Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Stefán Árni Pálsson skrifar 5. september 2026 09:02 Sveinn Gísli ætlar sér að vera mættur aftur út á völl sem fyrst. vísir/sigurjón Sveinn Gísli Þorkelsson handleggsbrotnaði mjög illa í leik KR og Víkinga á Meistaravöllum í vikunni. Um var að ræða mjög ljótt opið beinbrot. Bein Sveins stóð einfaldlega út úr upphandleggnum á honum og því fylgdi töluverð blæðing. Sveinn gekkst undir aðgerð á miðvikudaginn og verður töluvert frá keppni vegna meiðslanna. Við hittum Svein í Víkinni.
Í innslaginu hér að neðan verður brot Sveins sýnt. Við vörum viðkvæma við því að horfa á myndefnið er fólk er viðkvæmt. Klippa: Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ „Ég fer bara upp í skallaeinvígi og hérna og er að detta aftur fyrir mig á bakið og set hendurnar undir mig eins og maður kannski gerir náttúrulega og hendin lendir á milli og hún fer öll í hakk,“ segir Sveinn Gísli í samtali við íþróttadeild. „Ég hugsaði fyrst að ég væri nú eiginlega bara svekktur yfir því að ég væri ekki að fara að spila meira í leiknum. Ég horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik, gott gat og blóð spýtast út með hjartslættinum og svo leit ég í burtu.“ Athygli vakti strax á vellinum að Oliveri Ekroth, samherja hans, var vægast sagt brugðið þegar hann sá útganginn á Sveini. Menn stigu strax skref til baka „Það fyrsta sem ég horfi á er náttúrulega höndin á mér og svo sé ég að menn kannski taka skref til baka og eru sjokkeraðir. Ég sá bara um leið og ég sá höndina á mér að ég vissi að þetta væri frekar alvarlegt.“ Sveinn segist ekki hafa verið mikið verkjaður strax á eftir enda gekk hann sjálfur af vellinum. Gifsið sem Sveinn er með er heljarinnar stórt. vísir/sigurjón „Á meðan sjúkraþjálfarinn kemur inn á og heldur utan um mig með dálítinn þrýsting á þetta, þá er þetta bara svona, maður veit af þessu, en svo kemur sársaukinn klukkutíma eftir á eða eitthvað í sjúkrabílnum. Ég fékk einhver verkjalyf og eitthvað þannig en svo kom verkurinn heldur betur daginn eftir.“ Hann segist ekki finna fyrir miklu í dag. Þrýstingur og bólga „Ég er orðinn skárri en síðustu tvær nætur voru svona helvíti slæmar. Maður getur tekið einhver verkjalyf og eitthvað en það er þrýstingur og bólga í þessu. Um leið og fyrstu dagarnir eru búnir þá held ég að þetta verði nú bara allt í lagi, sko.“ Sveinn fór í aðgerð strax daginn eftir. „Það voru settar tvær plötur og skrúfur til að halda því saman. Það kom bara mjög vel út, segja þeir. Ég ætti að losna við gifsið eftir tvær vikur og þarf að passa upp á hendina á mér í sex vikur, þannig að við þurfum bara að sjá hvernig framhaldið verður. Vonandi verð ég bara fullur í fjöri eftir sex vikur, en við sjáum hvað gerist.“ Víkingar hafa misst marga lykilleikmenn í meiðsli á tímabilinu. Gerir Sveinn ráð fyrir því að spila annan leik á tímabilinu? „Ég ætla kannski ekki að segja það en ég ætla að reyna það. Ég meina, af hverju ekki? Það þarf einhver annar að banna mér það. Ég ætla ekki að fara að banna sjálfum mér það.“ Meiðsli Víkinga á þessu tímabili hafa verið lygilega mikil en þeir Tarik Ibrahimagic, Elías Már Ómarsson, Óskar Borgþórsson og núna Sveinn hafa allir meiðst alvarlega. „Þess vegna erum við með breiðan hóp, eins og ég segi alltaf. Það er bara mikilvægast í þessu en við erum alveg búnir að vera óheppnir með meiðsli, það er bara þannig.“
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Fleiri fréttir ÍBV - Fram | Nær Fram að losna úr fallbaráttunni? Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjá meira