Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 16. október 2026 19:50 Grindavík/Njarðvík er búið að eiga flott tímabil. Guðmundur/Vísir Grindavík/Njarðvík tók á móti ÍBV á gervigrasinu við Nettó höllina í Bestu deild kvenna í dag. Eftir tíðindarlítinn fyrri hálfleik opnaðist leikurinn í þeim seinni og Grindavík/Njarðvík hafði betur 2-1. Leikurinn fór hægt af stað og bæði lið þreifuðu fyrir sér og reyndu að finna opnanir. ÍBV átti nokkur skot í fyrri hálfleiknum en ekkert sem fór á markið en voru þó að ógna þegar þær fengu færi á því. Þétt vörn Grindavík/Njarðvík stóð sína plikt. Grindavík/Njarðvík átti flotta spilkafla og voru að koma sér í hættulegar stöður en náðu ekki að klára sínar sóknir með skoti. Það var ekki mikið um opin marktækifæri og staðan var markalaus þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik. Það dró til tíðinda á 49. mínútu leiksins þegar Grindavík/Njarðvík sótti upp hægri vænginn og Ása Björg Einarsdóttir átti þá góða sendingingu inn á teig sem Tinna Hrönn Einarsdóttir stýrði í netið og kom Grindavík/Njarðvík yfir strax í upphafi síðari hálfleiks. ÍBV reyndi að finna leiðir í gegnum þétta vörn Grindavík/Njarðvík og átti Kristín Klara Óskarsdóttir meðal annars tilraun sem fór í þverslánna og yfir markið. Grindavík/Njarðvík bætti við sínu öðru marki þegar 90 mínútur voru að slá á klukkuna en þá átti Birta Birgisdóttir flotta sendingu sem Jessica Jean Hinton missti yfir sig hljóp svo á Emersen Jennings þegar hún ætlaði að hlaupa til baka og boltinn barst til Elísu Birtu Káradóttur sem skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild. ÍBV náði þó inn sárabótamarki í uppbótartíma þegar Ágústa María Valtýrsdóttir skilaði góðri fyrirgjöf yfir marklínuna fyrir ÍBV en nær komust þær ekki og Grindavík/Njarðvík fór með öflugan 2-1 sigur af hólmi á gervigrasinu við Nettó höllina. Atvik leiksins Annað mark Grindavík/Njarðvík sem reyndist á endanum sigurmark leiksins. Heppnisstimpill yfir þessu hjá Grindavík/Njarðvík og kom á fullkomnum tíma fyrir þær en ÍBV hafði verið að hóta jöfnunarmarki stuttu fyrr. Stjörnur og skúrkar Tinna Hrönn Einarsdóttir skoraði gott mark fyrir Grindavík/Njarðvík sem opnaði leikinn aðeins. Hannah McLaughlin var eins og klettur aftast og á skilið kall hérna líka. Hjá ÍBV var Olga Sevcova hættuleg þegar hún komst á boltann. Kristín Klara Óskarsdóttir átti hættulegar tilraunir líka. DómararnirGuðmundur Páll Friðbertsson sá um dómgæsluna í dag og honum til aðstoðar voru Bryngeir Valdimarsson og Nour Natan Ninir.Allt í lagi dómgæsla er kannski bara besta svarið við þessu hjá teyminu í dag. ÍBV hefði líklega viljað fá víti í stöðunni 1-0 og höfðu mögulega eitthvað til síns máls þar. Allt í lagi ekki gott.Stemning og umgjörðLeikurinn fór fram á gervigrasinu hjá Nettó höllinni. Umgjörðin þar er ekki með besta móti ef við orðum það pent. Völlurinn er þó rennisléttur á gervigrasi í stað grasins á JBÓ sem getur verið erfitt á þessum árstíma svo það eru ekki bara mínusar. Lítið fyrir bæði lið að keppa um þannig séð svo stemningin kannski eftir því.ViðtölGylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/NjarðvíkGuðmundur/Vísir„Gerist ekkert alltaf að við náum að klára“„Ég er bara sáttur með leikinn“ sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík eftir sigurinn í dag.„Mér fannst við spila þennan leik frekar vel heilt yfir. Við áttum mörg góð augnablik í dag“„Í fyrri hálfleik fannst mér við samt eiga of mörg augnablik þar sem voru bara ekki nógu mikil gæði í því sem við vorum að gera og mér fannst við díla bara ágætlega við það og komum af krafti inn í seinni hálfleikinn og skorum mark og mér fannst við klárlega bara verðskulda þennan sigur“Fyrri hálfleikurinn þótti ekki mikið fyrir augað en leikurinn opnaðist í seinni hálfleik.„Við komumst yfir og þá þarf ÍBV að fara stíga framar á völlinn og þeim líður ekki vel að pressa hátt. Þeim líður vel á meðan leikirnir eru jafnir eða þær eru yfir en um leið og þær lenda undir þá þurfa þær að fara út úr planinu sem þær eru bestar í og vanastar“„Þá opnast leikurinn og við hefðum geta nýtt það ennþá betur fannst mér en heilt yfir þá er ég sáttur með frammistöðuna í dag, margt gott til að byggja á“ÍBV var að hóta jöfnunarmarkinu áður en Grindavík/Njarðvík skoraði sitt annað mark.„Það gerist ekkert alltaf að við náum að klára, oft er þetta þannig að við erum svolítið ströggla með að drepa leiki þegar þeir fara að opnast“„Við hefðum að mínu mati átt að vera búnar að klára þetta miklu fyrr miðað við stöðurnar sem voru í boði en mér fannst við ekki ná að skapa okkur nógu mörg færi út úr því til þess að ná að klára“„Ég man ekki hvernig þetta kemur upp en það virðist vera eins og einhver renni eða hlaupi á leikmann hjá okkur eða eitthvað og Elísa kemst bara alein í gegn og skorar að ég held sitt fyrsta mark í Bestu deild sem er bara flott hjá henni og við óskum henni til hamingju með það“ sagði Gylfi Tryggvason.ÍBV hafði ekki tök á því að koma í viðtöl þar sem þær þurftu að drífa sig til að ná Herjólfi sem beið eftir þeim í Landeyjarhöfn. Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík ÍBV