Upp­gjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyja­menn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði

Kolbeinn Kristinsson skrifar
Omar Sowe ætlar að spila áfram í Bestu deildinni og var öflugur fyrir ÍBV í dag.
Omar Sowe ætlar að spila áfram í Bestu deildinni og var öflugur fyrir ÍBV í dag. vísir/Anton

ÍBV vann 3-1 sigur á FH á Hásteinsvelli í 26. umferð Bestu deildar karla, eða fjórðu umferð neðri hlutans eftir skiptingu. Omar Sowe kom heimamönnum yfir snemma leiks áður en Viggó Valgeirsson tvöfaldaði forskotið í síðari hálfleik. Kjartan Kári Halldórsson minnkaði muninn fyrir FH en Arnór Ingi Kristinsson innsiglaði sigur Eyjamanna skömmu síðar. 

ÍBV lék manni færra frá 37. mínútu eftir að Bjarki Björn Gunnarsson fékk tvö gul spjöld í röð og þar með rautt.

Omar Sowe braut ísinn og magnaðar þrjár mínútur

Heimamenn byrjuðu vel og komust yfir strax á 11. mínútu. Eftir laglegt spil á vallarhelmingi FH barst boltinn frá hægri með jörðinni inn í vítateig þar sem Omar Sowe tók við og skoraði með hægri fæti.

Á 35. mínútu var ÍBV síðan hársbreidd frá því að tvöfalda forystuna í hreint ótrúlegri sókn. Omar slapp í gegn, þótt varnarmaður FH væri honum í humátt á eftir, og skaut í stöngina. Heiðmar hirti frákastið fyrir framan galopið mark en tókst einhvern veginn að skjóta í slána.

Aðeins tveimur mínútum síðar breyttist staðan hjá heimamönnum verulega. Bjarki Björn fékk tvö gul spjöld með nánast engu millibili á 37. mínútu og ÍBV þurfti því að leika manni færri það sem eftir lifði leiks.

Viggó tvöfaldaði forskotið og Arnór lokaði leiknum

Þrátt fyrir að vera manni færri tókst ÍBV að bæta við marki á 73. mínútu. Eyjamenn spiluðu vel saman við miðlínuna áður en Omar var sendur í gegn hægra megin. Hann renndi boltanum yfir á Viggó Valgeirsson sem kom á ferðinni vinstra megin og skoraði fram hjá Jökli í marki FH.

FH svaraði sex mínútum síðar. Kjartan Kári Halldórsson skoraði beint úr aukaspyrnu með glæsilegri spyrnu yfir varnarvegginn og í hornið. Staðan því 2-1 og aftur komin spenna í leikinn.

Sú spenna entist þó ekki lengi. Á 83. mínútu fékk Arnór Ingi Kristinsson boltann hægra megin í vítateignum og skoraði þriðja mark ÍBV. Jökull kom engum vörnum við og tveggja marka forskot heimamanna var endurreist.

Fleiri urðu mörkin ekki og Eyjamenn fögnuðu sínum fyrsta sigri síðan 4. júlí eða í rúma þrjá mánuði - og það þrátt fyrir að hafa leikið manni færri í heilan hálfleik og gott betur.

Atvik leiksins: 

Þriggja mínútna kafli í fyrri hálfleik stendur upp úr. ÍBV átti fyrst skot í stöng og síðan slá í sömu sókninni rétt áður en Bjarki Björn, leikmaður ÍBV, fékk tvö gul spjöld með nánast engu millibili á 37. mínútu. Alvöru senur á Hásteinsvelli.

Stjörnur og skúrkar: 

Omar Sowe var gríðarlega drjúgur fyrir heimamenn, skoraði tvö mörk og lagði annað upp. Maður leiksins án efa. Viggó kom inn af bekknum og skoraði gott mark og Ari í markinu var sömuleiðis traustur og greip vel inn í þegar á þurfti að halda.

Hjá FH var Kjartan Kári seigur að vanda og líklega óheppinn að skora ekki meira en hann gerði. Hann átti meðal annars skot bæði í stöng og þverslá. Annars voru ekki margir FH-ingar á sínum besta degi.

Skúrkur leiksins fer á Bjarka Björn fyrir að láta senda sig í sturtu snemma og skilja liðsfélaga sína eftir manni færri í rúmar 50 mínútur. Það kom þó ekki að sök að þessu sinni þar sem ÍBV hélt út og tók stigin þrjú.

Dómarinn: 

Gunnar Oddur og hans teymi áttu góðan leik. Dómgæslan var traust heilt yfir en leikurinn innihélt alveg talsverð læti og baráttu, sérstaklega í fyrri hálfleik. Fagmannleg og góð frammistaða. Einkunn: 8,0

Stemning og umgjörð: 

Þetta var síðasti heimaleikur karlaliðs ÍBV í efstu deild í bili, hið minnsta. Töluvert rok var í Vestmannaeyjum og napurt um að litast, en vallarstæðið sjálft er á heimsmælikvarða eins og alkunna er. Fáir áhorfendur voru á vellinum hins vegar og stemningin bar þess nokkur merki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira