoðar voru þeir Kári Mímisson og Óliver Thanh Tung Vú.

Engin vafaatriði en Gunnar var heldur spjaldaglaður.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira