Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Andri Broddason skrifar 24. ágúst 2026 17:46 Ollie Watkins hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Aston Villa síðan hann gekk til félagsins árið 2020. Alessandro Sabattini/Getty Images Ýmsar getgátur eru um framtíð Ollie Watkins hjá Aston Villa en hann var ekki í leikmannahóp liðsins í fyrsta deildarleiknum. Al-Hilal í Sádí-Arabíu hefur mikinn áhuga á enska framherjanum.
Í viðtali eftir fyrsta deildarleikinn þar sem Aston Villa steinlá gegn Brighton á útivelli var Unai Emery, þjálfari liðsins, spurður út í stöðu Ollie Watkings og hvort hann yrði áfram hjá félaginu. Emery vildi ekkert gefa upp og sagði að hann þyrfti að svara fyrir sjálfan sig. Svo virðist sem Ollie Watkins hafi tjáð stjórnendum Aston Villa að hann vilji fara frá félaginu. Sádí-arabíska félagið Al-Hilal hefur gert fjögur tilboð í Watkins en Villa hefur hafnað þeim öllum. Þrátt fyrir það virðist félagið enn hafa áhuga á leikmanninum og er ekki reiðubúið að gefast upp. Eftir að Watkins snéri aftur eftir heimsmeistaramótið í fótbolta hefur hann æft einn. Svo virðist sem Watkins vilji fara frá félaginu en hann hefur ekkert tjáð sig við almenning um málið. Ollie Watkins er 30 ára gamall og hefur verið leikmaður Aston Villa síðan árið 2020. Hann hefur leikið 280 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 108 mörk og verið einn mikilvægasti hlekkur liðsins sem vann fyrsta Evrópubikar félagsins í 30 ár. Það er súrt fyrir stjórn Aston Villa að missa svona mikilvægan leikmann á þennan hátt enda hefur Watkins verið einn mikilvægasti leikmaður liðsins. Einnig er þetta sárt fyrir Emery þar sem auðvelt og þægilegt er að vinna með Watkins.
Enski boltinn Aston Villa FC Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira